Þjóðviljinn - 22.03.1980, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. mars 1980
AF GÚLAG OG GRINDAVÍK
Það mun hafa verið um 1770 sem breski
sæfarinn Cook nam land á suðausturströnd
Astralíu, helgaði bresku krúnunni talsvert
landsvæði og nefndi það New South Wales.
Nokkrum árum síðar var svo sett á stofn
fanganýlenda við Botany Bay, og má því segja
aðnákvæmlega tvær aldir haf i liðið milli þess,
að Bretar hófu að senda fólk til þrælkunar-
vinnu í Astralíu, þar til Ástralíumenn fóru að
leggja leið sína hingað til lands sömu erinda.
Víst hefði mátt ætla að afkomendur þraut-
píndra afbrota- og þræikunarmanna kölluðu
ekki allt ömmu sína á vinnustöðum, enda
ýmsu vanir úr sögu forfeðranna, enef marka
má blöðin mun aðbúnaður þrælkunarfanga
Bretaveldis á ofanverðri átjándu öld hafa
verið hrein himnaríkissæla miðað við það sem
gerist í vissum verstöðvum hérlendis.
Nú er mér sagt að nafntogað frystihús í
Grindavík sé að reyna að fá blámenn úr nám-
unum í Ródesíu til starfa og að sú umleitan sé
aðalbrandarinn í S-Afríku um þessar mundir.
Þeir segjast víst ekki láta bjóða sér hvað sem
er í Simbabwe.
Kannski eru fslendingar þeir einu í veröld-
inni, sem geta kyngt aðbúnaðinum í alræmd-
ustu verbúðum íslensks fiskiðnaðar og njóta
þess máski, að þeir eru að drjúgum hluta af
írsku þrælakyni.
En það er nú andskotans sama þótt búsk-
menn og blámenn séu ekkert yf ir sig hrif nir af
félagslegri snyrtiaðstöðu í fiskverkunar-
húsum og verbúðum Islands, einn virðist þó
vera sá maður sem virkilega hreifst af fyrr-
nefndum athafnasvæðum, en það var gestur
vor hér á dögunum, sjálfur aðstoðarkennslu-
málaráðherra Eistlands, aðstoðarfiskimála-
ráðherra Sovétríkjanna, og formaður vináttu-
félagsins i Eistlandi (eins og segir orðrétt í
Vísi). Mér datt nú strax í hug að hann hefði
meira en lítiðað gera þessi. Látum nú vera, að
hann skuli vera kennslumálaráðherra og
fiskimálaráðherra. En maður hefði nú haldið,
að það væri heilsdagsstarf eða meira að vera
formaður sovésks vináttufélags í Eistlandi,
nema náttúrlega að þeir, sem á að stofna til
vináttu við, séu farnir úr landinu.
Jæja, þessi heiðursmaður — Nikolaj P.
Kúdrjavtsév — hreifst mjög af frystihúsi ís-
bjarnarins, fór svo til Vestmannaeyja til að
kynna sér vinnuaðstöðu og verbúðalíf í eyja-
klasanum. Vonandi hefur sú för verið lær-
dómsrík, og væri óskandi að hann gæti miðlað
landsmönnum sínum af þeim fróðleik sem
hann hef ur numið um það hvernig vinnubúða-
líf í eyjaklösum eigi að vera.
Að sjálf sögðu þorði enginn að f ara með hinn
erlenda vináttu-, fræðslu- og fiskimálasér-
fræðing í íslenska verbúð, þar sem fólk á þær
óskir heitastar að vera sóðar til þess að þurfa
ekki að baða sig, í hungurverkfalli til að þurfa
ekki að kaupa dýran og óætan mat, með
hægðateppu til að þurfa ekki að nota kamar-
inn, og í dvala til að eiga ekfci á hættu að vera
hand- og fótjárnað af lögreglunni.
Hætt er þá við, að hinir sovésku fulltrúar
hefðu hugsað með sér: „Nú, Gúlag er þá ekki
sem verst".
Allt þetta endaði svo með því, að vin-
áttu-, fræðslu- og fiskimálaráðherrann hélt
ræðu, þar sem hann sagði að gosið hefði í
Vestmannaeyjum 1973 og viðbrögð eyjar-
skeggja hefðu verið stórkostleg. Þeir hefðu án
þess að hugsa sig um tvisvar f lúið undán jarð-
eldunum, en svo þegar gosið var kulnað hefðu
þeir snúið aftur heim til sín. Þetta væri ekki
aðeins einkennandi fyrir Vestmannaeyinga,
heldur og alla (slendinga. Þeir gæfust ekki
upp, heldur snerust gegn erf iðleikunum, sneru
heim aftur og sigruðu.
Vonandi flytur formaður Vináttufélagsins í
Eistlandi þessi tíðindi til síns heima og hvetur
þá, sem einhvern tímann einhverra hluta
vegna hafa þurft að hverfa frá sinni heima-
byggð í Eistlandi/að koma nú aftur og stofna
til gagnkvæmrar vináttu.
Og að lokum fer vel á því að birta lokaorð
ambassadorsins forðum í lauslegri þýðingu:
i Gúiag bæði og Grindavík
er gott og hollt að vera.
i Gúlag er viðhöfð gæska rík,
en í Grindavík nóg að gera.
Flosi
Biyideifur H. Steingrimsson héraðslækiiir á Selfossi:
Heilsuvernd
og vinnustaður
Af tilefni þeirrar um-
ræðu, sem nú á sér stað um
hollustuhætti oq heilbriqði
á vinnustöðum hefir land-
læknir mælst til þess að
gerð yrði grein fyrir stöðu
þessara mála á Selfossi.
Eins og kunnugt er varö Selfoss
sérstakt sveitarfélag áriö 1946 en
kaupsta&ur 1978.
Bærinn er þjónustu- og
verslunarmiöstöö Arnessýslu,
meö sláturhúsum og mjólkuriön-
aöi. Byggingariönaöur smárra en
stækkandi fyrirtækja setur svip
sinn á staöinn. Fiskvinnsla og
prjónaiönaöur er i smáum stil.
Matvælaiönaöur i tengslum viö
sláturhúsin er all-verulegur.
íbúar Selfosskaupstaöar 1. des.
voru 3304.
Um heilbrigöiseftírlit
Frá 1970 hefur heilbrigöisnefnd
veriö starfandi samkvæmt lögum
frá 1969.
Frá 1974 hefur heilbrigöisnefnd
veriö starfandi á vegum nefndar-
innar samkvæmt sömu lögum.
Samkvæmt ársskýrslu fyrir ár-
iö 1978 voru erindi heilbrigöisfull-
trúa eins og hér segir:
Varöandi matvæli 29
Varöandi vinnustaöi 39
Sýnitökur 49
Kvartanir 3
ibúöir 2
samt. 122
Eftirlitsskyld fyrirtæki voru
talin 1/7 ’79 36. Er hér um aö
ræöa matvæla-og byggingariönaö
og aöra vinnustaöi.
Heilbrigöisfulitrúinn hefur far-
iö árlega á þessa vinnustaöi f s.l.
sex ár og lýkur þeirri skoöun meö
skriflegri umsögn til fyrirtækis-
ins. Sumar af þessum eftirlits-
feröum hafa veriö farnar I bein-
um tengslum viö öryggiseftirlit
rikisins. Auk hins reglulega eftir-
lits hefur heilbrigöisfulltrúinn
unniö aö þeim vandamálum
ásamt lækni, sem nefndinni hafa
borist.
Kvartanir frá starfsmönnum
berast oftast fyrst til læknis og þá
munnlega, þar sem hér er oft um
viökæm mál aö ræöa fyrir starfs-
mennina.
Dæmi:
Starfsmaöur sótti lækni vegna
einkenna frá lungum, sem hann
taldi stafa frá óhollustu á vinnu-
staö. Hann vildi ekk aö nafns sins
væri getiö i sambandi viö þessa
kvörtun, en heilbrigöisfulltrúinn
fékk tilkynningu um máliö og fór
á staöinn. Loftræsting var bætt.
Hér er um kvörtun aö ræöa frá
haustinu 1979.
Annaö dæmi um stærra vanda-
mál á vinnustaö frá árinu 1976.
Trúnaöarmenn kvörtuöu yfir há-
vaöa og loftmengun á stóru verk-
stæöi sem nýlega haföi veriö tekiö
f notkun.
Þar átti aö starfrækja bifreiöa-
verkstæöi, yfirbyggingar og rétt-
ingar bifreiöa og járn- og plötu-
verkstæöi allt undir sama þaki.
Þetta verkstæöi sem var meir
en 2000 ferm. meö mikilli lofthæö,
haföi aldrei fengiö viöurkenningu
heilbrigöisnefndar.
Kvartanir voru þvi:
1) hávaöi. 2) léleg loftræsting.
Mælingar voru geröar á vinnu-
staönum varöandi báöa þessa
þætti, bæöi af heilbrigöisfulltrúa
og Oryggiseftirlitinu. Loftræsting
reyndist I megnasta ólagi og
hávaöinn óviöunandi. Kvartanir
starfsmannanna voru þvf á rök-
um reistar og ætla mátti aö
vinnustaöurinn ylli þeim heilsu-
tjóni og minnkaöi vinnugetu og
afköst.
A vegum heilbrigöisnefndar-
innar héldum viö fund meö
trúnaöarmönnum starfsmanna
og forráöamönnum fyrirtækisins
um þetta vandamál, sem ekki
varö rakiö til fyrirtækisins heldur
hönnuöa hússins.
Sýnt var aö byggja þurfti vegg
til þess aö skilja aö háværari hluta
verkstæöisins. Þaö var fram-
kvæmdarkostnaöur á a.m.k. 10
miljónir 1976. Loftræstingu þurfti
lika aö bæta. Mál þetta leystist á
farsælan hátt.
Bflasprautun kom lika til kasta
heilbrigöisnefndar og var sú
starfsemi lögö niður, eftir að
kvartanir höföu borist, og skilyröi
sett um starfsemina.
Eftirlit og lög
Heilbrigöiseftirlit styöst viö lög
og reglugeröir, sem i reynd er
erfitt aö beita út f hörg.
Bryr.leifur H. Steingrfmsson
Tvö megin-sjónarmiö höfum viö
haft f huga viö þær aögeröir sem «
beitt hefur veriö aö hálfu
nefndarinnar.
1) Fyrirtækin þurfa umþótt-
unar- og aölögunartfma.
2) Starfsmenn hafa mjög mis-
munandi aöstööu til þess aö
kvarta, því aö menn saga ekki á
þá grein, sem þeir sitja á.
Heilbrigöiseftirlit hefur fram á
sföustu ár veriö af mörgum taliö
óþarft og ónauösynlegt.
Þegar viö byrjuöum aö starfa
aö þessu 1970 voru sjónarmiö okk-
ar flestum framandi. Menn sýndu
velvilja en skeytingarleysi.
En afstaöa starfsmanna og
fyrirtækja er gjörbreytt f dag
Okkar reynsla er sú, að beiting
laganna um hollustuhætti og heil-
brigöiseftirlit sé vandasamt verk
þar sem skilningur starfsmanna
og stjórnenda sé oft mjög ólikur á
aöstæöum.
Heilsa og heilbrigöi ætti aö vera
þaö, sem maöurinn mæti mest
eigna sinna.
Þaö veröur þvi aldrei of mikil
áhersla lögö á hollustuhætti og
heilbrigöi á tfmum iönvæöingar
og tækni.
Þvi ber aö fagna þeirri um-
ræöu, sem nú fer fram um þessi
mál.
Tíma-
ritið
Mjólk-
urmál
Út er komiö 1. tbl. ársins 1980 af
timariti Tækniféiags mjóikuriön-
aöarins, Mjólkurmálum. Eins og
alltaf áöur eru margar athyglig-
veröar greinar I ritinu.
Grein er eftir Pál Lúöviksson,
um orkunotkun i mjólkuriönaöi.
Guölaugur Björgvinsson skrifar
um söluleg og viöskiptafræöileg
markmiö I mjólkuriönaöinum.
Rekurhannþar nokkuö þróun inn-
anlandsneyslu á mjólk og árstföa-
sveiflur f mjólkurframleiöslunni.
Sföan á árinu 1959 hafa ekki veriö
fluttar inn mjólkurafuröir, en þá
var smávegis innflutningur. Ariö
1965 var innvegin mjólk 20% um-
fram neyslu hér á landi. Þaö er
ekki fyrr en áriö 1978 sem
umframmagniö veröur jafn mik-
iö. Ariö 1974 var umframfram-
leiöslan aöeins 3,71% en á sl. ári
var hún rétt innan viö 20%.
Arstiöarsveiflur I mjólk-
urfra m 1 eiös 1 unni eru
meiri hér á landi en í nágranna-
löndum okkar. Þar er munurinn á
minnsta og mesta magni miöað
viö mánaöarframleiöslu um 30%.
Hér á landi er þessi munur um
100%.
Þaö veröur þvf aö draga úr
sumarmjólkinni en auka vetrar-
mjólkina þegar samdráttur
veröur i mjólkurframleiöslunni
eftir aö kvóti hefur veriö settur á
frmleiösluna.
Þá eru greinar f tímaritinu um
ýmis tæknileg atriöi I rekstri
mjólkurbúa.
— mhg