Þjóðviljinn - 21.12.1979, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. desember 1979.
DlOÐVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
(Jtgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans
Framkvcmdastjóri: EiBur Ðergmann
RiUtjórar: Ami Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
FrétUatJóri: Vilborg Haróardóttir
Umsjónarmaóur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: (Jlfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar SkarphéÓinsson
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurösson
tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ólafsson
Ctlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson
Handiita- og prófárkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson.
Skrifstofa: GuÖrún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guömundur Steinsson, Kristln Péturs-
dóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, SigrlÖur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna SigurÖardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttif’
(Jtkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavfk.sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Gagnslaus tillöguleikur
• Viðræður flokkanna um vinstri stjórn hafa snúist
upp í skrípaleik. Það sem nú liggur f yrir er aðeins hvern-
ig viðræðuaðilar koma málum taktískt fyrir til þess að
geta haft sæmilega stöðu í áróðursstríðinu í eftirleikn-
um. Táknrænt um þennan skollaleik er tillögustríðið og
krafa Steingríms Hermannssonar um að Þjóðhagsstofn-
un reikni út kjaraskerðingu og verðbólgustig út úr tillög-
um sem alveg eins mætti vísa til Biskupsstof u eða Sálar-
rannsóknarfélagsins eins og Þjóðhagsstofnunar, vegna
þess að í þeim er reynt að fara í kringum kjarna málsins,
stórfelldar kjaraskerðingar.
• Framsóknarflokkurinn hefur lagt til að engar
grunnkaupshækkanir verði leyfðar og að vísitöiubætur
séu bundnar við ákveðin mörk. Fari verðlagshækkanir
fram úr þeim á láglaunafólk að fá einhverjar bætur í
fyrsta sinn, en að öðru leyti á 10 til 20% kjaraskerðing að
ná fram að ganga sé miðað við þau verðhækkunartilefni
sem þegar er vitað um. Alþýðuflokkurinn hefur lagt
fram tillögur þar sem ekki kemur fram hvort laun eigi
að vera verðtryggð, verðtrygging skert eða afnumin
með öllu. Hinsvegar er Ijóst að samkvæmt hugmyndum
krata á að taka óbeina skatta og niðurgreiðslur út úr vísi-
tölu sem myndi setja það í vald stjórnarinnar hvort
kjaraskerðingin yrði 10 eða 20 eða 30%. Hinsvegar kemur
fram hjá Alþýðuflokknum tillaga um að sett verði
ákveðin lágtekjumörk og að samfélagið bæti láglauna-
fólki kjaraskerðinguna með ýmsum félagslegum ráð-
stöfunum. Því miður er þó allt á f loti í tillögum Alþýðu-
flokksins um það hvernig kjör þessa fólks verði tryggð,
nema ef vera kynni að orð á pappír eigi að vera eina
trygging láglaunafólks.
• Alþýðubandalagið hefur ekki talið ástæðu til þess að
útfæra frekari tillögur en það hefur þegar sett fram fyrr
en kjarahnúturinn hefur verið leystur. Það hefur hafnað
kjaraskerðingarhugmyndum Framsóknar og lagt höfuð-
áherslu á að ef um grundvöll til stjórnmyndunar eigi að
vera að ræða þurfi að skapa svigrúm til kaupmáttar-
aukningar lægstu launa, hækkunar á tekjutryggingu og
verðtryggingar almennra launa. Fyrr en sæst hefur ver-
ið á grundvöll af þessu tagi er þýðingarlítið að vera í til-
löguleik við Framsóknarflokk og Alþýðuflokk.
— ekh
Verkin tala
• í stjórnmálum þarf bæði að vera fyrir hendi vilji til
verka og geta til þess að koma fram málum. Viljinn er
ekki nóg ef getan er engin, og getan er ekki nægileg sé
viljinn enginn. Það hafa verið örlög Alþýðuf lokksins sfð-
ustu misseri að haf a aldrei haft þessa eiginleika í heiðri
samtímis í réttum hlutföllum, þannig að vel gæti farið.
• Ekki skorti viljann hjá Alþýðuflokknum þegar hann
sprengdi þáverandi ríkisstjórn s.l. haust/en getan til þess
að knýja fram afgerandi pólitískar lausnir reyndist lítil.
Niðurstaðan varð sú í kosningunum að þingflokkur Al-
þýðuf lokksins þvældist í annað sinn á stuttum tíma vilja-
laus inn í viðræður um vinstri stjórn. Foringjum flokks-
ins virðist um megn að átta sig á hvert þeir vilja í raun-
inni stefna. Hinsvegar hafa þeir getað látið verkin tala
þótt viljann til þess að knýja f ram haldbærar pólitískar
lausnir skorti.
9 Alþýðuflokkurinn sprengdi í haust vinstri stjórn og
sat fram að kosningum og situr enn viðstjórn í landinu í
skjóli Sjálfstæðisflokksins. Á Alþingi hefur f lokkurinn í
hálfan mánuð haldið áfam bandalagi sínu við Sjálf-
stæðisf lokkinn og tryggt honum sterk áhrif í utanríkis-
og efnahagsmálum. Að launum hefur Alþýðuflokkurinn
tryggt sér oddaaðstöðu í flestum áhrifamestu þing-
nefndum.
• Verk Alþýðuflokksins hafa talað skýru máli um að
hann vill ónýta alla hugsanlega möguleika á myndun
meirihlutastjórnar í landinu. Verkin hafa talað skýru
máli um að hann ætlar sér ekki í vinstri stjórn og hefur
ekki getu né þor til þess að mynda viðreisnarstjórn með
Sjálfstæðisflokknum. Eina hugsanlega skýringin á at-
ferli Alþýðuf lokksins er sú að ætlun hans sé að færa sér í
nyt það upplausnarástand sem hann hefur átt drýgstan
þátt í að skapa í stjórnmálum landsins til þess að fram-
lengja lif minnihlutastjórnar sinnar.
^ Það er ekki nóg að f jasa f jálglega um landsmálin og
þykjast hafa ráð undir hverju rifi ef því fylgir ekkert
annað en sýndarmennska og hinar furðulegustu
uppákomur. Flokkar verða endanlega metnir af verkum
sinum en ekki málþófi og gusugangi í fjölmiðlum. Og
verk Alþýðuflokksins tala sínu máli sem hvert manns-
barn i landinu skilur. —ekh
[klippt
j Nú er heima
i Nú er heima. Stjórnmálasér-
■ fræðingar Morgunblaðsins stiga
* fram á sviðið undir fullu nafni
I" hver af öðrum og boða
„compromesso storico” upp á
m itölsku og islensku og kalla
|„sögulegar sættir’i-þeir meina
stjórnarsamstarf Sjálfstæðis-
■ flokksins og Alþýðubandalags-
I ins. Fyrst kemur Björn Bjarna-
■ son og Styrmir Gunnarsson læt-
■ ur sér hvergi bregða þótt grónir
m flokksmenn kalli Björn laumu-
Ikomma eða eitthvað svoleiðis
fyrir bragðið heldur áfram og
2 skrifar sjö spalta stóra um mál-
| ið.
■ Samantekt Styrmis byggist
I einkum á tvennu: í fyrsta lagi
2 að sýna fram á að þessir tveir
Ihöfuðandstæðingar i islenskum
stjórnmálum geti átt samastarf
I" vegna sameiginlegs áhuga á
velgengni atvinnuvega og þeim
■ lifskjörum sem tryggi að fólk
| ekki flýi land. t annan stað er þá
■ visað til nýsköpunarstj’órnar-
■ innar sem dæmis um að þetta
J tal geti verið annað og meira en
■ vangaveltur.
• Teýlt við
I Steingrím
Styrmir Gunnarsson skrifar
■ ekki óskynsamlega þegar hann
Ivill það við hafa. En einmitt hér
sýnist hann gripinn einhvers-
2 konar pólitiskri léttúð eða ósk-
| hyggju: málflutningurinn geng-
■ ur mjög útá að draga sem mest
■ úr þeim mun sem er á pólitisku
2 ástandi og viðfangsefnum á
Idögum nýsköpunarstjórnarinn-
ar og svo nú. An þess að sá
“ reginmunur sé viðurkenndur
| verður talið um „sögulegar
■ sættir” afar þokukennt. Svo er á
I annað að lita: greinin ber þess
a mjög glögg merki að hún sé
Ifyrst og fremst hugsuð sem leik-
ur i tafli, sem er i raun og veru
á teflt við Framsóknarflokkinn
Hver
Þremill, blað fyrir ungt fólk á
öllum aldri er nú komið út og er
það fyrsta eintak þessa árs. Þó að
það sé svo seint á ferðinni er það
aðeins merki um ágæti þess þvi
að þetta er hið vandaðasta blað
bæði að innihaldi og útliti. Útgef-
andi er Ungmennafélagiö Þjóð-
björg.
I ritstjórnargrein blaðsins er
skýrt tekiö fram að tilgangur með
útgáfunni sé ekk-i gróðabrall
heldur tilraun til að skapa ritvöll
og málgagn þeirra sem erfa
sukkið og svinariiö, verðbólguna
og herinn. Þremill er opið
timarit, frjálst og óháö öllu nema
hugsjónum útgefandans: þjóð-
frelsi, jafnrétti og bræðralagi.
En hver þremillinn er svo i
þessum Þremli?
Dálkahöfundur er Glókollur (
Svo gellur Glókollur ). Hann á
þarna grein sem heitir Hvaða
áróður? — eða fyrirlestur i fjöl-
miðlafræði. Er þar fjallað um
málgagn allra landsmanna.
Sprengjan sem ekki sprakk eða
punktar úr sögu islensks
terrorisma er upprifjun á
tveimur málum sem eiga það
sameiginlegt að vera hvort um
sig þáttur á mótmælum fólks
gegn ákvörðunum valdhafanna.
Er þar annars vegar um að ræða
sprengjutilræðið i Hvalfiröi vorið
1969 og rof stiflu Í Laxá i
Mývatnssveit sumarið 1970.
Þá er I Þremli gamansöm grein
um Islenska mannræningja i
Menntaskólanum i Hamrahlíð.
Fjallað 'er um Unglinga-
klúbbinn sem fylgir þvl gullna
boðorði að virkja sem flesta i
miklu fremur en Alþýðubanda-
lagið. Styrmir segir:
„Innan Sjálfstæðisflokksins
hefur hugsanlegt samstarf við
Alþýðubandalagið ekki verið
rætt að ráði. Á undanförnum ár-
um hafa við og við komið fram
raddir um það í hópi sjálfstæðis-
manna, að timabært væri orðið
að nálgast Alþýðubandalagið og
kanna grundvöll fyrir samstarfi
þessara tveggja flokka. Þær
raddir hafa þó aldrei fengið
mikinn hljómgrunn og það er
ekki fyrr en Steingrimur Her-
mannsson hóf útilokunarherferð
sina á hendur Sjálfstæðisflokkn-
um, að umtalsverður áhugi hef-
ur vaknað meðal manna á þvi
að huga að samstarfi við
Alþýðubandalagið.”
Með öðrum orðum: það er
mikið vafamál hvort sáttatalið
er hugsað sem raunverulegur
pólitiskur valkostur — miklu
heldur er það liður i refskák
sem tefld er við Steingrim
Hermannsson.
mamn wm ■«■■■■■ hi ■ h ■ m
leiftursóknin svonefnd, er allt i ■
einu eins og gufuð upp rétt eins
og málvísindakverið hans
Stalíns. Að minnsta kosti má
hlaupa frá henni eins langt og
fara gerir. Styrmir segir:
„Aðalatriðið er þó, að Sjálf-
stæðisflokkurinn óskaði eftir
umboði kjósenda til að fram-
kvæma leiftursóknina. Flokkur-
inn fékk það umboð ekki. Þess
vegna hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn frjálsar hendur til að sveigja
frá leiftursókninni að svo miklu
leyti, sem hann telur sjálfur
skynsamlegt. Andstaða annarra
flokka við leiftursóknina þarf
þvi ekki að koma I veg fyrir
samstarf Sjálfstæðisflokksins
við þá um efnahagsmál.”
Fróðlegt
Sem sagt: Þetta er allt nokk-
uð fróðlegt. Lika það, að grein-
inni lýkur á áminningu — ekki
um nýsköpunarstjórnina sem
vissulega mætti kenna við
Sjsmatarí
Sji'.fstjcðisfioivk*
5 Aiþýðvjhamlalaífs
>ÖGULEGAR SÆTTI
I
Leiftursókn?
Hvað er það?
Annars ber greinin þvi einnig
mjög ljós merki, hve smeykir
Sjálfstæðismenn eru við póli-
tiska einangrun. Sú stefna sem
fyrir nokkrum vikum var ein
talin fær i verðbólgustriðinu,
„sögulegar sættir” — heldur um
þjóðstjórnina, sem þeir settust I
saman i striðsbyrjun, Ölafur
Thors og Hermann Jónasson.
Það er nefnilega það. Hvað
sagði ekki Steinn Steinarr
skáld:"en eitt er vist og það er
það, að Þjóðstjórnin okkar tap-
ar sinu strfði”.
áb.
og skorið.j
þremillinn!
starfi og stjórnun.
Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar
greinina Frjálst föðurland eða
dauða! (patria libre o morir). Er
hún um byltinguna i Nicaragua.
Þremill lætur móðán mása
(gamansögur og skrýtlur) og Ég
mundi segja eru tveir fastaþættir
i blaðinu. 1 þeim siðarnefnda sem
nefnist STRUMPstrumpST er
ritað um strumpaaéðið og undirrót
þess.
Þremill mánaðarins er að
þessu sinni Hannes Hólmsteinn
Gissurarson. Rætt er við Hannes
um uppruna hans og stjórnmála-
skoðanir. Margar myndir fylgja
viðtalinu m.a. af Hannesi á yngri
árum.
Guðrún Jónsdóttir skrifar um
Bernhöftstorfu og Ásgeir R-
Helgason formaöur Þjóöbjargar,
yrkir um Torfuna. Ljóöið er
myndskreytt af Hallgrimi
Helgasyni eða öfugt; myndin
ljóðskreytt af Asgeiri.
Hans hátign skrifar frásögn af
einkennisbúningafasisma og
nefnist húntÞeir berja frá sér á
Hótel Borg!
Þá eru teknir upp tveir þættir
úr bók Stefáns Jónssonar af Pétri
Hoffmann. Eru það þættirnir
Selsvararorustan og Gvendar
þáttur Jaka.
Islensk rokkópera kvikmynduð
nefnist viðtal Þremils við þrjá
unga menn sem fórna sumar-
hýrunni og öllum fristundum
fyrir hugsjónina um eitthvað nýtt
og ööru visi.
Kynfræðsla I skólana og
ókeypis getnaðarvarnir nefnist
grein og önnur um Tvibytnuna,
bók sem hefur verið þöguð i hel á
íslandi. Einnig er birtur kafli úr
Tvibýtnunni.
Sfðast en ekki slst er i Þremli
heil opna sem nefnist Sjónvarp
Haralds Guðbergssonar,
skemmtileg og vel gerð teikni-
myndaseria.
Þremill er 32 siður, prentaður á
glanspappir og mjög vel mynd-
skreyttur. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður er ölafur Ólafsson en aðrir
sem unnu að blaðinu eru þeir
Benedikt Kristjánsson, Björn
Blöndal, Guðbrandur Stlgur
Agústsson, Guðlaug Gísladóttir
Gunnlaugur Snædal, Jason Stein-
þórsson, Lúðvik Geirsson, Snorri
Styrkársson o.fl. Formaður Þjóð-
bjargar er eins og fyrr segir
Asgeir R. Helgason.
Hver þremillinn! —GFr .