Þjóðviljinn - 17.11.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 17.11.1979, Blaðsíða 3
Laugardagur 17. ndvember 1979 'ÞJÓDVILJINN — SIÐA 3 „Aðeins tvö verk stæði lögleg” segir* Halldór Hafsteinsson, sem hefur unnið við bílamálun í 20 ár, en verður nú að hætta sökum heilsubrests „Ég tel aö þaö séu aöeins tvö verkstæöi á Reykjavlkursvæöinu sem geta talist lögleg, en sprautuverkstæöin eru yfir 20 talsins. Sjálfur hef ég unniö viö þetta I yfir 20 ár og neyöist ná til aö hætta vegna þess aö ég þoli þessi efni ekki lengur. Læknirinn minn hefur tilkynnt til Land- læknis aö ég sé meö atvinnusják- dóm.” sagöi Halldór Hafsteins- son, fyrrv. formaöur Félags bila- málara er viö ræddum viö hann um aöstööu bilamálara á vinnu- stööum þeirra. Sem kunnugt er eru mörg sprautuverkstæöin i gömluog lélegu húsnæöi og sagöi Halldór aö viöa viögengist ótrá- legur sóöaskapur. „Þaöerhart þegar menn missa heilsuna vegna sóöaskapar og hiröuleysis viö aö snyrta bilana og sjá um aö þeir liti vel út. Ég get ekki séö aö nokkrar raunhæf- ar breytingar hafi oröiö á þessum árum sem ég hef stundaö þetta, nemahvaösffelltbætastviöný og hættulegri efm. Þegarég tók viö sem formaöur i Félagi bilamálara haföi ég aldrei heyrt um reglugerO um sprautumálun en fann hana af rælni. Ég benti öryggiseftirlitinu á hana en ég get ekki séö aö þeir hafi gert mikiö. Þeir koma á vinnustaöinn og benda mönnum á eitt og annaö, en svo gerist ekki neitt. Viöa eru ekki einu sinni not- aöar grimur, þótt þær séu til.” sagöi Halldór. Hann kvaöst ná veröa aö hætta i þessu starfi fyrir fullt og allt og fær ekki neinar bætur. „Éghef alla tiö unniö viö ófull- nægjandi aöstæöur i þessu fagi, og sumstaöar var ekki einu sinni loftræsting.” sagöi Halldór aö iokum. þs , Jafnvel nýju verkstasðin upp- fylla ekki lágmarksskilyrði” segir Hermann Jónasson, form. Fél. bílamálara „Þess eru þvi miöur mörg dæmiaö menn hafi oröiö aö hætta I þessustarfi, vegna þess aö þeir hafa ekki þolaö efnin sem viö vinnum meö. Ég veit þó ekki til aö þaö hafi veriö almennt viöur- kennt sem atvinnusjákdóm- ur.þdtt menn hafi veriö orönir illa farnir. Þaö er allt of litiö eftirlit meö notkun ýmissa nýrra efna og nánast ekkert eftiriit meö aöstööu á þessum vinnustööum.” sagöi Hermann Jóhannesson, formaöur Félags bflamálara. Félagiö hefur reynt aö beita sér fyrir betri aö- stööu og meira eftiriiti viö blla- málun, en litiö oröiö ágengt. „Mikiö af nýjum verkstæöum uppfylla hvergi lágmarksskilyröi varöandi loftræstingu og aöra aö- stööu, hvaö þá þau eldri. Viö höf- um reynt aö fá skýringu á eitur- stöölunum á umbúöum á ýmsum nýjum lakktegundum og viö telj- um aö ekki sé nærri nógu vel litiö eftir á þessum verkstæöum.” sagöi Hermann. „Hvaöa efni eru hættulegust?” „Þaö má segja aö öll þessi nýju geríiefni séu hættuleg, bæöi acrlylökkin og lökk meö heröi. Náttúrefnineru sáralitiö notuö nú oröiö, en þau voru mun hættu- minni. Ahrifin af þessum efnum koma fram I höfuöverk og hósta. Þaö er mjög mikils viröi aö menn noti góöar grimur og þær eiga aö vera til á öllum verkstæöum. Viö höfum komiö meö ýmsar ábend- ingar til öryggis eftirlitsins en þeim hefur ekki veriö sinnt nema aö takmörkuöu leyti.” sagöi Her- mann ennfremur. A þessu verkstæöi var mikiö óloft og aöeins ein lltii vifta I salnum, hán sést á litlu innfelldu myndinni. (Ljósm. — eik) „Eftirlit með notkun efna í iðnaði ófull- komið” segir Eyjólfur Sæmundsson, efnaverkfrædingur „Eftirlit meö notkun efna á vinnustööum er hvergi nægjan- legt og engar reglugeröir til um notkun á einstökum efnum i iön- aöi. Eiturefnanefnd fjaliar um notkun á hættulegum efnum og hafa ná veriö geröar tillögur meö reglugerö.” sagöi Eyjólfur Sæ- mundsson efnaverkfræöingur hjá Heilbrigöiseftirliti Rfkisins er viö ræddum viö hann um eftirlit meö notkun ýmissa efna I iönaöi. Tilefniö var grein i danska Eyjólfur Sæmundsson: Vinnu- staöaeftirlit ófullkomiö blaöinu Iníormation s.l. þriöju- dag þar sem fram kemur aö Sam- band byggingariönaöarins þar I landi hefur fariö fram a aö at- vinnumálaráöherra Dana banni notkun epoxyeína. Segir aö nýjar rannsóknir staöfesti fyrri grun um aö epoxyefni geti veriö krabbameinsvaldar. I bréfi sem ráöherranum var ritaö af þessu tilefni er hann og Vinnustaöaeft- irlitiö hvatt til aö bregöast skjótt viö þessum nýju upplýsingum og biöa ekki eftir aö áþreifanlegar sannanir fyrir þvi aö efni þessi séu krabbameinsvaldar, komi i ljós. Eyjólfur sagöi aö epoxyefni væru allmikiö notuö hér á iandi i allskyns lökk og heföi hann ekki séö þá nýju bandarisku rannsókn sem vitnaö er til i greininni. „Þaö varmikiöfjaUaöum þessi efni á ráöstefnu sem ég sat i Bret- landi fyrir tveimur árum og enn san komiöerhefurekki veriö tal- iö sannaö aö epoxyefni væru krabbameinsvaldandi, en hins vegar hafa margir ofnæmi fyrir þeim. Fljótfærnislegt bann gæti þýtt aö önnur og minna rannsök- uö efni kæmu I staöinn og yfir- tækju markaöinn og viö fengjum þannig nýtt vandamál aö glima viö. Hins vegar höfum viö mikinn áhuga á aö koma upp skrá yfir allar nýjar og viöurkenndar rannsóknir sem gerðar eru á efn- um sem notuð eru i iönaöi.” „Hvaö meö vinnustaöaeftirlit á lslandi almennt. Er þaö nægilega mikiö?” „Nei, þvi fer fjarri. Raunhæft vinnustaöaeftirlit meö notkv.n hættulegra efna er ófullkomiö og mikiö starf óunniö á þvi sviöi. Viö bindum þvf miklar vonir viö frumvarpsem lagt var fyrir þing i fyrra um eftirlit á vinnustööum. Þar er gert ráö fyrir aö ölhþessi mál fari undir einn hatt, en i dag heyra þau undir heilbrigöisnefnd- ir á hverjum staö og Oryggiseftir- lit Rikisins.” sagöi Eyjólfur aö lokum. þs Baráttuf undur ABR í Háskólabíó 29. nóverraber Stuttar hvatningaræður. Þjóökunnir listamenn flytja tónlist og söng, leiklist og Ijód. Dagskráin verður kynnt ýtarlega næstu daga.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.