Þjóðviljinn - 05.07.1980, Síða 2

Þjóðviljinn - 05.07.1980, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgtn 5. — 6. júlt. AF LANDI ÓTTANS Það er stundum sagt við hátíðleg tækifæri aðlslendingar búi hér norður við hið ysta haf í sátt og samlyndi og lausir við hrellingar nasisma, fasisma, kommúnisma eða Kórans- ins. Þá er það almenn söguskoðun að næst höf- um við komist einræði þegar Jónas f rá Hrif lu, einn svipmesti og merkasti stjórnmálaskör- ungur sögunnar, réði hér lögum og lofum. Sfðan höfum við búið við heimsfrægt lýðræði, sem mér er sagt að sérfræðingum finnist að vfsu dálítið broslegt, en það er þá ekki nema bara gott ef lýðræðið á íslandi getur komið einhverjum í gott skap. Því verður, hvað sem öðru líður,ekki neitað að hér á landi hefur ekki ríkt umtalsverð ógnaröld síðan á tímum sturlunga, eða í hart- nær þúsund ár. Og nú vaknar þessi spurning: Hvernig víkur því við að það skuli vera útbreidd skoðun að við Islendingar búum í landi óttans? Víst eigum við ekki von á því að vopnaðar stormsveitir taki okkur á heimilunum og fleygi okkur I gasofna, að hryðjuverkamenn brenni ofan af okkur, né að við verðum hand- höggnir fyrir að stela og hálshöggnir fyrir að halda f ramhjá. Þá væru nú fslendingar upp til hópa haus-og handalausir. Nei, ógnaröldin á Islandi birtist I svokölluð- um gluggapósti frá hinu opinbera þar sem viðstöðulaust er verið að hóta að selja ofanaf manni, loka símanum, skrúfa fyrir raf magnið og hitann, taka af manni útvarpið og sjón- varpið, jafnvel sjálfræöiðf- I morgun fékk ég „stefnu" frá lögreglusf jór anum I Reykjavlk þess efnis að ég yrði settur í fangelsi með „aðför að lögum", ef ég kæmi ekki aðtala viðf ulltrúa hans á morgun. Konan mln varð f yrri til að rífa upp þetta bréf og lá I taugaáfalli þegar ég kom heim. Ég hugsa að þessi kvaðning hafi verið send mér af þvl að ég virti ekki stöðvunarskyldu um daginn þegar ég var að koma af öskuhaugunum uppá Vesturlandsveg. Orðin „aðför" og „stefna" vekja mér alltaf talsverðan ugg alltfrá því að ég var krakki og lá I Sturlungu,og er skemmst að minnast að- farar Hrafnssona að Þorvaldi Vatnsfirðingi þar sem sá síðarnef ndi var brenndur inni og I framhaldi af því var mönnum STEFNT til Sauðafells þar sem lunganum af heimilisfólk- inu var slátrað eða það helsært varnarlaust I rúminu. Já, mér dettur semsagt Sauðfellsför I hug, þegar ég fæ STEFNU um AÐFÖR, þó hún sé að lögum. Eitt svona hótunarbréf fékk ég um daginn frá Gjaldheimtunni. Hótað var að selja ofanaf mér íbúðina mína og setja mig og mína útá gaddinn ef ég ekki kæmi strax að borga fast- eignagjöldin. Ég þaut að sjálfsögðu skelf ingu lostinn niðureftir, I biðröð sem náði útá götu og tjáði mig — þegar loksins kom að mér — fúsan til að gjalda keisaranum o.s.frv. Svo settist ég niður þrælf úll og beið þess að fá að reiða féð af hendi. Þegar loksins kom að mér, kom I Ijós að tölva Gjaldheimtunnar ætlaðist til þess að ég borgaði snarvitlausar upphæðir af snarvitlaust útreiknaðri fasteign fyrir snarvitlausan mann. Ég varð auðvitað snar- vitlaus I vonsku, en gætti mín að láta það ekki bitna á gjaldkeranum, sem var aðlaðandi og eiguleg stúlka. Hún gat — hugsaði ég — hvort sem er ekkert gert að þvl þótt tölvan hlypi út- undan sér, f li ppaði og frikaði út (eins og æska fslands kallar það). Ég sagði henni þó, að ég yrði að fá þetta leiðrétt,og hún sagði mér aðtala við f ulltrúann ef hann væri þá ekki I kaffi. Hann var I kaffi. Þá sagði hún mér að tala við starfskraft Gjaldheimtunnar á næstu hæð. Hún væri af veikara kyninu og hefði þessvegna ekki jafn langan kaffitíma og fulltrúinn niðri. Það stóð heima. Starfskrafturinn á annarri hæð var bæði geðugur og eigulegur kvenmað- ur og ekki I kaffi. Þegar ég sýndi henni af- sprengi tölvunnar, sem ég var með I hendinni, fórnaði hún höndúm og sagði: „Guð minn góður, sem betur fer hef ég ekkert með þetta að gera, en það er maður á næstu hæð, sem þú gætir reynt að tala við." Ég þangað. Þar hitti ég fyrir ákaflega elskulegan full- trúa, sem var greinilega kominn úr kaffi, og var upperindið. Hann fórnaði líka höndum og stundi: „Ef það er vitleysa í tölvunni, verður hún ekki aftur tekin". Svo bætti hann við: „Það er ekki fyrr en að það er búið að keyra sömu vitleysuna I gegnár eftirár, að það er hugsanlegt að hún leiðréttist". Svo gekk hann að tölvunni, sem var þarna á staðnunvog setti hana I gang. Og f Ijótlega kom útúr henni sama dellan og ég hafði fengið niðri. Þá sagði hann mér að fara til fógeta, lóðarskrárritara,! fast- eignamat. ríkisins og víðar, en annars væri kannske réttast að ræða þessi mál við f ulltrú- ann niðri. Ég sagði honum að fulltrúinn niðri væri í kaff i, en hann sagði mér að ég yrði bara að hinkra við. Ég niður aftur. Fulltrúinn var enn I kaffi, en mér var bent á það, elskulega, að ég gæti fengið mér sæti og hinkraðog engin leiðrétting I sjónmáli. Ég var kominn I ægilega fýlu. Var satt að segja ekki viss um að ég tæki gleði mína aftur. Þá var það að einn af gleðimönnum mið- borgarinnar, Beggi f immklof i,gekk I salinn og öskraði: „Djöfulsins rafmagnsheilinn gerði mig fallítF'. Svo gekk hann að eigulegri konu, sem sat við kassa með tölvuskjá framaná,og lamdi tækið þrjú býlmingshögg I skallann. Astandið I móttökusal Gjaldheimtunnar varð eins og komist hefði minkur I hænsnabú og löggan kom og tók Begga fimmklofa áður en honum tókst að gera gersamlega útaf við „rafmagnsheilann" og eigulegu konuna. Nú var ég kominn I svolítið betra skap og þess ekki langt að bíða að ég kæmist I sólskins- skap? því sem ég sat þarna á bekknum, vatt sér að mér háöldruð, hvíthærð og I alla staði töfrandi kona og sagðist hafa verið að skoða stóru mósaikmyndina hinummegin við göt- una, en bætti svo við: „en ég er bara orðin svo voðalega kölkuð og gleymin að ég get með engu móti munað hvers dóttir hún Gerður Helgadóttir er". Ég sagði henni það, var raunar aftur kominn I sólskinsskap, gekk útí rigninguna og raulaði þennan gamla húsgang fyrir munni mér: Tölvan hún er þarfaþing, þó er vert að muna að þegar allt er komið í kring kembir hún vitleysuna. — Flosi. Sumarferd Alþýdubandalagsins í Reykjavík LITAST UM I T ÞJORSARDAL Fjölbreytt ferð með nýju snlði Árleg sumarferð Alþýðubandalags- ins I Reykjavík verður sunnudaginn 20. júlí og farið I Þjórsárdal. Merkið strax við daginn í almanakinu og takið hann frá fyrir sumarferðina! Sumarferðin verður með öðru sniði en oftast áður. í stað mikillar yfir- ferðar á bílum verður lögð áhersla á samveru og styttri skoðunarferðir út frá föstum samastað. Aðalstöðvar verða settar upp einhversstaðar nálægt„Gjánni" I Þjórsárdal og ferðir við allra hæfi skipulagðar þaðan. Meðal skipulagðra ferða út f rá aðal- stöðinni verða þessar: 1. Gönguferðað Háafossi undir leið- sögn þaulvanra göngumanna. 2. Okuferð I Skjólkvlar og Rangár- botna, staðnæmst þar og fræðst um Heklu og Hekluelda. 3. ökuferð að Hjálparfossi oq Búfellsskógi. 4. Gönguferð um Gjána og að Stöng. 5. Sundlaugarferð. Þeirsem vilja hafa hægt um sig geta dvalist daglangt l námunda við aðal- stöðvarnar og farið þaðan I stuttar gönguferðir. Síðdegis á sumarferðardaginn 20. júli verður safnast saman við bæki- stöðvarnar og er þar áætlað að fram fari f jölbreytt dagskrá með leikjum og söng. Sumarferð Alþýðubandalagsins I Reykjavík verður nánar auglýst og kynnt I Þjóðviljanum á næstu dögum. A Iþýöuba nda lag ið í Reykjavík — 20. júlí — 20. júlf — 20. júlí — 20. júlí — 20. júlí —

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.