Þjóðviljinn - 22.03.1980, Page 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. mars 1980
Mörg eru þau forundrin sem
gerast þegar leikmenn fara að
sýsla meö skák. Rétt mann-
gangsfærir menn, tiltölulega,
ganga lengra en þrautreyndir
stórmeistarar. óharðnaðir
unglingar og allt niðri hreina og
klára pottorma eru með/stólpa-
kjaft við sér eldri og reyndari
menn og ganga meira að segja
svo langt að senda miklum
meisturum tóninn einkum þá er
gengiö hefur miður hjá viökom-
andi. Svo eru þeir ógæfumenn
Ur blaöamannastétt sem eru að
bauka viö vettvangslýsingar frá
skákmótum. Ég minnist t.d. sið-
asta Reykjhvikurmóts. Þeir
allra taugaveikluðustu á þeim
bæ vissu ekki sitt rjúkandi ráð.
Sigurvegarann, Kupreitchi, gat
t.a.m. enginn skrifað rétt. I
sumum tilvikum var hann
meira að segja oröinn Kóper-
nikus endurborinn. Margeir
Pétursson var oröinn Margeir
Ólafsson, og þar fram eftir
götunum. Hermann Gunnarsson
sem frægur er fyrir flest annað
en lýsingar frá skákmótum
brást þó enganveginn hlust-
endum sinum. Þegar hann var
sestur fyrir framan hljóönem-
ann og bunaði Ut Ur sér
tryllingslegum lýsingum sem á
Urslitaleik I knattspyrnu væri,
þá var mörg mæðan á sumum
heimilunum. Grandvarar konur
máttu tæpast vatni halda, og
ófriskar urðu léttari, eða svo
hermdi ein sagan, sönn eða
login. Sjóaöir blaðamenn eins
og t.d. Bragi á Dagblaöinu tóku
öllu með jafnaðargeði. Hann
hUrraði bara öllum áhorfenda-
skaranum niöur á blaö, þannig
að .venn þustu á skákstað I von
um að komast nU loksins í fjöl-
miðlana. Forsetaframbjóö-
endur sáust og, næstum þvi i
hrönnum.
Svo eru áörir sem fara frekar
leynt með visku sina. Einar
Karlsson ljósmyndari Þjóövilj-
ans og min stoð og stytta 1 skák-
málum, hringdi eitt kvöldið
niður i Blaðaprent og var mikiö
Gáfaöur er himinninn:
„Eftir drottningarfórn fór
allt púður úr stöðunni!”
Úr dagbók blaöamanns
niöri fyrir. Klukkan var margt,
en Einar vildi koma að Urslitum
i skák milli I^ortsnojs og
Petrosjans. Jafntefli I 6tu skák-
inni. Allt pUður fyrir bi eftir
drottningaruppskipti i 20. leik,
sagði hann hraðmæltur. Guðjón
Friöriksson þekktur bæjarrölt-
ari og vikulokamaður, tók viö
skilaboöunum og daginn eftir
gátu menn lesið aö eftir drottn-
ingarfórn I 20. leik hefði allt
pUöur farið Ur stööunni! Hvurs á
maður eiginlega áö gjalda?
Hafa skal þaö sem sannara
reynist, sagði kerlingin, og þvi
kemur hér umtöluö skák:
6. einvigisskák
Hvitt: Tigran Petrosjan
Svart: Viktor Kortsnoj
Drottningarindversk vörn
1. d4-Rf6 3. Rf3-b6
2. c4-e6 4- a3
(Þessi hógværi leikur sem
hindrar biskupskomu til b4 hef-
ur valdiö skákfræðingum tals-
verðum áhyggjum.)
4. . . ,-Ba6 S. Dc2-d5
(Annað vænlegt framhald er 5. -
c5.6. d5 De7. A þann hátt tefldist
m.a. skák Friöriks Ólafssonar
og Timmans Reykjavikurmót-
inu 1976. Þess ber þtí aö geta aö
Timman iék c-peöinu á undan
biskupnum.)
6. cxd5-exd5 7. Rc3-c6
(Það verður að teljast gáfulegt
hjá Kortsnoj að geyma hvítreita
biskupinn á a6 þar sem hann
þrýstir tilfinnanlega eftir
skálinunni a6 - fl. Venjan er að
velja guðsmanni þessum stað á
b7 þar sem hann er einkar
passivur svo sem margir koll-
egar hans holdi klæddir).
8. g3-Bd6 12. Bg5-h6
9. Bg2-o-o 13. Bxf6-Rxf6
10. o-o-Rbd7 14. e4
11. Hel-He8
(Nokkurn veginn nauðsynleg
aðgerð þar sem svartur hótaöi
aö færa út kvlarnar á miðborð-
inu. Hitt er svo annað mál, að
eftir textaleikinn einfaldast
staðan um allan mun, þannig að
alvarlegum vinningstilraunum
verður vart viö komið.)
14. . . . -dxe4 17. Dxe4-Hc8
15. Rxe4-Rxe4 18. Re5-Bxe5
16. Hxe4-Hxe4
(Það er greinilegt að Kortsnoj
gerir sig ánægðan með skiptan
hlut. 1 einvigjum hefur það
löngum verið talinn hálfur sigur
að fá jafntefli á svart.)
19. dxe5-Dd3 20. Dxd3-Bxd3
(Og má nú með sanni segja að
allt púður sé úr stööunni.)
21. Bh3-He8 24. Bfl-Bxfl
22. f4-c5 25. Kxfl-g5!
23. Hdl-c4
(Viö hver uppskipti léttir á
stöðu svarts. Petrosjan hefur ei-
litiö betra tafl, en gegn Kortsnoj
er það sjaldnast nóg.)
26. Kf2-gxf4
27. gxf4-f6
28. HdS-fxe5
29. fxe5-Hc8
30. Ke3-C3
31. bxc3-Hxc3+
32. Kd4-Hxa3
33. Hd7-a5
34. Hb7-a4
(Vegna yfirburðastööu hvita
kóngsins á miðborðinu væri það
stórhættulegt að halda i b-peðið
með 34. - Hb3.)
35. Hxb6-Hh3 38. Ke4-Hh3
36. Ha6-Kf7 Jafntefli
37. Kd5-Hd3+
6. d4-b5 * 9. De2-Be7
7. Bb3-d5 io. Hdl
8. dxe5-Be6
(Þannig tefldi Karpov i einni
skákinni viö Kortsnoj.)
10. . . -o-o 14 Dxe3-Db8
11. c4-bxc4 15, Bb3-Ra5
12. Bxc4-Bc5 16 Rb^2
13. Be3-Bxe3
(Karpov hafði annan háttinn á.
Hann lék 16. Rel og komst
nálægt þvi að vinna.)
16. . . .-Da7!
(Menneru á einu máli um ágæti
þessa leiks. Beitti Karpov
honum gegn Kavalek á
skákmótinu I Montreal siöast-
liðiö vor og vann örugglega!!
17. Dxa7-Hxa7 19, axb3
17. Rxe4-Rxb3
Þeir Adorjan hafa, þegar
þetta er skrifað, teflt tvær dauf-
legar skákir I Bad Lauterberg,
sem báöum hefur lyktað með
jafntefli. Hér kemur sú siðari,
og eru áhöld um hvor sé leiöin-
legri.
Hvitt: Andras Adorjan
Svart: Robert HUbner
Spænskur leikur (Opna afbngö-
iö).
1. e4-e5 4. Ba4-Rf6
2. Rf3-Rc6 5. o-o-Rxe4
3. Bb5-a6
(I ftítspor Kortsnojs.)
— Og keppendur sömdu uirt'
jafntefli. Eftir 19. - dxe4 er
staðan i fullkomnu jafnvægi.
KLÚÐUR PETROS JANS
Tigran Petrosjan missti af
upplögðum vinningsfærum I 4.
einvigisskákinni I Velden i Aust-
urrlki. Eftir að hafa byggt upp
betri stöðu smá jók hann yfir
burði sina, uns staða Kortsnojs
var orðin ákaflega Iskyggileg.
En þá kom versti óvinur skák-
mannsins til sögunnar, tlma-
hrakið. Næstum rakinn vinning-
ur fór forgöröum og Kortsnoj
slapp fyrir horn. 1 stuttum ein-
vlgjum sem þessum getur eitt
tækifæri sem forgörðum fer gert
gæfumuninn, og i þessu tilviki
hlýtur Petrosjan að naga á sér
handabökin fyrir glappaskotið,
þvi þegar I næstu skák tók
Kortsnoj forystuna, og er ekki
fyrirsjáanlegt að hann Iáti hana
af hendi. En hér kemur skákin:
4. einvlgisskák:
Hvltt: Tigran Petrosjan
Svart: Viktor Kortsnoj
Nimzoindversk vörn
1. d4-Rf6 6. Rge2-d5
2. c4-e6 7. 0-0-dxc4
3. Rc3-Bb4 8. BXC+RC6
4. e3-0-0 9. a3-Bxc3
5. Bd3-c5 10. bxc3-Dc7
(Staðan sem upp er komin er
öllu algengari meö hvítan ridd-
ara á f31 stað e2. í raun má telja
aö Petrosjan hafi sveigt út I
hagstæða útgáfu af Samischaf-
brigöi Nimzoindversku varnar-
innar).
11. Bb2-Hd8
12. Ba2-b6
13. Hel-Bb7
14. Rg3-Hd7
15. De2-Had8
16. Hadl-h6
17. h3-Dc8
18. Bc4-Ra5
19. Bd3-Rc6
20. f3-Db8
21. Df2-e5
(Aögerða var þörf, þvl peöa-
miöborö hvits var I þann mund
að fara á skrið eftir tilfæringu
hvitreita biskupsins.)
22. Rf5 - exd4 24. Rxd+Re5
23, cxd4-cxd4
(24. —Rxd4 vare.t.v. öruggara,
en slikt skal engu að siður ekki
gert gegn Petrosjan, sem nýtur
sin best I einföldum stööum þar
sem frumkvæðið er kirfilega I
höndum hans.)
25. Bf5-Hd6 27. Bal-a6
26. a4-Rc4
28. Hbl
(Hér skilur Petrosjan frá öðrum
stórmeisturum. 1 stað þess að
leggja strax til atlögu meö 28.
e4!, öflugur leikur sem færir
honum geysisterkt frumkvæöi,
leggur hann alla áherslu á að
halda karakter stöðunnar sem
mest óbreyttum. Einkenni á stil
hans sem m.a. má heimfæra á
taflmennskuna I 1. skákinni.
Eftir 28. e4! á svartur úr mjög
svo vöndu að ráða t.d. 28. — g6
29. e5! eða 28. — Rd7 29. f4 og
peðamiöboröiö e'r sannarlega
ógnvekjandi.)
28. ..Rd5 30. Bfl-Re7
29. Bd3-Re5
(Hvitur hótaði illyrmislega 31.
Rf5.)
31. Hecl
(Vitaskuld ekki 31. Rf5??
Rxf3+! og svartur vinnur.)
31. ..Hg6
(Með lúmskri hótun: 32. — Hxd4
ásamt 33. — Rxf3 og 34. — Dh2
mát eftir atvikum.)
32. Khl-Da8 34. Hc2!
33. e4-Rd7
(34, —Rc5er svarað meö 35. a5!
o.s.frv.)
34. ..a5<7)
(Ljótur leikur sem veikir b5-
reitinn. Hitt er svo annaö mál,
aö i erfiöum stööum er oft auö-
velt aö leika slæmum leikjum.
Þvl setjum viö spurningar-
merkið I sviga.)
35. Hc7-Db8
36. Hlcl-Hc8
37. Hxc8+-Bxc8
(Nú er tækifærið komið, að upp-
skera laun erfiöis sfns. Hvitur
leikur og vinnur!)
38. Dh4??
(t sannkölluöu dauðafæri
brennir Petrosjan af. Eftir 38.
Rf5! stendur svartur frammi
fyrir algerlega óleysanlegum
vandamálum:
A: 38 — Rc6 39. Hxc6! Hxc6 40.
Re7+ Og 41. Rxc6
B: 38. — Rxf5 39. exf5 Hd6 (eöa
39. — Hg5 40. g4! og hrókurinn
er oröinn innlyksa.) 40. Dg3! og
svartur er glataður. Hótunin er
bæði 41. Dxg7 mát og 41. Hxc8+,
40. — Rf6 strandar einfaldlega á
41. Bxf6 o.s.frv..
C: 38. — Kf8. Illskást. Hvitur
getur nú leikið 39. Rxe7 Kxe7 40.
f4 með myljandi sókn. Meira
þvingandi er hinsvegar 39. Dd4!
t.d. 39. — f6 (hvaö annaö?) 40.
Hxc8+! Dxc8 41. Dd6 Dcl (41. —
De8 eða 41. — Dd8 strandar á 42.
Bb5) 42. Dxe7,+ Kg8 43. Kgl! og
hvitur vinnur létt.)
38. ..Hg5 40. Bb5-Rg6
39. Hdl-Rc5
(Hér fór skákin i bið.)
41. Df2-Rf4 42. Rc6-Dc7!
(Eini leikurinn. 42. — Db7
strandar á 43. Dd2 og hvitur hef-
ur alla þræði I hendi sér. Svart-
ur veröur aö hörfa með riddar-
ann þvi 43. — Rxg2 strandar á
44. Dd8+ Kh7 45. Re7 og vinn-
ur.)
43. Dd2
(43. Be5 lftur vel út m.a.
vegna þess að eftir 43. — Hxe5
44. Rxe5 Dxe5 45. Hd8+ vinnur
hvitur skiptamun. En svartur
getur gert betur, 43. — Red3! og
eins og iesendur geta áttað sig á
sleppur svartur fyrir horn I öll-
um tHvikum.)
Viktor Kortsnoj kampakátur, enda með vinnings forskot
43. ..Kh7! 45. Dxf4-He7
44. Be5-Hxe5
— Og hér enn I ótefldri stöðu
sömdu keppendur um jafntefli.
Hvorugur hefur þóst eiga þau
færi, að likleg væru til vinnings.
Úrslit þessarar skákar hljóta að
hafa orkaö sem kjaftshögg á
Petrosjan sem hafði á visinda-
legan hátt byggt upp vinnings-
stööu, en klúðrað öllu saman i
timahraki. Það er spá min að
þetta eigi eftir aö reynast ör-
lagavaldurinn I einviginu.