Þjóðviljinn - 02.12.1979, Page 23
Sunnudagur 2. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Margaretha Krook og Gösta Ekman I Ævintýri Picassos.
Laugarásbíó:
Ævintýri Picassos
Ævintýri Picassos ber undirtitilinn „Þúsund ást-
rikar lygasögur eftir Hans Alfredson og Tage
Danielsson”. Þeir sem sáu Eplastriöiö i Háskóla-
biói á sinum tima vita mætavel aö Hasse og Tage
eru skemmtilegir, og Ævintýri Picassos styrkir þá
skoöun hundraöfalt. Hér er i stuttu máli sagt um af-
bragös gamanmynd að ræöa, svo góða aö enginn
má láta hana framhjá sér fara.
Ævi og listaferill Picassos er aðalviöfangsefni
myndarinnar, meöhöndlaö á frjálslegan hátt. Ótal
frægar persónur aðrar koma viö sögu: Gertrude
Stein, Hemingway, Guillaume Apollinaire, toll-
þjónninn og listmálarinn Rousseau, Churchill og
Hitler, svo nokkrir séu nefndir. Heimssögulegir og
listasögulegir atburöir eru afgreiddir á sérstæðan
máta, og má t.d. minna á atriði þar sem Hitler og
Churchill standa hlið viö hliö og mála myndir (þeir
voru báöir málarar, þið vitiö!) og þeir fara i hár
saman: Hitler málar hakakross á mynd Churchills
og Winston gamli stingur vindlinum sinum gegnum
mynd Hitlers. Annars er ómögulegt að segja frá
þessari mynd, hún veröur aö upplifast. Sú upplifun
margborgar sig.
Nýja bíó:
Magic
Bandarisk 1977
Leikstjóri: Richard Attenborough
Þaö er leikarinn gamli Richard Attenborough,
sem hefur vakið gamla mynd frá byrjun sjötta ára-
tugsins til lifs á ný. Gamla myndin er bresk og þaö
er Attenborough lika, en hann snýr sér nú æ meira
aö leikstjórastarfinu. Mynd þessi fjallar um
búktalarann Corky, sem Anthony Hopkins leikur.
Islenskir sjónvarpsáhorfendur muna kannski eftir
honum úr þáttunum um ránið á syni Lindbergs flug-
kappa, en Hopkins lék einmitt þýska innflytjend-
ann, sem sakaöur var um barnsrániö.
Magic lýsir lifi búktalara sem lifir á mörkum
veruleiks og draums, lýsing á stigvaxandi geðveiki,
sem spunnin er kringum ástarsögu. 1 fáum oröum:
Þetta er vönduö og góö hrollvekja.
Stjörnubíó:
Oliver
Bresk 1969
Leikstjóri: Carol Reed
Þessi mynd er nú nokkuð komin til ára sinna en
engu að siöur gjaldgeng fyrir þá sem hafa gaman af
.......................................
aö sjá söngleikjamyndir. Þaö er hin alkunna saga
Dickens sem liggur til grundvallar myndinni og
reyndar ekki i fyrsta sinn sem Oliver Twist er kvik-
myndaöur. Hver man ekki eftir hinni frægu túlkun
Alec Guinness á Fagin i mynd David Lean frá árinu
1948? Annars hefur Oliver veriö festur á ræmu allt
frá dögum þöglu myndanna.
En þessi hefur sem sagt hreppt sex Oskarsverö-
laun og það segir kannski alla söguna um söng-
leikjamyndina.
Háskólabíó (mánudagsmynd):
Óvenjulegt ástarsamband
Lcikstjóri: Claude Berri — Frönsk.
Mánudagsmynd Háskólabiós er franska
kvikmyndin óvenjulegt ástasamband eftir Claude
Berri. Berri er m.a. þekktur fyrir myndina Gamli
maðurinn og barnið sem hann geröi áriö 1966.
Myndin segir frá tveimur rosknum herramönnum
Jacques (leikinnaf VictorLanoux) og Pierre (Jean-
pierreMarielle).Þeirfaraásamt dætrum sinum, 16
til 17 ára,i sumarleyfi til St. Tropez. Pierre er skil-
inn viö konu slna og hefur takmarkaöan skilning á
málefnun dóttur sinnar Martine (Christine Dejoux).
Kona Jacques eyöir sumarleyfinu á öðrum staö til
aö komast að niöurstööu um sambúð þeirra i næði. 1
upphafi virðist frliö ætla að verða tilbreytingalitiö
aö heföbundnum hætti, en Francoise (Agnes Sor-
al) dóttir Jacques breytir þvi útliti öllum að óvör-
um. Hún verður ástfangin af Pierre og veldur hon-
um miklu sálarstriöi þvi aö aldursmun þeirra
slepptum telur hann sig vera aö gera vini sinum
Jacques slæman grikk með þvi aö halda viö dóttur
hans. Jafnframt fer hann að sýna dóttur sinni auk-
inn skilning, henni til nokkurrar undrunar. Berri
lýsir ekki þessum afbrigöilega ástarþrlhyrningi á
melódramatiskan hátt. Hann beinir háði sínu og
gamansemi aö tvöföldu siðgæöi kynslóöar Pierre
sem þykist veita Jacques hjálp viö leitina aö ill-
menni þvi sem hann telur að afvegaleiði dóttur slna.
Tónabíó:
Audrey Rose
Bandarisk 1978
Leikstjóri Robert Wise
Enn ein afurö djöflamyndanna. 1 þetta skipti er
um aö ræöa unga stúlku sem látin er og tekur sér
bólfestu I líkama annarrar telpu.Upphefst nú æöis-
genginn bardagi um holdiö sem fram kemur I
áköfum geðklofafyrirbærum. Þetta ætti að vera
kvikmynd fyrir islenska biógesti, þvi ein helsta
skemmtun þjóöarinnar eru andafundir, andaglas,
miðilslækningar og furðuleg fyrirbæri.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■ résa
Á tímum leiftursóknar
Eru nú brynjur aftur að komast i
tlsku?
Fyrirsögn i Timanum
Krataævi
„Bjarni gamli miklast út af
þessum raunum, þótt hann hafi
sjálfur viöa komiö viö. Hann var
unglingur i Heimdalli. Þá geröist
hann kommi og fór síðan i Sam-
tökin. Þá stofnaði hann heilan
flokk og gerðist formaöur I hon-
um, en nú höktir hann á hækjum i
krataflokknum.”
Framboösfundur á Reyöarfiröi
Morgunblaöiö
Bein lína til þjóðarinnar
Viö unum þvi ekki, aö Jóni G.
Sólnes sé hafnaö á svo lágkúru-
legan hátt. Vinnum hvert og eitt
okkar af dugnaði aö endurkjöri
hans til Alþingis Islendinga og
mótmælum með þvi kröftuglega
öllu flokksræði og vinnubrögðum
sem hvorki eru lýöræðisleg né
heldur drengileg.
Morgunblaöiö
Eiga þau ekki saman?
,,Ég er steingeit en Styrmir er
hrútur. Þú getur rétt imyndaö þér
hvernig mér líöur,” sagöi Matthi-
as Johannessen ritstjóri Morgun-
blaösins.
Helgarpósturinn
Frétt í flöskupósti?
I maí, sl. hlaut Baldur
Ragnarsson fyrstu verölaun i
ljóðasamkeppninni Poesia
„Europa” fyrir ljóö á esperanto.
Morgunblaöiö, 20. nóvember.
Svona, svona!
Guörún getur allt
Fyrirsögn leikgagnrýnanda
Dagblaösins
Frambjóðendur?
Þjófar viða I heimsókn um
helgina
Fyrirsögn i Dagblaöinu
Leiðinleg æska
„Þaö er ekkert dauöara en
sósialismi”
Jónas Haralz bankastjóri
iVIsi
HAPPDRÆTTI
Þjóðviljans 1979
Gerið skil strax til næsta umboðsmanns,
skrifstofu Alþýðubandalagsins Grettis-
götu 3 eða á afgreiðslu Þjóðviljans Siðu-
múla 6.
visna-
mál
Umsjón:
Adolf J.
Petersen
Naga sig í nauðum má
Jólafasta! Með jólasvein-
um, kosningabrellum, auglýs-
ingaskrumi, trúlofunum, leift-
ursókn gegn lifskjörum, uppá-
komum, uppáferöum, kosn-
ingaloforöum og svikum,
stjórnmálavændi samanboriö
við forslöumynd I Þjóöviljan-
um sunnudaginn 25. nóv.,
hrakföllum og hórdómi mikl-
um, heldur jólafastan sinu
striki og nemur ekki staðar
þótt enginn fasti nema þá I
kynllfi eins og rauðsokkur sem
ku neita sér um þann unaö af
imynduöu hatri á karlmönn-
um.
A jólaföstum hefur veriö
venjan aö ljúga aö börnum, þá
öllu meiru en á öörum árstlm-
um, en á þessari jólaföstu
munu menn ljúgu miklu hver
á annan bæði fyrir og eftir
kosningar. Þvi ættu menn aö
geta dregið svolltiö úr lýginni
aö börnunum og kvatt barna-
áriö meö þvl aö sýna börnun-
um þann sóma svona I árslok-
in, eða gert eins og séra Páll
Jónsson skáldi kvaö á sinum
tima:
Best er aö tala greitt
um gjöld
og góöra kosta borgun.
Ég ætla aö brúka kjaft
I kvöld,
kurteisina á morgun.
Eflaust stela alþingiskosn-
ingarnar hinni hefðbundnu
jóla- „senu”, og fram-
bjóðendur gera sig
góða eins þótt þeir
falli og komist ekki á
þing, en þeir munu
allmargir veröa ef
trúa má þvi sem haft
er eftir Albert Guð-
mundssyni, aö hann hafi sagt
við Oddu Báru Sigfúsdóttur aö
þau væru I baráttusætunum
hvort á si'num lista, hann i
öðrusæti, en húní þvi sjöunda.
Magnús Jónsson frá Baröi
segir I bréfi til Visnamála, að
hann hafi haftgamanaf þessu
og lika þvi aö Albert væri
ekkert hrifinn af Friöriki
Sophussyni á framboöslistan-
um; hann telji hann veikja
flokkinn. Um þetta segir
Magnús svo:
Friöriks riölast fylgi liö
flokksins lamast þróttur.
Albert deilir afli viö
öddu Sigfúsdóttur.
Um flöktandi ráöleysi rikis-
stjórnarinnar kvaö Magnús:
Llkt og flögri maöka-mý
um mykjuskánar kiinu,
rikisstjórnin ráfar i
ráöaleysi sinu.
Þegar brenna borgar hliö
brýnu skiptir máli,
fast menn spyrni fótum viö
framtaks hertir stáii.
Senn mun aftur bæjar byggö
brosa Eyjamönnum.
Samstillt þjóö af dáö
ogdyggö
dýrum sinna önnum.
Svo var vatni dælt á eimyrj-
una:
Heilann brjóta um tvisýnt
tafl
tæknimennt og vitiö.
Hraustra drengja andans afi
eldskirn fær viö stritiö.
Þannig kvaö Magnús Jóns-
son frá Baröi, en meö bréfinu
frá honum, sem þetta var i,
var einnig botn viö vlsuhelm-
inginn sem birtist hér fyrir
nokkru og óskaö var viöbótar
við.
Dúkkustjórnin dáöasmá,
daprast Bensa tökin.
Magnús bætir viö:
Naga sig i nauöum má
nú i handabökin.
Þeir botnar sem borist hafa
við þennan fyrripart hafa ver-
ið birtir I Visnamálum, en i
Þjóðviljanum þann 27. nóvem-
ber er brugöiö út af þessu. Þar
er vlsuhelmingurinn birtur og
þá sem heild af vísu eftir ann-
an mann án nokkurra athuga-
semda. Lesendur gera þá ráð
fyrir aö sá maöur hafi gert
alla visuna, sem er ekki rétt.
Blaðamaðurinn sem þessu
réöi fær þvi eftirfarandi
kveöju:
Engum finnist aö skini skart
á skáldsins Ijóöa kynni,
ef þaö fær sér fyrripart
meö fingraiipurö sinni.
Ritari Visnamála er höfund-
ur að visuhelmingnum sem
hér um ræðir og öll er visan
eftir hann þannig:
Dúkkustjórnin dáöasmá,
daprast Bensa tökin,
reynist aum og ráöafá,
römm eru ihaldstökin.
A.
A framboðsfundi á
Hvammstanga flutti Páll Pét-
ursson visu um aö Alþýöu-
bandalagiö hefði étiö sölu-
skattinn. Ragnar Arnalds
varö hróöugur af þvi. Eftir aö
hafa hlustaðá þetta varöþessi
visa til:
Undanfarið segist Magnús
hafa staöiö i einskonar slátur-
störfum, en ætli þó aö setja á
nokkrar skjátur. Máliö sé
þannigað hann hafi átt nokkur
umslög meö mörgum miöum
hvert, sem voru áritaðir með
vlsum, sem hann hafi gert á
hlaupum, um veröldina, en
obbinn af þvi sé ekki á vetur
setjandi og þvi komiö fyrir
kattarnef. Þó séu nokkrar,
sem hann ætli að halda liftór-
unni i, aö minnsta kosti þenn-
an vetur. Úr einu umslaginu
komu vlsur, sem hann geröi
um eldgosiö i Vestmannaeyj-
um og sendi þær nú til Visna-
mála þótt seint sé, og hugöist
láta ráöast hvort þær fengju
þar inni. Sjaldan eru góðar
vlsur of seint né of oft kveön-
ar. Þvi koma visur Magnúsar
hér:
Eyjamönnum Otursgjöld
innum af þörfum brýnun,
þá æöri máttar- veifa völd
veldissprota sinum.
Þótt nú Eyja-brenni bær
á blómaskeiöi lifsins,
samhjálp aiira sigraö fær
svartagaldur kifsins.
Þvi, sem Palli gráöugt gat
ei gleypt af söiuskatti,
breytti Ragnar bara I mat
og brosti að lýösins smjatti.
A.
A sama fundi lét Páll aö þvl
liggja að Alþýöubandalagiö
vildi lika éta Framsóknar-
flokkinn. Um þaö má segja:
Nú er Framsókn meira en
mát,
minni en fyrra slagiö,
þvi aö fiokkinn ailan át
Aiþýöubandalagiö.
Svo er þaö visan um hann
Villa:
Hann er eins og alþjóö veit
afmán guös og vina,
eitt af þvi sem ættin skeit
inn i veröldina.
Þegar Visnamál koma nU Ut
fyrir augu lesenda sinna eru
alþingiskosningarnar aö hefj-
ast og taugaspennan llka, þvi
aö einn mun standa, annar
risa og sá þriöji falla. Sjáumst
eftir kosningar. Bless á
meöan.