Þjóðviljinn - 18.04.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 18.04.1980, Blaðsíða 5
Föstudagur 18. aprll 1980 'þjóÐVILJINN — SIÐA 5 Fjögurra daga kókbann i Svíþjóð A miðvikudag hófst i Sviþjóö fjögurra daga kók- Ibann: þessa daga verður kókakóla ekki framleitt og þvi ekki dreift I Sviþjóð. Það I’ eru fimm verkalýðssamtök sem standa að þessu banni til að fylgja eftir fordæmingu á þeim ofsóknum á hendur I’ verkalýðsfélögum i kóka- kólaverksmiðjunni i Guate- mala, sem mjög hafa verið á t dagskrá að undanförnu. IÞað er starfsfólk i mat- vælaiðnaði og á veitingahús- um sem einkum stendur að , banninu, en, samtök Iverslunarfólks og flutninga- verkamanna hafa og lagt þessu máli lið. Samtök , verslunarmanna hafa hvatt Imeðlimi sina til að selja ekki kók, en smákaupmenn selja áfram gosdrykkinn af birgð- , um sinum. ITalsmenn Prippsverk- smiöjunnar, sem framleiðir kók i Sviþjóð,halda þvi fram, , að bann þetta muni ekki hafa Iönnur áhrif en þau, að bæta hag keppinauta eins og pepsi kóla. I sænska stórblaðinu .Dagens nyheter var fjallað Ium mál þetta i leiðara og sagt sem svo, að þótt eigendur Pripps geti ekki • ráðið þvi sem gerist i Guate- Imala, þá sé verksmiðjan samt hluti af þvi kókveldi sem full ástæða sé til að veita •nokkra ráðningu. L____________________iá5. Heima er best Út er komið mars-hefti tima- ritsins Heima er bezt, sem er „þjóðlegt heimilisrit” og kemur út mánaðarlega. Meðal efnis er forsiðuviðtal við Soffiu Gisla- dóttur frá Hofi i Svarfaðardal, frásögn eftir Svein frá Elivogum ásamt mörgum öðrum frá- sögnum, ljóðum, framhaldssögu, bókadómum og fleiru. Forsœtisráðherra gagnrýnir harðlega stjórnarandstöðuna í Sjálfstœðisflokknum: Flytja tillögur er auka verdbólguna þing$|á Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra gagnrýndi harðlega á Alþingi I gær stjórnarandstöðuna I Sjálfstæðisflokknum fyrir þær tillögur sem hún hefði kom fram með til lausnar verðbólguvand- anum. Forsætisráðherra minnti á að stjórnarandstaðan i Sjálfstæöis- flokknum hefðilagt til að minnka tekjur rikissjóös og auka jafn- framt útgjöld rikisins. 1 reynd hefði meirihlutí þingflokks Sjálf- stæðisflokksins aðeins lagt fram eina tillögu um lækkun rikis- útgjalda og sú tillaga hefði frekar getað stuölað að aukinni verö- bólgu frekar en draga úr henni. Tillaganhefði falist i þvl að lækka niðurgreiöslur á búvöru um 5 miljarða. Forsætisráðherra benti Tillögur stjóraarandstæðinga f Sjálfstæðisflokknum eru til þess fallnar að magna verðbólguna. áaðlækkun niðurgreiðslna myndi leiða til hækkunar framfærslu- kostnaðar og þar með hækkunar verðbðtavisitölu um nokkur prósent. Lækkun niðurgreiðslna og hækkun framfærsluvfsitölu samhliöa halla á rikissjóði myndi vitaskuld leiöa tíl aukinnar verð- bólgu. Þd gagnrýndi forsætisráðherra þær blekkingar sem stjórnarand- staöan hefði haldið uppi varðandi aðgerðir rikisstjórnarinnar I skattamálum. Stjórnarandstaðan reyndi að telja fólki trú um að rikisstjórnin hefði i hyggju stór- kostlegar skattaþyngingar. Sagði forsætisrdðherra að samkvæmt þeim skattstiga sem nú lægi fyrir þinginu væri ljóst að hjá meðal- fjölskyldu með almennar launa- tekjur myndu skattarnir hlut- fallslega lækka verulega. Hlutfall skatts af tekjum yrði lægra heldur en verið hefði I mörg ár t.d. hjá hjónum meö tvö börn er hefðu almennar launatekjur. þm. Kratar með hótanir varðandi eldhásdagsumræður: Andvígir því aö Gunnar fái sérstakan ræöutíma Þingmenn Alþvðuf lokksins, þeir Sighvatur Björgvinsson og Kjartan Jóhannsson, gáfu I gær yfirlýsingar á Alþingi sem vart verða skildar öðru visi en svo að Alþýðuflokksmenn ætli að reyna að hindra að Gunnar Thoroddsen forsætisráðhérra geti tekið til máls við eldhúsdagsumræður er verða á Alþingi nokkru fyrir þing- slit. Samkvæmt þingsköpum skal útvarpa á hverju þingi al- mennum stjórnmálaumræðum, svokölluðum eldhúsdagsum- ræðum,og i þeim umræðum eiga fulltrúar þingflokkanna rétt til þátttöku. Óliklegt er talið aö Gunnar Thoroddsen forsætisráð- herra verði tilnefndur ræðu- maður af hálfu þingflokks Sjálf- stæðismanna og getur þvi sú staða komið upp að forsætisráð- herra geti ekki tekið þátt i slikum umræðum. I umræðum á Alþingi i gær sagði forsætisráðherra að vegna þeirrar sérkennilegu stöðu er nú væri i stjórnmálum landsins (þ.e. aðeins hluti Sjálfstæðis- flokksins styður rikisstjórnina) þá væri eðlilegt að veita afbrigði frá þingsköpum varðandi þessar umræður og þannig tryggt að for- sætisráðherra, oddviti rikis- stjórnarinnar, gæti tekið til máls. Aðurgreindir þingmenn Alþýðuflokksins sögðu að Gunnar Thoroddsen væri i þingflokki sjálfstæðismanna og þvi væri það þess þingflokks að meta hvort forsætisráðherra fengi að taka þátt i umræðum sem þeirra full- trúi. Urðu orð þeirra vart skilin öðru visi en svo að þeir myndu ekki samþykkja að forsætisráö- herra yrði veittur sérstakur timi til ræðuhalda með afbrigöum frá þingsköpum. Mátti á þing- mönnum Alþýðuflokksins heyra að þeir teldu eðlilegast að for- sætisráðherra og hans stuðnings- menn mynduðu sérstakan þing- flokk, þvi þannig væri þeim fullkomlega tryggður réttur til þátttöku I eldhúsdagsumræð- unum. Þvi má bæta við að i útvarps- umræðum um þingmál eins og t.d. skattamál er verða eftir helgi, þá er forsætisráðherra i sömu stöðu og hér hefur verið lýst. Þó að hann sitji i efri deild þar sem umræðan fer fram þá mun hann ekki taka til máls, þvi hann hefur ekki verið tilnefndur ræðumaður af hálfu neins þing- flokks. Forsætisráðherra hefur reyndar lýst þvi yfir að hann óski ekki eftir þvi sérstaklega að taka þátt I þeim umræðum, þó að hann muni hins vegar leggja á það áherslu að tala i eldhúsdags- umræðunum er verða siðar. —þm Guðrún Hallgrimsdóttir Guðrún Hallgríms- dóttir tekur sœti á Alþingi Guðrún Hallgrimsdóttir matvælaverkfræðingur tók i gær sæti á Alþingi i forföllum ólafs Ragnars Grimssonar sem dvelur erlendis i opin- berum erindagjörðum. Guðrún Hallgrimsdóttir er 1. varaþingmaður Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik og hefur hún ekki áður setiö á Alþingi. Þá tók Sigurlaug Bjarna- dóttir einnig sæti á Alþingi i gær i forföllum Þorvaldar Garðars Kristjánssonar sem er erlendis I opinberum erindagjörðum. Sigurlaug hefur setið siðustu vikur á Alþingi i forföllum Eyjólfs ^ Konráðs Jónssonar. -þm ^ Ördabók Blöndals ljósritud lslensk-dönsk orðabók eftir Sigfús Blöndal (Rv. 1920-24) hefur sem kunnugt er veriö ófáanleg um árabil, en veröur nú Ijósprentuð að nýju og er væntan- leg á markað með haustinu. Bókin er 1098 bls. og verður bundin I tvö bindi. Þeir sem gerast áskrifendur aö ljósprentinu á næstu mánuðum fá það á lægra veröi en aörir. Verðtil áskrifenda er 40 þúsund Ný búgrein á Islandi: Ræktun feldfjár Búnaðarfélag tslands hefur ákveðið, að höfðu samráði við Stéttarsamband bænda og Fram- leiðsluráð landbúnaðarins, að hefja skipulega ræktun feldf jár til framleiöslu á pelsgærum. Tilefni þessarar ákvörðunar er, að tals- veröir möguleikar eru á þvl að fá hærra verö fyrir gráar gærur ef hægt er að bjóða þær sem pels- gærur. Sveinn Hallgrimsson, sauðfjár- ræktarráöunautur Búnaðarfélags tslands, hefur sett fram tillögur um markmið, ræktunaraðferðir og skipulag framkvæmda. Þar leggur hann áherslu á að nota i ræktuninni svart og grátt fé. Stofnuð ver.ði 10-15 feldfjár- ræktarfélög, sem starfi sam- kvæmt búfjárræktarlögum. Valin sérstök afmörkuð svæði, þar sem feldfjárrækt verði stunduð. Islenski fjárstofninn hefur ekki þá eiginleika i gæru, sem eru aðaleinkenni á góðum pelsgær- um, þ.e. lokk, eins og t.d. gæran af Gotlandslambinu sænska. Þó er talið aö rækta megi á tiltölu- lega skömmum tima þennan eiginleika i fjárstofninn, þvi alltaf koma fyrir einstaklingar I islenska fjárstofninum, sem gefa gæru með góðan lokk. Aðalein- kenni góðrar pelsgæru eru: Lokkamyndun, gljái og hreinn lit- ur. Einnig er mikilsvert að gæran sé létt miðað við stærð. -mhg Kristján Helga Garðar SAMEINING 1. MAI gegn undanslætti — til baráttu Baráttu- og skemmtifundur verður haldinn 20. apríl n.k. kl. 13.30 að hótel Borg Fundarstjóri: Kristján Guðlaugsson kennari Avörp flytja: Helga Jóhannesdóttir, félagsráðgjafi, Garðar Norðdahl, rafsuðumaður, Hjálmtýr Heiðdal, teiknari. Pétur Pétursson mun segja sögu úr stéttabaráttunni. Þorlákur Morthens, Kristján Guðlaugsson, Torfi Hjartarson og Þorvaldur Árnason mjnu syngja og standa fyrir söng. Framkvæmdaráð Sameiningar 1. mai. Hjálmtýr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.