Þjóðviljinn - 30.08.1980, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 30.08.1980, Qupperneq 11
Helgin 30.-31. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 r Þröstur Olafsson, hagfrœðingur Gengisfelling er engin lausn Að undanförnu hefur fjölmiðl- um orðið tiðrætt'um hugmyndir efnahagsmálanefndar, sem sendar voru rikisstjórn fyrr i þessum mánuði. 1 framhaldi af áhuga dagblaðanna á fyrrnefnd- um hugmyndum hafa efnahags- málin almennt séð orðið tilefni yfirlýsinga og viðtala af misjafn- lega heppilegri gerð. Þar sem hugmyndir efnahags- nefndar eru ekki opinbert plagg, verða þær ekki gerðar að um- ræðuefni hér, hvorki það sem i þeim er né hitt sem þar er ekki að finna. Hér á eftir verða ræddar hugsanlegar aðgerðir til lausnar þeim vanda sem blasir við i sjávarútveginum og almennri efnahagsstjórnun, sem tengist þessum vanda, en hann er aðeins hluti af stærri heild. Óþarfi er að tiunda mikilvægi sjávarútvegs i þjóðarbúskap okk- ar Islendinga. Það vita menn mætavel. Þörf er hins vegar á að vara við að gera of mikið úr þessu mikilvægi, sem leiðir til þess að allar efnahagsaðgerðir verða hugsaðar út frá „þörfum” sjávarútvegsins.Allaralhæfingar eru varhugaverðar, hvort sem er á sviði efnahagsmála eða ann- arra þjóðmála. Okkur verður að lærast að setja hlutina á réttan bás hvern eftir stærð og mikil- vægi. Stjórn efnahagsmála má aldrei ráðast af hluta heldur að- eins af heild. Genginu má ekki' stjórna sam- kvæmt pöntunum frá aðilum i sjá varútveginum. Gengis- breytingar verða að miðast við þarfir þjóðarbúsins sem heildar en ekki sjávarútvegsins. Ef gengisstjórnun ræðst af vand- kvæðum sjávarútvegsins, eins og gerst hefur allt of mikið er verið að magna upp afleiðingar sveiflna i sjávarútvegi i stað þess að draga úr þeim. Þetta er fyrsta boðorð efnahagsstjórnunar þessa siðsumarsdaga. Genginu má ekki breyta vegna þarfa sjávarútvegs- ins. Við núverandi aðstæður má ekki fella gengið, þvi það er bein ávisun á framhaldandi verð- bólgu. 8-10% gegnisfelling i sept- ember festir 55-60% verðbólgu á ári i sessi allt næsta ár ef ekki lengur. Þessi verðbólguþjáða þjóð má ekki við þvi að láta teyma sig i enn villtari verðbólgu* dans. En af hverju má ekki fella gengið og hvað er þá til bragðs, ef ekki má beita genginu? Gengið hefur áhrif á allt vöru- verð i landinu. Gengislækkun hækkar allar innfluttar vörur strax, en þær eru um 45% af vöru- notkuninni. Gengislækkun. jafn- gildir aukinni verðbólgu. Hugsan- lega má draga úr þensluáhrifum gengisfellingarinnar, með þvi að koma i veg fyrir að visitalan mæli gengisfellinguna. Slikt er örþrifa- ráð, sem erfitt er að réttlæta og reyndar alls ekki ef önnur úrræði eru hugsanleg. Visitöluskerðing kemur ekki til greina nema sem hluti i hugsanlegri almennri niðurfærslu kaupgjalds og verð- lags i landinu. Gengisbreyting er réttlætt með vanda i sjávarútvegi. Erfiðleik- um i einni atvinnugrein er velt út i allt þjóðarbúið og látnir marka spor sin þar. En hver er þessi vandi sjávarútvegsins? Er hann svo almennur að velta þurfi hon- um út i þjóðarbúið með fyrirsjá- anlega stórhættulegum afleiðing- um? Samkvæmt best fáanlegum upplýsingum, er sjávarútvegur- inn rekinn með um 3% halla við núverandi skilyrði. Þetta jafn- gildir um 12000 Mkr. ef miðað er viðallar greinar sjávarútvegsins. Nú er það svo, að sá hluti sjávar- útvegsins sem stundar veiðar hagnast ekki á gengisfellingu, þvert á móti. Stór hluti af kostn- aði hans er erlends uppruna og eykst við gengisfellingu. Tekj- Þröstur Olafsson. urnar aukast ekki við gengisfell- ingu, nema hvað geta frystihús- anna til að greiða hærra fiskverð batnar. Gengisfelling er þvi ein- göngu gerð fyrir vinnsluaðila i sjávarútvegi. Hins vegar eiga vinnsluaðilar aðrir en frystingin ekki við rekstrarvandkvæði að striða. Gengisfelling væri þvi eingöngu til að rétta af hallarekstur i frystingu. Hallarekstur i fryst- inguer sennilega á bilinu 3,0-4,0% eða um 6000 Mkr. Gengisfelling kemur á allan innflutning lands- manna. Gerum ráð fyrir að hann verði um 400 miljarðar á yfir- standandi ári. Ef gengið yrði fellt um 10% þýddi það 40 miljarða til viðbótar i peningaþénslu til að rétta við 6 miljarða halla i fryst- ingu. Er þetta ekki fuilsterkt lyf til að lækna sjúklinginn? Kynni ekki lækningin að verða hættu- legri en sjúkdómurinn? Við skul- um ekki karpa um þær tölur sem ég hef notað. Vel má vera að deila megi um þær, þvi dæmið er flók- iö. Einnig er rétt, að eftir kaup- hækkanir i september bæði vegna verðbóta og grunnlauna, verður þetta dæmi nokkuð verra. En hlutföllin breytast ekki verulega við það. Vissulega er um vanda að ræða; En það eru alvarleg afglöp, ef reyna á að leysa hann með þvi að hækka allt verðlag i þjóðfélag- inu. Við verðum að leysa vanda sjávarútvegsins innan hans sjálfs, og reyna að draga sem mest úr óæskilegum afleiðingum þeirra aðgerða fyrir þjóðarbúið. Gengisfellingu má ekki miða við þarfir einnar atvinnugreinar heldur eingöngu við heildarþarf- ir. Vandi sjávarútvegsins er margslunginn og verður engan veginn leystur með gengisfell- ingu, heldur þurfa til að koma margar samverkandi aðgerðir. Þvi má heldur ekki gleyma að þó að afurðaverð hans i erlendum gjaldeyri hafi staðið i stað um nokkurt skeið, þá er það þó hæsta verð sem islenskar fiskaf- urðir hafa selst fyrir um alllangt skeið. Frystihúsavandinn er ekki al- mennur. Dreifing vandans er einkum bundin við ca. 15-20 hús, þótt nokkur fleiri þyrftu eflaust á bata að halda. Vandi sumra húsanna er m.a. sá að vegna landburðar af fiski i vor og fyrri part sumars, reyndist ekki hægt að vinna hann strax og var hann orðinn lakari að gæðum þegar hann var unninn, en þegar hann var keyptur. Með þvi að lækka afurðalánavextina má bæta stöðu húsanna nokkuð, svo og lengja iánaafborganir frá þvi sem nú er. Margar aðrar skipulagsaðgerð- ir geta bætt stöðuna verulega. Eitt af þvi er útflutningsgjalda- kerfið. Siðan má beita fyrirfram markaðri og tilkynntri gengis- skráningu t.d. 1,5% á mánuði og slita hana þannig úr tengslum við sjávarútveginn. En umfram allt ber að forðast gengisfellingu i einu stóru stökki nú, eins og ýms- ir hafa verið að leika sér að i fjöl- miðlum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.