Þjóðviljinn - 18.04.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.04.1980, Blaðsíða 16
VOBVIUINN Föstudagur 18. april 1980 ólafur Haukur Simonarson Lárus Vmir Óskarsson Ráðnir leikhús- stjórar Lárus Ýmir óskarsson leikstjóri og ólafur Haukur Simonarson rithöfundur hafa veriö ráönir leikhússtjórar Alþýöuleikhússins. Akvöröun þessi var tekin á alls- herjarfundi ieikhússins siöastliö- inn mánudag og taka þeir félagar þegar til starfa. Lárus Ýmir sagöi i viötali viö Þjóöviljann i gær aö um væri aö ræöa hálft starf á hvorn og fælust verkefnin einkum I aö sjá um daglegan rekstur, svo og aö hafa frumkvæöi i ýmsum málum leik- hússins. Eftir sem áöur fer alls- herjarfundur með æösta vald i öllum málum og framkvæmda- stjtírastaöan helst tíbreytt. Þá hefur veriö skipaö 5 manna leik- húsráö og eiga þar sæti auk leik- hússtjóranna 3 meölimir Alþýöu- leikhússins.sem valdir eru á alls- herjarfundi. Leikhúsráöiö kemur saman reglulega einu sinni i viku og annast upplýsingastreymi til meölima leikhússins og undirbýr allsherjarfundi. im. Aóalslmi rijóðviljans er 81333 kl. 9-20 mónudaga til föstudaga. Ltan þess tlma er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins f þessum slmum : Ritstjórn 81382. 81482 og 81S27. umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I afgreiöslu blaösins Isfma 81663. Blaöaprent hefur sfma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Fjárhagsáœtlun Reykjavíkur: Mikil breyting hefur orðið á styrkjalista Reyk javíkurborgar og hafa ýmis félagasamtök nú í fyrsta sinn hlotið styrki á fjárhagsáætiun, mismikla að vísu. Verður hér að neðan hlaupið á þeim helstu. Alþýðuleikhúsið (sunnandeild) hlýtur 6 miljónir, Nýlistasafniö 1 miljón, Neytendasamtökin 1,3 A miöri myndinni má sjá Dvalarheimili aldraöra I Heilsuverndarreitn- um og likan aö nýju skátaheimili til vinstri viö þaö. Nær 200 miljónir í styrki til félagasamtaka miljónir, Sjálfsbjörg ,félag fatl- aðra, 1 miljón, Leigjendasam- tökin, 1 miljón, starfshópur vegna sýningar um umhverfismál i Breiðfirðingabúð og nágrenni 1 miljón, Framfarafélag Breiðholts III300 þúsund, Tónlistarskóli FÍH 3 miljónir, Bókasafn Dagsbrúnar 200 þúsund, Pólýfónkorinn 1,8 miljón, Kammersveit Reykjavikur 300 þúsund, Leik- brúöuland 500 þúsund, Feröaléik- húsiö 700 þúsund, Mynd- höggvarafélagið 4 miljónir, Skóg- ræktarfélag Reykjavikur 4 milj- ónir, lþróttafélag fatlaöra 800 þúsund, KFUM 7 miljónir, Félag heyrnarlausra 1,5 miljón, Krabbameinsfélag Reykjavikur 3,5 miljónir. Þá er fjölmörgum félagasam- tökum veittur styrkur vegna sér- stakra verkefna. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fær 10 miljón króna byggingastyrk , Skáta- heimili i Reykjavik vegna bygginga við Sólheima og Snorra- braut 13,8 miljónir, Félag ein- stæðra foreldra 15 míljonir,þar af 12 miljónir til endurbóta á hús- eign, Hið islenska bókmennta- félag 10 miljónir til kaupa á hús- næði, Sjóskátasveitin Klýfir til viögeröar á Erninum 900 þúsund, Torfusamtökin til upp- byggingar Bernhöftstorfu 6 millj- ónir, Galleri Langbrók til upp- byggingar 500 þúsund, Hjálparsveit skáta 7 miljónir, þar af 5 miljón króna bygginga- styrkur. Þá fær Taflfélag Reykjavikur 4,2 miljónir þar af 500 þúsund til húsakaupa, l,2miljónum er variö til skákstarfsemi eftir ákvöröun borgarráös, 2 miljónir i Reykjavikurmótið i skák, 1 miljón tilSkákfélagsins Mjölnis, 2 miljónir til FIDE vegna stofn- kostnaöar viö flutning skrifstofu þess hingaö til lands, 2 miljónum er variö til SAA i kennslustyrki og svo mætti lengi telja. —AI 1 i starfs- \laun til reykvísks ! listamanns I A borgarstjórnarfundi i | ■ gærkvöld' var ákveöiö aö út- ■ Ihluta i fyrsta sinn árlegum I starfslaunum til reykvisks I listamanns og nema þau | * launum kennara viö fram- ■ I, haldsskólastigið. Stjórn I Kjarvalsstaöa hefur veriö I faliö i samráöi viö borgar- | ■ lögmann aö semja reglugerð ■ Ium úthlutun starfslaunanna I en stjórnin velur listamann- I inn úr hópi umsækjenda. ■ , IÞessi ákvörðun er tekin að I tillögu borgarfulltrúa | ■ Alþýöubandalagsins og er ■ gert ráö fyrir því aö lista- I maöurinn geri grein fyrir I starfi slnu aö starfsári loknu j ■ meö greinargerö eöa meö ■ framlagningu á verki til I frumbirtingar eða frum- | flutnings og þá gjarnan i | • tengslum viö Listahátiö eöa ■ IReykjavfkurviku. Starfs- I launin eru sérstaklega ætluð | listamönnum, sem ekki geta I * stundað listgrein sina sem ■ I fullt starf. Auglýst verður | eftir umsóknum strax og reglugerðin liggur fyrir. Tillögur íhaldsins í borgarstjórn: Minni framkvæmdirog minni þjónusta Borgarfulltrúar Sjálf- stæðisf lokksins lögðu í gær til að útgjöld Reykjavíkur- borgar yrðu skorin niður um 2 miljarða króna og að útsvarsálagningin yrði 11% í stað 11.88% eins og meirihlutinn hafði lagt til. Tillögurnar voru allar felldar. Sem dæmi um hugarflug Sjálf- stæðismanna i þessum niður- skuröí má nefna, aö þeir geröu tillögu um að tekjuaukning borgarbúa milli áranna 1978 og 1979 yrði 49.5% i stað 48.5% eins og tekjuspár benda til og fengu þannig út nokkra tekjuaukningu á pappirnum fyrir borgina. Niðurskurðartillögur ihaldsins miðuðu m.a. að þvi að skerða styrki til Alþýðuleikhússins um 2 miljónir og þeir voru einnig á móti 6 miljóna króna framlagi til uppbyggingar Bernhöftstorfunn- ar. Þá töldu þeir ástæðulaust aö verja 3 miljónum króna til jafnréttiskönnunar i Reykjavik og lögðu til að klipið yrði af þvi fé sem ætlað er til að mæta launa- hækkunum á árinu. Sjálfstæðisflokksmennirnir töldu ástæðulaust að fjölga starfsmönnum i Borgarbókasafni og i útibúi Félagsmálastofnunar i Asparfelli og þeir lögðust gegn ráðningu 2ja nýrra starfsmanna til þess að hafa eftirlit með dag- vistun á einkaheimilum. Þeir vildu einnig lækka framlag til skipulagsmála um 20 miljónir króna, en þeir hafa sjálfir manna mest kvartað undan að seina- gangur riki i skipulagsmálum borgarinnar. Loks lögðu þeir til 5% ótil- greindan niðurskurð á gerð gatna- og holræsa, áhaldakaup- um og byggingaframkvæmdum og kórónuðu svo tillögur sinar með þvi að leggja til að framlag til atvinnumála verði skorið niður um 350 miljónir og að 150 miljónir yrðu teknar af fjárveitingu til SVR vegna nýrra vagnakaupa. Fjárnagsáætlunin var að lokn- um löngum og ströngum umræð- um samþykkt óbreytt. -AI Hátíðarsýning Þjóðleikhússins í tilefni af 30 ára afmæli: 106 ára gamalt leikrit grafið upp frelsið á mjög nútimalegan hátt. Þorgeir Þorgeirsson hefur stytt verkið töluvert og breytt 5 þátt- um i mjög mörg atriði en er þó trúr Sigurði og upphaflegum texta. Þórhildur Þorleifsdóttir er leikstjóri sýningarinnar og er þetta fyrsta leikstjórnarverk- efni hennar fyrir Þjóðleikhúsið. Tveir ungir leikarar, þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Árni Bland- on, leika elskendurna i verkinu. Það eru fyrstu stóru hlutverk þeirra á sviði Þjóðleikhússins. Það fer vel á þvi að sýna verk eftir Sigurð Guðmundsson á 30 ára afmælinu þvi að hann mun fyrstur Islendinga hafa hreyft og synt 1 iyrsta sum A sunnudag eru 30 ár liðin frá þvi að Þjóðleikhúsið var vigt. 1 tilefni af afmælinu verður frum- sýnt á sumardaginn fyrsta meira en aldar gamalt islenskt leikrit sem aldrei hefur verið sýnt áður. Smalastúlkan eftir Sigurð Guðmundsson málara en að visu umsamið af Þorgeiri Þorgeirssyni og nefnist Smala- stúlkan og útlagarnir i þeirri gerð sem Þjóðleikhúsið sýnir. Sigurður Guðmunds- sori málari var potturinn og pannan i allri leiklistarstarf- semi i Reykjavík á árunum 1858-1874 og hafði mikil áhrif á þá Matthias Jochumsson, Stein- grim Thorsteinsson m.a. með þvi að hvetja þá til að þýða verk meistara eins og Shakespeare. Þegar Sigurður féll frá, aðeins fertugur að aldri, hafði hann verið að semja leikrit, sem hon- um tókst ekki að ljúka,og hefur það nú verið grafið upp. Sveinn Einarsson þjóð- leikhússtjóri sagði á blaða- mannafundi i gær að leikrit þetta væri safamikið og mjög fróðlegt. Það gerist á árunum 1537-1555 og fjallar um ástina og Smalastúlkan og útlagarnir eftir Slgurð Guðmundsson og Þorgeir Þorgeirsson fjallar um ástina og frelsið og er kfmilegt á köflum. Þórhallur Sigurðsson leikur eitt af aðalhlutverkum og sést hér ásamt þeim Jóni Gunnarssyni, Ævari Kvaran og Sigurði Skúlasyni. hugmyndinni um þjóðleikhús Einarsson, tók svo upp og barð- sem nemandi hans, Indriði ist fyrir alla ævi. -GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.