Þjóðviljinn - 18.04.1980, Side 7
Föstudagur 18. aprll 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Marta Siguröardóttir. Ljósm. — gel -
Hanna Dóra Þórisdóttir. Ljósm. — gel —
Snöggsoðnar
skyndilausnir
Marta S i g ur ö a r d ót tir,
formaður Fósturfélags tslands,
og Hanna Dóra Þórisdóttir,
fulltrúi félagsins, voru verklegir
námsskeiðsstjórar og báru hita
og þunga undirbúningsins.
Jrs.: Hanna Dóra, er náið
samstarf milli Fósturfélaganna
á Norðurlöndum?
Hanna Dóra: Þau hafa sam-
eiginlega skrifstofu sem færist
milli landanna og er 1 1/2 ár i
hverju landi. Norræna skrif-
stofan hefur verið á Islandi
siðan 1. jan. ’78og núna kom það
i okkar hlut að halda námskeið,
en námskeið og ráðstefnur eru
haldnar með reglulegu millibili.
Hér á Hótel Loftleiðum eru 130
manns, þar af 40 tslendingar.
Jsr: Hver eru meginmálefnin
sem fjallað er um?
Hanna Dóra: Geysilega mörg
atriði hafa komið til umfjöll-
unar eins og yfirskriftin: Staða
dagvistarheimila i samfélaginu
gefur til kynna. Við höfum
skipst á upplýsingum og rætt
spurningar eins og hvernig
megi bæta innra starf svo dæmi
sé tekið. Annað dæmi get ég
nefnt. Fyrirlesararnir frá
Noregi hafa verið með verkefni
sem snertir vinnuframlag
barna. Aður fyrr tóku börn
meiri þátt i störfum fullorðinna,
þau höfðu verkefni sem voru
nauösynleg t.d. fyrir fjölskyld-
una. Núna eru börn i ákveðnu
hólfi i þjóðfélaginu, þar sem þau
eiga bara að „leika sér” og fólk
á vinnumarkaði i öðru. Þessir
heimar snertast ekkert. Viö höf-
um rætt þessi mál út frá þvi
sjónarhorni að við megum ekki
gleyma þvi uppeldislega gildi
sem það hefur fyrir börn að
finna að þau gera gagn og séu
ekki utanveltu við heim
fullorðinna, séu ekki ,,i
geymslu”.
Jrs: Þarf nokkuð að spyrja
ykkur hvernig dagvistarmál á
íslandi eru samanborið við
ástandið á öðrum Norðurlönd-
um?
Marta: Astandið er alverst á
Islandi. Forgangshóparnir, sem
til eru vegna þessa mikla skorts
á dagvistarrýmum, setja innra
starfi þröngar skorður og hafa
viss vandamál i för með sér. Ég
skal taka dæmUBörn einstæðra
mæðra eru hlutfallslega mörg.
Flestar þeirra vinna fyrir lág-
um launum, eru þ.a.l. i ótryggu
leiguhúsnæði og þurfa þess
vegna oft að flytja á milli
hverfa. Afleiðingin er m.a. sú að
of miklar tilfæringar á börnum
eiga sér stað, en eins og allir
vita getur það verið erfitt bæði
fyrir starfsfólk og börnin, sem
missa vini burt eða þurfa oft að
aðlagast algerlega nýjum hópi
barna og starfsfólks.
Jrs: Hvernig horfir til með
úrbætur?
Marta: A fjárlögum fyrir 1980
eru um 500 miljónir. Það dugir
rétt til aö ljúka þeim verkefnum
sem eru i gangi, en alls ekki til
að halda uppbyggingu áfram.
Það er stopp i þessum málum þó
stjórnvöld viðurkenni það ekki.
Jrs: En gerið þið ykkur ekki
vorir um að kröfur ASI um
úrbætur i dagvistarmálum geti
breytt þessari mynd?
Hanna Dóra: Við erum ekki
bjartsýnar á það. Viö hljótum
að taka fjárlögin sem stefnu-
yfirlýsingu rikisstjórnarinnar.
Samkvæmt þeim virðist ekkert
eiga að gerast.
Marta: Það eru karlar
ráðandi i öllum nefndum, sem
hafa takmarkaðan skilning og
þekkingu á dagvistarmálum og
málefnum barna yfirleitt.
Stjórnvöld vanmeta gersam-
lega það starf sem fram fer
á dagvistarstofnunum, enda hef
ur engin stefnumörkun i
uppeldismálum átt sér stað af
hálfu hins opinbera. Þaö eimir
Framhald á bls. 13
Líka á íslandi
Jafnréttissiöunni tókst að
króa Kristlnu S. Kvaran nám-
skeiðsstjóra af i nokkrar mln-
útur á milli þess sem hún þeysti
milli fundarherbergja. Viö
vörpuðum fram spurningunni:
Eru börn hagstjórnartæki á
lslandi?
Kristin: Hvað annað er hægt
aö kalla hringlandahátt stjórn-
valda? Ef vel árar er margt
hægt að gera, þá eru til pen-
ingar. Ef þarf að laöa konur út á
vinnumarkaöinn eru dagheim-
ilinholl og góö. Syrti hins vegar
I álinn, verður eitthvaö annaö
forga ngsverkefni, þá eru dag-
vistarstofnanir ómögulegar og
spilað er á samviskubit
mæðranna. Hvað er þá að ger-
ast? Jú, það þarf að snúa
mæörunum aftur inn á heimilin.
Við getum auðveldlega séö
hvernig afstaða stjórnvalda
gengur I bylgjum og
almenningsálitið svokallaða
snýst meö um það hvaö gott sé
fyrir börnin. Þaö er ekki um
neina stefnumörkun að ræða
sem gengur út frá hagsmunum
barna. Það er ekki hægt að
segja annað en aö börn séu
notuö sem pólittskt hagstjórnar-
tæki. Gagnvart þessu getur
enginn staðiö álengdar, gagn-
vart þessu getur enginn verið
hlutlaus.
-hj.
Söludagar:
18., 19. og 20. apríl
Kaupið fjöður
R41ÐA
FJÖÐRIN
til hjálpar
heymarskertum
\
\
%
%
%
%
%
%
Nýr helgarsími
Við viljum vekja athygli á
nýjum helgarsima af-
greiðslunnar. Laugardaga
frá kl. 9—12 og 17—19 er af-
greiðslan opin og kvörtun-
um sinnt i sima 81663. —
Virka daga skal hringt i að-
alsima blaðsins, 81333.
/
/
/
/
/
/
/
/
/
uomuiNN;
simi 81333 — virkadaga £
simi 81663 —laugardaga /
4181333
UOOVIUINN
Síðumúla 6 s. 81313