Þjóðviljinn - 11.07.1980, Blaðsíða 1
ÞJOÐVIIJINN
Föstudagurinn 11. júli 1980, 156. tbl. 45. árg.
Fimmta gosið á 5 árum
Eldgosið sem hófst i gær á
Kröflusvæðinu er hið fimmta I
rööinni siöan Kröflueldar hóf-
ust i desember 1975 og fer nil
að styttast I það að þessi elds-
umbrot veröi jafnlöng Mý-
vatnseldum sem stóðu yfir
árin 1724-1729.
Kröflueldar hófust meö litlu
gosi i Leirhnjilk 20. desember
1975. Var þaö syðst og næst
Kröfluvirkjun allra þeirra
gosa sem siðar áttu eftir að
koma en stl þróun hefur verið
áberandi að gosstöðvarnar
hafa færst norðar og norðar
með hverju gosi.
Hinn 27. apríl gaus i annaö
sinn og nú noröar á svæöinu en
i þetta sinn varð mikil
sprungumyndun á Náma-
Framhald á bls. 13
Svona leit gosið út kl. 22.40 i gærkvöldi. Það er nyrðri sprungan sem blasir við en sú syðri var útdauö. Svo virtist á timabili sem gosiö væri aö fjara út en seint i gærkvöldi tók þaö
nýjan fjörkipp. (Ljósm.: gel)
Stærsta gos Kröfluelda
„Sprungan opnaðist
óskaplega hægt og fyrsta
eldinum fylgdi enginn
reykur. Svolítið rautt band
myndaðist eins og þegar
vætlar blóð úr sári. Fljót-
lega varð eldurinn eins og
risastór margblaða rós
sem logaði i köntunum en
áður en varði var komin 30
metra löng sprunga ." —
Þetta er frásögn Ævars Jó-
hannessonar tæknimanns á
Raunvísindastofnun Há-
skólans í samtali við Þjóð-
viljann i gær en hann varð
fyrstur allra til að sjá eld-
stöðvarnar úr lofti ásamt
flugmanni frá Leiguflugi
Sverris Þóroddsonar.
Þeir tveir voru nýfarnir af flug-
vellinum 1 Aðaldal á leiö suður er
gosiö hófst. Taldi Ævar nákvæm-
asta timasetningu upphafsins
vera kl. 1245. Þegar þeir komu
yfir gosstaðinn var nyrðri
sprungan byrjuð að gjósa en lýs-
ingin hér að framanverðu er af
syðri sprungunni þegar hún opn-
aðist en þá voru þeir beint yfir
gosstöðvunum.
Framhald á bls. 13
Atti fótum
f jör að launa
Danskur feröalangur að
nafni Stig Mortensen varö fyr-
ir þeirri einstöku lifsreynslu i
gærdag að vera staddur að-
eins 30 metrum frá gosstaðn-
um þegar eldgosið hófst. Varö
honum ekki um sel eins og
vænta mátti enda átti hann
fótum fjör að launa.
Erlingur Sigurðsson, frétta-
ritari Þjóðviljans.hitti hann að
máli seinna um daginn og
sagðist Stig Mortensen hafa
verið aö flakka þarna um hó-
lendið og gist i gangnamanna-
kofanum á Hliöarhaga sunnan
undir Eilffsrétt I fyrrinótt.
Vaknaði hann kl. 9 um morg-
uninn viö jaröskjálfta og datt
þá Krafla strax i hug en hún er
til suövesturs frá kofanum.
Daninnvar ekkert of klár á
umbrotasvæöinu og álpaðist I
norðvestur, þangð sem sist
skyldi, og var staddur i miðju
Gjástykki kl. 12.45 þegar gosið
hófst. Þegar eldurinn kom upp
rétt við hann sá að sjálfsögðu i
iljarhonum og opnuöust eldar
hvarvetna I slóð hans. Tókst
honum þó að foröa sér frá
þessum háska en gleymir vist
ekki lslandi I bróö.
—GFr
Daninn Stig Mortensenmeð
gosmökkinn i baksýn
(Ljósm.: Erlingur Sigurðarson)
Hraunið hverfur þarna ofan I eina sprunguna I Gjástykki.
(Ljósm. —gei.).