Þjóðviljinn - 30.08.1980, Side 5

Þjóðviljinn - 30.08.1980, Side 5
Deildarstjóra Farskrárdeildar sem hefur unnið í 30 ár hjá flugfélögunum sagt upp Helgin 30.-31. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Nú er of langt gengið segja starfsmenn deildarinnar sem fóru sér hægt við vinnu Starfsmenn farskrárdeildar Flugleiða, fóru sér hægt við störf i gær og fyrradag til að mótmæla uppsögn deildarstjórans islaugar Aðalsteinsdóttur en hún á að baki 30 ára starf fyrir Loftleiðir og siðar Flugleiðir. Fimm starfsmenn farskrár- deildarfengu send uppsagnarbréf i fyrradag þar á meðal islaug, en alls starfa 25 manns á deildinni. 1 tilefni uppsagnar deildar- stjórans sendu starfsmenn far- skrárdeildarinnar svohljóðandi yfirlysingu frá sér i gær. Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Flugleiða mátt þola hvert áfallið á fætur öðru af hálfu stjórnar fy rirtækisins. Þessu hefur verið tekið með skilningi og þolinmæði en nú finnst okkur of langt gengið þegar reyndasti og hæfasti starfsmaður farskrár- deildar Frú tslaug Aðalsteins- dóttir deildarstjóri vikur úr starfi eftir áratuga þjónustu. Til að mótmæla þessu fóru starfsmenn farskrárdeildar sér hægt við vinnu i dag. „Við höfum ákveðið að láta yfirlýsinguna nægja i bili og ætl- um ekki að tjá okkur frekar um málið á meðan” sögðu starfs- menn farskrárdeildar þegar blaðamenn Þjóðviljans litu þar við. Deildarstjórinn tslaug Aðal- upp vildi ekki heldur tjá sig um steinsdóttir sem sagt hefur veriö málið að svo komnu. — lg. Starfsmenn Farskrárdeildarinnar mótmæltu uppsögn deildarstjórans með skæruverkfalli. Þessi mvnd var tekin i farskrárdeildinni i gær. Mynd-eik. Sveinn Sœmundsson blaðafulltrúi Flugleiða um uppsögn deildarstjórans Ég hef ekki heyrt ad hún verdi endur- skoðuð „Ég hef ekki heyrt að það standi til að endurskoða uppsögn Islaugar”, sagði Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi Flug- leiða þegar Þjóðviljinn hitti hann að máli i farskrárdeild Flugleiða i gær, þar sem störf voru fram- kvæmd með hægasta móti. - Sveinn sagði aðspurður að bú- ast mætti við einhverjum töfum vegna þessara mótmæla starfs- fólksins, en við þvi væri ekkert að gera. Allur akstur krefst x varkárni Ýtum ekki barnavagni á undan okkur við aðstæður sem þessar AUGLÝSING samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18. mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt með siðari breytingum, um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið i Suðurlandsumdæmi á þá lögaðila sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 2. gr. greindra laga. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila hafa verið póstlagðar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda sem þessum skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans innan 30 daga frá og með dagsetningu þessarar auglýsingar. Hellu, 31. ágúst 1980, Skattstjórinn i Suðurlandsumdæmi, Hálfdán Guðmundsson. AUGLÝSING samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18. mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt með siðari breytingum, um að álagningu opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið i Reykjanesumdæmi á þá lögaðila sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 2. gr. greindra laga, svo og á þá aðila sem skattskyldir eru samkvæmt 3. gr. lag- anna. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila hafa verið póstlagðar. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda sem þessum skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni hans innan 30 daga frá og með dagsetningu þessarar auglýsingar. Hafnarfirði, 31. ágúst 1980, Skattstjórinn i Reykjanesumdæmi, Sveinn Þórðarson. Bœkur til sölu Stórt bókasafn nýkomið. Nefnum m.a.: Mariusaga, útgúfa C. Ungers Kristiania 1868, kápueintak óupp- skorið, Leifar fornra fræða kristinna, Kh. 1878, Grágás 1-2, útg. Vilhj. Finsens 1852, alskinn, Ræður Tómasar Sæmundssonar, Viðey 1841, Sjöorðabók Vidalins, Hólum 1741, Norsku lög, Hrappsey 1779, Flest rit Daniels Bruun um Island, Samtið og saga 1-4, Timaritið Saga, Timaritið Birtingur, Arbók Fornleifa- félagsins 1-25 (frumprent), Skammir eftir Skugga, Harmsaga ævi minnar eftir Jóhs. Birkiland, Endurminningar Sigurðar Arnasonar, Ævisaga Agústs i Birtingarholti, Dægradvöl Grön- dals (frumútg.) Illgresieftir Orn Arnarson, Ritsafn Páls Ardals, Ljóð Páls Ólafssonar, Ævisaga Osears Wilde, Sagnaþættir úr Húnaþingi eftir Theódór Arnbjörnsson, Edda Þórbergs, Kynleg- ar ástriður eftir E.A. Poe. Þýðing Þórbergs Þórðarsonar, Rvik 1915, Opið bréf til séra Arna Frikirkjuprests eftir Þórberg, Af- mælisrit til Einars Arnórssonar 70 ára og Afmælisrit til próf. Ólafs Lárussonar 70 ára, Þjóðtrú og þjóðsagnir útg. Oddur Björnsson og Þjóðsögur og munnmæli, útg. Jón Þorkelsson, Bragfræði islenskra rimna eftir Helga Sigurðsson, Eldvigslan, Skóla-farganið eftir Benedikt Gröndal, Sögur og sagnir úr Breiðafirði, Aldarfar og örnefni i Onundarfirði, Was ich in Island sah eftir Adrian Mohr, Land og lýður eftir Jón i Yztafelli, Frum- útgáfur Laxness, Kaþólsk viðhorf, 1 austurvegi, Gerska æfintýrit Dagleið á fjöllum, Sjálfstætt fólk 1-2, Atómstöðin, Sjálfsagðir hlutir, Dýraljóð, útg. Guðm. Finnbogason, Ljóð Andrésar Björnssonar eldra, Fjárdrápsmálið i Húnaþingi eftir Gisla Konráðsson, Islenskar nútimabókmenntir eftir Kristján E. Andrésson, Ferðabók Eggerts Ólafssonar, Eggert Ólafsson eftir Vilhj. Þ. Gislason, Mynsters hugleiðingar, Um siðbótina á Islandi eftir Þorkel Bjarnason, Verk Gunnars Gunnarssonar 1-8 bækurnarum Arin 1965-1973, Jónas Hallgrimsson 1-2, alskinn og ótal margt fleira. Nýkomið safn erlendra þýddra skáldsagna, fjöldi skemmtilegra pésa og bæklinga, úrval ljóðabóka, verk ungu umdeildu skáld- anna og sitthvað fleira skemmtilegt og sjaldfengið. Kaupum og seljum allar islenskar bækur, gamlar og nýjar, heil söfn ogeinstakar bækur og ílest erlend verk. Sendum i póstkröfu hvert sem er. BOKAVARÐAN - Gamlar bækur og nýjar - Skólavörðustig 28, Reykjavik. Simi 29720 Tónlistarskóla Kópavogs Innritun hefst fimmtudaginn 4. september og lýkur þriðjudaginn 9. september. Innritað verður samtimis i forskóla- deildir. Skrifstofa skólans að Hamraborg 11, 2. hæð, simar 41066 og 45585, verður opin inn- ritunardagana kl. 9—12 og 17—18, nema laugardaginn 6. september kl. 9—12. Athygli er vakin á þvi að takmarka verður fjölda nemenda i vetur. Skólastjóri ! i Amma óskast I gamla vesturbænum Barngóð kona óskast til að koma heim og gæta 4ra ára drengs frá kl. 9—1 f.h. frá 1. september. Upplýsingar i sima 81699 og á kvöldin i 24119. Steinunn. ] í i I i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.