Þjóðviljinn - 16.12.1979, Qupperneq 3
Sunnudagur 16. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN SIÐA 3
Verðbreyting-
ar á búvörum
Rikisstjórnin samþykkti á fundi sinum 11. des. hækkun á verðlags-
grundvelli landbúnaðarafurða, sem átti að taka gildi 1. des. sl. Hér fara
á eftir breytingar, sem urðu á verði nokkurra helstu búvara við gildis-
töku hins nýja verðlagsgrundvallar:
Verð fyrir Verð eftir
Mjólk i litrapökkum.................... 254
Rjómi i 1/4 ltr. fernum................ 427
Smjör 1 kg.............................2.506
Ostur 45% lkg..........................2.843
Skyrlkg..........................
hækkun hækkun
kr. kr. %
. . 254 281 (10,6)
. . 427 466 ( 9,1)
2.870 (14,5)
. ..2.843 3.067 ( 7,9)
.. 468 517 (10,5)
..1.538 1.738 (13,0)
. .2.051 2.251 ( 9,7)
.. 1.609 1.809 (12.4)
-mhg
Dilkakjöt:
Súpukjöt, framp. og siður.l kg .............1.538
Heil læri eða niðurs. 1 kg..................2.051
Heilir skrokkar, skipt eftir ósk,l kg.......1.609
Hvernig má skýra
sýnir á dánarbeði?
Sýnir á dánarbeði heitir bók
sem Skuggsjá hefur gefið út og er
hún niðurstaða viðtækra rann-
sókna á reynslu fólks á dánar-
beði. Höfundar eru þeir Karlis
Osis og Erlendur Haraidsson.
í bókinni segir frá viðtölum
mörg hundruð lækna og
hjúkrunarkvenna, sem hafa verið
viðstödd þegar sjúklingar hafa
séð sýnir á dánarbeði. Þvíervelt
upp hvernig skýra megi þessar
athuganir með sálfræðilegum eða
læknisfræðilegum rökum einum
saman eða með þvi að visa á lif
eftir dauðann.
1 umsögn um bókina segir, að
„þeir Karlis Osis og Erlendur
Haraldsson færa áhrifamikil rök
fyrir þvi að dánarbeðið er hliðiö
að öðru tilverustigi.”.
Hjúkrunarfræðingatal
Hjúkrunarfélag tslands hefur
gefið út nýtt Hjúkrunarfræðinga-
talog tekur það við af Hjúkrunar-
kvennatali sem kom út á 50 ára
afmæli félagsins haustið 1969. 1
nýju bókinni eru upplýsingar og
myndir af öllum hjúkrunar-
fræðingum sem lokið hafa námi
frá þeim tima fram til ársloka
1978 auk nafna þeirra sem féllu
niður I fyrri bókinni og erlendra
hjúkrunarfræðinga sem gengið
hafa I félagiö. AUs eru 850 nöfn i
bókinni.
Formála skrifar formaður
félagsins, Svanlaug Arnadóttir,og
er þar rakin saga félagsins i
stórum dráttum.
1 Nóvember 1976 hóf störf 6
manna nefnd hjúkrunarfræðinga,
er Hjúkrunarfélag Islands fól að
sjáum útgáfu bókarinnar. Nefnd-
ina skipa Guðrún Guðnadóttir,
Ingileif S. Ölafsdóttir, Jóhanna
Björnsdóttir, Magdalena J. Búa-
dóttir, MargrétSæmundsdóttir og
Oddný M. Ragnarsdóttir.
Prentun og bókband annaðist
Prentsmiðjan Edda. Myndamót
önnuðust Prentmyndageröin
Prentmót h.f. og Myndamót h.f.
Bókin verður seld hjúkrunar-
fræðingum á skrifstofu félagsins.
Einnig verður hún til sölu I bóka-
verslunum.
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
Félagsfundur verður á Hótel Esju mið-
vikudaginn 19. des. kl. 20.30.
Fundarefni:
Stjórnmálastaðan og rikisstjórnarvið-
ræðurnar.
Frummælandi:
Svavar Gestsson, alþingismaður.
FURUHUSGOGN
í miklu úrvali
Einsmannsrúm
Veggsamstæður
4 mism. einingar
Sófasett
tvær gerðir
Sófaborð
Hjónarúm
Hornskápar
Kistlar o.fl.
Borðstofuborð
og stólar
Eldhúsborð og bekkir
ISLENSK HONNUN — ISLENSK FRAMLEIÐSLA
Selt af vinnustað
HÚSGAGNAVINNUSTOFA
BRAGA EGGERTSSONAR
, Smiðshöfða 13 Sími 85180
I bókinni eru saman komin æviágrtp og ættartöiur manna í
iöggiltum iðngreinum bökagerðar, ásamt frásögn af þróun hverrar
iðngreinar. Mikil! fjöidi mynda er « bókinni. Upplag mjög takmarkað.
Dreifing bökarinnar fer fram frá skrifstofu Hins ísienzka prentara-
félags, Hverfisgötu 21, Reykjavik. Sfmi 16313.
Nu fer hver að verða síðastur
að eignast hókina