Þjóðviljinn - 28.05.1980, Page 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 28. mai 1980.
Samstaöa 9
er komin út með fjölbreyttu efni —
m.a.:
Sið-nýlendustefnan
íran, Afganistan
Kvenfrelsi og stéttabarátta
Sögulega efnishyggjan
Kaupið timarit vinstrihreyfingarinnar!
Fæst i Bókabúð Máls og menningar og Bóksölu
stúdenta. Einnig er hægt að gerast áskrifandi
hjá Berglindi Gunnarsdóttur, Hjónagörðum
við Hringbraut, ibúð 160, Reykjavik.
Garðabær
Y f irkennaras taðan
við Hofsstaðaskóla
(6—9 ára deildir — útibú frá Flataskóla)
er laus til umsóknar.
Upplýsingar gefa skólastjóri Flataskóla
og formaður skólanefndar.
Umsóknarfrestur er til 10. júni n.k.
Skólanefnd.
• Blikkiðjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI 53468
SATT-kvöld í Klúbbnum:
Hlj ómar, Bubbi og
Guðmundur Ingólfs
Helgi Jósefsson hengir upp verk sin. Myndin til vinstri viö málarann
heitir Skáldin frá teigi, sú til hægri Trúboðinn.
Söngsveitin ásamt stjórnanda sinum.
Skagfirska söngsveitin
meö tónleika í kvöld
Sjötta SATT-kvöidiö veröur
haldiö í Klúbbnum i kvöld og
kemur þá fram m . a. vin-
sælasta hljómsveit sins tima á
islandi, Hljómar frá Kefiavik.
Bubbi Mortens mun ásamt
Utangarösmönnum flytja nokkur
lög af hljómplötu sinni, sem er
rétt ókomin á markaöinn. Bubbi
Morteins er einn þeirra yngri tón-
listarmanna sem hvað mesta at-
hygli hefur vakiö upp á siðkastið.
Jazz-trio Guðmundar
Ingólfssonar mun leika á mið-
hæðinni, en einnig verður boðið á
JAM-session á sama stað.
A þessum tónleikum gefst
mönnum einnig kostur á að ger-
ast meölimir í plötuklúbbi SATT,
sem hefur það að markmiði að
stuðla að þróun islenskrar
alþýðutónlistar.
Árlegir vortónleikar Skagfirsku
Söngsveitarinnar verða að þessu
sinni haldnir i Austurbæjarbiói i
kvöld kl. 19. A efnisskrá eru m.a.
lög eftir tónskáldin Pál isólfsson,
Skúla Halldórsson, Sigfús
Halldórsson, Franz Schubert, Jó-
hann Strauss auk þjóðlaga frá
ýmsum löndum.
Frumflutt er lag eftir Skúla
Halldórsson við ljóð Þuriðar
Kristjánsdóttur, sem þau tileinka
Söngsveitinni sérstaklega.
Skagfirska Söngsveitin fer
norður i Skagafjörð um mánaða-
mótin og heldur þar þrenna tón-
leika: i Höfðaborg, Hofsósi föstu-
daginn 30. mai kl. 21, Bifröst,
Sauðárkróki laugardaginn 31.
mai kl. 15 og Miðgarði sama dag
kl. 21. Eftir samsönginn þar verð-
ur svo dansleikur.
Söngsveitin er nú að vinna að
útgáfu nýrrar hljómplötu, sem
væntanleg er á markaðinn bráð-
lega. Frú Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir er stjórnandi kórsins og
Ölafur Vignir Albertsson leikur
með á pianó.
Sýnir í
V opna-
fjardar-
skóla
Helgi Jósefsson opn-
aði sl. föstudag mál-
verkasýningu i Vopna-
fjarðarskóla. Þetta er
önnur einkasýning
Helga, hin fyrri var
haldin i húsi Verkalýðs-
félags Vopnafjarðar i
fyrrasumar. Fékk sú
sýning hinar bestu við-
tökur, var fjölsótt og
seldust mörg verk.
Helgi Jósefsson hefur stundað
kennslu við Vopnafjarðarskóla sl.
sex ár eða frá þvi að hann lauk
námi I Myndlista- og h^ndiða-
mm iii I II 114árflll8 Efft 9^*3- °g flauelsbuxur, sokkar, nær
11MM 9 fatnaður, handklæði.
.stekkjarbakki
skóla íslands.
A sýningunni nú eru 47 verk,
unnin I pastel, vatnslit og oliu.
Viðfangsefnin eru aðallega sótt i
umhverfi og mannlif á Vopna-
firði.
Karlakór
Keflavikur
Sam-
söngvar
og söng-
ferðalag
Karlakór Keflavikur hélt
sina árlegu samsöngva 20. og
21. maf. Vegna þess að færri
komust að en vildu endurtek-
ur kórinn samsönginn i
kvöld kl. 20 i Félagsbiói i
Keflavik.
A föstudag 30. þessa mán-
aöar heldur svo kórinn i
söngför um Vesturland. Kór-
inn syngur i Bióhöllinni á
Akranesi á föstudagskvöldið
I ólafsvikurkirkju á laugar-
dag og I félagsheimilinu i
Stykkishólmi um kvöldið.
Fjórir einsöngvarar
syngja með kórnum. Stjórn-
andi er Sigurður Demetz
Fransson. Undirleikari er
Ragnheiður Skúladóttir.
Kórfélagar eru 40.
— ekh