Þjóðviljinn - 22.05.1980, Síða 7
Fimmtudagur 22. mai 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
URNATÚ
Samtök herstöðvaandstæðinga
HERINN BURÍ
Umsjón:
Árni Hjartarson
Jón Ásgeir Sigurðsson
Rósa Steingrimsdóttir
Sveinn Rúnar Hauksson
Vilborg Harðardóttir
Skrifstofa Samtaka herstöðvaand-
stæðinga að Tryggvagötu 10 er opin alla
virka daga frá kl. 14 til 19. Þar er á
boðstólum margvíslegt útgáfuefni
Samtakanna s.s. bækur, bæklingar,
veggspjöld, merki o.fl. o.fl. Eru merin
hvattir til að lita inn ella slá á þráðinn (S.
17966). Þá má minna á gírónúmer
Samtakanna, 30309-7, sem ætíð er fjár
vant.
Guömundur Georgsson:
Spyrnum gegn
vörðum dauðans
Ávarp flutt viö bandaríska sendiráöiö 10. maí 1980
Agara gagara verðir velta
vitiskúlu sinni:
eitt sinn springur hún ef til vill
á ástinni þinni.
Svo kveöur Jóhannes úr
Kötlum i Sóleyjarkvæði. Það
er vel við hæfi, að skáldið hefur
þessar hendingar með orðum
Æra-Tobba, þvi að þeir menn
hljóta að vera ærir, sem sifellt
velta vitiskúlu sinni og halda
áfram að velta henni, þó að nú
sé vitiskúlan orðin svo stór að
jafngildi 15 tonna af dýnamiti
kynni að springa á ástinni
þinni. Samanlagður sprengi-
máttur kjarnorkusprengja sem
tileru i veröldinni samsvarar 15
tonnum af dýnamiti á hvert
mannsbarn á jarðkringlunni.
Þeir menn hljóta að vera ærir,
sem enn vilja auka við eyð-
ingarafl kjarnorkusprengja, þó
að fyrir löngu sé svo komið að
eyða má öllu mannlifi á jörðu
hér, þó að maðurinn ætti sér
margfalt fleiri lif en kötturinn.
Við,sem höfum litið á söguna
um kerlinguna fjórdrepnu sem
gamansögu, skiljum ekki
gamansemi þeirra manna sem
telja að ekki dugi að geta drepið
allar kerlingar og karla þessa
heims tuttugu sinnum heldur sé
knýjandi þörf að bæta nokkrum
siptum við.
Þeir menn hljóta að vera ærir
sem binda fjórðung allra vis-
indamanna i heiminum við
rannsóknir i þágu vopndauðans
á meðan stór hluti mannkyns
berst við hungurdauðann.
Þeir menn hljóta að vera ærir,
sem samsinna þvi að 40% af
öllum opinberum fjárveitingum
rikja I heiminum sem ætlað er
til samfélagslegra þarfa skuli
varið til vigbúnaðar á meðan
gifurlegt félagslegt misrétti
blasir við.
Við vitum hvaö hefur ært þau
riki sem enn vilja auka við vit-
firrt vigbúnaðarkapphlaup. Það
er arðvonin. Gróði af vopna-
framleiðslu og sölu. Það er
barátta um auðlindir. Það er
sókn i völd i skjóli vopna til að
arðræna og kúga aðrar þjóðir.
Ný plata
r i .. P» •
a dofinni
Hljómplatan „Eitt verð ég
að segja þér...” sem kom út i
fyrra i flutningi Heima-
varnarliðsins fékk góðar við-
tökur hjá herstöðvaandstæð-
ingum og vakti raunar verð-
skuldaða athygli langt út
fyrir okkar raðir. A þeirri
plötu er aöeins litið brot af
þeim ljóöum og lögum sem
tengjast baráttunni og liggur
beint við að Heimavarnar-
liðið láti heyra frá sér á ný.
Miðnefnd hefur sett starfs-
hóp á laggirnar sem vinnur
að þvi að safna efni i nýja
piötu. Þeir sem búa yfir ein-
hverju sliku eða vilja koma
með ábendingar ættu að hafa
samband við skrifstofu SHA,
opið frá kl. 2-6, simi 17966.
Hins vegar er oft erfitt að skilja
hvaþ hefur ært þá Islendinga
sem vilja velta vitiskúlunni með
hinum, með þvi að vilja vig-
hreiður hérlendis og aðild að
hernaðarbandalagi.
Að visu vitum við að nokkur
stór fyrirtæki hafa verulegan
efnahagslegan ávinning af veru
hersins. Það hefur valdið öfund
annarra hernámssinna sem
setja fram með áhersluþunga
kröfu um jöfnuð i skiptingu her-
námsgróðans. Aðrir setja vafa-
laust traust sitt á það,að meðan
herinn er hér sé tryggt að rót-
tækum breytingum á þjóðfélag-
inu i átt til meira félagslegs
jafnréttis verði ekki komið á.
En alltaf verða einhverjir af-
gangs, hvers hvatir eru mjög
torræðar og er engu likara en
stjörnuþokur alheimsins hafi
slegið þá blindu á jarðlifið.
Með mótmælum okkar gegn
kjarnorkuvopnum hérlendis,
gegn hersetu og gegn aðild aö
NATO viljum við herstöðva-
andstæðingar spyrna gegn
þeim vörðum dauðans er velta
vitiskúlu sinni. Ekki einungis til
Lausn á
verdlauna-
krossgátu
Alls bárust 27 lausnir á verð-
launakrossgátunní, sem birtist á
herstöðvaansdstæðingasiöunni
22. mars s.l., en skilafrestur var
til 30. mars.
Dregið var úr réttum úr-
lausnum, og hlutu eftirtaldir
hljómplötuna „Eitt verð ég að
segja þér...” að vinningi:
Gunnvör Björnsdóttir,
Klapparstlg 5, Akureyri.
Birgir Stefánsson,
Tunguholti, 750 Fáskrúösfirði.
Magnús Sörensen,
Laugarásvegi 5, 104 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir
þeim heppnu á næstunni, en viö
minnum alla aðra á að hægt er
að panta plötuna frá skrifstofu
herstöövaandstæðinga,
Tryggvagötu 10, Reykjavik, og
verur hún send lysthafendum I
póstkröfu.
Hér birtist rétt lausn
verölaunakrossgátu herstööva-
andstæðinga:
að hindra að hún springi á ást-
inni okkar heldur einnig til að
hindra að hún springi á ástinni
sérhverrar mannveru sem
byggir þessa jörð.
Starfsmaður bandarfska sendiráðsins tekur við mótmælum herstöðva-
andstæðinga gegn kjarnorkuvopnum úr hendi Guðmundar Georgs-
sonar, formanns miðnefndar SHA 10. mai si. —- Ljósm. Rúnar Svein-
björnsson.
Fram til dáöa, alþingismenn:
Andstaða gegn
kjamorkuvopnum
1979—80 (102. löggjafarþing) — 193. mál.
Sþ. 475. Tillaga til þingsályktunar
um bann vifi kjarnorkuvopnum á islensku yfirráSasvæSi.
Flm.: Guörún Helgadóttir, Páll Pétursson, Karvel Pálmason,
Guðmundur Bjarnason, Geir Gunnarsson.
Alþingi ályktar að fela rikisstjórninni að undirbúa löggjöf um bann vi8 geymslu
á hvers konar kjarnorkuvopnum hér á landi. Bannið nái einnig tii siglinga með
kjarnorkuvopn, flutninga í lofti eða ó annan hátt um eða yfir íslenskt yfirráðasvæði.
Jafnframt verði kveðið á uin eftirlit af fslands hálfu með því að lögin verði virk.
Greinargerð.
Enda þótt skoðanir séu skiptar um veru erlends herliðs i landinu, geta allir
lslendingar án efa verið sammála um að hér skuli ekki vera kjarorkuvopn. Þarf
engum getum að þvi að leiða, hversu mikil hætta og ógnun við öryggi landsmanna
slik vopn eru, og þá ekki sist i námunda við mesta þéttbýlissvæði landsins.
Erfitt hefur jafnan reynst að fá við því svör, hvort slik vopn séu hdr i landinu,
en í erlendum tímaritum hefur það margoft verið fuliyrt.
Það hlýtur að vera hverjum Islendingi áhyggjuefni, ef svo er, hvað svo sem
mönnuin kann að þykja um veru hersins að öðru leyti. Það væri mikið ábyrgðor-
leysi alþingismanna, cf ekki yrði gengið ótvirætt úr skugga um, hvort fullyrðingar
um kjarnorkuvopn á íslandi eiga við rök að styðjast, að ekki sé talað um að slys
hlytist af með afleiðingum senl óþarft er að fjölyrða um. Það verður einnig
að teljast óþolandi, að hið háa Alþingi skuli ekki hafa óyggjandi upplýsingar um
málið, og siík löggjöf sem hér hefur verið lögð til hlýtur oð verða að opna möguieika
til eftirlits af hálfu tslendinga með þvi, að eftir lögunum verði farið.
Haft var samband við
Guörúnu Helgadóttur alþingis-
mann i sambandi við væntan-
legan flutning á ofangreindri til-
lögu.
Guörún kvaö meðflutnings-
menn sfna vera: Geir Gunnars-
son, Albl., Pál Pétursson og
Guðmund Bjarnason, Fram-
sóknarfl.,og Karvel Pálmason,
Alþfl..
Fyrir 3 árum hafi tillaga, sem
efnislega var sú sama, ver-
ið flutt af alþingismönnunum
Svövu Jakobsdóttur (Abl.) og
Magnúsi Torfa Olafssyni (Samt.
frjálslyndra og vinstri
manna) . Siðan aftur fyrir ári
af Svövu Jakobsdóttur. Þær
hefðu þó ekki náð fram að ganga
og dagað uppi i nefnd.
Aðspurð kvaðst Guðrún
Helgadóttir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins ekki hafa léð
máls á að vera meðflutnings-
menn tillögunnar, enda hefði
Geir Hallgrimsson nýlega
harðneitað á þingi, i sambandi
DAGFARI
Greiöið gíró-
seðlana strax!
Nú hafa giróseölar veriö
sendir út til áskrifenda og
eru stuöningsmenn hvattir
til aö bregðast skjótt viö.
Það er mál manna aö
sjaldan hafi eins vel tekist tii
um útgáfu Dagfara þar sem
saman fer mikiö gott efni og
fallegt læsilegt blaö. Þeir
sem ekki hafa fengiö blaðið
sent geta gerst áskrifendur
með einni símhringingu i
sima 17966.
Unnið er aö þvi aö dreifa
Dagfara i söluturna og
bókabúöir um land allt og er
hann nú fáanlegur i sölu-
turnum i Reykjavik, Kópa-
vogi og Hafnarfirbi.
viö skýrslu utanrikisráðherra,
að hér væru geymd kjarnorku-
vopn. Ljóst væri þó skv. skrifum
erlendra timarita um kjarn-
orkumál, til dæmis mætti
nefna The Bulletin of Atomix
Scientists.að hér væru geymd '
kjarnorkuvopn. Auk þess mætti
þaö koma fram, að þvl hefði
aldrei verið neitaö, af Banda-
rikjamönnum sjálfum, aö hér
væru geymd kjarnorkuvopn.
Guörún Helgadóttir sagöi, að
enda þótt skoöanir væru skiptar
um veru erlends hers hér á landi
þá ættu allir að geta verið sam-
mála um, að ekki skyldu vera
hér kjarnorkuvopn, hvorki
geymd né flutt um islenskt yfir-
ráðasvæði.
Herstöðvaandstæðingar vilja
hvetja alþingismenn að sýna nú
dug i þessu máli og veita tillög-
unni brautargengi nú á þessu
þingi. Minna má á slys, sem
orðið hafa af notkun kjarnorku i
friðsamlegum tilgangi, sbr.
slysið á Three Mile Island i
Bandarikjunum i mars 1979. Og
andstaða jafnvel til friðsam-
legrar notkunar kjarnorku
hefur alltaf veriö að aukast i
heiminum. Einnig má nefna
slys, sem örðið hafa meö flutn-
ing kjarnorkuvopna bæði á
Grænlandi og á Spáni. Þjóðir
Evrópu hafa nú á siðustu
misserum haldið uppi auknu
andófi gegn kjarnorkuvopnum
og ekki viljað geyma þau i
löndum sinum. Hvaðan ætti
Islendingum að koma sú fifl-
dirfska að veita þessu máli ekki
meiri athygli hvað þá andstöðu,
meira en raun ber vitni, ef jafn-
vel þjóðkjörið Alþingi Islend-
inga tekur ekki mál eins og
þetta til alvarlegrar umfjöll-
unarog samþykkir þessa tillögu
þegar i stað.
Þó má geta þess, að nú hafa *
tveir Framsóknarmenn og einn
Alþýðuflokksmaður bæst i hóp
þeira þingmanna, sem sýna
ábyrgð i þessu máli, og gerst
meðflutningsmenn áður-
greindrar tillögu og er það
ómetanlegt. Að lokum viljum
við herstöövaandstæöingar
itreka þau ummæli Guörúnar,
að þótt skoöanir séu skiptar um
veru erlends hers hér á landi
ættu allir aö geta verið sam-
mála um andstöðu gegn kjarn-
orkuvopnum. Fram til dáða
alþingismenn.
—r.s.