Þjóðviljinn - 22.05.1980, Qupperneq 15
Fimmtudagur 22. mai 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Hringið í síma 8-13-33 kl. 9-5 alla virkai
daga eða skrifið Þjóðviljanum
tfrá
úr vinnu
strætó”...
Guörún Ágústsdóttir,
stjórnarformaöur SVR, skrifar
Dagskrárgrein 17. mai s.l. um
strætó. Endar greinin meö orö-
unum: „Fækkum einkabilum á
götum borgarinnar. Allir meö
strætó'. ”
I framhaldi þessarar greinar
langar mig aö koma meö
nokkrar ábendingar. Ég tek
undir þaö meö Guörúnu aö um-
ferö einkablla er oröin alltof
mikil og löngu oröiö timabært
aö gera markvissar áætlanir
um uppbyggingu almennings-
samgangna á höfuöborgarsvæö-
inu. Ekki er aö furöa þó aö þaö
hafi ekki veriö gert: slöustu tvo
áratugihefur þaö veriö viötekið
náttúrulögmál hérlendis aö
fjöldi einkablla á tslandi yrði I
framtlöinni yfir 4 á hverja 10
ibúa, eða sama hlutfall og er I
Bandarlkjunum (en þar eru jú
almenningssamgöngur hvaö
lélegastar miðað viö önnur
Vesturlönd).
En hversu raunhæft er aö
setja fram kjöroröiö „allir i
strætó”? Er þaö ekki alltof vlö-
tækt? Þaö má m.a. túlka þaö
sem tilmæli til manna um aö
selja nú bílinn sinn og nota bara
strætó. En ætli þeir séu ekki fáir
sem taka undir slík tilmæli nú i
dag? Réttara tel ég aö setja
nærtækara og auösóttara
stefnumiö á oddinn, eitthvaö
sem fær fólk til aö hugsa um
strætó sem valkost. A ég viö þaö
aö SVR vinni staöfastlega aö þvi
aö gera sem flestum Reykvlk-
ingum það mögulegt og eftir-
sóknarvert aö fara sem oftast I
og úr vinnu með strætó!
Varla þarf aö minna á hvaö
ynnist ef þetta stefnumiö
næöist. Ég nefni engu aö slöur
nokkur atriöi: minni umferö á
álagstlmum,sem leiöir til minni
orkunotkunar (þjóöhagslegur
spar naöur upp á einn: miljarö
fyrir hvern dag sem menn færu
til og frá vinnustað i strætó skv.
Orkusparnaöarnefnd Iönaðar-
ráöuneytisins)! Færri slys
minna slit á götum,færri rándýr
umferöarmannvirki; hægari
bilafjölgun (höfum i huga aukna
„fluttiingsþörf” vegna aukinnar
atvinnuþátttökukvenna, sem
stuölar aö þvl aö æ fleiri heimili
hafa tvo blla).
Aö lokum tvö atriöi. I fyrsta
lagi vegna verölags á þjónustu
SVR. Ég er sammála Guörúnu
Agústsdóttur I þvi aö veröiö sé
lágt. En þegar rætt er um verö
þjónustunnar þarf aö hafa I
huga gæöi hennar. Og þá
komum viö aö veigamiklu atriöi
varöandi eflingu SVR. 1 dag er
þjónustan á nokkrum sviöum
svo léleg aö ekki þarf aö undra
þó aö fólk sækist ekki eftir þvi
aö vera háö strætisvagna-
feröum. Nefni ég þar óþolandi
langan tlma sem er á milli feröa
á kvöldin og um helgar, lélega
aöstööu fyrir „barnafólk” og
óöryggi hvaö snertir tima-
setningar (sérlega bagalegt
þegar um er aö ræöa skiptingar
á milli vagna).
Seinna atriöið er tillaga til
stjórnar SVR á þá leiö aö hún
sæki um styrk til Orku-
sparnaöarnefndar Iönaöarráöu-
neytisins til aö gera áætlun um
aö reka áróöur fyrir mark-
miöinu „I og úr vinnu meö
strætó”!
19.5. 1980
Þorgeir S. Helgason
lesendum
Útvarp
p kl. 21.15
Hetjan
t kvöld er á dagskrá út-
varpsins leikritið „Hetjan”
(TheValiant) eftir Holworthy
llall og Robert Middlemass.
Þýðandi er Ásgeir Hjartarson
og leikstjóri Steindór Hjör-
leifsson. t hlutverkum cru:
Valur Gíslason, Þórhallur Sig-
urðsson, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Valdemar Helgason og
Bjarni Ingvarsson. Flutningur
leiksins tekur rúma þrjá
stundarf jórðunga. Tækni-
menn: Friðrik Stefánsson og
Jón örn Asbjörnsson.
1 rikisfangelsinu I Wethers-
field i Connecticut bíöur fang-
inn James Dyke þess aö veröa
leiddur til aftöku. Fangelsis-
presturinn hefur nokkrar
áhyggjr af andlegri velferð
hans, en yfirfangavöröurinn
er efablandinn vegna þess aö
hann grunar aö Dyke sé ekki
hið rétta nafn fangans. Ung
stúlka kemur I heimsókn I
fangelsiö. Hún segist vera
systir Dykes og vill fá aö tala
viö hann. Holt yfirfangavörö-
ur leyfir þeim að talast viö I
skrifstofu sinni. Hann vonast
til aö fá upplýst hver fanginn
sé i raun og veru.
Holworthy Hall var banda-
riskur og hét réttu nafni
Harold E. Porter. Hann fædd-
ist I Boston árið 1887 og stund-
Steindór Hjörleifsson leikstýr-
ir útvarpsleikritinu i kvöld.
Hér er hann i öðru hlutverki —
i Æskuvinum Svövu
Jakobsdóttur.
aði nám i Harvard-háskóla. A
striösárunum fyrri var hann
höfuðsmaður I flughernum
sem þá var naumast meir en
nafniö tómt. Siðan fór hann aö
skrifa i vinsæl timarit. Sögur
hans gleymdust fljótt, en leik-
ritiö „Hetjan”,sem frumsýnt
var 1921, hefur oröiöallt aö þvi
sigilt. Harold Porter dó áriö
1936, aöeins tæplega fimmtug-
ur.
Hinn höfundurinn, Robert
Middlemass, var skólafélagi
Porters frá Harvard, fæddur
1885 I New Britain. Hann var
þekktur sem leikari, leikstjóri
og rithöfundur.
Hingað er ferðinni heitið, undir leiðsögn Kristjáns Sæmunds-
sonar jarðfræðings.
Umhverfis Hengil
fara af staö meö þáttaröð sem
heitir Umhverfis Hengil. 1
fyrsta þættinum segir
Kristján Sæmundsson frá leið-
inni austur um Mosfellsheiöi
til Þingvalla. Sem betur fer
eru margir landar vorir enn
gæddir þeirri náttúru aö vilja
helst vita allt um hverja þúfu i
landslaginu sem þeir feröast
um á sumrin, hvort heldur
þeir gera það gangandi, ak-
andi, hjólandi eða riöandi.
Þeir hinir sömu ættu aö leggja
hlustir viö þvi sem jarðfræð-
ingurinn hefur aö segja.
— ih
Útvarp
Ikl. 20.00
Nú virðist sumarið vera
harðákveöið að ganga I garð.
Ylurinn og ilmurinn hafa
mannbætandi áhrif á okkur
skammdegisbörnin og nú fær
margur maöurinn æðiber i
rassinn og vill fara að þeytast
upp um fjöll og firnindi.
Útvarpið ætlar aö koma til
móts viö þetta hressa fólk i
kvöld. Tómas Einarsson er að
Smfónían kveður
Útvarp
kl, 20.30
1 kvöld verður útvarpað frá
tónleikum Sinfóniuhljóm-
sveitar íslands i Háskólabiói,
og eru það slðustu reglu-
bundnu tónleikar starfsársins.
Aö venju veröur fyrri hluta
ef nisskrárinnar útvarpaö
beint.
Stjórnandi er Frakkinn
Jean-Pierre Jacquillat, sem
ráöinn hefur veriö til aö
stjórna hljómsveitinni næstu
þrjú árin. Hann hefur oft
stjórnaö hér áöur viö góöan
oröstir. Einleikarar eru
Guöný Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og Unnur Svein-
bjarnardóttir vióluleikari.
Flutt veröa tvö verk:
Konsertsinfónia i Es-dúr
(K364) eftir Wolfgang
Amadeus Mozart og Tvi-
söngur fyrir fiölu, viólu og
hljómsveit eftir Jón Nordal.
Siöarnefnda verkiö hefur ekki
veriö flutt áöur hérlendis. -ih