Þjóðviljinn - 21.12.1979, Síða 15
Föstudagur 21. desember 1979. ÞJÓDVILJINN — SIÐA iS
Asmundur Jónsson og GuOni Rdnar Agnarsson, stjórnendur
Afanga.
Danstónlist úr
ýmsum áttum
Áfangar eru á sinum stað i
dagskránni i kvöld. Ásmundur
Jónsson sem hefur umsjón
meö þessum vinsæia tóniistar-
þætti ásamt Guðna Rúnari
Agnarssyni, sagði að i kvöld
mundu þeir spila dansmúsik
frá ýmsum timum og i ýmsum
myndum.
Svo förum við svolitið inn i
dansinn einsog hann er not-
aður við helgiathafnir frum-
byggja i Afriku, og lika viö
trúariðkanir i Japan.
Útvarp
kl. 23.00
— Við erum með plötu sem
heitir The Complete Dancing
Master, og leikum af henni
dansa frá Bretlandi, bæði
þjóðdansa og dansa frá
Endurreisnartimabilinu. Inn i
þetta fléttum við skoðunum
manna á dansi og danstónlist
gegnum aldirnar.
Loks verður vikið svolitið að
söngva- og dansmyndum sem
gerðar hafa verið á undan-
gengnum áratugum. Það má
þvi segja að þetta sé dans-
músík úr ýmsum áttum, og
lika hjá ýmsum stéttum, —
sagði Asmundur að lokum.
Lesið úr íslenskum bókum
Þátturinn ,,Á bóka-
markaðinum” er á dagskrá i
dag, i næstsiöasta sinn.
— Það er restin af islenskum
bókum, sem lesið verður úr —
sagði Margrét Lúðviksdóttir,
sem verður kynnir þáttarins.
— Jónina H. Jónsdóttir les
úr nýrri ljóðabók Gunnars
Dal, Lifið á Stapa, Gisli
Kristjánsson les kafla úr bók-
inni Móðir min húsfreyjan.
Þá mun Gylfi Gröndal lesa
úr ljóðabók sinni, Döggslóðog
Andrés Björnsson les úr
sjálfsævisögu Hofdala-
jónasar.Gils Guðmundsson les
úr Mánasilfri, bók sem hann
hefur tekið saman.
Jónas Jónasson les kafla úr
Bflabullum, skaldsögu Þor-
steins Antonssonar, og Hjört-
Útvarp
kl. 10.45
ur Pálsson les úr bókinni
Týndir sniilingar eftir Jón
Óskar.
Var þetta glæpur?
Föstudagsmynd sjónvarps-
ins að þessu sinni er cftir
franska sniliinginn Jean
Jean Renoir. Myndin var tekin
1951. í baksýn sést málverk,
sem faöir hans, Auguste
Renoir málaði af honum ung-
um.
Sjónvarp
kl. 22.30
Renoir sem lést I hárri elli fyrr
á þessu ári, og heitir myndin
Var þetta glæpur? (Le crime
de monsieur Lange). Hún var
gerð árið 1935.
Jean Renoir er talinn i hópi
mestu meistara kvikmynda-
sögunnar. Bestu myndir hans
eru áreiðanlega Blekkingin
mikla (La Grande Illusion
1937 og Leikrelgur (La Regle
de Jeu, 1939) — tvær kvik-
myndir sem oft eru taldar með
þegar spurt er um bestu
myndir allra tima.
Renoir var sonur list-
málarans fræga Auguste
Renoir sem var einn af im-
pressionistunum frönsku.
Hann hóf feril sinn sem
kvikmyndastjóri i Frakklandi
1924, með myndinni La Fille
de l’Eau. Flestar bestu mynd-
ir sinar gerði hann þar, en árið
1941 var hann kominn til
Bandarikjanna og farinn að
stjórna kvikmyndum i Holly-
wood. Þar bjó hann siðan það
sem eftir var ævinnar og
framleiddi margar myndir
sem ekki eru taldar jafnast á
við það besta sem hann gerði i
Frakklandi.
—ih
frá
lesendum
Málvillur Moggans
Sigurður Eliasson sendi
okkur tvær úrklippur úr
Mogganum frá 8. des. s.l.
,,sem viti til varnaðar” einsog
hann segir i brefi sinu.
Önnur úrklippan er viötal
við Askasleiki jólasvein, og er
fyrirsögn þess næsta voðaleg:
„Okkur jólasveinana hlakk-
ar til að hitta alla krakkana".
Þessi beygingarvilla er
endurtekin i viðtalinu. Það er
erfitt að trúa þvi, að islenskur
jólasveinn tali svona vitlaust.
Nema kannski jólasveinarnir
á ritst jórnarskrifstofum
Morgunblaðsins.
Megintilefni Sigurðar með
skrifunum er þó að benda á
hina úrklippuna sem ber yfir-
skriftina Fundin ný gerö DNA.
Um þessa frétt Moggans segir
Sigurður:
,Kjarnsýran DNA er sam-
eind (mólikúl) gerð úr mý-
mörgum frumeindum (atóm-
um). Watson og Crick upp-
götvuðu ekki þetta risa-
mólikúl. Vitneskja um kjarn-
sýrurnar er ævagömul. Hins
vegar tókst þessum snilling-
um að efnagreina kjarn-
sýrurnar og i framhaldi af þvi
tókst að sýna fram á sérstæðni
þeirra og endurnýjunar-
hæfni.”
Loks segir Sigurður:
„Sjónvarpið er ekki heldur
syndlaust að þvi er varðar
meðferð málsins. Þannig talar
Bjarni Felixson i tima og
ótima um „kiló”. Lyftinga-
menn lyfta svo og svo mörgum
kilóum osfrv. Það má vist
þakka fyrir á meðan þeir lyfta
ekki km, kw, eða ksek, t.a.m.
I JÓLA
UMFERÐINNI
Kiló (fyrir kg) er að verða
leiðinda latmæli og þarf að
upprætast áður en það grefur
frekar um sig. Að visu erum
við ekki einir um þetta
Þetta lúmska latmæli er
t.a.m. orðið rótfast i dönsku”.
Fundin ný
gerð DNA
Boston. Mnssnckiuetts. 7. dcscmbcr. AP
VÍSINDAMENN við |
Tækniháskólann í Massa-
chusetts (MIT) hafa upp-
götvað afbrigði af DNA-
kjarnasýrunni, frumeind-.l
inni sem allt líf byggir á. I
Sérfræðingar sem unnu*
að rannsóknum sögðu að (
uppgötvunin ætti áreiðan-i
lega eftir að breyta skiln-
ingi manna á DNA-kjarna-
sýrum og einnig væri upp-
götvunin mikilvæg fyrir
meðhöndlun krabbameins.
Hið nýja afbrigði er talsvert
frábrugðið DNA-gerðinni sem
nefnd hefur verið hin tvöfalda
hvirfingalína og James Watson og
Francis Crick uppgötvuðu fvrir 26
árum, en þeir hlutu hlóbelsverð-
laun fyrir þá uppgötvun. í upp-
götvun Watsons og Cricks snerist
hvirfingalínan til hægri en í nýju(
uppgötvuninni snýst hún til
vinstri. Frumathuganir benda til
þess að hið nýja afbrigði sé sú
)rnmeind sem hvetji krabbamynd-
andi frumur til að framleiða i
(krabbamein..
ALLT STUÐLAR ÞETTA AÐ GLEÐILEGUM JÓLUM
OG GÓÐRIVEGFERÐ ALLAN
ÁRSINS HRING.
||U^FERÐAR
Það fer vist ekki framhjá neinum að nú er svartasta skammdegiö I
algleymingi. Þá þurfa menn að vera sérstaklega varkárir f umferö-
inni. A þessari teikningu, sem Umferðarráð hefur dreift, er bent á
helstu hætturnar I jólaumferðinni og hvernig beri að varast þær.
Fyrirspurn
til Lúðvíks
Karl Þórðarson, verka-
maður i Aburðarverksmiöju
rikisins, vill beina þeirri fyrir-
spurn til Lúðviks Jósepssonar,
formanns Alþýöubandalags-
ins hvernig standi á þvi að
borgað er hærra kaup
i erlendu stóriðjuverksmiðj-
unum (Straumsvik, Grundar-
tanga osfrv.) en i rikisverk-
smiðjunum.
I hverju liggur þessi kaup-
gjaldsmunur? — spyr Karl.
Auk þess vill hann fá að vita,
hvort Alþýðubandalagið sé á
móti hærra kaupi fyrir
alþýðumanninn, með þvi að
vera á móti stóriðju.
Frá dögum
afa og
ömmu
Teikning eftir Samúel Eggertsson sem sýnir siglingar forfeðra
vorra á þjóðveldistimanum. Samúel var kennari og listateiknari og
liggur eftir hann mikill fjöldi listaverka I þessum dúr. Þetta er frá
árinu 1913. Þess skal getið til gamans aö Samúel var bróðursonur
Matthiasar Jochumssonar og bróöir Skugga (Jochums Eggertsson-
ar).
,'|já fow jtíuniU' j'ruga
«S frjáisneSts Ijeljumuv golSw.
ítustim uni IjsiÍtiijiiis ljt| ^
h
“‘|ÍsiUsírítsgblmis ht"~
L yúmtjuW bttiarma shauii
uUust tS íjn-ótl sg ýwgÍ
\tndu suo gkíic vtö átt”
wlJ ^
.nlr s’llll">il iiumtmiiinn muitur itiiiiitiiliuett ujhiralMR tlkjjuf naiiUiL é,if|í Jiua||ofcn^ái\,