Þjóðviljinn - 22.05.1980, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 22.05.1980, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. mai 1980 *skák Umsjón: Helgi Ólafsson leik sem ekki hefur veriö gefinn mikill gaumur að. 11. Bd3 er al- gengasta svarið og þarf vart að taka það fram að Spasskí hefur margoft mætt þeim leik,m.a. i einviginu við Portisch 1977.) Jafntefli geta yerid gód Þrátt fyrir að 12 af 14 skákum þeirra Spasskis og Portisch hafi lokið með jafntefii er langt i frá að mjög friðvænlegt hafi verið i skákum þeirra. Næstum ávalit var barist til siðasta blóðdropa og oft á tiðum sýndu keppendur hreina snilldartakta. Það fór reyndar eins og flesta hafði grun- að að yfirburðabyrjanaþekking Portisch var ærið þung á met- unum og þurfti Spasskl þvi oft að taka á honum stóra sinum til að bjarga hálfum punkti i land. Þessar fjórtán skákir einvigisins eru þvi hrein gullnáma fyrir þá skákmenn sem vel eru inni helstu kennisetningum skákfræðinnar og væri vel að fleiri slík einvigi fylgdu, þó með þvi fororði að jafnteflunum fækki. ósjaldan hneyksiast menn á mergð jafn- teflanna í þessum einvigjum, en i þvisambandimá minna á að þeg- ar jafningjar mætast á skáksvið- inu þá hljóta jafnteflislikurnar að vera töluverðar. Ég hygg að vinn- ingsskák Portisch hafi birst hér i Þjóðviljanum ekki ails fyrir iöngu, en i næstu tveimur skákum var baráttunni f nokkurt hóf stillt. t fjórðu skákinni gneistaði hins- vegar af vopnum skákmann- anna: 4. einvígisskák Hvitt: Lajos Portisch Svart: Boris Spasski Nimzoindversk vörn 1. d4-Rf6 6. Rf3-0-0 2. c4-e6 7. 0-0-Rc6 3. Rc3-Bb4 8. a3-Bxc3 4. e3-c5 9. bxc3-dxc4 5. Bd3-d5 10. Bxc4-Dc7 (Afbrigði þetta hefur verið lengi i vopnabúri Spasskis, einkum þeg- ar mikið liggur við dregur hann það úr sliðrum. Þetta er traust afbrigði sérlega brúklegt i ein- vigjum sem þessum.) 11. Bb5 (Portisch hefur margoft þurft að mæta þessu afbrigði. Hann velur 11. ...a6 12. Be2-e5 13. Bb2 (Oftast svarar hvitur viðleitni svarts á miðborðinu með upp- skiptum á e5. Hér hefur Portisch greinilega annað I huga. Hann eftirlætur Spasski að loka mið- borðinu með e5-e4. en ., hyggst seinna meir sprengja þar brúarsporð með f2-f3. Þó að þessi áætlun komist aldrei I framkvæmd er hún allra' góðra gjalda verð.) 13. ..e4 14. Rd2-Bf5 16. Dc2-Hac8 15. a4-Hfd8 17. Hfcl (Portisch gat hindrað þá áætlun sem Spasski hefur á prjónunum með 17. Khl. 1 sovéska timaritinu „64” er þá bent á eftirfarandi leið sem tryggir svörtum gott tafl: 17. -cxd4 18. cxd4 Rb4 19. Db3? Dc2! 20. Dxb4 Rd5! o.s.frv. eða 19. Dxc7 (i stað 19. Db3) Hxc7 20. Hfcl Hdc8 21. Hxc7 Hxc7 22. Hcl Hxcl- 23. Bxcl Bd7! 24. a5 Bb5 og hvitur er i vanda staddur. En nú fara merkilegir hlutir að gerast.) 17. ..cxd4 18. cxd4-Rxd4! (Setur allt i bál og brand) 19. Dxc7-Rxe2+ 20. Kfl-Rxcl! (En ekki 20. - Hxc7? 21. Hxc7 Hxd2 22. Bxf6-gxf6 23. Hel og riddarinn á e2 á ekki aftur- kvæmt.) 21. Db6! ( 1 „64” er látið að þvi liggja að hér sé um eina leikinn að ræða sem geti bjargað stöðu Portisch. Aðrar leiðir eru A: 21. Df4 og B: 21. Da5 A: 21. Df4-Hxd2 22. Bxcl-Hdl + 23. Ke2-Rd5! og svartur hótar bæði 24. -Rxf4 og 24. -Rc3 mát. B: 21. Da5-Hd5 22. Db6 (eða 22. Db4 a5! 23. Dxb7 Hxd2 24. Hxcl Hxcl+ 25. Bxcl Hdl+ 26. Ke2 Hxcl 27. Db8+ Hc8 o.s.frv.) Hc6!! 23. Dxb7-Hxd2 og svartur á að vinna.) 21. .. Rd5 22. Da5-Rd3 (Það er greinilegt að Spasski hef- ur fengið riflega færi fyrir drottn- inguna. Raunar má Portisch taka á öllu sinu til að halda velli.) 23. Bd4-R3b4 24. Rc4! (Góður varnarleikur. Nú strand- ar 24. -Hxc4?? auðvitað á á 25. Dxd8+.) 24. ..Rc6 25. Dd2-Be6 (Með hðtuninni 26. -Rxe3 i-) 26. Ra3-Rdb4 30. Hc5-b6 27. a5-Rxd4 31. axb6-Rxb6 28. exd4-Rd5 32. Hxc8-Hxc8 29. Hcl-h6 33. h3-Rd5 — Jafntefli. Hvorugur kemst neitt áleiðis án þess að taka á sig verulega áhættu. Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna BÓKMENNTA - KYNNING Hin árlega bókmenntakynning okkar verður i Félagsstofnun stúdenta fimmtu- daginn 22. mai kl. 20.30. Kynnt verða rit- verk þessarra höfunda: Guðrúnar Guðjónsdóttur Magneu Matthíasdóttur Olgu Guðrúnar Arnadóttur Steingerðar Guðmundsdóttur Svövu Jakobsdóttur og Ingibjargar Haraldsdóttur Einnig lesa: Nina Björg Árnadóttir og Kristin Bjarnadóttir ljóðaþýðingar. Auk höfunda eru flytjendur: Guðrún Ásmundsdóttir, Sigurbjörg Árna- dóttir, Ása Ragnarsdóttir, Hjördis Bergs- dóttir og Fanney M. Karlsdóttir. Allir velkomnir — Undirbúningsnefnd M.F.I.K. Netabátarnir hafa dregið drjúgt að landi I Vestmannaeyjum fyrstu fjóra mánuði ársins. Nythæsta mjólkurkýr þjóðarbúsins Eins og nýútkomin afla- skýrsla sýnir glögglega eru Vestmannaeyjar svo ekki verður um villst nythæsta mjólkurkýr þjóðarbúsins hvað sjávarafurðir snertir. Þó fékk ekki þessi kýr ef maður má taka svo til orða helming af þvl fóðri frá rlkinu, sem hún þurfti til að geta viðhaldið eðlilegum hold- um hvað þá vaxiö fiskur um hrygg. A ég þá við ýmsar fram- kvæmdir eins og hitaveituna, eflingu og viðhald bátaflotans svo eitthvað sé nefnt. Einnig mætti minnast á fiskiðjuverin, sem I vök eiga að verjast vegna verðbólgu og vaxtabyröi lána, að ógleymdu verkafólkinu, sem vinnur myrkranna á milli. Af skýrslunni má ýmislegt ráða. Svo sem að~ I april eru gerðir út 87 bátar og fjórir tog- arar og heildaraflinn ér 8.500 tonn I 720 löndunum, eða að meöaltali 10 tonn á bát og löndun og 165.6 tonn á togara og löndun. Þá er einnig athyglisvert að bátum hefur fækkaö á siðustu árum,sérstaklega bátum með botnvörpu og spærlingsvörpu. 1979 voru gerðir út 97 bátar i april og*78 109 en 87 nú eins og áður sagði. Ágœt vertið Heildaraflinn fyrstu fjóra mánuði ársins var hér i Vest- mannaeyjum 27.400 tonn I 2117 löndunum, en það gerir um 10,3 tonn á bát I löndun og 169.7 á togara I löndun að meðaltali. Heildaraflinn 1979 var um 7 þúsund lestum minni á sama tima I fyrra og 10 þúsund lestum minni árið 1978 en nú fyrstu fjóra mánuði ársins. Ariö 1977 var heildaraflinn aöeins 16.690 tonn og 1977 var hann svipaður og 1979 eða um 20 þúsund tonn. Þvl er ljóst að vertiöin i ár er með þeim bestu I langan tíma. Aflahœstu bátarnir Netabátarnir eru drýgstir við að koma afla I land fyrstu fjóra mánuðina eða 16.167 lestir, siöan fást 4.751 lest 1 botnvörpu, á linu 313 lestir, á handfæri 128,5 lestir og 74.2 I spærlingsvörpu. Aflahæstu netabátarnir i Vestmannaeyjum fyrstu fjóra mánuði ársins eru Þórunn Sveinsdóttir VE 401 með 1.200 tonn i 34 löndunum, Gjaf- ar VE 600 meö 2.066 tonn I 39 löndunum og Bjarnar- efst af botnvörpungum með 619 tonn I 17 löndunum, Heimaey VE 1 með 447.9 tonn i 14 löndunum og Björg VE 5 með 365.2 tonn i 33 löndunum. Af minni bátum og trillum er Sæ- björg SU 39 efst með 119 tonn i 46 róðrum, Helga Jó. VE önnur með 61,7 tonn 141 róðri og Bensi VE 234 með 31,2 tonn i 30 röörum. Aflahæstur togaranna fjögurra erBrekiVE 61 með 1.432 tonn og skiptaverðmæti mest einnig eða 261.1 miljón króna. Hinsvegar er Sindri VE 60 með hærra skiptaverð pr. kilógramm en Breki, eða 188,55, um sex kr. hærra. Saltfiskpökkun Ég kom viö hjá ísfélaginu fyrir nokkrum dögum. Var þá byrjað að pakka saltfiski. Ég sá ekki betur en að margra mán- aða vinna væri framundan, enda salur nýja saltfiskshússins fullur af fiski. Mér leist fisk- urinn stinnur og I góðu ásig- komulagi. Sögufélag Vestmannaeyja stofnað 1. mai sl. var haldinn stofn- fundur sögufélags Vestmanna- eyja. Til fundarins boðuðu nokkrir áhugamenn, sem geröu grein fyrir aðdraganda að þessari félagsstofnun og þeim tilgangi, sem félagið á að þjóna. I stjórn voru kosnir þeir Helgi Bernódusson form., Ragnar Óskarsson varaform.,Hermann Einarsson ritari, Agúst Karls- son gjaldkeri, Haraldur Guðna- son og Ingólfur Guðjónsson meöstjórnendur. A fyrsta fundi stjórnar var Haraldur Guöna- son ráðinn ritstjóri ársritsins, og mun fyrsta heftiö koma út á næsta ári. 1 ráöi er að birta greinar um byggöasögu Vest- mannaeyja, alþýölegan fróð- leik, myndir, kveðskap o.fl..Þeir sem hug hafa á að skrifa i ritið geta snúið sér til ritstjóra eöa stjórnar. Félagsmenn geta allir þeir orðið sem greiða ársgjaldið (kr. lOþúsund) og þeirsem vilja gerast stofnfélagar skulu hafa samband við stjórnarmenn fyrir 1. ágúst. Meginverkefni fyrstu stjórnar eru að kanna ýmsar heimildir og varðveislu þeirra, og ná sambandi við fróð- leiksmenn, sérstaklega þá sem eiga óbirt efni um Vestmanna- eyjar. A stofnfundinum var Þorsteinn Þ. Viglundsson kjörinn heiðursfélagi Sögu- félags Vestmannaeyja I virð- ingar og þakkarskyni fyrir framlag hans til byggðasögu Vestmannaeyja. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi Jón Gunnars- son sýnir á Vestijöröum Jón Gunnarsson myndlistar- maður hefur nú sýnt myndir sinar i tvær vikur i ráðhúsinu i Bolungarvlk, en sýning þessi var m.a. haldin á vegum Junior Chamber i Bolungarvik, er fékk Jón til þess að halda þessa sýn- ingu. Frá Bolungarvik verður farið með sýninguna til Suðureyrar við Súgandafjörð, en þar er Lionsklúbburinn á staðnum, er stendur að þeirri heimsókn. Aðsókn að sýningunni á Bol- ungarvik var góð og nokkrar myndir seldust, en alls eru þarna sýndar 40—50 myndir, vatnslitamyndir og oliumál- verk. Sýning á Suðureyri mun standa I tvær vikur. i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.