Þjóðviljinn - 21.12.1979, Síða 7
I
Föstudagur 21. desetnber 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Ekki hefur þokast verulega i samkomulagsátt á þeim átta viöræðufundum sem haldnir hafa verift á
þeim hálfa mánuði sem Steingrimur Hermannsson hefur fariö meö urnboö til stjórnarmyndunar.
Yýirlýsing Alþýðubandalagsins í
stjórnarmyndunarviðrœðunum
Alþýðuflokkurinn vill
ekki í vinstri stjórn
Lokaátak til
eflingar
Málfrelsissjóði
í dag áritar
Tryggvi Emilsson
bók sina
Fyrir sunnan
i Bókabúð Máls og
menningar frá kl. 15-18.
Þetta er siðasta vikan
að sinni sem fólki gefst
kostur á að fá bækur
áritaðar af höfundi.
öll framlög fyrir áritanir renna óskipt i
Málfrelsissjóð
Stjórnarmyndunarviöræður
Framsóknarflokks, Alþýöu-
bandalags og Alþýðuflokks hafa
nú staðið yfir i tæpar tvær vikur
og hafa verið haldnir sjö viðræðu-
fundir.
Snemma i þessum viðræðum
lagði Alþýðubandalagið fram
yfirlit yfir fjölmörg stefnumark-
andi atriði, sem óhjákvæmilegt
er, að væntanlegir samstarfs-
flokkar ræði og taki afstöðu til.
Nokkrar tillögur Alþýðubanda-
lagsins um efnahags- og kjara-
mál hafa verið til umræðu á
viðræðufundum, en hins vegar
hafa ekki fengist umræður um
mörg önnur atriði, sem Alþýðu-
bandalagið hefur gert tillögur
um.
Framsóknarflokkurinn hefur
einnig lagt fram tillögur um
nokkrar aðgerðir i efnahags-
málum til að draga úr verðbólgu.
Það sem einkennir þessar tillögur
er einkum það, að reynt er að
leysa verðbólguvandann á
kostnað launafólks, m.a.
láglaunafólks. Flest bendir til
þess, að framkvæmd þessara til-
iagna myndi leiða til mjög veru-
legrar kjaraskerðingar á næstu
tveimur árum, en hins vegar
myndi verðbólga lækka litið frá
þvi sem verið hefur.
Alþýðubándalagið hefur þegar
hafnað þessum tillögum á fyrri
viðræðufundum, og telur þvert á
móti óhjákvæmilegt, að
efnahagsaðgerðir næstu rikis-
stjórnar miðist við það, að kaup-
máttur lægri launa verði nokkuð
aukinn frá þvi sem nú er,
tekjutrygging elli- og
örorkulifeyris verði hækkuð og
almenn laun verði verðtryggð.
Þvi miður verður ekki séð, að
þokast hafi verulega i samkomu-
Björt mey
og hrein,
æskuljóð
eftír Baldur
Páimason
Björt mey og hreinheitir ljóða-
bók eftir Baldur Pálmason sem
bókaútgáfan Þjóðsaga hefur gefið
út.
I eftirmála gerir höfundur þá
grein fyrir bók sinni að fyrir
tveim árum safnaði hann saman
þeim kvæðum frá siðasta aldar-
fjórðungi sem hann vildi helst
gefa lif og komu þau Ut i bókinni
„Hrafninn flýgur um aftaninn”.
En þá voru æskuljóð höfundar
eftir, drjúg syrpa. Og i þeirri von
Formaður
Framsóknar-
ýlokksins verður
að meta og
ákveða hvort
viðrœðum verður
haldið áfram
lagsátt á viðræðufundum flokk-
anna. Athyglisvert er, að þegar
sjöunda viðræðufundinum lauk
hafði Alþýðuflokkurinn enn ekki
lagt fram neinar formlegar til-
lögur af sinni hálfu i þessum
viðræðum. Hins vegar hefur
komið æ betur i ljós, eftir þvi sem
lengra hefur liðið frá kosningum,
að Alþýðuflokkurinn starfar
áfram í nánu bandalagi við Sjálf-
stæðisflokkinn, eins og var fyrir
kosningar.
Við forsetakjör á Alþingi beitti
Alþýðuflokkurinn sér fyrir þvi, að
Sjálfstæðisflokkurinn hlyti
forseta sameinaös Alþingis en
hafnaði samstarfi við Fram-
sóknarflokk og Alþýðubandalag
um forseta og i nefndarkjör.Siðan
kaus Alþýðuflokkurinn sjálf-
stæðismann sem forseta neðri
deildar. Alþýðuflokkurinn kaus
með Sjálfstæðisflokknum til
einnar þýðingarmestu nefndar
Alþingis, fjárveitinganefndar., til
þess að koma i veg fyrir, að tveir
alþýðubandalagsmenn næðu
kosningu i nefndina. Siðan hefur
Alþýðuflokkurinn samið við Sjálf-
stæðisflokkinn um formennsku i
fjárveitinganefnd og þannig
myndað meiri hluta með honum i
Baldur Pálmason
að enn væru ekki úr sögunni les-
endur „rómantiskra og dálitið
gamaldags ljóða” valdi hann 27
ljóð úr handritafúlgunni — átta
hin elstu eru frá 16da og 17da
aldursári höfundar.
þessari nefnd.
Alþýðuflokkurinn hefur einnig
gert samkomulag við Sjálfstæðis-
flokkinn um aðra þýðingarmestu
starfsnefnd Alþingis, utanrikis-
málanefnd. Þar kaus Alþýðu-
flokkurinn formann Sjálfstæðis-
flokksins, Geir Hallgrimsson,
sem formann nefndarinnar.
Alþýðuflokkurinn hefur þegar
tryggt Sjálfstæðisflokknum
sterka aðstöðu til áhrifa við
meðferð mála og fyrirfram
skapað þær aðstæður sem mjög
myndu torvelda störf vinstri
stjórnar.
Flest bendir til þess, að Alþýðu-
flokkurinn miði gerðir sinar við
það að framlengja lif eigin minni
hluta stjórnar, sem mynduð var
með atveina Sjálfstæðisflokksins.
Framhald á bls. 13
Blaðbera vantar í Garðabæ!
Sunnuflöt — Markarflöt
Faxatún — Aratún
Breiðás — Laufás — Melás
Borgarás — Stórás.
Uppl. hjá umboðsmanni Þjóðviljans i
Garðabæ, Helenu i sima 44584 og á af-
greiðslu blaðsins i sima 81333.
MOBVIUINN
Simi 81333
Ódýru furuhúsgögnin
eru komin aftur
e^ager^-
Eyjagötu 7, Orfirisey
Reyk|avik simar 14093—13320