Þjóðviljinn - 22.03.1980, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.03.1980, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. mars 1980 QLAFUR QLAFSSON, landlæknir: Tannskemmdir og flúormeöferd Tannskemmdir eru algengar á tslandi. Samkvæmt skýrslum skólatannlækna I Reykjavik finnast aö me&altali 5 skemmdar fulloröinstennur i skólabörnum á aldrinum 6—12 ára. Yfirleitt er. ástandiö mun verra i dreifbýli. ekki er óalgengt aö fermingar- börn fá tanngaröa i fermingar- gjöf. Að áliti tannlækna er unnt að koma í veg fyrir flestar tann- skemmdir með: 1) Nákvæmri og tiðri tann- burstun, 2) takmörkun á kolvetnaáti. 3) auknu flúorinnihaldi vatns eöa fæðu þar sem flúortekja er rýr. Reynsla er fyrir þvi aö fæstir stunda nákvæma tannburstun eða takmarkað kolvetnaát, enda eru kolvetni einn ódýrasti orkugjaf- inn er við eigum kost á. Til þess að draga úr tannskemmdum barna og unglinga er því helst til ráða að gefa flúor aukalega þar sem þess er þörf. Ólafur Ólafsson, landlæknir. Fyrirbyggjandi áhrif flú- ors A landsvæðum þar sem flúor- tekja I drykkjarvatni er rýr, þ.e. minna en 1 mg/1 er fengin tuga ára reynsla fyrir þvf. að eftirfar- andi aðgeröir draga til muna úr tannskemmdum: 1) Að flúorbæta drykkjarvatn aö marki sem að framan greinir. Um 200 miljónir manna meðal 30 þjóða i Evrópu og Norður- Ameriku njóta þeirrar þjón- ustu. 2) Milli 20—30 ára reynsla er fyrir þvi, að með þessari aðgerð má minnka tannskemmdirum 50—70%. 3) Þvi hefur veriö haldið fram, að vissar borgir i Bandarikjunum sem hófu flúorbætingar drykkjarvatns, hafi hætt við þessa meðferð. Samkvæmt bréfi heilbrigðisyfirvalda þar frá desember 1979 eru þessar staðhæfingar rangar. Þess ber aö geta að ef magn flúors I vatni fer yfir 1.0—1.2 mg/1 er sumu fólki hætt viö að flúorút- fellingar setjist á tennur. Þessar útfellingar má sjá i smásjá. Ennfremur er hætta á flúorþéttingu beina ef magn flúors er meira. Skýrt skal fram tekið að ekki hefur sann- ast að aðrar hættur skapist af flúorgjöf en hér segir. 2) Að gefa börnum á aldrinum 1/2—6 ára ilúrortöflur. Meö þeirri aðferð næst 20—60% árangur. Hæfilegt er talið að gefa eftirfarandi skammta, t.d. á íslandi: H örn Arnörsson hagfræðingur HVAÐ ER VÍSITALA? Björn Arnórsson Krónutala — prósenta Miklar umræöur hafa átt sér staö á undan- förnum árum um form kaupgjaldsvisitölunnar. Þótt segja megi aö þaö sé fyrst og fremst grund- vallaratriöi út frá sjónarhóli launafólks aö verja kaupgjaldsvfsitöluna sjálfa gegn árásum, þá er þvi ekki aö neita, aö útfærsla hennar er auövitað athyglisverð. Krónutölureglan Sú tegund kaupgjaldsvisitölu, sem kennd hef- ur veriö við krónutölu, felur i sér að ákveðin laun eru verðtryggð þannig aö þau hækka um jafn- mörg prósent og kaupgjaldsvlsitalan. önnur laun hækka slðan um jafnmargar krónur. Ef t.d. miöað væri við 200 þúsund krónur, þá mundu öll laun hækka um 20 þúsund krónur, ef kaupgjalds- vísitalan hækkaði um 10%. Af þessari aðferð eru til margar útgáfurs eru tvær þekktastar hér á landi. I þeirri fyrri, sem við þekkjum frá slöustu samningum ASt, þá er miðað við laun I lægri launaflokkum. Lægstu launin eru þá fulltryggð miöaö við kaupgjalds- vísitölu, en hærri laun fá skertar bætur. Ef við hugsum okkur t.d. aö viö semjum fyrir Gisla.Eirik og Helga, þannig að GIsli fái lægst laun þá er upp er staöið, þannig að hann geti keypt sér 1 dilk fyrir vinnu slna einhvern ákveð- inn tíma, Eirlkur tvo, en Helgi 3. dilka. Við mið- um krónutöluregluna við laun Glsla. Ef við hugsum okkur slöan 50% verðbólgu, þá yrði þetta til þess aö eftir áriö gæti GIsli enn keypt sér 1 dilk, en kaupgeta þeirra Eiriks og Helga hefði minnkað þannig að Eirikur réöi aðeins við 1 2/3 dilk og Helgi 2 1/3 dilk. Launahlutfallið hefði semsagt minnkaö úr 1:3 11:2,33 á kostnaö þeirra Eiriks og einkum Helga. Samanlagt kaupa þeir nú 5 dilka I staö 6áöur. önnur leið er að miða við krónutöluna miöl- ungslaun, sem felur I sér, að þeir sem væru með lægri laun fengju aukinn kaupmátt og þvi meiri, sem verðbólgan væri meiri, kaupmáttur hinna rýröist að sama skapi. Ef viö hefðum samið á þennan veg fyrir þá fé- laga, þá hefðum við miðaö viö Eirik. Eftir 50% 7. grein veröbólguár hefði hann þvl getað keypt 2 dilka eftir sem áður. GIsli gæti hins vegar keypt 1 1/3 dilk, en Helgi 2 2/3dilka. Semsagt: Kaupmáttur launa Gisla heföi aukistumfram það, sem samið var I upphafi, en upphaflegur samningur Helga skerst. Launahlutfallið hefði minnkað úr 1:3 I 1:2. Annar helsti munur á þessari krónutölu- reglu og hinni fyrrnefndu er, aö nú gætu þeir fé- lagar keypt 6 dilka eftir sem áður, þótt verð- bólgan hefði raskað innbyröis hlutföllum. Prósentureglan Hún felur það i sér, að launahlutföllin haldast óbreytt þ.e.a.s. allir halda sama kaupmætti og um var samið I upphafi svo fremi að kaupgjalds- vfsitalan sé ekki skert almennt. Rök með og á móti Rök krónutölumanna eru þau helst, að lægstu launin séu of lág og aö launabilið sé of stórt i landinu. Þetta þurfi að jafna. Prósentumenn hafa hins vegar bent á m.a. að launajöfnunin eigi að eiga sér staö I samningunum sjálfum með grunnkaupshækkunum, en slðan eigi allir að sitja við sama borð hvað það varðar að halda þeim kaupmætti, sem um var samið I upphafi. Þá hefur verið bent á að launafólk standi ó- jafntað vígivegna mismunandi launakerfis, þar sem sumir hópar séu með alls kyns álögur I pró- sentum ofan á grunnlaun, aörir hafi álögurnar innifaldar i grunnlaunum. Þvi muni þeir fyrr- nefndu koma miklu betur út, ef krónutalan tékur eingöngu til grunnlauna. Aö Iokum er rétt að geta þess að ASf hefur gert kröfu um að laun lægri en 300 þúsund fái sömu krónutölu I bætur og 300 þúsund krónu launin, siöan komi prósentuuppbót á laun allt að 400 þúsund krónur, en laun þar fyrir ofan fái sömu krónutölu og 400 þúsund krónu launin. BSRB hefur hins vegar gert kröfur um fullar verðbætur á öll laun. Næst: Verjum kaupgjaldsvisitöluna Aður birt I Þjóöviljanum: 1. grein 15. jan.;2. grein 17. jan; 3. gr.20. jan., 4. gr. 26. jan.; 5. gr. 1. 'febr.v6. gr. 29. febr., ’80. Klippið út og haldið til haga. Þjóðviljinn biður afsökunar á þvl hvaö birting greina i þessum flokki hefur dregist. Utgjöld sveitarfélaga og rikis vegna tannhiröu barna upp aö 16 ára aldri nemur um 3.3 miljöröum króna. Sannaö er aö meö flúorblöndun má lækka þennan kostnaö um 30-40%, þannig aö þessi fyrirbyggjandi aögerö getur haft gifurleg sparnaöaráhrif. Hæfileéur skammtur er: 0—3 ára — 0,25 mg (1 tafla á dag) 3—6 ára — 0,50 mg (2 töflur á dag) 6—12 ára — 0,75 mg (3 töflur á dag) Hér er tekiö mið af meðalhita- stigi i landinu og flúorinnihaldi drykkjarvatns sem er á milli 0.02—0.05 mg %. 3) Aö bursta tennur meö flúor- upplausn 2svar á ári.(—Unnt er aö fyrirbyggja 20—40% tannskemmda ef þessari að- ferð er beitt. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur þrívegis ráölagt þjóöum heims að flúorbæta drykkjarvatn til þess aö draga úr tiðni tann- skemmda (1969, 1975 og 1978). A sama máli er Evrópuráðið 1974, Federation Dentaire Internation- al (Alþjóðasamband tannlækna) 1974 og fieiri alþjóðasamtök. Áhrif áróöurs gegn flúor- gjöf Þó að mikill áróður hafi verið rekinn fyrir flúor-meðferð er árangur ekki sem skyldi. Orsök tregðu margra aðila gegn al- mennri flúorgjöf til barna er m.a. magnaður villuáróður nokkurra „náttúruverndar- manna” og ofsatrúarflokka s.s. John Bird Society I Bandaríkjun- um gegn flúorgjöf. Þessir aðilar hafa jafnvel gengið svo langt að stórfalsa opinberar skýrslur um dánartiðni I Bandarlkjunum og Bretlandi. Telja þeir að dánar- tiðni vegna krabbameins hafi aukist til muna þar sem flúor hef- ur verið bætt I drykkjarvatn. en þar sem sllkt hefur ekki veriö gert. Heilbrigöisyfirvöld I fram- angreindum löndum hafa lagt framýtarleggögn um aö framan- greindar staöhæfingar um krabbameinshættu eru staðlausir stafir. Framangreindir áróöursaöilar hafa einnig staöhæft aö tiðni fæð- ingargaila og hjartasjúkdóma aukist viö flúorblöndun drykkjar- vatns. Vlötækar athuganir hafa staðfest fyrri skoöanir aö svo er ekki.3—5) Fólki ertekinn vari við kredduspámönnum hér á landi, er skrifa I anda útlendu ofsatrú- armannanna. Eru þá einhver haldbær mótrök gegn flúorblöndun drykkjarvatns? Ekki er því að neita; mótrök eru til. Ber þar hæst að við flúor- iblöndun er frelsi einstaklingsins til að velja sér þá fæöu er hann kýs takmarkaður. Könnun meðal Ibúa Danmerkur leiddi I ljós aö aöeins 25% þeirra voru meðmælt .þessari aðferð. Drykkjarvatn I Danmörku inniheldur mun meira flúor en hér á landi. Ennfremur ber að hafa i huga að I hverju þjóðfélagi eru örfáir einstakling- ar sem hugsanlega eiga á hættu að fá of mikið flúor ef flúor væri bætt I drykkjarvatn, þ.e.: 1) Sjúklingar meö nýrna- sjúkdóma á háu stigi og þá helst þeir sem eru á Dialys- meðferð. 2) Sjúklingar með Diabetes Insipidus. En þeir drekka oft 10—20 1 af vatni á dag séu þeir án meöferðar. 3) Ungabörn, sem nærast ein- göngu á þurrmjólk. Eins og áður er sagt er löng og góð reynsla af flúorblöndun drykkjarvatns og engar fregnir hafa borist af heilsutjóni sem hér hefur veriö lýst. Þvl viröist sem hætta sé litil eða engin I raun. Danir hafa bent á aö lítið sé vit- að um hættur er gætu stafað af aukinni flúorblöndu hafs og vatna. 3) Að sögn gefa einstaka athugan- ir til kynna að flúormagn um 1 mg I llter seinki klaki meöal vatna- fiska. óliklegt er aö svo sé I rlkum mæli þvf að vlða um heim er eðli- legt flúorinnihald vatna meira en að framan greinir. Aðgerðir á Islandi Samkvæmt lögum er sveitar- félögum heimilt að flúorbæta drykkjarvatn. Svo virðist sem ekki sé mikill áhugi fólks fyrir þessari aðgerð. Við höfum ekki farið á mis við órökstuddan áróð- ur gegn flúorblöndun. Reykjavikurborg hóf flúorgjöf til skólabarna fyrir nokkrum ár- um og hefur almenningur tekið þeirri aðgerð vel. Víðtæk könnun á flúorinnihaldi vatnsbóla I landinu fer nú fram á vegum Heilbrigðiseftirlits rikisins. Ljóst er að nær undan- tekningarlaust er flúorinnihald vatnsbóla I lágmarki. í samræmi við þær niðurstöður verður hafin upplýsingaherferð meðal sveitar- félaga um flúorgjafir til barna I töfluformi. Heimildir 1. Heilbrigöisskýrslur 1975. 2. Fluorides and Human Health. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin Genf 1970. 3. Nyt fra Miljostyrelsen. — NFM9 Köbenhavn 1977. 4. Aðalfundur Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar 1969, 1975 og 1978, Genf. 5. Greinargerð Landlæknisem- bættis Bandarikjanna. — Report from Department of Health Education and Well - fare. — Atlanta USA. — Bréf til landlæknis, des. 1979. 6. Greinargerð Department of Health and Social Security. — London, nov. 1979. — Bréf til landlæknis. nóv. 1979.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.