Þjóðviljinn - 30.08.1980, Page 21

Þjóðviljinn - 30.08.1980, Page 21
Helgin 30.-31. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21 MeOal 20 algengustu karlmannsnafna I Færeyjum árið 1801 var aðeins eitt af norrænum uppruna, ólafur. Vinsældir þess eru skýrðar vegna átrúnaðar á ólaf konung helga sem Ólafsvakan er við kennd en þessi mynd var einmitt tekin á Ólafsvöku 1976 (Ljósm.:GFr) Færeysk mannanöfn: Norræn nöfn nær útdauð Nafnasiðir i Færeyjum tóku töluvert aöra stefnu heldur en hér á landi. Fyrsta allsherjarmann- taliö I Færeyjum var tekið árið 1801 og hefur Jákup i Jákupsstovu gert úttekt á mannanöfnum sem þar koma fyrir og gefið út í bók sem hcitir Fólkanövn i Föroyum. Það sem vekur athygli tslendinga er fyrst og fremst það að á árinu 1801 var nærri búiö aö útrýma mannanöfnum af norrænum upp- runa úr færeysku en langflestir Færeyingar hétu Bibliunöfnum eða nöfnum dýrlinga. A islandi héldu hins vegar norrænu nöfnin velli við hliðina á hinum. Þess skal geta að Færeyingar hafa gert töluvert af þvi á siöari árum aö endurvekja gömlu norrænu nöfnin. Árið 1801 voru 5265 ibúar i Færeyjum en þessir ibúar báru ^aðeins samanlagt 176 mismun- andi nöfn. Mismunandi karl- mannsnöfn voru 104 en mismun- andi kvenmannsnöfn 72. Tuttugu algengustu karl- mannsnöfnin voru þessi: Jógvan (406), Jákup (262), Olavur (203), Hanus (182), Jóannes (177), Páll (162), Pætur (131), Dánjal (101), Mikkjal (88), Tummas (84), Niklas (82), Simun (61), Andras (59), Kristjan (55), Janus (48), Jóhann (44), Sámal (40), Rasmus (39), Magnus (36) og Heini (35). Eina norræna nafnið sem er meðalvinsælustu nafna er ólavur og skýrast vinsældir þess vafa- laustaf átrúnaðinum á Ólaf helga (sbr. ólafsvökuna), önnur norræn nöfn sem koma fyrir eru flest fátið. Algengust eru Sjúrður (14), Eirikur (11), Gutti (10) og Tróndur (9). Siöasta nafnið er nafn Þrándar i Götu, einnar aðal- söguhetjunnar i Færeyingasögu. Sögusagnir herma að Þrándar- nafniö hafi ætið haldist i Götu og Tróndur sá er lést þar skömmu fyrir siöustu aldamót hafi verið 20. Þrándur frá Þrándi i Götu. En Sigmundur, nafn annarrar söguhetju IFæreyingasögu,er alls ekki til i manntalinu 1801. Það er gömul trú i Færeyjum að nafn Sigmundar færi mönnum óham- ingju og þeir sem beri það deyi ungir. Böndi nokkur sem bjó i Skúfey á siðustu öld og var mikill aðdáandi fornsagna reyndi aö hnekkja þessu orði af Sigmundar- nafninu meö þvi að skira tvo syni sina i röð eftir Sigmundi Brestis- syni en þeir dóu báöir sem korn- börn. Þriöja son sinn skýrði hann Simon Evangelist og hefur Simonarnafnið vafalaust átt aö minna á Sigmund. Til samanburöar má geta þess að 10 algengustu karlmannsnöfn á Islandi árið 1910 voru Jón, Guð- mundur, Siguröur, ólafur, Magn- ús, Kristján, Einar, Jóhann og Björn. Af þeim er helmingur af norrænum uppruna (Guö- mundur, Siguröur, Ólafur, Einar og Björn). Tuttugu algengustu kven- mannsnöfnin I Færeyjum voru áriö 1801 þessi: Anna (552), Katrin (292),Marin (290),Elsupa (281), Malan (238), Sunniva (194), Súsanna (182), Maria (139), Lisbita (132), Suffia (110), Sigga (76), Elin (70), Kristin (62), Margreta (47), Billa (43), Birita (40), Jóhanna (35), Rakul (28), Giljanna (27),og Sára (26). Af þessum 20 nöfnum er Sigga aðeins af norrænum uppruna (dregiö af Sigriöi). önnur norræn nöfn eruafarfátið. Aðeins voru til 2 Guðrúnar, 1 Ingibjörg, 2 Ragn- hildar og 1 Sigriöur. Þess skai þó getið aö nafnasiðir hafa breyst mjög I Færeyjum á siðustu öld og margir gefið börn- um slnum norræn nöfn af hug- sjónaástæöum. Undirritaður kynntist t.d. Jóhan Hendrik Wint- herPoulsen sem er norrænufræð- ingur og kennir við Fróðskapar- setur i Færeyjum. Hans börn heita Ingibjörg, Hjördis og Teitur. Til samanburðar má þess geta að 10 algengustu kvenmannsnöfn i islenska manntalinu 1910 eru Guðrún, Sigriður, Kristin, Margrét, Ingibjörg, Anna, Helga, Jóhanna, Sigrún og Maria. Helm- ingur þessara nafna er norrænn að uppruna (Guörún, Sigriður, Ingibjörg, Helga og Sigrún). Ýmis færeysk nöfn koma Islen- dingum spánskt fyrir sjónir svo sem karlmannsnöfnin Aggu- steinus, Ápran, Arant, Bartal, Blásius, Dávur, Djóni, Grækaris, Jaspur, Jæramiggjas, Kristafár, Liggjas, Mórus, og Rubekkur. Eða þá kvenmannsnöfnin Abellóna, Duruta, Gortra og Sissal. En við höfum nú lika átt nöfn eins Amlin, Axelma, Danilúrs, Dagóbert, Emerentsina, Fimm- sundtrina.Guðvalinur og Gæflaug svo að aðeins fá nöfn séu nefnd. — GFr Jógvan er algengasta karlmannsnafnið en Anna algengasta kven- mannsnafnið (Ljósm.:GFr.) Þarft ÞÚ að Það má vel vera að þér finnist ekki taka þvl að auglýsa draslið sem safnast hefur I kringum þig- LOSA GEYMSLUNA eða Kemst bíllinn ekki inn? Þetta er ekkert mál! SMÁAUGLÝS/NG í VÍSI LEYS/R VANDANN ö/l kvöld nema /augardaga En þaö getur líka vel veriö aö einhver annar sé að leita aö þvi, sem þú hefur faliö I geymslunni eða bflskúrnum. V ______________ rJ&{ ■ sítni 8-66-11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.