Þjóðviljinn - 23.12.1979, Síða 6

Þjóðviljinn - 23.12.1979, Síða 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. desember 1979. Litið til baka Þaö var eftir seinni heims- styrjöldina aB einstaka menn vöknuðu til meðvitundar. Hitler og áróöursfulltrúar hans höfðu heilaþvegið þýsku þjóðina og hafði kvikmyndin þar gegnt ákveðnu hlutverki. Spurningarn- ar lágu í loftinu. Hversu stóra hlutdeild átti kvikmyndin i nasistaáróðrinum? Hún var ekki svo afgerandi þattur í þessum áróðri. En getur veriö aö áhrif hennar hafi verið afgerandi? Nei, það voru aðrir þættir sem skiptu meira máli. En hvaða þættir þá? Þessum spurningum var i raun og veru aldrei svarað. En samt höfðu margir fengið ákveöið hug- boöogvarð það tilþess, aöþýskir skólamenn gáfu kvikmyndinni og hugsanlegum áhrifum hennar aukinn gaum. Það sem Þjóðverjar hræddust mest var hugsanlegt áróðursgildi kvikmynda og var nú hafin til vegs og virðingar mikil og viðtæk verndunarstefna, sem teygöi anga sina til annarra landa Evrópu. Kvikmyndakennsla var hafin i skólum og var megin inn- tak kennslunnar verndun gegn þeirri hættu og þeim skaðlegu áhrifum sem kvikmyndir geta haft. Ætlunin var að þroska með börnunum listrænan kvikmynda- smekk og eru hreyfingar eins og „Action dergutefilm”og flokkur kvikmynda með sama nafni af- kvæmi þeirrar stefnu. En það er orðið langt siðan þetta var og miklar framfarir hafa orðið i uppeldis-, sálar- og kennslufræðum sem hafa markað aðra stefnu i þessum mál\)m. „Hélt að indí- ánarnir væru þreyttir á lífinu” Arið 1963 gerði Þjóðverjinn Walther Tröger merkilega rann- sókn á möttöku og upplifun 4000 unglinga á aldrinum 12—19 ára á kvikmyndum. Tröger komst að þeirri niðurstööu aö móttakan fylgi þroskaferlinu. Niðurstöður voru sem hér segir: 1. Kvikmynd er raunveruleiki. Hluti barnanna upplifði kvik- myndina eins og hvern annan raunverulegan atburð sem gerist hér og nú. 2. Kvikmynd er mynd úr raun- veruleikanum, þar sem hinar kvikmynduðu persónur og hlutir voru þar og geröu þaö sem kvik- myndin sýnir. þ.e. raunverulegur atburður i þátið eða eins og ein af eldri stelpunum orðaði það „Éghélt að indjánarnir sem voru drepnir væru fólk sem var orðið þreytt á lifinu og tók þess vegna þátt i þessum kvikmyndaða at- burði.” 3. Kvikmyndin er mögulegur raunveruleiki, þ.e. börnin álitu atburðinn ef til vill hafa gerst eins og kvikmyndin sýndi. 4. Kvikmyndin er valmöguleiki úr raunveruleikanum sem er verk kvikmyndageröarmann- anna og getur bæði byggt á upp- spunnu efni jafnt sem heimildar- legu. Þessar niðurstööur frá 1963 gefa okkur smá hugmynd um hvernig unglingar upplifa kvik- myndir. En hvað þá með börnin? Við spurningunni veröur ekki gef- ið einhlitt svar. enda ekki mögu- legt. En það er þó öruggt að ef börn fá ekki almennar upplýsing- ar um hvaö kvikmyndir eru, þá hlýtur móttaka þeirra að byggj- ast á fölskum forsendum. „Besta jóla- auglýsingin” Ef við nú i framhaldi af þessu athugum hversu stórt hlutverk hinar „lifandi myndir” spila i móttöku á skilaboðum og i sam- skiptum almennt i islensku sam- félagi, þá komumst við að þeirri niðurstööu, að það sé orðið æði stórt. Lengi fram eftir öldinni sáu Einar Már Guðvarðarson skrifar Hér hefst greinaflokkur, sem fjallarum börn og ungl- inga I samfélagi einstefnu- miðlunar, þar sem megin- áhersla er lögð á kvikmyndir og sjónvarp. Hér er um að ræða þatt sem er oröinn mjög stór i félagsmótun og uppeldi barna og unglinga á lslandi, og vægi hans mun aukast i framtiðinni. Það er þvi í raun skylda okkar aö gefa þessum samskiptaþætti meiri gaum en veriö hefur, og þá jafnframt nauðsynlegt að hafa i huga að ekkert samfélag þrifst án sam- skipta þegnanna. Fjölmiðlun byggistá einstefnumiðlun og þvi er styrkur hennar gifur- legur. Fjölmiðlun krefst að- halds og gagnrýni á hverjum tima. Að öðrum kosti er hætt viö að lýðræðinu sé stefnt I hættu og að grundvellinum sé kippt undan sjálfstæöi þjóðarinnar. Við eigum I vök að verjast. Þessi greinaflokkur krefst viðbragðs eða andsvars sem flestra. Égóska eftir að hann verði lesinn af gagnrýni og að hver og einn dragi sinar ályktanir. * kvikmyndir_________ A Börn og unglingar í samfélagi einstefnumiðlunar \ „Framleiösla sem höföar til sem flestra meö þvl aö spila á strengi ofbeldis, kúgunar eöa lágra mann- legra hvata i einhverri mynd.” segir i smápistli undir fyrirsögn- inni „Besta jólaauglýsingin” skrifuðum af Guðna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra barna- og unglingastarfs KFUM og K „Siðustu vikurnar fyrir jólin er oft gaman að sitja fyrir framan sjónvarpiö og horfa á allar jóla- gjafaauglýsingarnar sem þar birtast. Þegar sama auglýsingin er sýnd kvöld eftir kvöld, finnst okkur það bara ennþá skemmti- legra, þvi þá getum viö lært lög og texta utanað og sungiö meö um leiö og auglýsingin er sýnd. Fyrir næstum þvi tvö þúsund árum sáu nokkrir fjárhiröar fyrstu og bestu jólaauglýsinguna. Þeir sátu ekki fyrir framan sjón- varpiö, heldur gættu þeir hjaröar sinnar á Betlehemsvöllum. Þaö, scm þeir sáu og heyröu kom þeim sjálfan mig: „Endurspegla þessi orð ef til vill skoðanir þorra þjóðarinnar um hlutverk sjón- varpsinssem markaðstækis?” Er heilaþvotturinn kominn á þetta hátt sig? 1 pistlinum hérá undan er dreg- inn samnefnari annarsvegar á milli guðs og þeirra sem opinbera hinn „heilaga sannleik” þ.e. aug- lýsenda, og hins vegar á milli engils guðsog sjónvarpsins. Sjón- varpiö er þvi skilgreint i þessari tilvitnun sem engill braskaranna. Siðasta setningin i tilvitnuninni hefði þvi eins mátt vera: Orð sjónvarpsins sýna okkur betur og betur hve mikið braskararnir elska okkur. 1 framhaldi af þessu þá langar mig að benda Guöna og öðrum þeim sem hafa svipaðar skoðanir framleiðsla til skemmtunar og afþreyingar. Fjölmiðlarnir eru þvi sterkt viðbótarafl i menntun barna ogunglinga ogþeir fletja út að vissu marki margbreytileik- ann i umhverfi okkar (stuðla að mótun og viðhaldi ákveðins gildismats, norma og imynda). Sem veitendur upplýsinga og skemmtunar eruþeir mikilvægur hlekkur á milli einstaklings og þjóðfélags. Mikilvægi þeirra og styrkur er gifurlegur, þar sem þeir félagsmóta börn og unglinga og innræta þar með ákveðnu gildismati, fyrirmyndum og lifs- sýn, sem er háð þeim hugmynda- fræðilega bakgrunni sem fjöl- miðlarnir byggja á hver um sig og hverju sinni. Fjölmiölarnir sem fræðendur skapa þvi ákveöin vandkvæði. 1 kvikmyndahúsin einungis um þessa miðlun, en siðan bættist sjónvarpið 1 hópinn. Sjónvarpiö flytur menningarlegt efni inn á heimilin. Sjónvarpið segir okkur hvað við eigum að kaupa 1 aug- lýsingum. Sjónvarpið flytur skilaboð inn á heimilin sem eru af margvislegri gerð og eiga sér ólik upptök. Hvað er i raun og veru sjónvarp og hverju er það að miðla dagsdaglega inn á heimil- in? Sumir virðast alla vega hafa nokkuð fastmótaðar hugmyndir um hvað sjónvarp er og hvert hlutverk þess er i mótun góðra viðhorfa. Þegar ég sat við að hripa þessi orð niður á blað þá barst mér i hendur „Jólakveðja” 1. árg. 1. tbl. og er blaðið gefið út af kristilegum skólasamtökum og kristilegu stúdentafélagi. Þar svo á óvart, að þeir urðu mjög hræddir. Þeir sáu engil, sem sagöi við þá: „Veriö óhræddir, þvi sjá ég boöa yöur mikinn fögn- uð sem veitast mun öllum lýön- um, þvi aö yöur er i dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drotfinn i borg Daviös”. Með þessum oröum lét Guö engil sinn auglýsa þaö aö sonur hans væri fæddur, frelsari allra manna værikominn I heiminn. Og þvi er eins fariö með þessa aug- lýsingu og þær sem viö sjáum i sjónvarpinu, að þvi oftar sem við heyruin þennan boöskap, þvi kærari verður hann okkur. Orð engilsins sýna okkur betur og betur hve mikið Guö elskar okk- ur.” Lái mér hver sem vill, ég varð sem þrumulostinn. Ég spurði og já, einnig öllum þeim sem láta sig félagsmótun og uppeldi barna og unglinga einhverju máli skipta, að slikar og þvilikar hug- myndir eru firra ein og fásinna. Upplýsingabanki Fyrirbæðibörnogunglinga eru hljóð-mynda miðlarnir (kvik- myndir og sjónvarp) mikilvægur upplýsingabanki um umheiminn. Og þar sem upplýsingamiðlun þeirra eykst stöðugt og er að hluta til háð tilviljunum, þá er jafnframt mikilvægara með hverjum deginum sem liður að veita þessum upplýsingum að- hald. Fjölmiðlarnir flytja einnig menningarlega framleiðslu inn á heimiliokkarog aukþess að veita okkur upplýsingar, þá er þessi

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.