Þjóðviljinn - 30.08.1980, Page 23
Helgin 30.-31. ágúst 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
Ættin Thorsteinsson
Vestfirðingurinn Þorsteinn
Þorsteinsson (1817—1864) var
ættfaðir Thorsteinsson-ættarinn-
ar sem ekki má rugla saman við
ættina Thorsteinson (með einu s).
A fyrstu áratugum þessarar ald-
ar voru synir Þorsteins meöal
umsvifamestu manna landsins og
margir afkomendur þeirra eru
enn mjög áberandi i þjóölifinu.
Þorsteinn Þorsteinsson fór ung-
ur að aldri til Flateyjar og varð
tengdasonur hins fræga athafna-
manns Guðmundar Schevings en
hann var einn af brautryöjendum
i skútuútgerð á Islandi. Þorsteinn
eignaðist árið 1847 verslunarstað-
inn Paterksfjörö en þar var hann
þó ekki nema i nokkur ár. Hann
var siðast bóndi i Æðey og fórst i
hákarlalegu aöeins 48 áragamall.
Synir hans urðu stórkarlar. Þeir
voru Davíð Sch. Thorsteinsson,
læknir, Guðmundur Sch. Tor-
steinsson,kaupmaður, Th. Thor-
steinsson, kaupmaöur og stórút-
gerðarmaður og Pétur J. Thor-
steinsson kaupmaöur og stórút-
gerðarmaður. Dóttir Þorsteins
var Soffía sem giftist Samúel
Richter, kaupmanni i Stykkis-
hölmi.
Daviö Sch. Thorsteinssonjækn-
ir (1855—1938) var giftur Þórunni
Stephensen. Meðal barna þeirra
voru Þorsteinn Sch. Thorsteins-
son.apótekari i Reykjavikurapó-
teki, tengdasonur Jóhannesar
Paturssonar, frelsishetju
Færeyinga, og Magnús Sch.
Thorsteinsson, forstjóri Smjör-
likisgerðanna i Reykjavik. Fyrri
kona Magnúsar var Laura Haf-
stein, bróðurdóttir Hannesar Haf-
stein, ráðherra, og voru synir
þeirra Daviö Sch. Thorsteinsson,
iðnrekandi og Gunnar Sch. Thor-
steinsson.verkfræðingur, tengda-
sonur Björns Hallgrfmssonar, for-
stjóra (H.Ben & Co). Seinni kona
Magnúsar Sch. Thorsteinssonar
var Sigriður Briem.
Þorsteinn Thorsteinsson
(1856—1920), sem kallaði sig jafn-
an Th. Thorsteinsson, var einhver
auðugasti kaupsýslu- og útgerð-
armaður landsins á sinum tima.
Hann var tengdasonur Geirs
Zoega, kaupmanns sem fyrstur
manna hóf skútuútgerð i stórum
stil við Faxaflóa. Th. Thorsteins-
son gerðist meðeigandi að rekstri
tengdafööur sins 1889 en stofnaöi
1896 verslunina Liverpool i
Reykjavik og hafði jafnframt
mikla þilskipaútgerö og siðar tog-
araútgerð. Meöal togarafélaga
sem hann var aðaleigandi aö voru
Trawlfélagið Bræðurnir Thor-
steinsson, Bragafélagið og G. og
Th. Thorsteinsson.
Meöal barna Th.Thorsteinssonar <
var Geir Thorsteinsson sem hélt
áfram togaraútgerð til dauöa-
dags. Hann var tengdasonur
Hannesar Hafsteins.ráðherra.
Meðal félaga hans i útgeröinni
um tlma var Hallgrimur Bene-
diktsson, stórkaupmaður sem
giftur var inn i ZoSfeaættina (þaö-
an kemur nafn Geirs Hallgrims-
sonar). Og enn heldur þessi út-
gerð áfram og er Ragnar Thor-
steinsson,sonur Geirs,nú forstjóri
hennar (togarinn Karlsefni).
Hann er m.a. faöir Hallgrims
fréttamanns hjá útvarpinu. Systir
Ragnars er Kristjana Milla Thor-
steinsson, viöskiptafræðingur,
eiginkona Alfreös Eliassonar,
Flugleiðaforkólfs. Dóttir Th.
Thorsteinssonar var Guðrún, eig-
inkona Böðvars, menntaskóla-
kennara og forstjóra, Kristjáns-
son'ar, ráðherra, Jónssonar af
Gautlandakyni. Þeirra sonur er
Gunnar Böðvarsson, yfirverk-
fræðingur og siöar prófessor I
Bandarikjunum.
Pétur Jens Thorsteinsson
(1854—1929) var launsonur Þor-
steins Þorsteinssonar og ekki af
ætt Guðmundar Scheving. Hann
var um tima mesti athafnamaður
landsins. Hann gerði Bildudal að
stórveldi og keypti þá m.a. Vatn-
eyri við Patreksfjörð. Siðar stofn-
aði hann Miljónafélagið (sem hét
raunverulega P.J. Thorsteinsson
& co), ásamt Thor Jensen og
fleirum. Þaö hafði aðalstöðvar i
Viðey og mikil umsvif. Siðasta
stórfyrirtæki Péturs var togara-
félagiðHaukur i Reykjavik. Kona
hans var Asthildur Guðmunds-
dóttir (systir Theodóru Thorodd-
sen) og áttu þau fjölmörg börn
sem nú er mikill ættleggur kom-
inn af.
Katrin var elst barna Péturs og
Asthildar. Hún var fyrri kona
Eggerts Briem^tórbónda i Viðey
og voru börn þeirra m.a. Ast-
hildur, kona Þóröar Flygenring
kaupmanns og útgerðarmanns i
Hafnarfiröi, Sverrir Briem.stór-
kaupmaður i Reykjavik, Gyða er
átti Héðin Valdimarssoiyilþingis-
mann en siöar Guðmund Þorkels-
son,fasteignasala, Eirikur Briem
forstjóri Landsvirkjunar og Guö-
rún, fyrri kona Péturs Benedikts-
sonarsendiherra, bankastjóra og
alþingismanns (bróður Bjarna,
forsætisráðherra). Pétur J. Thor-
steinsson, sendiherra, er sonur
Katrinar.
Helga hét önnur dóttir Bildu-
dalshjónanna. Hún var gift ólafi
Johnson, stórkaupmanni (O.
Johnson & Kaaber). Sonur þeirra
var Friðþjófur Ö. Johnson.fram-
kvæmdastjóri, tengdasonur Jóns
Ólafssonar, bankastjóra, út-
gerðarmanns (Alliance) og
Eirikur Briem framkvæmda-
stjóri Landsvirkjunar, kominn af
Þorsteini i Æðey I 3. liö
Alfreð Eliasson fyrrv. Loftlciða-
forstjóri, kona hans er komin af
Þorsteini i Æöey i 3. lið
örn ó. Jónson stjórnarformaöur
Flugleiða, kominn af Þorsteini i
Æðey i 3. liö
alþingismanns. Sonur Friðþjófs
er Rafn Johnson i Heimilistækj-
um h.f. Annar sonur Ólafs og
Helgu er Pétur ó. Johnson.fram-
kvæmdastjóri i New York, sem
giftur er inn i Thorsættina, og örn
ó. Johnson, stjórnarformaður
Flugleiða sem einnig er giftur inn
i Thorsættina.
Þriðja dóttir Péturs J. Thor-
steinssonar var Borghildur. Hún
giftist ólafi.ritstjóra tsafoldar.
Björnssonarrráðherra,Jónssonar.
Ólafur var bróðir Sveins Björns-
sonai; forseta. Meðal barna Borg-
hildar og Ólafs voru Elisabet, gift
llilmari Thors, lögfræðingi, en
þeirra sonur var svo aftur ólafur
B. Thors, borgarstjórnarfulltrúi,
Pétur ólafsson,hagfræðingur og
lengi forstjóri Isafoldar (tengda-
sonur Magnúsar Kjaran, stór-
kaupmanns) og Björn ólafsson,
fiðluleikari.
Fjórða barn Péturs á Bildudal
var Asta. Hún var kona Jóns
Ilermannssonag lögreglustjóra i
Reykjavik. Dóttir þeirra var
Gyða, gift Lorentz Thors, einum
af Thorsbræðrum, en þeirra son-
ur var m.a. Jón Thors,deildar-
stjóri i dómsmálaráðuneytinu.
Sonur Astu og Jóns var Hermann
Jónsson lögfræðingur sem giftur
var Auði Auðuns, ráðherra.
Yngsta barn þeirra Astu var Ing-
unn, gift Kristjáni G. Glslasyni
sem lengi var framkvæmdastjóri
Verslunarráðs Islands. Kristján
var sonur Garðars Gislasonai;
stórkaupmanns, eins mesta auð-
manns landsins. Börn Ingunnar
og Kristjáns eru Garðar Gislason,
borgardómari, Jón Gislason,lög-
fræöingur (giftur inn i Laufásætt)
og Þóra Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður Kjarvalsstaða, eiginkona
Sveins Einarssonar, Þjóðleikhús-
stjóra.
Guörún hét enn ein dóttir Pét-
urs J. Thorsteinssonar. Hún átti
Gunnar Egilson,forstjóra Bruna-
bótafélagsins og siðar verslunar-
fulltrúa á Spáni en hann var af
þekktri útgeröarmannaætt i
Hafnarfirði — og reyndar
skáldaætt (Sveinbjörn Egilsson —
Benedikt Gröndal). Þau Gunnar
áttu mörg börn. Eitt var Elisabet,
kona Indriða Waage.bankaritara
og leikara, annað Asthildur sem
fyrr átti Stcfán Þorvarðsson,
sendiherra en siöar Hauk Þor-
leifsson.bankaféhirði (þeirra
sonur, Þorleifur Hauksson, bók-
menntaráöunautur Máls og
menningar), þriðja Helga, leik-
ritaskáld, kona Rögnvalds Sigur-
jónssonar, pianóleikara og fjórða
Gunnar Egilson, hljóðfæraleikari.
Nokkra syni áttu Bildudals-
hjónin m.a. Guömund Thorsteins-
son,listmálara (Mugg), Samúel
Thorsteinsson, lækni i Kaup-
mannahöfn og Friðþjóf Thor-
steinsson, verslunarmann.
Það er athyglisvert að af-
komendur stórútgerðarmann-
anna Péturs J. Thorsteinssonar
og Thors Jensens sem bæöi voru
keppinautar stundum og sam-
herjar (Miljónafélagið) giftust
innbyröis a.m.k. á fjórum stöð-
um. Pétur 0. Johnson, dóttur-
sonur Péturs, giftist Margréti
Þorbjörgu Hallgrimsson, dóttur-
dóttur Thors. Orn Ó. Johnson,
dóttursonur Péturs, giftist
Margréti Þorbjörgu Thors, son-
ardóttur Thors Jensen. Elisabet
Ólafsdóttir, dótturdóttir Péturs,
giftist Hilmari Thors, syni Thors
Jensens, og Gyða Jónsdóttir,
dótturdóttir Péturs, giftist
Lorentz Thors, syni Thors Jen-
sens.
P.s. Ætt Sveins Nielssonar á
Staðastaö, sem lofað var i slð-
asta þætti verður enn að biöa um
hriö.
P.s. Allar ábendingar eru vel
þegnar. Skrifið Sunnudagsblaði
Þjóðviljans, Siöumúla 6. —GFr
/?/fífíO/V-stóllinn
RIBBON kemur ' »
ósamansettur ■
en hver sem er
getur sett hann
saman án verk-
færa. RIBBON
getur veriö
stakur stóll eða raðsófi eða
jafnvel sófi meö örmum.
RIBBON: Stólinn sem fer
sigurför um heiminn, jafnt fyrir
unga sem aldna.
Teiknaður af Niels S. Bendtsen
og framleiddur af KEBE
MÖBLER. Þessi stóll vakti
strax athygli fyrir cinfalt en um
leiö fallegt útlit og Museum of
Modern Art i New York valdi
stól þennan sem sýningargrip.
JIE
Loftsson hf.
Hringbraut 121
Jón
Sími 10600
Auglýsing
um adalskoöun bifreida f
lögsagnarumdæmi Kefla-
vikurT Njarövíkur, Grinda-
víkur og Gullbringusýslu
AAánudaginn
Þriðjudaginn
AAiðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
AAánudaginn
Þriðjudaginn
AAiðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
AAánudaginn
Þriðjudaginn
AAiðvikudaginn
Fimmtudaginn
Föstudaginn
AAánudaginn
Þriðjudaginn
AAiðvikudaginn
Fimmtudaginn
1. sept. 0-5051 — 5125
2. sept. Ö-5126 — 5200
3. sept. 0-5201 — 5275
4. sept. Ö-5276 — 5350
5. sept. Ö-5351 — 5425
8. sept. Ö-5426 — 5500
9. sept. Ö-5501 — 5575
10. sept. Ö-5576 — 5650
11. sept. Ö-5651 — 5725
12. sept. Ö-5726 — 5800
15. sept. Ö-5801 — 5875
16. sept. Ö-5876 — 5950
17. sept. Ö-5951 — 6025
18. sept. Ö-6026 — 6100
19. sept. 0-6101 — 6175
22. sept. Ö-6176 — 6250
23. sept. Ö-6251 — 6325
24. sept. Ö-6326 — 6400
25. sept. ö 6401 og þar yf ir.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar
sinar að Iðavöllum 4 í Keflavík og verður skoðun
framkvæmd þar á fyrrgreindum dögum milli kl.
8:00 — 12:00 og 13:00 — 16:00. A sama stað og tíma
fer fram aðalskoðun annarra skráningarskyldra
ökutækja s.s. bifhjóla og á eftirfarandi einnig við
um umráðamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því að bifreiðagjöld fyrir árið 1980 séu greidd og
lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðun-
ar á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum og bifreiðin tekin úr
umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist
hér með öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn i Keflavík,
Njarðvik, Grindavík og
Gullbringusýslu.