Þjóðviljinn - 30.08.1980, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 30.08.1980, Qupperneq 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 30.-31. ágúst 1980 AF REYKJAVlK AÐNÆTURÞEU Þegar reykvíkingur vaknar, er það venjulega vegna þess að hann hefur sofið of stutt, eða eins og sagt er á gullaldarmáli ,,of skamma ríð".Hann hefur þá e.t.v. fengið sér „hænu- blund" undir sjónvarpinu. Þá flögrar það að sjálfsögðu að honum að hugsa til hreyfings. Um margt er að velja fyrir slíkan reykvíng, sé hann nátthrafn. Það fyrsta og auðvitað handhægasta er að halda áfram að horfa á sjónvarpið og fara ? draumalandið í leiðinni, en skemmtilegra þó að leggja land undir fót og kanna næturlíf borgarinnar. Styst er að fara á Hótel Borg, þar eru bæði flugleikur og diskótekið Dísa, en þó eru það dyraverðir staðarins, sem fyrir ferðamenn hafa þótt athygliverðastir og hafa ferða- langar komið um langan veg til að bera — eða berja dyraverði Hótel Borgar augum. wKKKBm Mt ív Heyröu Muller heiduröu aö þessi sé á skrá hjá okkur. Komist maður ekki inn á „Borgina", vegna troðnings er farið útá Austurvöll að kasta flöskum í hausinn á vegfarendum, sem flýja þá venjulega útá „Hallærisplan" og fá það þar óþvegið. Þar er nef nilega æska íslands í stuði. Nú er ekið með næturgest höf uðborgarinnar uppá slysavarðstofu til að sauma saman á honum höf uðið, svo hann geti haldið áfram að lifa hinu Ijúfa lífi næturgleðinnar. Á slysavarðstof unni eru snotrar daður- drósir, en eigi skal hinn slasaði næturhrafn láta glepjast af slíku, heldur hyggja að höfði sinu og heilsufari, því nú ríður á að vakna. Það fyrsta sem f lögrar að nátthraf ninum er að fara á Hótel Sögu. Þá þarf hann að gá að því hvort hann sé í leðurjakka og ef hann er í slíkri f lík, en þó með bindi, þá þarf jakkinn að vera úr gerf ileðri, ætli maðurinn að komast inn. Hann kemst semsagt ekki inn. Nú fer að verða fátt um f ína drætti — og þó — tekinn er leigubíll og ekið í Hollywood. Þar er diskótek og rúmlega það. Það voru víst í eina tíð, að því er sagt er að „módeldömur" sem breyttust i „hóteldömur" eftir lokun, en nú er slikt liðin tíð sem betur fer, sérstaklega fyrir þær. Þarna í Hollywood er það mikill skarkali í eyrun og Ijósagangur í augun að gesturinn heldur ekki dvölina út nema tiltölulega stuttan tíma. Hann lætur semsagt leigubílinn ekki fara. Og sem hann kemur aftur út í bílinn, spyr hann að sjálf sögðu bílstjórann hvert nú sé ráð- legast að fara. Ef bílstjórinn segir ekki „heim" þá er hann vís til að fara með þennan margumrædda gleðimann í Alþýðuhúskjallarann. Þar sitja konurnar öðrumegin en kallarnir hinumegin og svo þegar dömufrí er, þá bjóða dömurnar herrunum upp. En nú er gesturinn okkar orð- inn svo aðframkominn að dömunum hinum megin lýst ekki nógu vel á hann. Hann á eins og sagt er ekki sjens í Alþýðuhúskjallarnum. Og nú er ennþá færra um f ína drætti en áðan. Út aftur á málþing við bílstjórann, sem nú er farinn að taka virkan þátt i næturbrölti gestsins. Og hvert væri nú rétt að halda herra „sjó- för"? „Ó mín venn" svarar þá sjóförinn af því hann er húmoristi. Leiðin liggur að sjálfsögðu beint í „Æðahnútabæ". Nú klórar gesturinn sér að sjálfsögðu í skallanum sé hann búinn að missa hárið, en annars i hárinu og segir svo: „olræt við þangað". Og við þangað. Nú nú. Og síðan ekki söguna meir, eða vér teljum að nú sé rétt að láta staðar numið í bili, en þó með vísukorni ef vera kynni að hún gæti varpað nokkru Ijósi á innihald textans: Rétt er að vera fólegur í ranni sfnum soleiðis finnst svanna mínum sérstaklega í miðjum klíðum. Flosi. Maðurinn minn er saklaus Rokk gegn her heitir meiri háttar viöburður i tónlistarlifinu sem herstöðvaand- stæðingar gangast fyrir i Laugar- dalshöllinni 13. september n.k. Þar munu m.a. koma fram Þursaflokkurinn, Mezzoforte, Bubbi Mortens og Utangarðs- menn og Táragas. Þá er ætlunin aðhöllin verðiskreytt risastórum veggspjöldum og myndum. Þetta er byrjunin á vetrarstarfi Sam- taka herstöðvaandstæðinga og lofar hún góöu. Bubbi Mortens og Utangarös- menn verða meöal þeirra sem koma fram á „Rokk gegn her” i Laugardalshöll Litla Alþýðublaðið ætlar nú að reyna að verða stórt á ný. Ákveðið hefur verið að stækka það upp i 8 siður hversdagslega og i 12 sfður um helgar frá og með næstu mánaða- mótum. Blaðamönnum verður fjölgað um helming og i siðasta Helgarpósti var auglýst eftir þeim og krafist háskólaprófs og góðs valds á islensku.Blaðamenn eru nú tveir auk ritstjórans, Jóns Baldvins Hannibalssonar. Jafn- framt er i auglýsingunni óskað eftir fólki sem geti tekið að sér fasta þætti og þýðingar. Heimildarmaður Þjóðviljans sagði að Jón Baldvin hefði hug á að skapa nýju Alþýðublaði sér- stöðu með þvi að helga efni þess fyrst og fremst stjórnmálum og menningarmálum en ekki dag- legum fréttaflutningi nema i litl- um mæli. „Það á að fjalla um áhugamál ritstjórans, nefnilega pólitik og pianókonserta”, bætti hann við Snemma i vor barst boð til alþingis frá æðsta ráði Sovétrikjanna um að ■senda þingmannasveit i austur- veg til hálfs mánaðar dvalar og kynningar. Allir þingflokkarnir þekktust boðið og tilnefndu fulltrúa i ferða- lagið strax i vor. Þegar dró að olympiuleikunum og mikil blaða- skrif hófust um hvort senda bæri islenska iþróttamenn á leikana, kom mikill órói upp i herbúðum Sjálfstæðismanna þe. Geirs- liðsins vegna ferðarinnar til Sovét. Akveöið var i skyndi að láta fresta ferðinni fram á næsta ár og ýmsar tylliástæður týndar til. Sagan segir að sjálfstæðis- menn vilji ekki tala hátt um þessi mál, þvi i ljós kom að flokkurinn hafði alveg gleymt innrásinni i Afghanistan þegar boðsferðin var þegin I vor. Ingólfur Margeirsson fyrrv. umsjónar- maður Sunnudagsblaðsins situr nú i Osló og skrifar ævisögu Guð- mundu Eliasdóttur söngkonu. Var hann fengin til þess verks af bókaforlagi i Reykjavik en Guð- munda á litrika ævi auk þess að vera ákaflega skemmtileg kona. Ingólfur Margeirsson: Situr nú I Osló og skrifar ævisögu Guö- mundu Eiiasdóttur söngkonu Hún er ekkja Sverris Kristjáns- sonar sagnfræðings. Ingólfur ræddi við Guðmundu áður en hann fór og tók samtölin upp á segulband og um daginn mæltu þau sér mót i Kaupmannahöfn sömu erinda. Landið mitt er uppflettibók sem notið hefur mikilla vinsælda hér á landi. Nú er að koma út hjá Erni og örlygi ný útgáfa þessa verks, mjög endurbætt og aukin. Fyrsta bókin með þessu nafni var eftir Þorstein heitinn Jósepsson en siðan bætti Steindór Steindórsson frá Hlöðum öðru bindi við um há- lendið. Og það er einmitt Steindór sem nú hefur aukið við verkum. Það kemur út i fjórum veglegum bindum mikið myndskreyttum bæði i lit og svarthvitu. Fyrsta bindið kemur út nú fyrir jólin og er það von útgefenda að þetta verk verði klassiskur staðfræði- leksikon. Þórður nokkur Friðjónsson hefur verið ráðinn efnahagsráðunautur for- sætisráðuneytisins og hafa ýmsir velt vöngum yfir þessu nafni þvi að það kemur kunnuglega fyrir sjónir. Já, reyndar. Þórður er sonur dómsmálaráðherrans, Friðjóns Þórðarsonar. Til gamans má geta þess að að- stoðarráðherra Gunnars Thoroddsens forsætisráðherra er Jón Ormur Halldórsson. Hann er bróðursonur Magnúsar Jóns- sonar frá Mel fyrrv. fjármálaráð- herra Sjálfstæðisflokksins og nú- verandi bankastjóra Búnaðar- bankans.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.