Þjóðviljinn - 17.11.1979, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1979
AF UPPSAFNAÐRI ÓREIÐU
Þær f réttir bárust hingað til höf uðstaðarins
norðan af Siglufirði um daginn, að bókhaldi
bæjarins hefði ekki verið lokað i þrjátíu ár,
eða eins og segir í Dagblaðinu orðrétt: „Bók-
hald bæjarins hefur verið með nokkuð sér-
stökum hætti og ekki lokað í 30 ár".
Þegar ég var að stúdera þjóðhagfræði við
Hamborgarháskóla, sögðu sprenglærðir
prófessorar þeirrar stofnunar mér það, að
vaninn væri að færa sjóðbækur daglega, loka
dagbókum ársfjórðungslega, ef þær væru
lausblaða, en annars að gera upp einu sinni á
ári og loka dagbókinni,væri hún í bandi.
En þetta eru sjálfsagt erlendar venjur og
eiga greinilega ekki við hér á íslandi. Sinn er
siður í landi hverju.
Bæjarstjórinn á Sigluf irði segir orðrétt í við-
tali við Dagblaðið 8. nóvember: „Frá ómuna-
tíð hefur verið notaður opinn sjóður á Siglu-
firði".
Mér dettur í hug hvort eitthvert samband
gæti verið milli þess að notaður hefur verið
opinn sjóður f rá ómunatíð á Sigló, og þess að í
hann vantar 3.6 miljónir króna, því hvað segir
ekki í kvæðinu góða: „Gakktu í sjóðinn og
sæktu þér hnef a"? Hér á skáldið sennilega við
bæjarsjóðinn á Siglufirði, því augljóst er að
ekki er hægt að sækja sér „hnefa" í lokaða
sjóði.
Annars segir bæjarstjórinn á öðrum stað í
viðtalinu við Dagblaðið orðrétt: „Það liggur
ekki Ijóst fyrir af hverju þessa peninga vant-
ar, ..." — og svosíðar: „Þetta er það lítil upp-
hæð að ekki er talið svara kostnaði að endur-
skoða langt aftur í tímann og enda ekki hægt".
Nú legg ég til að gerð verði gangskör að því
að f inna út „af hverju þessa peninga vantar",
en fram kemur í viðtalinu að, eins og segir
orðrétt: „rætur þess gætu Iegið25—30 ár af tur
í tímann".
En þá er það að þessi uggvænlega spurning
vaknar: Getur verið að af einhverjum ó-
skiljanlegum ástæðum hafi horfið milli þrjár
og fjórar miljónir úr kassanum fyrir 25—30
árum?
Ég segi nú bara, það hefur sko ekki verið
neinn smáhnefi í þá daga, því á núgildandi
peningaverðlagi er óhætt að segja að fyrir
þrjátíu árum haf i slfk upphæð verið milli þrjú-
og fjögurhundruð miljónir. Nei, vei slíkri
hugsun. Við skulum bara vona að svo langt sé
ekki um liðið síðan þessa aura fór að vanta í
kassann.
Annars er það auðvitað rétt, sem bæjar-
stjórinn segir, að hér er áreiðanlega ekki um
neins konar misferli að ræða, heldur er hér á
ferðinni, eins og segir orðrétt: „uppsöfnuð
óreiða". Og hér er komið að því sem er merg-
urinn málsins. Ástæðan til þess að ég er að
hafa orð á þessu máli er sist sú, að ég hafi
minnsta áhuga á því hvort opinberir kassar
eru opnir eða lokaðir. Ég f éll bara gersamlega
fyrir hugtakinu „uppsöfnuð óreiða". Þessi
uppsaf naða óreiða er nef nilega á hverju strái.
Ég þarf ekki annað en að líta yf ir skrifborðið
mitt. Drottinn minn dýri, hér er sannarlega
uppsöfnuð óreiða. Og sannleikurinn er raunar
sá, aðef þaðætti að vera refsivert á Islandi að
verða valdur að uppsafnaðri óreiðu, þá væri
lunginn af þjóðinni kominn undir lás og slá.
Nei, þá sem verða valdir að uppsafnaðri ó-
reiðu á tvímælalaust að sýkna, því uppsöfnuð
óreiða er ástríðuglæpur (crime passionelle) á
íslandi.
Hins vegar hefur sjóðnum á Siglufirði, sem
hefur verið „opinn frá ómunatíð", nú verið
lokað og tekið upp svokallað „Petti cass"
kerfi, og eins og segir í greininni í Dagblaðinu
orðrétt: „Þá er allttalið í sjóði og stemmt af
og lokað". Petti cass þýðir sjálfsagt smápen-
ingar og mun kerfið vera í því fólgið að hafa
bara smáaurana í kassanum, tiJ að f reistingar
minnki, en borga út umtalsverðar upphæðir
úr tékkheftum. Sem sagt Petti Cass kerf ið. Og
um Petti-kassann segir bæjarstjórinn orðrétt í
viðtalinu við Dagblaðið: „Hann er gerður upp
á hverju kvöldi".
Annars er auðvitað hægt að leysa þessi
vandamál lítilla sjóða í dreif býlinu í eitt skipti
fyrir öll, með því að þeir taki í gagnið Petti
Cass kerf ið og fái sér Petti-kassa, eða eins og
segir í auglýsingunni frá Petti Cass:
Hverfur oft úr kassa hnefi.
Kassana því þarf að passa.
Ráð við þessari raun ég hefi:
Reynið nýjan Petti-kassa.
Flosi.
j Hrafn Sæmundsson, prentari:
jTími meinlausra
ihægri stjórna liðinn
IÞa6 er dálítiö skrýtiB að hafa
á tilfinningunni aö vera byrjaö-
* ur aö skrifa grein I vitlaust blaö
Iog aö þessi grein veröi visast
lesin af þvl fólki sem slst skyldi.
Engu aö síður finnst mér þetta
■ verasil staöa sem ég stend nú i,
Ieöa réttara sagt sit i hðrna viö
ritvélina.
Éghef þaö nefnilega á tilfinn-
■ ingunni aö margir, jafnvel flest-
| ir, sem þetta lesa, hafi hugsaö
* sér aö kjósa Alþýöubandalagiö
núna i kosningunum. Og viö
sllkt fólk langarmig ekki aö tala
I þessum mánuöi.
IEg neita þvi hins vegar ekki, aö
þaö heföi veriö gaman aö vera á
fundi hjá Sjálfstæöisflokknum
, og mega tala viö þaö fdlk sem
Iætlar aö kjósa þann flokk, eöa
aö skrifa þessa grein I Morgun-
blaöiö. En ég hef ekki trú á þvi
, aö ég yröi aufúsugestur á þess-
Ium stöðum.
Eg held aö þaö sé dálitiö aö
gerastnúnasemekkihefur áður
, gerst I þjóöfélaginu okkar, alla-
Ivega ekki sföustu áratugina.
Þessi setning minnir auövitað
dálitiö á söguna „Úlfur, úlfur”.
, Þaö er vlst ekki alveg nýtt aö
Imenn segi svona véfréttarlegar
setningar I kosningabaráttu.
Ég ætla nú samt aö fullyröa
, aö Ulfurinn sé raunverulega til
Istaðar núna og ætla aö
rökstyöja þaö með örfáum
oröum.
, Ég sem þessar llnur skrifa,
Iverð vfst aö teljast tiltölulega
ungur maöur. Ég hef þessvegna
ekki af eigin raun fylgst meö
, þróun stjórnmála nema 2-3 ára-
| tugi. Þegar ég rifja þetta tlma-
bil tpp núna, þá get ég þó ekki
betur séð en aö þennan tíma all-
an hafi stefnt i rétta átt i þjóö-
félaginu. Meö réttri átt á ég viö
þaö aö þjóöfélagiö hefur smám
saman hnikast til meira réttlæt-
is og jafnaðar, þrátt fyrir allt.
Auövitaö hafa komiö hret inn
á milli. En þrátt fyrir þaö hefur
alltaf veriö á ferðinni
tilhneiging til að ná svolltiö
meiri mannréttindum og
svolitiö meiri jöfnuði.
Meira að segja I síöustu ríkis-
stjdrn, sem ég sá einhversstað-
ar á prenti aö verið heföi vond,
og sem átti svo sannarlega við
innri og ytri vanda aö glíma, aö
þessi rflcisstjórn geröi ýmsa
hluti sem stefndu i rétta átt i
félagslegum málefnum. Og
miklu stærri mál voru I burðar-
liönum þegar kratar stukku alltl
einu stjórnborösmegin Ut úr
skipinu.
A þeim áratugum, sem ég
nefndi, þáhafaskipstá hægri og
vinstri stjórnir. Miöaö viö þann
mælikvaröa sem áöur er notaö-
ur, hafa hægri stjórnirnar veriö
heldur vondar stjórnir. Þær
hafa reytt þaö sem þær gátu af
árangri vinstri stjórnanna og af
þeim árangri sem verkalýös-
hreyfingin haföi náö i kjarabar-
áttunni. Oft hefur ekkert staöiö
eftir nema þaö sem náöst hefur
gegnum pólitísku baráttuna og
njörfað hefur veriö niöur meö
löggjöf. Ogmeiraað segja hefur
hægri stjórnunum stundum tek-
ist aö höggva af þessu lika.
En þrátt fyrir þetta þá hafa
hægri stjórnirnar undanfarna
áratugi aldrei unniö varanlegan
skaöa. Þaö hefur alltaf birt upp
eftir þessi hret. Sólin hefur aftur
skiniB vegna þess aö grundvelli
þjóöfélagsins var raunverulega
aldrei breytt undir hægri stjórn-
unum á afgerandi hátt.
NU heid ég að eldci sé lengur
hægt aö treysta á þessa þróun.
Þetta markaég af þviað viss
öfl sem áöur voru ekld tekin al-
varlega, eru nú aö ná meiri
völdum i hægriflokkunum og þá
sérstaklega Sjálfstæöisflokkn-
um.
Viö höfum oft haft gaman aö
þessu unga fólki sem nú er aö
ryðja sér til rúms I Sjálfstæöis-
flokknum. Þetta fólk hefur til aö
bera pólitlska heiðrikju sem viö
höfum ekki tekiö alvarlega
hingaö til. Þetta fólk hefurlítinn
þjóöfélagslegan grunn aö
standa á. Þaö þekkir ekki per-
sónulega þaö þjóöfélag sem þaö
býr I nema á afar takmörkuðu
sviöi. Þaö er flest allt aliö upp i
einangruöu andrúmslofti pen-
inga og þess frelsis sem þeir
veita.
Ef þetta unga fólk og þau öfl
sem aö þvi standa, ná nú yfir-
höndinni I Sjálfstæðisflokknum,
eöa fær tækifæri til aö móta
stefnuna þar, þá koma ekki
lengur rneinlausar hægri stjórn-
irtil valda. Nú er sú hætta raun-
veruleg aö hægri stjórn detti I
hug aö breyta gerð þjóöfélags-
ins I grundvallaratriöum. Og
þessi möguleiki er nær en viö
höldum vegna þess að upp-
lausnin i þjóöfélaginu og von-
leysi fólksins býöur upp á það
Hrafn Sæmundsson
------------------------i
Sú hætta er raun-
verulega fyrir hendi
að farið verði að
breyta grundvelli
þjóðfélagsins og
árangur áratuga bar- I
áttu verði að litlu
gerður. Þau sár sem
ný hægri stjórn
getur veitt, munu j
seint gróa. Þetta er |
sú nýja staðreynd
sem kosningabar-
áttan snýst um.
pólitiska kæruleysi sem leitt
getur til valdatöku þessara afla.
Menngripa ofttil samlfkinga I
pólitlskum texta. Þetta langar
mig aö gera núna.
1 bókahillunum héri nágrenni
viö mig sé ég á kjöl bókar einnar
innanum sagnfræöi ýmiskonar.
Þetta er bókin- „Mein Kampf”
eftir Adolf heitinn Hitler.
Þessi bók var skrifuö I frum-
bernsku stjórnmálastefnu sem
kom siöar til meö aö breyta
grundvelli þjóöa og þjóðfélaga.
A slnum tlma tók enginn þessa
bók alvarlega pg fæstir nenntu
aö lesa hana.
Þegar stór hluti heimsins og
siðmenningarinnar lá flakandi I
sárum eftir heimsstyrjöld 2,
fórumenn aö lesa þessa bók. Og
það kom I ljós aö Adolf sálugi
haföi framkvæmt flest af þvi
sem þar stendur.
Litil vasaútgáfa af þessari
söguernúaö gerast hér á meöal
okkar. Það nenntu fæstir aö lesa
„Bákniö burt”. Menn tóku ekki
alvarlega þá pólitisku bernsku I
sem lýsti sér í þessum texta .
ungra Ihaldsmanna.
En ég vil fyrir mitt leyti vara
fólk viö þvi aö sú staöa getur |
komið upp aö fariö veröi aö •
framkvæma þessar kenningar. I
Raunar hefur veriö byrjaö aö
sýna lágspilin, hvaö þetta varö-
ar, á fundum Sjálfstæðisflokks- ■
ins hérna i borginni.
Sjálfstæöisflokkurinn er for-
ustulitill núna og þeir aöilar .
sem ráöiö hafa feröinni fram
undir þessa tlma, eru nú aö
missa tökin. SU hætta er raun- |
verulega fyrir hendi aö fariö .
veröi aö breyta grundvelli þjóö-
félagsins og árangur áratuga
baráttu veröi aö litlu geröur.
Þau sár sem ný hægri stjórn ■
getur veitt, munu seint gróa I
Þetta er sú nýja staðreynd sem
kosningabaráttan snýst um.
HrafnSæmundsson. «