Þjóðviljinn - 09.04.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.04.1980, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 9. april 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Dauda- slys á Akur- eyri Banasiys varð á Akureyri á föstudaginn langa. 15 ára gamall piltur, Ragnar Ragnarsson til heimilis að Skaröshlið 40 F, lést i umferðarslysi. Slysið varð um kl. 5 siðdegis á gatnamótum Hamarsstigs og Byggðavegar. Ragnar heitinn var á bifhjóli og lenti i árekstri við bifreið. Hann var látinn þegar komið var með hann á sjúkrahús. Iris Murdoch í heimsókn hér Hinn þekkti breski rithöfundur, Iris Murdoch, er stödd hér á landi um þessar mundir ásamt eigin- manni slnum, John Bayley, sem er prófessor I enskum bókmennt- um við Oxford háskóla, þar sem hún kenndi einnig heimspeki áð- ur. Þau hjón eru hér i stuttri heimsókn i boði breska sendi- herrans og með styrk frá British Council. John Bayley hefur samiö mörg rit um bókmenntaleg efni, eink- um skáldsagnagerð, rómantisku stefnuna, Tolstoy, Pushkin og Hardy. Iris Murdoch hefur ritað um heimspeki og m.a. fjallað um Sartre, auk þess að hafa samið fjölda skáldsagna. Þau hjónin munu taka þátt i málstofuumræðum um skáld- sagnagerö á vegum heimspeki- deildar Háskóla íslands kl. 17.15 fimmtudaginn 10. april i stofu 201 i Arnagaröi. Umræðuefnið nefnist „The Novel”. Iris Murdoch mun siðan halda fyrirlestur, einnig 1 boði heim- spekideildar, kl. 17.15 föstudaginn 11. april I stofu 201 I Arnagarði. Fyrirlesturinn nefnist „The Truth of Art Fyrirlesturinn og málstofu- umræöurnar verða á ensku. öll- um er heimill aðgangur. A blaðamannafundi hjá FIDE i gær. Friörik ólafsson forseti FIDE fyrir enda borðsins en honum á hægri hönd situr einn af varaforsetum FIDE, Campomanes frá Filipseyjum en hann var m.a. frægur fyrir aö stjárna einvigi Kortsnojs og Karpovs á sinum tima. Til vinstri handar Friðriks eru þeir Sveinn Jónsson gjaldkeri FIDE og Einar Einarsson forseti Skáksambands IsIands.ILjósm.: eik) Framkvæmdaráð FIDE þingar í Reykjavik 10.-15. april: Heimsbikarkeppní í skák ákveðin A fimmtudaginn hefst I Reykja- vik fundur Framkvæmdaráðs FIDE og er það I fyrsta skipti sem hann er haldinn I Reykjavik. Fjölmörg mál eru á dagskrá fundarins og m.a. verður tekin ákvörðun um heimsbikarkeppni FIDE en hún mun byggjast á stigakeppni á svipaðan hátt og heimsbikarkeppni I skiðaiþrótt- um. I framkvæmdaráðinu eiga sæti allir heistu embættismenn FIDE og auk þeirra fjórir kjörnir full- trúar og heiðursforsetinn dr. Max Euwe. Framkvæmdaráðið sem þingar a.m.k. einu sinni á ári milli aðal- þinga gegnir fyrst og fremst þvi hlutverki að vera forsetanum til trausts og halds um allar meiri háttar ákvarðanir, úrlausn veiga- mikilla verkefna sem og mótunar stefnu I framtiðarmálefnum FIDE. Helstu verkefni sem liggja fyrir fundinum nú eru fyrirkomulag næstu heimsmeistarakeppni i skák, heimsbikarkeppni FIDE, höfundarrdttur I skák, ákvörðun vegna Olympiuskákmótsins á Möltu 1980, nýtt svæðafyrirkomu- lag, inntökubeiðnir nýrra skák- sambanda og fjáröflunarleiðir. Friðrik Ólafsson sagði á Blaða- mannafundi I gær en hann er sá fyrsti sem hann heldur hér á landi sem forseti FIDE og var haldinn I nýjum húsakynnum sambands- ins að Laugavegi 51 að hugmynd- ir væru uppi að f jölga svæöum og m.a. að gera Norðurlöndin að einu skáksvæði en hingaö til hafa þau verið með V-Þýskalandi, Austurriki, Sviss og Israel. Það er stjórn Skáksambands Islands sem hefur haft veg og vandað að undirbúningi og skipu- lagningu fundarins. Hann verður settur kl. 9.30 á fimmtudag. Menntamáiaráðherra og Einar Einarsson forseti Skáksambands Islands flytja ávörp en Friðrik Ólafsson stjórnar athöfninni og setur þingið. — GFr Vid viljum Volvo-vagna segja starfsmenn SVR Vagnstjóri hjá SVR kom með eftirfarandi samþykkt ásamt greinargerö á ritstjórn Þjóðvilj- ans I gær, og skýrði frá þvl að all- irbllstjórar SVR og starfsmenn á verkstæði hefðu skrifað undir samþykktina nema fjórir, fimm menn, Samþykktin hljóðar svo: „Við teljum að hagsmunum farþega, vagnstjóra og verk- stæðismanna, og að ógleymdu fyrirtækinu sjálfu, verði best borgiö með þvi að tekiö verði til- bóði Nýju Bflasmiðjunnar h.f. i smlði yfirbyggingar og jafnframt tilboði Volvo I undirvagna.” Greinagerð: „Akvörðun sú, sem stendur fyrir dyrum um val vagna til endurnýjunar á núverandi vagnakosti, mun hafa langvar- andi afleiðingar fyrir alla sem hlut eiga að máli. Er það eindreg- ið álit okkar að undir engum kringumstæðum megi slaka á gæðakröfum frá þvi sem verið hefur þegar skal kaupa nýja vagna, enda eru vagnar SVR nú Þjóöviljinn hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að hjá endurskoðunarskrifstofu Reykja- vikurborgar liggi fyrir hag- k v æ m n i ú t r e i k n i n g a r og kostnaðarútreikningar á þeim tveimur tegundum strætisvagna, sem i notkun eru hjá SVR, Volvo og Benz. Samkvæmt upplýsingum Þjóð- viljans er niðurstaða þessara út- reikninga sú, aö áriö 1978 hafi kostnaður við hvern Volvóvagn verið um 22 krónum meiri fyrir 5-12 ára gamlir og þess að vænta að endurbætur og tæknilegar nýjungar hafi komið fram siðustu ár. Framhald á bls. 13 hvern ekinn kilómeter en kostnaöurinn við Benz og væri kostnaðarmunur á ári þvi á að giska 200 miljónir sem Benz væri ódýrari I rekstri en Volvó væri vagnaflotinn allur af einni tegund á verðlagi dagsins I dag. Þjóðviljinn mun leita staðfest- ingar á þessu, en rétt er aö hafa I huga, að að slepttum Ikarusvögn- unum var tilboö Benz hagstæöara en tilboð Volvo, sem forráða- mönnum SVR er svo mikiö I mun að festa kaup á þessa daga.-úþ Er Benz-strætó ódýrari í rekstri? 200 miljóna munur á ári “I Sendu skiparakettu inn i dagheimili i Stykkishólmi Allur hópuriim Udur fyrir þetta B I segir forstöðumaöur Unglingaheimilisins L - Þetta er geysilega erfitt og kemur niður á þeim, sem eru saklausir i hópnum,og jafnvel niður á krökkum, sem hér hafa verið áður, sagði Kristján Sig- urösson, forstöðumaður Ung- lingaheimilis rlkisins,! gær, en um helgina var tiundaö ræki- lega I öllum fréttum, að tveir piltar, búsettir á heimilinu, heföu gert mikinn óskunda i Stykkishólmi. Strákarnir, sem hér um ræöir, komu slðla vetrar á Unglinga- heimilið út úr vandræðum eins og flestir sem þangað koma, að sögn Kristjáns. Þeim var treyst til þess að fara með i árlega páskaferð heimilisins og I þetta sinn fór 9 manna hópur ásamt 3 starfsmönnum heimilisins vest- ur á Snæfellsnes og dvaldi þar 4 nætur. Um eftirmiödag á laug- ardag brutust þrir úr hópnum inn I ýmsa skúra i Stykkishólmi og seinna um kvöldið fóru þessir tveir, 13 og 15 ára gamlir, i ó- leyfi út og brutust inn I skýli björgunarsveitarinnar. Þar tóku þeir flugelda, sem þeir kveiktu i,og fór einn þeirra inn um glugga á dagheimili systr- anna og kveikti I fatahengi. Systurnar náðu fljótlega að slökkva eldinn en ekkert barn var á heimilinu þegar þetta geröist. Talsvert tjón varð af eldinum. Ég ætla ekki að fara að draga neitt úr þvi sem þarna geröist, sagði Kristján, en ég býst viö að það sé gert meira úr þvi en ella, vegna þess að þeir eru héðan. Það hefði t.d. ekki verið til- kynnt, hvar þeir ættu heima,ef þetta hefðu verið sonur minn og sonur þinn, en menn ætlast eðli- lega til þess aö krakkarnir séu passaðir betur hér. Meðan Ung- lingaheimilið er ekki rekiö eins og fangelsi, heldur sem heimili þar sem ákveðinn agi rikir,eig- um við auðvitað eitthvaö þessu likt á hættu, sagöi Kristján enn- fremur. Ég hef hins vegar enga trú á þvi að hægt sé að laga fólk meö innilokun og hún veröur varla tekin upp vegna þessa atburðar. Hins vegar mun liða nokkur timi þar til strákun- um tveimur verður treyst til þess aö fara út án fylgdar full- orðinna, enda þeir oröið fyrir miklum erfiöleikum vegna þessa atburöar I hópnum, sem liður allur fyrir framkomu þeirra. — AI. Stjórn- mála- fundlr á Norður- landi vestra Alþýðubandalagið efnir til al- mennra stjórnmálafunda á Sauö- árkróki og Hvammstanga um næstu helgi. Fundurinn á Sauðár- króki veröur laugardaginn 12. april og hefst kl. 4 e.h. I Villa Nova, en fundurinn á Hvamms- tanga veröur sunnudaginn 13. april og hefst kl. 4 e.h. I félags- heimilinu. Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra hefur framsögu á fundinum á Sauðárkróki, en Baldur Óskars- son starfsmaður Alþýðubanda- lagsins veröur auk Ragnars með framsögu á fundinum á Hvammstanga. Fundir þessir eru öllum opnir, frjálsar umræður veröa og fyrir- spurnum svarað. — þm. Skoðana- kannanir Þjóðviljinn hefur frengir af 6 nýjum skoðanakönnunum um fylgi forsetaframbjóöenda og hafa Vigdls Finnbogadóttir og Guðlaugur Þorvaldsson mest fylgi I þeim nema einni þar sem Pétur Thorsteinsson er efstur. Niðurstöður i skoðanakönnun meðal starfsfólks i saltfiskverkun Kaupfélags Austur-Skaftfellinga á Höfn eru þær aö Guðlaugur fékk 3 atkvæði, Vigdis 8 en Albert 3. Hjá Vegageröinni á Reyðarfiröi fékk Vigdis 10 atkvæði, Pétur 6 og Guðlaugur 5. 1 Sparisjóði Hafnarfjarðar fékk Vigdis 16 atkvæði, Guðlaugur 10, Albert 6 og Pétur 4. 1 Prentsmiðjunni Odda fékk Guðlaugur 26 atkvæði, Vigdis 22, Albert 8, Pétur log Rögnvaldur 1. Hjá starfsfólki I Sigtúni fékk Pétur 20 atkvæði, Guðlaugur 13, Vigdis 8 og Albert 2. Hjá starfsfólki Vlfilsstaðaspit- ala fékk Vigdis 55 atkvæöi, Guö- laugur 38, Pétur 6, Albert 4 og Rögnvaldur 2. —-GFr Félag bifreiðasmiða: Styrkjum íslenskan iðnað og byggjum yfir Volvógrindur Nýendurkjörin stjórn Félags bifreiðasmiða hefur beint þvf til þeirra aðila, sem nú huga að stór- feildum vagnakaupum, að beina viðskiptum til innlendra aöila til þess að efla islenskan iðnað og flýta fyrir frekari uppbyggingu þessarar 50 ára starfsgreinar hér á landi. 1 ályktun stjórnarinnar segir að eðlilegt sé og nauðsynlegt stéttar- innar vegna aö stuðlað sé að smiði yfirbygginga á strætis- vagna og langferðabila hér innanlands. Bent er á aö gera þurfi innlendum aðilum kleift að fást við þau verkefni sem fyrir liggja á hverjum tima og að verk- efni séu skipulögö fram i timann, þannig aö ekki verði um óeðlilega dauða tima að ræða. Þá er enn- fremur bent á aö leiörétta þurfi tollakerfið, en eins og nú er eru tollar langtum hærri af efni til smiði yfirbygginga heldur en ef efniö kemur unnið aö utan. Hér er um hrópandi mismun aö ræða, sem gerir yfirbyggingarsmiðj- Framhald á bls. 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.