Þjóðviljinn - 22.03.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 22.03.1980, Blaðsíða 5
Laugardagur 22. mars 1980 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 5 Verkefiiaskipan sveitarfélaga og ríkis á almennum fundi Hr. Juan Carlos Vignaud hefur veriö skipaöur sendiherra Argentfnu á tslandi og afhenti nýlega forseta islands trúnaðar- bréf sin á Bessastööum. Viöstaddur athöfnina var ólafur Jóhannesson utanrfkisráöherra og sést hinn nýi sendlherra hér á milli hans og forseta. Félag þjóöfélagsfræöínga boöar til almenns fundar um stööu sveitarfélaga og nýja skipan á verkefnum þeirra og rikisins og á stærö og mörkum umdæma þriöjudaginn 23. mars kr. 20.30 i stofu 102 i Lög- bergi Háskóla tsiands. Framsögu hafa Magnús Pétursson, skrifstofustjóri, fjárlaga- og hagsýslustofnun, og Björn S. Stefánsson, dr. scient. Magnús er ritari stjórnskipaörar nefndar sem hefur á prjónunum tillögur i þessum efnum. Björn vinnur aö samanburöarrannsóknum á þróun þessara mála á Noröurlöndum frá striöslokum i samstarfi viö 8 stjórnmála- fræöinga, tvo frá hverri stórþjóöanna, á vegum sambands stjórnmála- fræöinga á Noröurlöndum. Byggingarreglugeröin kynnt Byggingaþjónustan efnir til ráöstefnu og kynningar á Byggingarreglugeröinni mánudag og þriöjudag 24. og 25. mars n.k., kl. 0900—1700 báöa dagana. Höfundar reglu- geröarinnar, Zophonlas Páls- son, skipulagsstjóri rikisins, Magnús Guöjónsson, framkvæmdastjóri Sam- bands isl. sveitarfélaga, Gunnar Sigurösson, bygg- ingarfulltrúi Reykjavikur, Gunnar S. Björnsson, formaöur Meistarasambands byggingarmanna og Edgar Guðmundsson, verkfræöing- ur, munu kynna hana og útskýra. Siöan veröa hring- borösumræöur, þar sem leitað veröur eftir ábendingum og hugmyndum þátttakenda um breytingu á reglugeröinni. 1 framhaldi af ráöstefnunni veröa myndaöir starfshópar til þess aö vinna úr þeim hug- myndum og ábendingum, sem fram hafa komiö og þeim siöan komiö á framfæri viö félagsmálaráöuneytiö. Nýr sendiherra Argentinu Syngjafyrir landann vestra Nýr símsvari hjá Blájjallanefnd Bláfjallanefnd hefur nú fengiö annan slmsvara i viöbót viö þann sem fyrir er. Nýja númeriö er 25166, en hitt simanúmeriö er 25582. Fólk getur nú hringt i annaö hvort þessara númera til aö leita upplýsinga um Bláfjallasvæö- Vdtugerastáskrifandi aöskáldsögu? Bókaútgáfan Skjaldborg á Akureyri kannar nú áhuga landsmanna fyrir þvf aö út veröi gefin kinversk nútima- skáidsaga, en saga þessi var lesin f útvarp á vordögum i fyrra og heitir „Þorp i dög- un.” Segir í fréttatilkynningu frá þýöanda bókarinnar, Guömundi Sæmundssyni, aö fáist um það bil 300 áskriftir aö bókinni muni hún veröa gefin út fyrir veturinn og ætti ekki aö kosta meira en 12 þúsund krónur til áskrifenda, innbundin. Hægt er aö gerast áskrifandi aö bókinni meö þvi aö hringja i þýöandann, Guömund Sæmundsson á Akureyri, og Arnþór Helgason i Reykjavík. Þá munu áskriftalistar liggja frammi i bókabúö Máls og menningar, Bóksölu stúdenta, Októberbúöinni og versluninni Pöndu. Askriftasöfnun stendur I stuttan tima. Minning Lúövigs Storr heiöruö I tilefni 75 ára afmælis Alþjóöa Rótarý-hreyfingar- innar og 45 ára afmælis Rótarýklúbbs Reykjavikur samþykkti klúbburinn aö heiöra minningu Lúövígs Storr aöalræöismanns, sem var frumkvööull aö stofnun hans. Var L. Storr útnefndur Paul Harris félagi, en þaö er æösta heiöursveiting hreyf- ingarinnar. Ekkja Lúövfgs, Svava Storr, veitti þessari viöurkenningu móttöku á árs- hátíö Rótarýklúbbsins nýlega. Vestur-tslendingar fá nú aö heyra Sigfús sjálfan leika lög- in sin. Þeir Sigfús Halldórsson, tónskáld og Guömundur Guöjónsson.söngvari halda til Kanada í byrjun næstu viku og munu halda tónleika þar vestra. Meö þeim i för veröur Bill Hólm.sem kennt hefur viö Háskóla islands, og mun hann segja frá dvöl sinni á Islandi, flytja frumort ljóö og spila á pfanó. Gert er ráö fyrir, aö þeir félagar komi fram á 23 stööum I Kanada og Bandarikjunum, og mun feröin standa nokkuö fram i aprilmánuö. Starfshópur á vegum æskulýösnefndar Alþýöubandalagsins ræöir drög aö lögum fyrir æskulýösfélag sósialista. A myndinni má sjá frá vinstri Guöbrand Stig, Þorstein Magnússon, Kristófer Svavarsson, Snorra Styrkársson og Benedikt Kristjánsson. Stofnun æskulýðsfélags sósíalista undirbúin Siöustu vikur hefur æskuiýös- nefnd Alþýöubandalagsins unniö aö undirbúningi stofnfundar æskulýösfélags sósialista i Reykjavik. A sfösta landsfundi nefndarinnar var samþykkt aö koma á fót slikum félögum. Félagiö I Reykjavik er hugsaö sem fyrsta skrefiö I þessa átt. Samtök þessi munu starfa sem jaöarsamtök Aiþýöubandalags- ins, en veröa ekki i beinum skipu- lagslegum tengslum viö flokkinn. Stofnfundurinn veröur aö öllum llkindum haldinn fyrir miöjan april og getaalliroröiö stofnfélag- ar sem ekki eru i öörum pólitiskum samtökum en Alþýöu- bandalaginu, en aðild aö Alþýöu- bandalaginu er hins vegar ekki skilyröi fyrir inngöngu. A stofn- fundinum veröa félaginu sett lög og ákvöröun tekin um aldurs- mörk félaga. s Slysavarnafélag íslands: Umferöarvika „Göngum ávallt á móti akandi umferö þar sem ekkl er gangstétt", segja þeir Haraldur Henrýsson, Gunnar Friöriksson og Brynjar M Valdimarsson, og viö skulum hlita þvi ráöi. Mynd —eik' Strœtisvagnar Reykjavíkur: Samkeppni um biðskýli Siysavarnarféiag tslands mun beita sér fyrir umferöarviku dag- ana 23.-29. mars. Ætlunin er aö hún nái tii sem flestra um land allt. Til aö svo megi veröa hefur veriö sent bréf til allra deilda félagsins meö ósk um aö þær geri þaö sem hægt er til aöivekja at- hygli á umferðarviku þessari, hver á sinum staö. Hafa margar deildir nú þegar haft samband viö félagiö vegna þessa. Fyrir vikuna hefur veriö prent- aö veggspjald og er ætlunin aö þaö geti hangiö uppi áfram til á- minningar fyrir vegfarendur. Einnig hefur veriö prentaöur lim- miöi til áminningar fyrir öku- menn um börnin i umferöinni. Ætlast er til aö miöinn veröi haföur I mælaboröi eöa inni I bif- reiö, þar sem ökumenn sjái hann aö staöaldri. Fengnir hafa veriö nokkrir góöir menn til aö flytja stutt er- indi I „Morgunpósti” útvarpsins. Þá hafa einnig nokkrir menn ver- iö beönir um aö skrifa greinar, sem óskaö hefur veriö eftir aö birtist I blööum. Dagskrá vikunnar er: Sunnudagur og mánudagur: Almenn atriöi um umferö. (Tillitssemi). Þriöjudagur: Umferöi þéttbýli. Miövikudagur: Afleiöingar um- feröarslysa. Fimmtudagur: Barniö og um- feröin. Föstudagur: Akstur á þjóöveg- um. Laugardagur: Olvun viö akst- ur. Félagiö væntir þess, aö blööin birti greinar og efni, sem tengjast vikunni og þá sérstaklega þvi efni, sem tekiö er fyrir hvern dag. Æskilegast væri, aö greinar og annaö efni væri birt undir merki vikunnar: „Umferöarvika SVFl 1980”. Viö undirbúning vikunnar hefur veriö haft samráö viö ýmsa aöila s.s. Umferöarráö, lögreglu, slysadeild Borgarspltala o.fl. Þá hafa bifreiöatryggingafélögin i Sambandi isl. tryggingafélaga styrkt félagiö meö nokkurri fjár- hæö vegna vikunnar. — mhg Stjórn Strætisvagna Reykja- vfkur hefur ákveöiö aö efna til samkeppni meöal almennings um gerö biöskýla, en siöar veröur samkeppni meðal arkitekta um endaniega gerö slikra skýla á grundvelli þeirra hugmynda, sem fram koma hjá almenningi. Þau 115 biöskýli sem nú eru I notkun hjá SVR henta ekki á þröngum gangstéttum, en um skýli, sem þar má koma fyrir snýst hugmyndasamkeppni þessi. Fimm manna dómnefnd ákvaö aö leita til almennings eftir nýti- legum hugmyndum, og skal þeim skilaö fyrir 15. apríl merkt „Biöskýii SVR"á skrifstofur SVR aö Kirkjusandi, miöasöluna aö Hlemmi . eöa Lækjartorgi. Trúnaöarmaöur dómnefndar, sem er ólafur Jensson. framkvæmdastjóri, tekur einnig viö tillögum og hugmyndum i Byggingaþjónustunni aö Hallveigarstig 1, og veitir hann allar nánari upplýsingar um keppnina. Veitt veröa þrenn verölaun fyrir bestu hugmyndirnar, 100 þús„ 75 þús. og 50 þús. króna verölaun. Amerískt hermannasjónvarp: Ekki samboðiö viröingu þjóðaríiinar Framtiöin, félag nemenda Menntaskólans I Reykjavik, samþykkti eftirfarandi ályktun á siöasta félagsfundi sfnum: „Alyktunarhæfur félagsfundur Framtiöarinnar, haldinn i kjallara C.N. fimmtudaginn 6. mars, 1980, mótmælir harölega öllum tilraunum i þá átt aö hef ja aö nýju útsendingar á Kefla- vikursjónvarpinu. Fundurinn fordæmir undirlægjuhátt þeirra manna sem beita sér fyrir undir- skriftasöfnun til stuönings útsendingum og telur þaö ekki samboöiö viröingu frjálsrar og fullvalda islenskrar þjóöar aö búa viö ameriskt hermannasjónvarp. Jafnframt skorar fundurinn á stjórnvöld að standa gegn þvf aö - utsendingar Keflavíkursjón- varpsins veröi geröar móttæk- ilegar Islenskum almúga og hundsa allar kröfur þar aö lútandi.”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.