Þjóðviljinn - 22.05.1980, Qupperneq 1
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 22. mai 1980 —115. tbl. 45. árg.
Alþýðubandalagið krefst fundar í utanríkismálanefnd:
Bandaríkjastjórn
leggi fram gögnin
„Samkvæmt rannsókn-
um Arkins er Keflavíkur-
herstöðin árásarstöð, en
ekki þessi saklausa eftir-
litsstöð, sem menn hafa
viljað halda fram", sagði
Olafur Ragnar Grimsson í
viðtali við Þjóðviljann i
gær eftir að hann hafði
krafist sérstaks fundar í
utanrikismálanef nd Al-
þingis vegna kjarnorku-
fréttar ríkisútvarpsins,
sem sagt var f rá i blaðinu í
gær.
Bill Arkin, sérfræöingnum sem
fréttamaður útvarpsins ræddi
viö, bar i staðhæfingum sinum
mjög saman við þaö sem her-
stöðvaandstæðingar hafa haldið
fram þ.ám. Ólafur Ragnar 1 eld-
húsdagsumræðum s.l. mánu-
dagskvöld, að hlutverk her-
stöövarinnar sé árásarlegs eðlis
og að meö tilliti til þess mikil-
væga hlutverks sem hún á að
gegna i kafbátahernaði NATÓ,
bendi allt til að stöðin sé búin
margvislegum vopnum til að
gera árásir á sovésk skip og kaf-
báta, þ.öm.búin kjarnorkuvopn-
um.
Geir Hallgrlmsson er formaður
utanrikismálanefndar og hefur
samþykkt að halda fund um mál-
ið og leggja fyrir hann afrit af
upptöku rikisútvarpsins á viötal-
inu viö B .Arkin. Veröur fundurinn
væntanlega haldinn i dag.
„Ég mun óska eftir þvi á fund-
inum”, sagði Ólafur Ragnar, ,,að
islenska utanrikisráöuneytiö fari
fram á það viö rikisstjórn Banda-
rikjanna, að hún leggi fram ná-
kvæm þau fyrirmæli bandarisku
flotastjórnarinnar, nr. 5510-83B,
sem Arkin vitnaöi til I viðtalinu
við útvarpið. Ennfremur að nán-
ari grein verði gerð fyrir þeim
tækjabúnaði og vopnum sem
staösett eru á Vellinum.”
— vh
SJÁ BAKSÍÐU
„Fer ekki Gunnar aö byrja”, sagði einn þingmanna sem höfðu hópast
fyrir framan sjónvarpstækið I þingsölum i gærkvöldi. „Nú, ég hélt þaö
væri Tommi og Jenni”, sagði annar. Sá cinstæöi atburður gerðist að
gert var hié á þingfundum til þess að þingmenn gætu fylgst með forsæt-
isráöherra á sjónvarpsskerminum. Sighvatur Björgvinsson hafði upp-
haflega óskað eftir þvi að gert yrði hlé, en Sverrir Hermannsson, for-
seti neðri deildar, beitti sér fyrir þvi að tækið væri fengið I þinghúsið.
Ljósm.: — gel.
r
Alverið í Straumsvik:
V erkfall
yfirvofandi
Vlða erlendis eru settar hömlur við þvi að fólk vinni of lengi I einu við tölvuskerma sem nú eru óðum að
ryðja sér til rúms hér á tslandi. Talið er að hætta geti fylgt þeim vegna geislunar. Myndin er tekin I
Gjaldheimtunnien þangað fór Þjóðviijinn til að kanna málin (Ljósm.: gel) — Sjá baksiðu.
Andstaða Alþýðuflokksmanna
kom í veg fyrir gufuöflun við Kröflu:
Aðeins boruð ein
hola frá því
Fyrri hluti skýrslu iðnaðarráðherra
um Kröfluvirkjun birtur í opnu
Lagði ekki
í umrœður
um
herstöðina
Fréttastofa útvarpsins ætlaöi I
gær að fá tvo menn á öndverðum
meiði til að ræöa um hlutverk
herstöðvarinnar á Keflavikur-
flugvelli, þá Ólaf Ragnar Grims-
son alþm. og Björn Bjarnason,
sem nýlega skrifaöi leiöara um
herstöðina i Morgunblaðið.
Ólafur var reiðubúinn, en þegar
til átti að taka neitaði Björn að
mæta I útvarpið þrátt fyrir
leiðaraskrif sin, þar sem hann
ásakaði m.a. herstöðvaandstæð-
inga um að draga sovéskar eld-
flaugar hingað með tilvitnunum i
timaritið Defence Monitor.
— vh
Dr. Gunnar
í sjónvarpi:
„Það skal
í gegn”
„Þingi verður ekki slitiö fyrr en
afgreidd hafa verið þau 3 mál
sem enn liggja fyrir þinginu”,
sagði dr. Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra i sjónvarpsþætti i
gærkvöldi.
Hér er um að ræða frumvarp aö
nýrri löggjöf um húsnæöislána-
kerfi, jöfnun og lækkun hitunar-
kostnaöar og frumvarp til láns-
fjárlaga.
Forsætisráðherra sagöi að inn-
an Sjálfstæðisflokksins (stjórnar-
andstööuarms) væru nokkrir
menn sem ekki vildu að hús-
næöismálafrumvarpið yröi aö
lögum nú i vor og þrátt fyrir
margitrekaðar tilraunir hefði
ekki verið hægt að liöka fyrir af-
greiðslu þess. Dr. Gunnar lagði
þó áherslu á að málþóf og tafir á
þingstörfum myndu ekki koma I
veg fyrir að frumvarpiö hlyti af-
greiðslu I vor.
— ekh
I skýrslu iðnaðarráð-
herra um Kröfluvirkjun
vegna óska Alþingis er
m.a. minnt á að frá árinu
1976 hefur aðeins verið
boruð ein hola til gufuöfl-
unar fyrir Kröfluvirkjun
en hún gaf allgóða raun.
Samkvæmt áætlun sem
Rarik hefur gert er Ijóst að
ef hefðu verið boraðar 2
holur árið 1979 og 3 holur
1980, hefði hugsanlega
fengist rekstrarhagnaður
á Kröf luvirkjun þegar í ár.
Er þá aðeins miðað við
beinan rekstrarkostnað án
greiðslu fjármagns-
kostnaðar og afskrifta.
Astæöan fyrir þessu aðgerðar-
’76
leysi i gufuöflun segir iðnaöar-
ráöherra að sé ekki sist „and-
staða Alþýöuflokksmanna gegn
fjárveitingum tíí aö reyna aö
tryggja gufu fyrir virkjunina.
Sömu aöilar hafa hinsvegar veriö
ötulir viö að spyrjast fyrir um
gang mála viö Kröflu og býsnast
yfir bágum horfum og fjár-
magnskostnaöi...” Minnt er á að
hvað sem segja megi um virkjun-
ina og hvernig að henni var staöiö
hafi veriö ljóst, að eftir að
stöðvarhús var risið myndi
virkjunin þvi aðeins komast I
gagniö að unnt reyndist aö afla til
hennar gufu.
— ekh
A félagsfundi verka-
manna í álverinu í
Straumsvik í gær var sam-
þykkt tillaga þar sem farið
er fram á það við
trúnaðarmannaráð Hlífar
að boðað verði til vinnu-
stöðvunar 2. júni.
Hallgrimur Pétursson for-
maður Hlifar sagöi I samtali við
Þjóöviljann i gærkvöldi aö
trúnaöarm annaráðiö kæmi
saman til fundar i kvöld til aö
taka afstöðu til þessara tilmæla.
Þetta er annar félagsfundur
verkamanna I Straumsvik sem
haldinn hefur veriö nú á skömm-
um tima. Samningaviöræður hafa
staöiö frá þvi i mars en litill
árangur orðiö af þeim, að sögn
Hallgrims.
— GFr
Hvers vegna
neikvæöar
undirtektir?
Arni Indriðason, menntaskóla-
kennari og handknattleiksmaður,
skrifar I Þjv. i dag grein um nei-
kvæðar undirtektir islensku
Ólympiunefndarinnar við þeirri
málaleitan Sovétmanna að is-
lenska handknattleikslandsliðið
taki þátt i Ólympluieikunum i
Moskvu.
Hann segir siðar I grein sinni:
„Hugsum okkur til dæmis, aö Is-
lenska landsliðið i handknattleik
hefði nú lent I 1. eða 2. sæti á
Spáni I fyrra og þá um leið áunnið
sér beinan rétt til þátttöku á
Moskvuleikunum. Þar sem is-
lenska ólymplunefndin er þeirrar
skoðunar aö ekki eigi aö „blanda
saman iþróttum og pólitik” (ég
tek fram að sjálfur hef ég talið
þessa alhæfingu út i hött), hefði
oröiö að safna peningum til farar-
innar. Þá heföi fyrst og fremst
veriö leitaö til fyrirtækja eins og
áöur. Hugsum okkur (ég undir-
strika, hugsum okkur) að þá væru
rekendur fyrirtækja ekki á sömu
skoöun og GIsli Halldórsson, for-
seti ISI, um að „blanda ekki sam-
an Iþróttum og pólitik”. Hugsum
okkur að þeir telji aö refsa beri
Sovétmönnum fyrir framferði
þeirra i Afghanistan, og létu þvi
ekkert af hendi rakna i þetta
skipti. Hvar stæði Iþróttahreyf-
ingin þá?”
SJÁ SÍÐU 11