Þjóðviljinn - 17.11.1979, Side 16

Þjóðviljinn - 17.11.1979, Side 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1878 punktunum. Já, hratt þróast skákteórian. Kortsnoj féll þarna algerlega i skuggann af þeim Tal, Spasski og ________ Petrosjan og má segja aö þaö sé Umsjón: Helgi ólafsson ekki fyrr en eftir aö hann flýöi aö - ---------- hann hafi ótvirætt skotist fram úr Skákþing Sovétríkjanna fyrir 20 árum Innan skamms hefst, einhvers- staöar i Sovétrikjunum skákþing landanna hiö fertugasta og sjö- unda i röðinni. Þaö er sagt, aö mun erfiöara sé aö vinna sér þátt- tökurétt þar en komast t.d. i miliisvæðamót. Viöa um Sov- étríkin fara fram úrtökumót fyrir sjálft skákþingiö og fyrir littþekktan skákmann getur þaö tekið 4-5 mót aö komast upp :i efstu deildina en þar tefla 18 skákmenn ár hvert. Nokkrir þeirra»fremstu menn á borö viö Karpov heimsmeistara, Petrosj- an, Tal, Polugajevskl, Romais- hin, Beijaviski o.fl. þurfa aö sjálf- sögöu ekki aö taka þátt i undan- keppninni fyrir mótiö, en engu aö siöur taka þátt i þessum undan- keppnum margir vel þekktir stór- meistarar og jafnvel fyrrverandi heimsmeistarar. Ekki er vitaö hverjir hinna fremstu veröa meöal keppenda i ár, en undanfarið hafa þeir Tal, Polugajevski og Petrosjan reglu- lega tekiö þátt i mótinu. Karpov tefldi siöast 1976 og vann, var rétt fyrir ofan Balasjov. Þaö get- ur veriö fróölegt aö bera saman hin ýmsu skákþing. Fyrir ná- kvæmlega 20 árum tóku þátt i mótinu skákmenn sem siöan hafa gert garðinn frægan. Þá voru Petrosjan og Tal aö kveöja sér hljóös, og mótiö sem haldiö var i Tiflisi fæöingarborg Petrosjans, var geysisterkt. Aö undanskild- um þeim Botvinnik, þáverandi heimsmeistara, og Smyslov voru svo til allir bestu skákmenn So- vétrikjanna saman komnir til keppni. Fyrirfram var helst búist við sigri Tals, sem tvö undanfarin ár haföi sigraö meö miklum glæsibrag og aö auki hreppt 1. sætiö á millisvæðamótinu i Porto- roz. I augum umheimsins var hann næsti heimsmeistari, sem reyndar varð raunin, en aörir höföu einnig nokkuö til sins máls. Tigran Petrosjan sigraöi með miklum glæsibrag hlaut 13 1/2 v. af 19 mögulegum, taplaus. Vinningsskákir hans voru i þess orös fyllstu merkingu, listaverk. Hann náöi forystunni þegar I byrjun og jafnvel þó Spasski og Tal veittu honum haröa keppni var sigur hans aldrei I verulegri hættu. I 2.-3. sæti komu siöan heimsmeistararnir tilvonandi og 4.-5. sæti kom i hlut Taimanovs og Homovs, Htt þekkts skákmanns sem alltaf ööru hvoru nær þokka- legum árangri. Keres lenti i 7.-8. sæti og Kortsnoj varð nr. 9, Sýnir þaö liklega best hversu mót þetta var sterkt. Það er ansi skemmti- legt aö bera saman þær byrjanir sem þarna voru i hávegum haföar og þær sem nú eru hvaö vinsæl- astar. Petrosjan vann margar skákir gegn kóngsindverskri vörn á afbrigði sem kennt er viö hann og byrjanir sem ekki þykja ýkja merkilegar i dag sölluðu inn þeim þremenningum. Sigurvilj- ann má þó altént finna i öllum skákum hans frá þessu móti og marga fallega sigra vann hann. Hér kemur eitt dæmiö: Hvltt: Kortsnoj Svart: Lutikov Benoni 1. d4-Rf6 2. C4-C5 3. d5-e6 4. Rc3-exd5 5. cxd5-d6 (Benoni-afbrigöiö var á þessum árum I deiglunni. og átti eftir aö reynast Mikhael Tal afar sigur- sælt vopn i komandi Askorenda- keppni.) 6. e4-g6 7. Rf3-Bg7 8. Be2-0—0 9. 0—0-Bg4 10. Bf4-He8 (í sjálfu sér ekki slæmur leikur. En 10. — a6 vaT athyglisveröur möguleiki. Eftir 11. a4-He8 getur hvitur ekki leikiö 12 h3. Sjá næstu aths.) 11. h3-Rxe4? (Leiöir beint til taps, eingöngu vegna þess aö bSreiturinn er ekki valdaður. Stæöi hvitt peö á a4 og svartá a6 væri þessi leikur mögu- legur og ef ég man rétt þá fiskaði Firscher einn punkt á þá leik- brellu I skák gegn Uhlmann á millisvæöamótinu. á Mallorca.) 12. hxg4!-Bxc3 13. Bb5! (Þar lá hundurinn grafinn.) 13...Bxb2 14. Bxe8-Dxe8 15. Hel! (Hvitur gefur skiptamuninn til baka, sem sjálfsagt er og eölilegt. Veikleikarnir sem hljótast af aö hiröa hann eru yfirþyrmandi.) 15. ..-Bxal 16. Dxl-f5 17. Bh6-De7 18. Rg5-De5 19. Dbl-Dxd5 20. Hxe4! — Svartur gafst upp. Framhaldiö gæti oröiö eitthvaö á þessa leiö: 20. — fxe4 21. Db2 Ddl -f 22. Kh2 Dd4 23. Dxb7 De5+ 24. g3 og svartur fær eigi máti foröaö. Frá Fjölbrautar- skólanum við Armúla Armúlaskóla Umsóknarfrestur um skólavist á vorönn 1980 er til 5. desember 1979. Upplýsingar eru veittar og tekið á móti umsóknum á skrifstofu skólans, simi 31200. Skólastjórn. Skyldu kosningarnar fæöa af sér eitthvaö þessu likt? Indriöi Aðalsteinsson, Skjaldfönn skrifar: Viðreisn fyrir stafni? í gær birtist hér hjá Landpósti fyrri hluti fréttabréfs frá Indriða á Skjaldfönn. Viö höld- um nú áfram þar sem frá var horfið: Hafa unnið til rassskellingar Og þá er nú rikisstjórnin sprungin og til litils aö syrgja hana, enda var hún hvorki fugl né fiskur meö kratalikið I lest- inni. Þaö er þó æriö nýstárlegt aö láta ekki steyta á ágreiningi um ákveöiö mál. Svo er að sjá sem sjálfseyöingarhvöt sé aðal stjórnarslitaástæöan hjá kröt- um, svo þaö veröur aö hafa ,,al- geran forgang” aö etja þjóöinni út i illvígan kosningaslag I skammdeginu, meö þeim einum fyrirsjáanlegum árangri, aö ihaldiö fitnar, en kratar fá von- andi þá rassskellingu, sem þeir veröskulda. En hvaö sem þvi liöur lifgar framboösvinnan og kosningaslagurinn upp á skammdegið og er þaö vel. Framboðsátök íhaldsins Sjálfstæöismenn voru fyrstir til aö ganga hér frá framboði og þó ekki þrautalaust. Sigurlaug Bjarnadóttir réri aö þvi öllum árum aö bola Þorvaldi Garöari af listanum og þegar þaö mis- tókst fór hún i fýlu og neitaði aö gefa kost á sér i þriöja sætiö. Hún sá sig þó um hönd á siðustu minútu, þegar átti aö fara aö skella Engilbert bónda á Tyröil- mýri i sætiö. xBotninn er suður i Borgarfirði" Framsóknarmenn náöu lengi vel engri samstööu um skipan annars sætis hjá sér, þvi ekki vildu þeir endurreisa Gunnlaug i Hvilft, þótt sannleikurinn væri sá aö enginn frambjóöandi heföi haldiö þessu sæti fyrir Framsókn siöast, svo grátt var ihaldssamvinnan búin aö leika fylgi flokksins. Til mála kom aö sækja Dag- björtu Höskuldsdóttur suöur I Stykkishólm og heföi það vafa- laust verið sterkur leikur, en i stað þess var Ölafur Þóröarson, brottfluttur Vestfirðingur, nú- verandi skólastjóri i Reykholti, settur i sætið, þrátt fyrir að hann færi miklar hrakfarir fyrir Gunnlaugi i innbyröis prófkjöri þeirra um annaö sætiö fyrir siö- ustu kosningar. Er mikil ánægja hjá andstæöingum Framsóknar meö þessa niöurstööu. Alþýöubandalagiö kom sinum lista breytingalitiö saman, enda gengu siðustu kosningar þvi m jög i haginn hér og þvi eðlilegt aö halda svipaöri skipan. xLífið lagðist hér fyrir góðan dreng.." Sighvatur og Karvel háðu prófkjör, — i bróðerni, aö sagt var, — og sigraöi fjármálaráö- herrann auöveldlega, enda virt- istáhugi ,,Karvelita”á aö koma „Rödd Vestfjarða” i efsta sætiö I algeru lágmarki. Satt aö segja eru þaö ömurleg örlög hjá Karvel að vera kom- inn i húsmennsku hjá Sighvati og gegna þvi hlutverki aö fleyta honum kjördæmakjörnum á þing. Ósjálfrátt koma upp I hug- ann orð Ingólfs Arnarsonar þá er hann frétti dauða Hjörleifs fóstbróöur sins: „Litið lagöist hér fyrir góöan dreng aö þrælar skyldu að bana verða”. Kveldriður íhaldsins Og hvaö tekur svo viö þegar búiö er aö telja upp úr kjörköss- unum? Vafalltið afturgengin viöreisnarstjórn, meö öllum sinum fylgjum: samdrætti i framkvæmdum (nema þá er- lendri stóriöju), fráhvarfi frá byggöastefnu, atvinnuleysi og landflótta. Þaö eru þvi veöur öll válynd framundan i meira en einum skilningi og vel viö hæfi aö enda þessar linur meö kvæöisbroti, sem hefur sest i minniö og. tollað þar siöan á þeim dögum er viðreisn hin fyrri var i burðarlibnum og góö- kunnur hagyröingur „barnaöi” velþekkt kvæöi eitthvað á þessa leiö: Rifar I alskýjað háloft með hroðarúnum, herskarar kratablóka sin merki reisa. Kolgráar fram aö kryppluöum fjallabrúnum kveldriður Ihalds taglrotnum bykkjum þeysa. Skjaldfönn, 5. nóv. 1979. Indriði Aðalsteinsson. Landsamband stangaveiöifélaga: Tuttugasti og niundi aöal- fundur Landssambands stangarveiöifélaga var haldinn dagana 27. og 28. okt. s.l. I ölfus- borgum viö Hverageröi. Aöild aö Landssambandinu eiga 28 stangarveiöifélög um land allt land og mættu um 85 fulltrúar á fundinum. í skýrslu stjórnar, sem Karl Ómar Jónsson, formaöur L.S. flutti, skýröi hann frá störfum nefndar, sem fyrrverandi land- búnaöarráöherra, Steingrimur Hermannsson, skipaöi til aö kanna aöstööu islenskra stangan veiöimanna til aö fá aðgang aö laxveiöiám i landinu og hvort veiöileiga og afnot erlendra manna hér á landi eru þess ebl- is, aö innlendir veiöimenn fái þann aðgang aö veiöiám lands- ins, sem eölilegt má telja. Þar kom m.a. fram aö I 18 ám nota útlendingar 5442 stangardaga um hásumariö, Islendingar 8301 stangardag, aöallega vor og haust, en ef á heildina er litiö er nýting stangardaga eins og fram kemur á eftirfarandi töf lu: Tala veiðileyfa 34.021 Greinargerð um nýtingu heimilaöra veiöileyfa árið 1978. Nýting Tala Hundraös- leyfa hluti 1: Selterlendis 5.442 16% 2: Seltá almennum markaði innaníands 3: Veiöileyfi, sem ekki eru á alm. markaöi 17.479 51% vegna einkanota eigenda eða leigjenda 4: Ekki boöiö til sölu vegna fribunarað- 4.800 14% gerða eða lítillar veiöivonará þeim tima 3.600 11% 5: Framboðin veiöileyfi, sem ekki seljast 2.700 8% Samtals: 34.021 100% á ► ^ ý' ð ■kjKS Umsjón: Magnús H. Gtslason Ennfremur gat formaður um þingsályktunartillögu Arna Gunnarssonar alþm. o.fl. um 'sérstakt gjald á veiðileyfi út- lendinga, sem veiöa i islenskum ám. Skýrði hann frá framsögu- ræöu Arna og umræöum um til- löguna I þinginu. 1 skýrslu formanns kom einnig fram, aö stjórnin hefur undanfarin ár unnið aö þvi að koma á útboösreglum um útboö á veiðirétti og væntir Lands- samb. Stangarveiðifélaga góör- ar samvinnu við Landssamband veiöifélaga i þessum efnum. Gestir fundarins voru veiöi- málastjóri, Þór Guðjónsson og formaöur Veiöimálanefndar, Arni Jónasson, og höföu fram- sögu um aðalefni fundarins, þ.e.a.s. endurskoöun lax- og sil- ungsveiöilaganna og urðu mikl- ar umræður um málið. A laugardagskvöldiö 27. okt. var aðalfundargestum og mök- um haldiö hóf i ölfusborgum en Stangarveiöifélögin I Hvera- geröi og á Selfossi sáu um þaö a og allt þinghald og kann stjórn L.S. þeim bestu þakkir fyrir. Fyrrverandi formaöur Karl Ómar Jónsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og voru hon- um þökkuö frábær störf i þágu L.S. undanfarin ár. Núverandi stjórnskipa: Friðrik Sigfússon, Keflavik, formaöur, Birgir Jóh. Jóhannsson, Reykjavik, vara- form., Rósar Eggertsson, Reykjavik, ritari, Sigurður í. Sigurösson Hafnarfiröi gjald- keri, Benedikt Jónmundsson, Akranesi meðstjórnandi. Vara- menn: Gylfi Pálsson, Mosfells- sveit, Karl Ómar Jónsson, Reykjavik og Matthias Einars- son, Akureyri. —-mhg.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.