Þjóðviljinn - 30.08.1980, Síða 15
Helgin 30.-31. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Oliugeymamir skerða
byggingaland Keflavíkur
Tillaga um byggingu
olíutanka hersins í Helgu-
vík rétt fyrir norðan nú-
verandi byggð í Keflavík
felur í sér að gera verður
breytingar á því aðalskipu-
lagi sem nú er í gildi fyrir
Keflavík, Njarðvík og
Kef lavíkurf lugvöll. Eins
og sjá má á meðfylgjandi
korti af aðalskipulaginu
sem gildir fyrir timabilið
1967-87 þá skerða oliutank-
arnir byggingarmöguleika
svæðisins, en á þessu svæði
var ætlunin að hafa fram-
tíðar íbúðarhúsa- og iðn-
aðarhverfi Keflavíkur
(merkt nr. 1).
Byggðin í Kef lavík er nú
þegar farin að teygja sig
all nærri Helguvíkursvæð-
inu eins og sjá má á mynd-
um á næstu opnu, og ef sú
þróun heldur áfram sam-
hliða byggingu olíutank-
anna þá yrði byggðin orðin
allískyggilega nærri oliu-
geymunum. Spurning þá
hvort byggðin yrði ekki
hættulega nálægt tönk-
unum.
Á sjálfu Helguvíkur-
svæðinu er gert ráð fyrir
staðsetningu 12 olíutanka.
Ellefu af tönkunum verða
15000 rúmmetrar að stærð,
en einn verður 4000 rúm-
metrar. Þessir tankar eru
á því svæði sem merkt er
nr. 1. Þá er gert ráð fyrir 8
tönkum á flugvallarsvæð-
inu. Af þessum átta tönk-
um er gert ráð fyrir stað-
setningu 5 tanka á því
svæði sem merkt er númer
2 en 3 þessara tanka verða
á svæði sem merkt er
númer 3. Hver þessara 8
tanka er 4000 rúmmetrar.
Heildarrými tankanna
verður þvi 201 þús. rúm-
metrar. Tankarnir í Helgu-
vík og innan vallar verða
svo tengdir saman með
miklum olíuleiðslum
(merkt nr. 4). Tankarnir í
Helguvík eru hugsaðir sem
birgðatankar en hinir sem
dreif ingartankar.
Núna eru olíutankar
hersins staðsettir á
tveimur meginsvæðum
þ.e. innan f lugvallarins og
á svæði milli hafnar-
svæðisins og flugvallarins
(merkt nr. 5). Tankarnir
sem nú eru til staðar eru
samtals 43 og þar af eru 18
staðsettir utan vallarins.
Þessir tankar eru þó minni
en þeir sem byggja á, því
tillagan um byggingu
nýrra olíugeyma felur í sér
þreföldun á olíugeymslu-
rými hersins.
Bæjarráðin í Kef lavík og
Njarðvík hafa lagt mikla
áherslu á byggingu olíu-
tankanna í Helguvík og
telja að með byggingu
þeirra megi fjarlægja þá
olíutanka og þær olíu-
leiðslur sem nú eru á milli
haf narsvæðisins í Kef lavík
og vallarins (merkt 5). Á
þessu svæði verði síðan
hægt að skipuleggja
ibúðarsvæði. Þannig virð-
ast yfirvöld í Keflavik og
Njarðvikum vilja skipta á
stórum hluta byggingar-
svæðisins við Helguvík
fyrir áðurgreint svæði sem
merkt er nr. 5. á kortinu.
— þm
Kort þetta sýnir aðalskipulag Keflavíkur,Njarðvíkur og Keflavikurflugvailar fyrir timabilið l967-i987.Tölur nr. 1,2 og 3 visa til þeirra staða þarsem
Bandarikjamenn ætla að reisa nýja oliutanka. Tankarnir eru sýndir sem rauðir deplar. Tala nr. 4 visar tiloliuleiðslna sem tengja tankana saman.
Litlu ferhyrningarnir á svæðinusem merkter nr. 1. sýna jafnframt þærbyggingar sem fyrirhugaðer að reisa á Helguvikursvæðinu samkvæmt aðah
skipulaginu. Á svæðinu sem merkt er nr. 5 er nú hluti af oliutönkum hersins.
J