Þjóðviljinn - 21.12.1979, Page 1
UOWIUINN
Föstudagur 21. desember 1979 280. tbl. 44. árg.
„ Viljum skýra afstöðu i kjaramálum áður en lengra er haldið”
Enn hœkka olía og bensín
I gær hækkaði verð á bensíni
og olíu. Bensinlitrinn
hækkaði Ur 353 krónum i 370
krónur eöa um 17 krónur hver
litri. Þessi hækkun hafði veriö
auglýst með nokkrum fyrir-
vara, en það sýnir kannski
gleggst hve ónæmir við
íslendinar erum að verða fyrir
verðhækkunum i óðaverð-
bólgu að ekki bólaöi á hamstri
á bensini i fyrrakvöld.
Gasolía til húshitunar
hækkaði úr 142 krónum hver
litri i 155.20 krónur. Olia á bif-
reiöar hækkar úr 155 krónum i
167 krónur hver litri og hvert
tonn af svartoliu hækkar úr
89.300 krónum 1 104.200 krónur.
Tökum ekki þátt í skrípaleiknum
• sagöi Ragnar Arnalds formaður
þingflokks Alþýöubandalagsins í gær
• Eru Alþýðuflokkur og
Framsóknarflokkur reiðubúnir til
þess að stuðla að auknum kaupmœtti
lœgstu launa, hœkkun tekjutryggingar
og verðtryggingu almennra launa?
Egill Skúli um fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar
V ísitölufj ölsky ldan
er flutt úr bænum
Markmiðið er að halda á fjármálum borgarinnar af varúð og festu
„Við teljum þetta gagnslausan
skrípaleik að standa I kapphlaupi
viðhinaflokkana um tillöguflutn-
ing, þegar augljóslega vantar aila
samstööu um meginhnútinn,
kjaramálin. Af hálfu Alþýðu-
bandalagsins erum við reiðubúnir
að ræða kjaramálin sérstaklega,
og verði sæst I megindráttum á
þann grundvöll sem við höfum
lagt til þá teljum við það þjóna tii-
gangi aö leggja fram þá ýtarlegu
stefnumótun i landsmálunum öll-
um sem við höfum unniö að
síðustu vikurnar i Alþýðubanda-
laginu”, sagði Ragnar Arnalds
formaður þingfiokksins f samtali
við Þjóðviljann i gær.
Steingrimur Hermannsson
formaður Framsóknarflokksins
og Tómas Arnason ræddu i gær
viö fulltrúa Alþýðuflokks og
Alþýðubandalags hvora i sínu
lagi, og lagði þar mikla áherslu á
að Alþýðubandalagið skilaöi sin-
um tillögum til mats hjá
bjóðh agsstofnun. Ragnar
Arnalds sagöi i gær að þetta væri
gagnslaus tillöguleikur og vand-
séð hvað fengistUtúr þvi aö láta
Þjóðhagsstofnun gerast einhvers-
konar dómara i málefnum flokk-
anna þriggja. Sjálfur hefði hann
gert þá tillögu að efnahagsmála-
hugmyndum Alþýðuf lokksins
yrði frekar vísað til Biskupsstof-
imnar en Þjóðhagsstofnunar, þvi
svo augljóslega vantaði í þær all-
ar reikningslegar forsendur,
þannig að færi Þjóðhagsstofnun
að spá I þær yröi hreinlega um
trúarlegt mat að ræða.
„Alþýðubandalagiö hefur hafn-
að kjaraskerðingarhugmyndum
Framsóknarflokksins og þvert á
móti lagtáherslu á aö kaupmátt-
ur lægstu launa verði aukinn,
tekjutrygging elli- og örorkulíf-
eyrisþega yrði hækkuð og
almenn laun verötryggð. Um af-
mörkun og skil i þessum efnum
yrði að hafa samráö við samtök
launafólks. Ef samkomulag yrði
að miöa efnahagsstefnuna við
þessar forsenduri kjaramálunum
væri Alþýöubandalagiö reiðubúið
að leggja fram heildartillögur
sinar um stjórn landsmálanna.
Or þessu viljum viöfá skorið áöur
en lengra er haldið.”
Ragnar Arnalds sagði
ennfremur aö i tiilögum Alþýðu-
flokksins væri fariö i kringum það
hvort laun ættu að vera
verðtryggð, hvort skeröa ætti
verðtryggingu eða hvort hún ætti
allsengin aö vera. Slika tillögu
væri erfitt að reikna út, en hitt
væri að minnsta kosti íjóst, að
Alþýöuflokkurinn legöi til að
óbeinir skattar, og niðurgreiðslur
yrðu teknar út úr vfsitölu, sem
þýddi að þaö væri algjörlega á
hendi rikisstjórnarinnar hvort
kjaraskeröingin samkvæmt til-
lögum krata yröi 10 — 20 — 30%.
Þótt margt væri liðlega samið i
hugmyndum Alþýðuflokksins um
almenna lágmarkstekjutrygg-
ingu, millifærslur og félagslegar
umbætur á vegum samfélagsins
til laglaunafólks sem uppbót á
kjaraskeröingu þá væru þær engu
að siður allar á floti og einungis
orö á blaði án nokkurra trygg-j
inga. Þessvegna fælust i hug-
myndum Alþýðuflokksins mun
meiri kjaraskerðingar 1 heild en i
hugmyndum Framsóknarflokks-
ins. _ ekh
t gær var frumvarpi að
fjárhagsáætlun Reykjavikur-
borgar fyrir næsta ár vísað til
annarrar umræöu á fyrstu mán-
uðum næsta árs. Niðurstöðutölur
áætlunarinnar eru tæplega 37
miljarðar króna og er það 53.3%
hækkun milli ára. Egill Skúli
Ingibergsson borgarstjóri mælti
fyrir fjárhagsáætluninni og sagði
hana sömu marki brennda og
áætlanir siðari ára. „Hún
einkennist af þeirri kostnaðar-
sprengju sem við nú búum Við og
ekki sér fyrir endann á”, sagöi
borgarstjóri ,,og ber einnig merki
um si'fellt aukna þjónustu við
borgarbúa.”
Egill Skúli sagði að enn væru
óvissutimar I efnahagsmálum
þjóðarinnar. Fjárlög rikissjóðs
væru naumast komin til umræðu
og enginn vissi hvaöa endasteyp-
ur kynnu aö biöa á sviði fjármála
á næstu misserum. Þvi kynni svo
að fara aö gera þyrfti verulegar
breytingar á frumvarpinu áður
en frá þvi yrði endanlega gengiö i
i borgarstjórn, en marmið
meirihlutans væri að halda á
fjármálum borgarsjóðs með
varúð og festu.
Þá ræddi borgarstjóri stefnu
stjórnvalda i gjaldskrár-og verð-
lagsmálum og sagði:
„Stefna stjórnvalda I verölagn-
ingu á ýmissi þjónustu sem
Reykjavi'kurborg og stofnanir
hennar láta i té er okkur mjög
þung i skauti og hefur nú myndast
það misræmi milli raunverulegs
kostnaðar og þess sem notendur
greiða fyrir þjónustuna á sumum
sviðum, að torvelt verður að
koma þar jafnvægi á á ný jan le:k.
Auðvitað stafar þetta af búsetu
hinna svokölluöu „visitölufjöl-
skyldu” hér i borginni og sé ég
ekki annað, en að borgarstjórn
þurfi á endanum aö lýsa þvi yfir
að fjölskylda þessi sé flutt úr
bænum, enda hún hvergi skráð i
manntalsskrám okkar.”
Yfirlýsing Alþýðubandalagsins í
stjórnarmyndunarviðrœðunum
Sjá síðu 7
Fárvidri nyrðra í gær
Olli víða skemmdum — sumstaðar var ekki fært
á milli húsa
Fárviðri gekk yfir norðanvert
landið i gærdag og olli viða
nokkrum skemmdum. Plötur
fuku af húsum, bilar fuku af
vegum og rafmagnsstaurar
brotnuðu. Sumsstaðar var ekki
fært á milli húsa og sendi lög-
regla út aövaranir til fólks um
að vera ekki úti við þegar mest
gekk á.
Veöurhamurinn skall yfir á
nokkuö misjöfnum tima; til aö
mynda byrjuöu ósköpin á
Blönduósi um kl. 10.00 i gær-
morgun, en ekki fyrr en um kl.
13.00 á Akureyri. Og lengra
austur náði veðrið ekki, þvi á
Húsavik var aðeins um
stinningskalda að ræöa, á með-
an fárviöri geisaði vestar.
Á Blönduósi var veöur mjög
slæmt framan afien olli þó ekki
neinum skemmdum að þvl er
lögreglan tjáöi Þjóðviljanum.
Um kl. 15.00 var veöriö að mestu
gengið niður.
Á Sauðárkróki var veður
einnig afar slæmt án þess þó að
valda teljandi skemmdum. Aft-
ur á móti fuku plötur af húsum
og rúður brotnuöu á Siglufiröi.
Þar var strekkingsvindur i alla
fyrrinótt,en svo skall fárviðrið
yfir um kl. 10 i gærmorgun.
Mjög hált var á götum bæjarins
oghreinlega hættulegt fyrir fólk
aö vera á ferli meðan mesti
veðurhamurinn gekk yfir.
A Olafsfiröi var svipað veður
en þar urðu enginn óhöpp; enda
byggjum viö vel, sagði lögreglu-
þjónnsem Þjóöviljinn ræddi þar
við.
A Akureyri gekk mikiö á. Þar
fuku plötur af húsum i svo
nefndu Siðuhverfi, sem er nýtt
hverfi i bænum. Þá fuku 3 bilar
útaf veginum rétt fyrir utan
Akureyri, án þess aö slys yrðu á
fólki. Lokaði lögreglan allri um-
ferð frá Hliðarbæ, en algerlega
útilokað var að fara þar um á
bifreiðum vegna veöurofsans.
Einnig var illmögulegt fyrir fólk
að fara milli húsa, bæði var
hálka á götum og eins vegna
þess að eitt ogannað fauk um i
rokinu. Veðrið skall yfir á Akur-
eyri um kl. 13.00 en var gengið
yfirum kl. 16.00 að sögn lögregl-
unnar.
A Dalvik fuku þakplötur af
húsum og sfödegis var bærinn
rafmagnslaus vegna þess aö
einir 9 rafmagnsstaurar höfðu
brotnað innundir Akureyri.
— S.dór