Þjóðviljinn - 05.07.1980, Qupperneq 3
Samninganefnd BSRB:
Gagntilboð
í deiglunni
„Samninganefnd BSRB
samþykkir fyrirsitt leyti að hald-
ið verði áfram viðræðum óslitið
og reynt þannig allt sem unnt er
til að ná samningum. Jafnframt
samþykkir samninganefndin að
næsta stig viðræðnanna af hálfu
samtakanna verði gagntilboð
BSRB til rikisins þar sem áhersla
verði lögð á tiltekin meginatriði
og tilboðið afhent hið fyrsta.”
Þessi ályktun var samþykkt
samhljóða I lok 7 klst. langs
fundar samninganefndar BSRB á
fimmtudag. Kristján Thorlacius
formaður BSRB sagöi i samtali
viö blaðið i gær aö á sama fundi
hefði verið kosin 7 manna
undirnefnd sem skyldi undirbúa
gagntillögur bandalagsins til
aðalsamninganefndar. Þessi
nefnd hefur þegar hafið störf og
mun vinna yfir helgina og skila
tillögum sinum á samninga-
nefndarfundi á mánudaginn.
Kristján kvaö ljöst að allir I
samninganefnd teldu gagntilboð
rikisstjórnarinnar ganga of
skammt og þvi ekki grundvöllur
til samninga um það sem þar er
boðið en á þessu stigi málsins
væri ekki unnt að gera grein fyrir
þeim atriðum sem helst er
ágreiningurum, það kæmi I ljós á
mánudaginn þegar undirnefndin
legöi fram tillögur sinar.
I sjö manna nefndinni eru þess-
ir: Kristján Thorlacius, Haraldur
Steinþórsson, Agúst Geirsson,
Sigurveig Siguröardóttir, Einar
Ólafsson, Guðmundur Árnason og
Þórhallur Halldórsson. —hs
Yerkstæði
brennur
Eldur kom upp I bilaverkstæði
aö Klængseli i Gaulverjabæjar-
hreppi I fyrrinótt og brann verk-
stæöið og tveir bilar sem voru
þar.
Veriö var að vinna við að
logsjóða annan bilinn, og var sá
sem við það vann farinn fyrir
nokkru af verkstæðinu er eldur-
inn kom upp. Taliö er liklegt að
neisti hafi farið úr logsuöunni og
kveikt eldinn. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Selfossi
náöist ekki strax samband við
lögregluna þegar eldsins varð
vart og er talið að einhver bilun
hafi verið I slmalinunni, sem
reyndar er ekkert nýtt. Komu
menn af nágrannabæjum til
hiáloar við að slökkva eldinn.
Voru þeir mættir um svipað leyti
og slökkviliöið á Selfossi og tókst
að ráða við eldinn á skömmum
tima. Húsiö, sem er gamalt
lbúöarhús, og bilarnir, sem voru
af eldri árgerðum, er taliö ónýtt
eftir eldinn. Hvorutveggja mun
vera lágt eða ekki tryggt. — þs
Bergþóra í
morgunkaffi
Rauðsokka
Gestur I morgunkaffi Rauö-
sokka I dag kl. 11 verður Berg-
þóra Sigmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri jafnréttisráös. Hún
ætlar að spjalla um starf ráðsins
og stöðu jafnréttisbaráttunnar I
kjölfar sigursins sæta um siöustu
helgi. Kaffi og vinarbrauö veröa á
boðstólum og allir eru velkomnir i
spjall og ráðagerðir. — ká
Bandaríkjamenn
hér eiga ad skrá
sig í sendiráðinu
Menmngarstofnun Bandarikj-
anna hefur sent frá sér fréttatil-
kynningu vegna yfirlýsingar
Carters Bandarikjaforseta 2. júli
sl. um skráningu til herþjónustu.
Eiga allir karlmenn, sem eru
bandariskir rikisborgarar og
fæddir á árunum 1961 — ’63 aö
láta skrá sig I sendiráöum eöa hjá
konsúlum Bandarikjanna I þvi
landi sem þeir eru staddir i, sem
ferðamenn eða Ibúar.
Tekið er fram, aö aðeins sé um
aö ræða skráningarskyldu, og
ekki felist I þessu endurupptaka
herskyldu. En sinni menn ekki
skráningarskyldunni varöar þaö
viðurlöngum allt að 10 þúsund
dollara sektum og/eða 5 ára
fangelsi, segir ennfremur.
Karlmenn fæddir árið 1960 eiga
að láta skrá sig vikuna 21.—27.
Leiðrétting:
880 í stað
1 inngangi að frétt i Þjóðviljan-
um I gær um tap á rekstri járn-
blendisverksmiðjunnar varð
talan 880 miljónir að aöeins 80
miljónum á prenti.
Inngangurinn er þá fyrst
skiljanlegur þannig rétt eftir
hafður:
„Á fyrsta eiginlega rekstrarári
júli 1980. Fæddir 1961 eiga að
mæta til skrásetningar vikuna 27.
júli — 3. ágúst, fæddir áriö 1962
vikuna 5.—11. janúar 1981. A ls-
landi fer skráning fram i
bandariska sendiráðinu, Laufás-
vegi 211 Reykjavik. Opiðer virka
daga klukkan 9—12 og 2—5.
Frá og með 5. janúar 1981 skulu
allir karlmenn, sem ná átján ára
aldri, mæta til skráningar á tima-
bili sem markast af þrjátlu dög-
um fyrir afmælisdag þeirra og
þrjátiu dögum eftir hann. Karl-
menn á skráningarskyldualdri,
sem fengiö hafa heimild til
fastrar búsetu i Bandarikjunum,
en eru utan Bandarikjanna á
skráningartimabilunum, eiga
ekki að láta skrá sig utan
Bandarikjanna. Þeireiga að skrá
sig innan þrjátiu daga frá endur-
komu þangaö.
80 miljóna
Járnblendisverksmiðjunnar að
Grundartanga varð rekstrarhalli
964 miljónir Isl. kr., en þar af eru
afskriftir fastaf jármuna 880
miljónir, þannig aö beinn
greiösluhalli varö innan við 100
miljónir kr.”
Þjóðviljinn biöst velviröingar á
þessum mistökum.
Helgin 5. — 6. júlí. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
1SSTTI' fTI i \ i 1
-Á Tvmi rA. m ifcdf : I i
Formannaráðstefna ASÍ
Fátt og lítið er tiðinda
af samningamálum hjá
ASÍ. Á miðstjórnarfundi
sambandsins á fimmtu-
dag var samþykkt að
kalla saman formanna-
ráðstefnu á næstunni og
einnig var ákveðið að
boða til fundar i 14
manna viðræðunefnd-
inni í byrjun vikunnar.
Haukur Már Haraldsson blaða-
fulltrúi ASI sagði I viðtali við
Þjóðviljann I gær aö vissulega
væru menn ekki ýkja bjartsýnir
eftir sfðustu aögeröir atvinnurek-
enda, en vitaskuld yröi reynt til
þrautar aö semja.
— hs
ein af þeim allra bestu!
Það er engin tilviljun að Rímíni er talin
ein af allra bestu baðströndum I Evrópu.
Spegiltær sjór og sandur, íbúðir og hótelí
sérflokki, íþrótta- og útivistaraðstaða
hin fullkomnasta og tækifæri fyrir börnin
óvenju fjölbreytt.
Rímíni iðar af lífi og fjöri a II'an sólarhring-
inn. Maturinn ódýr og afbragðsgóður,
skemmtistaðir og diskótek á hverju strái
og alls staðar krökkt afkátu fólki, jafnt að
degi sem nóttu.
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
3. júli - uppselt
7. júli - „auka-auka“ ferð - 8 sæti laus
14. júlí - örfá sæti laus
24. júlí - laus sæti
28. júlí - „auka-auka“ ferð - örfá sæti laus
4. ágúst - uppselt, biðlisti
14. ágúst - uppselt, biðlisti
18. ágúst - „auka-auka“ ferð - uppselt, biðlisti
25. ágúst - örfá sæti laus
4. september - uppselt, biðlisti
15. september - laus sæti
PORTO
ROZ
Stórbrotin náttúrufegurð og nálægð stór-
borga gefa möguleika á fjölda ógleyman-
legra skoðunarferða, m.a. til Feneyja,
Bled vatnsins, Postojna dropasteins-
hellanna og víðar.
Spyrjið vini og kunningja um Portoroz -
einn vinsælasta sumarleyfisstað islend-
inga síðustu árin. Löng reynsla og örugg
viðskiptasambönd tryggja farþegum okkar
fullkomna þjónustu og lægsta mögulega
verð.
3. júlí - uppselt
14. júlí - örfá sæti laus
24. júli - laus sæti
4. ágúst - uppselt, biðlisti
14. ágúst - uppselt, biðlisti
25. ágúst - örfá sæti laus
4. september - uppselt, biðlisti
15. september - laus sæti