Þjóðviljinn - 16.12.1979, Page 11
Sunnudagur 16. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Umsjón:
| Guðrun
Árnadóttir
Unglingar gagnrýna
UNGLINGABÆKUR
Þessar siðustu vikur fyrir jói
fyilast bókabúöir af nýjum bók-
um, og i dagblöðunum reyna
sérfræðingar i bókmenntum að
gera þessum bókum skil eins og
efni og timi leyfa. Það er auövit-
að ekkert nema gott um það að
segja að sérmenntaöir bókabé-
usar skrifi gagnrýni á bækur;
slik umfjöllun kemur áreiðan-
lega mörgum kaupandanum að
gagni þegar hann stendur
frammi fyrir þeim vanda að
velja sér bækur úr hundruðum
titla til að gefa eða eiga sjálfur.
En sérfræðingarnir eru ekki
óskeikulir i skrifum sinum,
sumir eru orðnir langþreyttir i
starfinu og aðrir eru alltof
fræðilegir til þess aö venjulegt
fólk skilji hvað þeir eru að fara,
— og enn aðrir eru ef til vill ekki
nægilega vel kunnugir þeim les-
endahópi sem sumar bækur
eiga að höfða beinlinis til
(unglingabækur.barnabækur) til
þess að geta metiö hversu
áhugaverðar bækurnar eru
fyrir viðkomandi lesendahóp.
Það er alltof sjaldgæft að „hinn
altnenni lesandi” láti i ljós á
prenti hvaða áhrifum hann hef-
ur orðið fyrir við lestur ein-
hverrar bókar.
Sjálfboðaliðar óskast
Unglingasiðan tekur i dag upp
þá nýbreytni að láta ungiinga
fjalla sjálfa um bækur sem
ýmist eru auglýstar sem sér-
stakar unglingabækur eða inni-
halda efni sem liklegt er að ung-
lingar hafi sérlegan áhuga á.
Um hverja bók veröa birtar
tvær umsagnir, önnur skrifuð af
strák, hin af stelpu. Með þessu
móti gefst okkur færi á að sjá
hversu menn upplifa bækur
ólikt, engir tveir hafa nákvæm-
lega sömu skoðun á innihaldi
bókanna.
Nú þegar er búið að dreifa
nokkrum bókum til gagnrýn-
enda, i Neskaupstaö og Reykja-
vik sitja krakkar með sveittan
skalla við að skrifa umsagnir
sem verða birtar á siðunni jafn-
óðum og þær berast. En ung-
lingasiðuna vantar sjálfboða-
liða til að fjalla um bækur'. Þeir
sem hefðu hug á að taka þátt i
þessari tilraun eru elskulegast
beðnir um aö krota nöfn og
heimilisföng á blað og senda
Unglingasiðunni, Þjóðviijanum,
Siðumúla 6, Reykjavík, og þá
inunu þeim veröa sendar bækur
til umfjöllunar. Eins ef þið hafið
löngun til að segja álit ykkar á
einhverri sérstakri bók sem þið
hafið lesið (þarf ekkert endilega
að vera unglingabók) þá sendiö
inn smápistil. Það kæmi ekki að
sök aö fá myndir af ykkur meö i
umslaginu, en það er ekkert
skilyrði.
Nafnbirting er heldur ekki
nauðsynleg fremur en þið óskiö
sjálf.
Umfram ailt: Sýnið
áhuga i verki!
Brjánn Ingason, 15 ára:
Ástarsaga
eða hvað?
Vorið þegar mest gekk á
Höfundur: Gunnel Beckman
Þýðandi: Jóhanna Sveinsdóttir
Otg. Iðunn 1979
Verð: 4.940 kr.
Vorið þegar mest gekk á fjall-
ar um 17 ára menntaskóla-
stelpu, Maju, sem býr með
pabba sinum og ömmu i Stokk-
hólmi. Söguþráöurinn gengur út
á samband Maju við Martein,
kærastann,og samband hennar
við ömmu sina, auk þess sem
jafnréttisspekúlasjónum er
skotið inn i, en það eru mest
gamlar tuggur frá kvennaárinu.
Persónurnar eru flestar óljós-
ar, nema Maja og amma hennar
og lýsingin á sambandi þeirra
er ljósi punkturinn i annars leið-
Brjánn Ingason
inlegri bók. En þetta er allt
saman venjulegt fólk.
Atburðarásin er heldur snauð
og titillinn finnst mér þvi öfug-
mæli. Það er sagt frá þvi sem
Maja hugsar og gerir, en það er
ekkert merkilegt.
Kannski hefur þetta átt að
vera ástarsaga. Sem slik minnir
hún mig helst á bækur Margret
Ravn — ansi væmin. Og það er
Sif Gunnarsdóttir, 14 ára:
Kærast-
inn notar
hana bara
eins og
dýnu
Vorið þegar mest gekk á er
eftir sænska rithöfundinn Gunn-
el Beckman og er sjálfstætt
framhald af Þrjár vikur fram-
yfir sem kom út i fyrra. Maja,
aðalpersónan, verður 18 ára
þetta vor og fleira kemur fyrir.
Mamma hennar flytur út á land
með litlu systur hennar, en
Maja veröur eftir hjá pabba sin-
um og ömmu sem flytur til
þeirra. Maja slitur sambandi
við gamlan kærasta og eignast
annan nýjan.
Þó að aðalpersónan sé kven-
kyns i bókinni þá ætti þessi bók
Sif Gunnarsdóttir
alveg eins að vera handa strák-
um. Persónurnar eru venjuleg-
ar hvunndagsmanneskjur, eng-
in neitt algert englabarn eða öf-
ugt, bara eins og fólk er flest. Og
svo ég taki aftur fram að aðal-
persónan sé kvenkyns þá vikur
bókin lika aö karlkynshelmingi
mannkynsins, þeir eru lika til i
öðrum hlutverkum en sem feð-
ur.
Fólkið i sögunni á sin vanda-
mál sem eru mjög hversdagsleg
og gætu veriö tekin beint úr
raunveruleikanum — eins og
vafalaust hefur verið gert. Þó
eru vandamálin ekki of hvers-
dagsleg, ekki bara hvort það
þurfi aö ryksuga eða eitthvað
álika úldið, heldur er aðalvandi
Maju sá að kærastinn hennar
notar hana bara eins og dýnu og
gerir það við aðrar stelpur lika.
Hann forðast allar tilfinningar
eins og sumir strákar gera.
Maja vill ekki sætta sig við
svona meðferð, hún er að gera
sér grein fyrir kvennabaráttu
og reynir að ræöa við piltinn.
Svo deyr lika manneskja i bók-
inni svo hún er ekki viðburða-
snauð.
Eins og flestir hafa getiö sér
til er hér komin mjög raunsæ en
skemmtileg bók, þó hún mætti
vera aðeins hressari á köflum.
Ég skýt þvi inn i til að greina frá
þvi aö bókin sé ekki alveg galla-
laus. Nú, vegna þess að bókin er
svona yfirþyrmandi raunsæ þá
fleygir maöur henni ekki alveg
strax frá sér.heldur notar aðeins
skallann á sér til aö pæla i henni
á eftir. Og það má benda á það i
lokin að bókin er ekki aðeins
fyrir unglinga heldur fólk á öll-
um aldri.
litil hætta á að manni stökkvi
bros við lesturinn, þvi að þó
aö bókin sé vel skrifuð á góðu
máli þá er hún gjörsneydd
öllum húmor. Nú, ef sagan
á að efla umræðu um jafn-
réttismál þá er hún of seint
á ferðinni (hún var skrifuð
1974 og hefði átt brýnt erindi
hingað þá, jafnvel orðið met-
sölubók á kvennaárinu, en þar
sem allir virðast hafa gleymt
þvi er hún bara gömul tugga).
Maja virðist vera að mestu
leyti laus við öll vandamál að
Marteini undanskildum, en hún
veit ekki alveg hvar hún hefur
hann. Allir hafa tekiö hana i tölu
fullorðinna og pabbinn er hættur
að ala hana upp. Það leikur allt i
lyndi, voða gaman i skólanum,
friðsælt heimilislif og góð vin-
kona.
Sem sagt, vel skrifuö bók en
um ekki neitt, engum spurning-
um svarað og engar nýjar settar
fram. Kannski var það óþarfi að
vera að þýða hana núna.
Nú liggur næstum lifið við!
Arið er að renna út og
únglingasiðan vill gjarnan
minnast þess á viðeigandi
hátt, þ.e. með upprifjun á
minnisstæðum atburðum árs-
ins, og hugleiöingum, óskum
og spádómum um gáng mála á
komandi ári. Hér fara á eftir
nokkrar spurningar sem þið
eruð beðin um að svara skrif-
lega (öllum eða einhverjum I
þeirra) og svara FLJÓTT.sl
Blaðið er unnið töluvert fram i J
timann, og þess vegna verður I
efni að berast sem fyrst. Ef I
nógu margir verða til þess að ■
svara, þóekki sé nema i stuttu J
máli, þá getur siöan orðið I
mjög hressileg sunnudaginn I
30. desember. Látið það ekki J
hræða ykkur þótt þetta liti út
eins og krossapróf i mann-
kynssögu. Veriði snögg og
hjálpið til við að gera ára-
mótasiðuna almennilega. Þið
megið bæta við þvi sem ykkur
dettur i hug, spurningarnar
eru bara til að styðjast við.
Samtaka nú'.
ARAMOTA-
UPPGJÖRIÐ
I Hvaða innlendur atburður er þér minnisstæð-
astur þegar þú lítur yfir árið 1979?
En erlendur atburður?
iHvað var að þínum dómi það besta sem gerðist
á árinu:
a) innanlands
b) erlendis?
| Hvað var það versta?
IHvað var það besta sem kom fyrir
persónulega á árinu sem er að líða?
|Hvað var verst?
iHefurðu einhverja sérstaka nýársósk
breytíngar á:
a) þínum persónulegu högum
b) íslensku samfélagi
c) heiminum?
Þig
um
Tímabær
kveöja
Heiðraða úngiingasiða.
Ég fagna hjartanlega þess-
ari nýju siðu sem hefur bæst i
hóp hinna sem fyrir voru. Mér
finnst siðan byrja mjög efni-
lega og vonast til að hún batni
ennþá meira eftir þvi sem frá
liður (ef það er þá hægt).
Ég vil mikla póiitiska umræðu
á siðunni og vil að viðhorf
beggja komi fram. Hvernig
væri t.d. að biðja ihaldsbörn
(ómötuö) aö skýra viðhorf sin
til herstöðvamálsins og fleira?
Það er eitt sem mig iangar
að gera athugasemd við,
mætti ekki minnka myndaefn-
ið á siðunni og láta þannig
komast meira fyrir af rituðu
efnismiklu máli I staðinn? Ég
ætla að skrifa oft i vetur, en
læt hér i endinn fylgja ljóð
sem ég tróö saman hér um
daginn.
Timabær kveöja,
Jesús.
Táningar
Táningar
eins og f júkandi fönnin
sem bærist eftir hugdettum erlendra milla
en einsog fönnin bráðnar í hita
hversdagslífsins og verða að dauðu
lifi.
L.
Þakka þér mjög svo uppörv-
andi bréf, Jesúsminn, og veru-
lega gott ljóö. Ég get tekiö
undir það sem þú segir um
plássfrekt myndefni, þaö er
fyrst og fremst ritaða málið
sem þarf að komast að á siö-
unni (ég er alltaf i hönk með
pláss nú oröið), hins vegar hef
ég veriö að reyna að forðast að
útlit siðunnar verði of þúng-
lamalegt eins og oft vill verða
þegar margir bókstafir koma
saman, og þá reynt að lifga
uppá með myndum. Forvitni-
legt væri að heyra álit fleiri
manna á þessu atriöi. — Til
ykkar sem þegar hafið skrif-
að siðunni: Bréf móttekin og
verða birt n.k. sunnudag.
Takk og bless i bili.
OLGAGUÐRÉN
TAKK FYRIR
Unglingasíðan þakkar bókaútgáfunni IÐUNNI
kærlega fyrir skjóta og góða fyrirgreiðslu, Silju
Aðalsteinsdóttur fyrir að gefa sér tima til að setja á
blað nokkra ritdómarapunkta fyrir gagnrýnendur
okkar að styðjast við og þeim Brjáni og Sif fyrir
alla vinnuna sem þau lögðu í umsagnir sínar.