Þjóðviljinn - 17.11.1979, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1979
Laugardagur 17. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
á dagskrá
>Er það rétt, að á lögreglustöðinni við Hverf-
isgötu, og/eða hjá Rannsóknarlögreglunni sé
tölva, sem geymir nöfn einhvers fjölda tslend-
inga og upplýsingar um pólitiskar skoðanir
þeirra og ef til vill fleiri upplýsingar?
Elisabet Berta
Bjarnadóttir:
OPIÐ BRÉF TIL
VILMUNDAR
Kæri dómsmálaráöherra, ég
og eflaust margir fleiri fögnuöu
þeirri yfirlýsingu þinni aö
dómskerfiö ætti aö opna. Skildi
ég þessa opnun á þann hátt aö
nú væri loksins kominn maöur á
toppinn i dómsmálaráöuneytinu
sem skildist aö dómskerfiö væri
til vegna fólksins i landinu og til
aö standa vörö um hagsmuni og
réttindi alls almennings, en ekki
til aö láta almenningi stafa ógn
af einhverju apparati (allt frá
lögreglu upp i ráöuneyti) sem
þaö botnaöi ekkert I hvernig
starfaöi og vonaöist til aö kom-
ast aldrei i kast við nema vegna
stööumælasekta tvivegis á ári.
I eðli sinu þyrstir fólk i skiln-
ing á samhengi hluta, þvi þegar
skilningi er náö, stendur þvi
ekki ógn af né hefur vanmáttar-
kennd vegna fyrirbærisins þá
veit maöur hverju maöur á von
á og hegðar sér samkvæmt þvi.
Hvernig er aðild Islands
að Interpol háttað?
bað eru ýmsir hlutir i dóms-
kerfinu, sem mig langar til aö fá
vitneskju um, hlutir sem ég hef
heyrt fólk tala um og velta fyrir
sér siöan ég var smástelpa.
Þann 12.11. s.l. var sjónvarps-
þáttur um starfsemi Interpol,
„Alrikislögreglunnar” svoköll-
uöu. í þættinum kom fram aö á
striösárunum fóru harövitug-
ustu manndráparar einn á eftir
öörum úr starfsliöi SS-sveita
Hitlers meö yfirstjórn Interpol
og Interpol starfaöi á þeim ár-
um aöallega i þvi skyni aö fram-
selja pólitiska andstæöinga nas-
ista og afla upplýsinga nægi-
legra til aö auövelda innrásir
nasista i önnur riki.
Núverandi yfirmaöur Interpol
gerði litiö úr þessu og neitaöi, en
lagöi áherslu á að starfsemin
heföi gerbreyst eftir striö. En
alltaf birtust sannanir um hiö
gagnstæöa viö orö yfirmanns.
T.d. aö eftir striö voru valdir til
yfirmannsstarfa menn, sem
störfuöu meö nasistum i
striöinu, voru vinir nasistafor-
ingja og þáöu af þeim stórgjafir.
Þessir nýju yfirmenn voru
auövitaö ekkert nema nasistar
og fasistar.
í þættinum kom fram aö 125
riki greiöi fyrir upplýsingar og
eru „aöilar” aö „Alrikislögregl-
unni” svokölluöu. Alrikislög-
reglan viröist hinsvegar rekin á
grundvelli einkagróöafyrirtækis
og tekur ekkert tillit til lands-
laga, t.d. hvaö varöar nokkurs
rikis persónulegt frelsi almenn-
ings, eins og funda- og mál-
frelsi, en skráir hjá sér, aflar
sér upplýsinga um og njósnar
um fólk. Þessar upplýsingar eru
svo seldar þeim sem borgar
fyrir uppsett verö, — jafnt til
fasiskra einræöisstjórna sem
annarra.'
Athyglisvert var einnig aö
„Alrlkislögreglan” hefur sér-
stakt samningsbundiö samstarf
viö CIA og voru lögö fram plögg
þvi til sönnunar en stjórnandi
„Alrikislögreglunnar” staö-
hæföi hiö gagnstæöa. Sem sagt
hann laug alltaf.
Einn mannanna sem rann-
sakaö haföi feril Interpol
sagöist lita á fyrirtækiö sem
mellu. En þar sem ég hneigist
til aö hafa samúö meö konum i
þeirri starfsgrein eins og mögu-
leikar kvenna á vinnumarkaön-
um eru takmarkaðir i dag
fannst mér samlikingin ekki
góö, en rétt mun reynast
aö álita Interpol sem
fasiskan alþjóölegan auö-
hring, er hafi það sem aö-
alverkefni aö viöhalda
fasisku einræöislegu stjórnar-
fari þar sem þvi verður komiö
við, en gefa grænt ljós þeim
öflum sem vilja stefna á slikt
stjórnarfar i öðrum. Hvernig
get ég ætlað nokkrum svona
illt? — kann einhver aö spyrja.
Svariö hlýtur aö vera þaö aö
voldugustu auömenn og auö-
hringar heims hafa i þessu sam-
bandi mikilla hagsmuna aö
gæta vegna brasksins meö hrá-
efni, auðlindir og ódýrt vinnu-
afl. (Lesist: Illa launaö fólk.)
Nú erum þaö ég og þú og allir
aörir skattgreiöendur þjóöar-
innar sem sjáum dómskerfinu
fyrir rekstrarfé og þess vegna
langar mig til aö vita:
1. Hvernig er aöild Islendinga
aö Interpol háttaö? (Opin-
beraöur veröi samningur
þar aö lútandi.)
2. Hve miklu fjármagni er
variö til þeirrar starfsemi
árlega?
3. Hvaö segir i landslögum um
aö opinberum aöilum og/eöa
öörum aöilum sé heimilt aö
skrásetja og veita upplýs-
ingar um stjórnmálaskoö-
anir fólks og aöra persónu-
lega hagi?
4. Er lögreglunni og/eöa
öörum aöilum heimilt aö
hlera einkasima eöa aðra
sima? ef svo er, þá á hvaöa
forsendum?
5. Ef lögreglan viöhefur sim-
hleranir, hver tekur ákvörð-
un um þaö og hver fram-
kvæmir þær og hvar?
6. Hvert er starfssviö
Rannsóknarlögreglu rikisins
og er henni heimilt aö fara út
fyrir þaö starfssviö?
7. Hversu margir starfa hjá
Rannsóknarlögreglu rikis-
ins?
8. Hvaö heita þessir starfs-
menn, hver er menntun og
laun hvers um sig og hvert
er starfssviö hvers um sig?
9. Hvaöa deild lögreglunnar
hefur meö samskipti viö
Interpol aö gera, hvaöa
starfsmenn vinna viö þau
samskipti, hver er staða
þeirra?
10. Er til tölva i lögreglustööinni
viö Hverfisgötu og/eöa hjá
Rannsóknarlögreglu rikisins
i Kópavogi, sem m.a.
geymir nöfn einhverra Is-
lendinga (hve margra?) og
upplýsingar um pólitiskar
skoðanir þessa fólks, og etv.
fleiri upplýsingar?
(Varöandi þessa spurningu
ætlast ég til aö þú gerir vett-
vangskönnun eigin hendi en
takir ekki upp simann og
hringir.)
11. Sé slik tölva (tölvur) fyrir
hendi, hvenær var hún þá
keypt, að tilhlutan hverra,
og hvert átti upphaflega
verksvið tölvunnar/tölvanna
aö vera?
12. Sé þessi tölva/tölvur fyrir
hendi, hvaöa starfsmaöur/-
menn starfar þá viö hana?
13. Ef fyrir hendi er tölva hjá
lögregluembættinu og hafi
þessi tölva aö geyma upplýs-
ingar um meintar pólitiskar
skoöanir fólks, sem aldrei
hefur gerst brotlegt viö is-
lensk Iög nema etv. að leggja
bil vitlaust, hefur þá komiö
fyrir aö þessar upplýsingar
séu veittar yfirmönnum t.d.
bæjar eða sveitarfélaga viö
ráöningu opinberra starfs-
manna, t.d. kennara? (Svo-
leiðis starfsaðferðir séu þær
viöhaföar, minna mann
óþægiléga á ýmislegt sem
maður hefur lesiö um
ráöningu opinberra starfs-
manna i heimalandi flestra
yfirmanna Interpols.)
14. Hvaða reglur gilda um
persónunjósnir erlendra
rikja (eöa sendiráöa þeirra)
á íslandi?
15. Ef i dómskerfinu fyrirfinnst
svona tölva eins og ég hef
spurt um hér að framan, eru
erlendum sendiráöum veitt-
ar upplýsingar af henni?
16. Er nokkur af starfsmönnum
lögreglunnar á launum hjá
erlendu sendiráöi?
Þetta eru viöamiklar spurn-
ingar, Vilmundur, en nauösyn
brýn fólkinu i þessu landi að fá
svör viö þeim. Ertu ekki
sammála mér aö okkur beri aö
standa vörö um þau lýöréttindi
sem viö lagalega höfum eins og
málfrelsi, fundarfrelsi, félaga-
frelsi og friðhelgi einkalifs, svo
eitthvaö sé nefnt?
Þaö væri nöturlegt aö þurfa
aö svara börnum sinum þegar
þau spyrja: „Mamma, hvaö
læröum viö Islendingar af
Heimsstyrjöld nr ir\ „Já t.d.
aö passa uppá hvaö fólk hugsar
— og þegiöu svo þaö borgar sig
best.”
Jæja, Vilmundur, tíminn er
naumur til stefnu, þvi ekki þú og
enn siöur ég né nokkur annar i
þessu landi veit hver verður i
embætti dómsmálaráöherra
eftir mánaöarmótin svo ég biö
þig aö hafa hraöann á. Ég er
fullviss aö aimenningur úr öll-
um flokkum og utan flokka
væntir mikils heiöarleika af þér
einmitt varöandi upplýsingar
um kerfiö sem á aö þjóna okkur.
MeÖ vinsemd og viröingu,
EHsabet Berta Bjarnadóttir,
húsmóöir.
PS. Ég hvet alla sem eitthvaö
um þessi mál vita, eöa hafa
áhuga á að verja lýöréttindi, aö
láta i sér heyra i fjölmiölum.
LEIFTURSÓKNIN
HVER ER AFSTAÐA FLOKKANNA?
Alþýöubandalagið Sjálfstœðisflokkur, Framsóknatflokkur og Alþýðuflokkur
0 Lífskjarajöfnun Alþýðubandalagiðeitt hefur mótmælt stórniðurskurði á rík- isútgjöldum, en hinsvegar bent á, að hægt er að spara í rekstr- arútgjöldum á ýmsum sviðum. Alþýðubandalagið vill tryggja ef lingu félagslegrar þjónustu og draga úr félagslegu misrétti. Alþýðubandalagið berst fyrir því að gera landsmönnum Ijóst aó peir verði með greiðslum í sameiginlega sjóði landsmanna að standa undir kostnaði við þá lífskjarajöf nun sem nauðsyn- leg er. ^ Þeir vilja allir skera nidur Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram tillögur um 35 milj- arða króna niðurskurð ríkisútgjalda sem bitna skal á þjón- ustu, millifærslu og fjárfestingu. Framsóknarflokkurinn lagði til við áfgreiðslu f járlaga fyrir yfirstandandi ár að rík- isútgjöld yrðú skorin niður um 20% á þessum liðum. I f jár- lagáfrumvarpi Tómasar Árnasonar er lagt til að skera niður logbundin framlög til Stofnlánadeildar landbúnaðar, Fisk- veiðasjóðs og Iðnlánasjóðs og Byggingarsjóðs ríkisins um 15%. í frumvarp Tómasar vantar framlag til umsaminna niðurgreiðslna sem nemur um 5 miljörðum og til Vegaáætlun- ar3-4 miljarða. Alþýðuf lokkurinn hefur lagttil svipaðan nið- urskurð og Sjálfstæðisflokkurinn.
$ Sama nidurgreiöslustig Alþýðubandalagið eitt hef ur barist f yrir að halda því niður- greiðslustigi sem nú er, hvorttveggja til að koma í veg fyrir meiri hækkun lífsnauðsynja og þar með krónutöluhækkun á kaupi, og til að greiða fyrir innanlandssölu á landbúnaðarvör- um.
0 Þeir vilja stórlækkun nidurgreidslna 1 sjónvarpi sagði einn af f rambjóðendum Sjálfstæðisflokks- ins að „eyða ætti niðurgreiðslum". Framsóknarflokkurinn hefur ítrekað lagt til að lækka niðurgreiðslur á matvælum. Slík krafa f lokksins var sett inn í Ólafslög og Tómas Árnason knúði fram nokkra lækkun á umsömdum niðurgreiðslum í júli-mánuði, eða sem nam 1300 miljónum króna. 1 frumvarpi Tómasar til f jarlaga er gert ráð fyrir lækkun niðurgreiðslna sem nemur um 5 miljörðum króna. Alþýðuflokkurinn vill ganga miklu lengra í lækkun niðurgreiðslna.
S Verölagseftirlit Alþýðubandalagið hefur barist fyrir hertu verðlagseftirliti og margháttuðum nýjungum í framkvæmd verðlagsmála. Al- þýðubandalagið er eindregið á móti því að gefa verðlag - f rjálst, og telur að það muni leiða til stórhækkunar vöruverðs, enda bendir öll reynsla til þess. Alþýðubandalagið kom því til leiðar i vinstri stjórninni að lögum Ólafs og Geirs um frjálsa verslunarálagningu var breytt gegn vilja Framsóknar og Krata. Ákvörðunarvaldið í verðlagsmálum er því enn í hönd- um ríkisstjórnar.
Þeir vilja frjálsa verslunarálagningu Framsóknarflokkurinn samþykkti með Sjálfstæðisflokkn- um ný verðlagslög, sem gerði ráð fyrir frjálsri verslunará- lagningu. Framkvæmd þessara laga var stöðvuð í vinstri stjórninni vegna kröfu Alþýðubandalagsins, en gegn vilja Framsóknar og Alþýðuf lokks. Alþýðuf lokkurinn hefur nú lýst yf ir sem stef nu sinni að gefá allt verðlag f rjálst.
Full verdtrygging launa Utan sem innan ríkisstjórnar hefur Alþýðubandalagið bar- ist fyrir fullri verðtryggingu launa. Alþýðubandalagið krefst fullkominnar kaupmáttartryggingar, kaupmáttarsamninga og vill stuðla að launajöfnun með því að verðbætur á há laun verði ekki hærri í krónutölu en til fólks með meðaltekjur.
r|; Þeir vilja afnema vísitöluna Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema lög um verðbætur á laun. Framsóknarf lokkurinn hefur ítrekað lýst yf ir þvi, að hann vilji fella niður ákvæðin um vísitölubætur á laun. Alþýðublað- ið og forystumenn Alþýðuflokksins lýsa því yfir hvað eftir annað að flokkurinn telji vísitölutrygginguna óhafandi.
@ íslensk orkustefna Alþýðubandalagið er eindregið á móti því að orkusjóður ís- lendinga verði notaður í þágu erlendra auðhringa. Alþýðu- bandalagið hefur mótað íslenska orkustefnu og íslenska at- vinnustefnu sem miðar að því að byggja upp innlenda at- vinnuvegi og nýta orkuna í þágu þeirra. Þá hefur Alþýðu- bandalagið bent á marga kosti í þróun orkufreks iðnaðar sem hvílt getur á íslenskum grunni, orku, hráefni, þekkingu og mannaf la. ■ Þeir vilja erlenda stóriðju Sjálfstæðisflokkurinn krefst nú sem aldrei fyrr erlendrar stóriðju og vill beisla orku fallvatnanna í þágu erlendra auð- hringa. Alþýðuflokkurinn er nú eins og áður ákafastur allra flokka í erlenda stóriðju. I skýrslu Ólafs Jóhannessonar að þjóðhagsáætlun sem hann lét taka saman leggur hann til „að lögð verði áhersla á orkuf rekan iðnað f samvinnu við erlenda aðila". Þessi tillaga Ólaf s Jóhannessonar staðf estir að Fram- sókn vill erlenda stóriðju, eins og Sjálfstæðisf lokkurinn og Al- þýðuf lokkurinn.
Gegn vaxtaokri Alþýðubandalagið eitt hefur barist gegn vaxtaokursstefn- unni og bent á að einasta leiðin til að vernda sparifé sé að hemja verðbólguna en ekki magna hana með því að láta vext- ina elta verðbólgustigið. Alþýðubandalagið hef ur bent á að í peningamálastefnu Sjálfstæðisflokksins felst stórhætta á því að íslenskur gjaldmiðill glati sjálfstæði sínu og ákvarðanir í gjaldeyrismálum færist úr höndum ísl. stjórnvalda yf ir á hinn alþjóðlega peningamarkað. Alþýðubandalagið hefur einnig varað við því að peningamálastefna Sjálfstæðisflokksins sé heimboðtil f jársterkra erlendra aðila, sem brátt muni ráða á- kvörðunum á íslenskum markaði, en þær eiga samkvæmt til- lögum Sjálfstæðisflokksins að stýra þjóðfélaginu. Því miður hafa Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur siglt hættulega nærri stefnu íhaldsins í peningamálum.
Þeir vilja hávaxtastefnu Sjálfstæðisf lokkurinn leggur til að ákvörðun á vöxtum verði gef in algjörlega frjáls. Þannig gæti hver banki um sig og hver sparisjóður og hvert fyrirtæki sem lánar, ákveðið vaxtakjör aðeigin vild. Verslunin og allir milliliðir gætu síðan velt vöxt- unum út í verðlagið sem orðið væri „frjálst" og eftirlitslaust. Alþýðuflokkurinn er flokkur hávaxtastefnu — eins og allir vita. Framsóknarflokkurinn snerist til fylgis við hávaxta- stef nu Alþýðuf lokksins og beitti sér f yrir reglum f Ólaf slögum sem nú munu leiða til 50-60% vaxta eftir 1. des. n.k. Lægri vextir og f ull verðtrygging þýðir í reynd sömu hávaxtastefnu, því að í mörgum greinum reksturs er óframkvæmilegt að kóma við lengingu lána og dreif ingu vaxtanna yf ir á stofnlán- ið.
Alþýðubandalagið eitt Enginn annar flokkur
stendur gegn þeim en Alþýðubandalagið
stórmálum sem ihaldið getur veitt viðnám
hyggst hrinda í framkvæmd. gegn fhaldsstefnunni
Þeir samþykktu
aö svipta mig
kosningarétti
Út er komin hjá Ægisútgáfunni
ný bók eftir Jóhann J.E. Kúld og
heitir hún 1 lifsins ólgusjó.
Þetta er áframhald af endur-
minningum minum sagöi Jóhann
Kúld þegar viö náöum honum á
beinið stundarkorn. Ég segi frá
bernsku- og uppvaxtarárum mín-
um i bókinni 1 stillu og stormi,
sem kom út i hitteöfyrra. Svo kom
i fyrra út endurútgáfa á Svlfðu
seglum þöndum og tshafsævin-
týrisem segja frá minurri fyrstu
sjómennskuárum. Þessi bók segir
svo frá fjórða áratugnum, hefst
rétt fyrir 1930 og nær fram i
striðsbyrjun.
Berklar og
verkalýðsbarátta
Þessi bók sem nú kemur út segir
frá sildarvertiöum og annarri
sjómennsku. Þessi áratugur var
um margt erfiöur, ég veiktist af
berklum og konan min einnig og
var ég alltaf öðru hvoru á Krist-
neshæli, Reykjahæli og öðrum
sjúkrastofnunum.
Ég bjó á þessum tima á Akur-
eyri og ýmisleg tiðindi úr verka-
lýösbaráttunni þar koma mjög
við sögu. Ég var reyndar fyrsti
formaöur Sjómannafélags Akur-
eyrar, þegar þaö var stofnaö áriö
1928. Það var ekki löngu seinna aö
einn útgerðarmaöur gerði tilraun
til að kaupa mig út úr afskiptum
af málefnum sjómanna meö þvi
aö bjóða mér sildarbát til leigu á
mjög góöum kjörum. Þegar ég
svo hafnaöi þvi, var ég settur i at-
vinnubann bæöi til sjós og lands,
en þaö hélst nú ekki lengi, sem
betur fer.
Ég segi lika frá frægum átökum
þessara tima. Bæöi Nóvudeilunni
og sjómannaverkfallinu fyrir
noröan áriö 1936, sem var fyrsta
eldraun Tryggva Helgasonar,
sem siöan stýröi Sjómannafélag-
inu I marga áratugi. Þá tókumst
við á viö alla i senn: útgerðar-
mennina, Alþýöusambandsstjórn
sem þá var og riksstjórnina — og
höfðum sigur. Leiki aörir eftir.
Já, þetta voru um margt sögu-
legir timar. Einu sinni var sam-
þykkt I bæjarstjórn að ég skyldi
sviptur kosningarétti. En þeir
skömmuöust sin fyrir þaö seinna.
Brugghúsið mikia
Ég segi lika frá dálitiö skondnu
máli sem upp kom rétt fyrir striö.
Merkur samtiöarmaöur, Jón
Stefánsson kallaöi mig fyrir sig
og bauö mér ágætt starf viö fyrir-
tæki sem hann var aö koma á
laggirnar. Allt fór það þó meö
leynd — þvi aö þetta fyrirtæki átti
aö framleiöa hvorki meira né
minna en þann vökva sem háska-
legastur er talinn á Islandi:
áfengt öl. Þetta átti aö veröa eitt
stærsta fyrirtæki sinnar tegundar
i Evrópu. Aöalfjármagniö i fyrir
. tækiö átti aö koma bæöi frá Svi-
þjóð og Danmörku — til dæmis
vorú bæði Carlsberg og Tuborg
meö i spilinu. Islenskir aöilar áttu
einnig aö vera hluthafar.
Úndurbúningurinn átti semsagt
aö fara leynt, liklega af ótta við
templara. En svo skall striðið á,
og þar meö var sambandið viö
Danmörku rofiö og ekki varö neitt
úr neinu. Verksmiöjan átti reynd-
ar aö framleiða til útflutnings, þvi
ekki var gert ráö fyrir breyting-
Jóhann J.E.
Kúld
um á áfengislöggjöfinni hennar
vegna.
Hjá breska sjóhernum
— Ætlaröur svo að halda áfram
meö endurminningar þínar, Jó-
hann?
— Já, ég ætla að bæta við einu
bindi sem veröur um striösárin.
Ég á von á þvi að þar komi ýmis-
legt fram sem ekki hefur áöur
sést. Ég lenti nefnilega i þeirri
sérstæðu reynslu aö vera um
þriggja ára skeiö i björgunarliði
breska sjóhersins.
Einu sinni var ég á léiö til
Kanada og fékk ekki meö nokkru
móti uppáskrift um aö ég mætti
koma viö i Bandarikjunum,
náttúrlega vegna minna pólitisku
skoöana. En svo skrifuöu þeir upp
á passann minn seinna. Ég gat
lika stritt þeim á þvi, aö á striös-
árunum heföi ég haft passa upp á
þaö, aö ég mætti fara um borö I öll
bandarisk skip, lika herskip, og
ganga i land hvenær sem mér
sýndist!
— áb
Þriðja bindi
endur
minninga
hans er
komið út