Þjóðviljinn - 30.08.1980, Page 32

Þjóðviljinn - 30.08.1980, Page 32
ÞJÓÐVHMN Helgin 30.-31. ágúst 1980 nafn* „Stormur birtir stýri- mennsku” segir gamalt mál- tæki og mjög hefur stormað i kringum Sigurð Helgason for- stjóra Flugleiða frá þvi að hann varð einvaldur i fyrirtækinu fyrir tveimur árum. Stýri- mennska hans er umdeild á þessari stormasömu tið i sögu Flugleiða og meðan mesta hvið- an gengur yfir frá siðustu upp- sagna- og endurskipulagn- ingarhrinu heldur forstjórinn sig i viðskiptaerindum i Banda- rikjunum. Vafalitið hafa fáir þurft að taka eins afdrifarikar ákvarð anir og forstjóri Flugleiða nú siðustu misseri. Hitt er aftur meiri óvissu hvert förinni er heitið og hvernig er háttað þeim alþjóðlegu tengslum og dóttur- fyrirtækjasamböndum sem einkum eru verk Sigurðar Helgasonar frá siðustu árum Flugleiða. Sigurður Helgason er nú um sextugt. Hann gerðist starfs- maður flutningadeildar Banda- rikjahers i Rvik á striðsárunum og fór upp úr þvi tii verslunar- náms við Colombiuháskóla i New York. Að loknu námi stundaði hann innkaupastörf fyrir islensk fyrirtæki i Banda rikjunum. Frá ’48 til ’61 var Sigurður framkvæmdastjóri Orku h.f. og Steypustöðvarinnar h.f. i Reykjavik, en var jafn framt varaformaður stjórnar Loftleiða frá 1953. Hann var um svifamikill hluthafi i fyrirtækj um hér heima en veðjaði að lok um öllu á flugið, og gerðist for- stjóri dótturfélags Loftleiða h.f. i New York frá 1962, þ.e.a.s. Ice- landic Airlines Incl. Við sameiningu flugfélaganna á sinum tima söfnuðu Helgason bros. (Sig. Helg. og Gunnai Helg.) og komust i oddaaðstööu i kompanii með þeim mönnum sem kenndir eru við Klak hf. (Hans Indriðason, Björn Theó- dórsson, Sveinn Valfells o.f).). Sigurður Helgason var siðan kallaður heim og sneri þá baki við Loftleiðafélögum sinum, enda sá forystuarmur mjög tek- inn að gamlast og þreytast. Samkeppni sú sem gömlu Loft- leiðaforstjórarnir beittu sér fyrir viö Flugfélagið á Norður- landaleiðunum varð m.a. til þess að sameiníng félaganna þótti nauðsyn. begar erfiöleikar Fiugleiða jukust með harðnandi sam- keppni á Atlantshafsleiðinni, og hækkandi oliuverði þótt inarg- fait framkvæmdastjórakerfi þungt i vöfum og smám saman varð Sigurður Helgason einráð- ur i fyrirtækinu, amk. útávið, enda þótt örn Johnsen sé einnig kunnur af þvi að geta ekki siður hugsað nokkra leiki fram i tim- ann i innri refskák, enda enn stjórnarformaður. Sigurður Helgason hefur orð á sér fyrir harðneskjulegan stjórnunarstil, þykir maöur svarkaldur og skjótráður. Sá ameriski forstjóratónn sem hann hefur sett á fyrirtækið hefur mælst misjafnlega fyrir og ekki fyrir aðra en „Sigurðar- menn” aö stiga dansinn eftir honum. Eintómir „Sigurðarmenn” Framhald á bis. 27 Xftalsími Pjóftviljans er N133.I kl. 9-20 mónudaga til föstudaga. l'tan þess tlma er hægt aö ná í blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins í þessum simum : Ritstjórn 81382, H14H2 og H1527, umbrot H12H5. Ijósmvndir H1257. l.augardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aÖ ná í afgreiöslu blaösins I slma H1663. BlaÖaprent hefur sfma 8134H og eru blaöamenn þar á vakl öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 VSÍ lagði fram tilboð sem eykur til muna launabilið milli ASÍ og BSRB: VIÐRÆÐUSLIT „Vinnuveitendur tilkynntu okkur að þessar tillögur væru beirra lokasvar að hlutfallsleg visitala væri skilyrt forsenda og að auki sambærileg um þær félagsmálakröfur sem þeir settu fram á sinum tima og ASt hefur áður algerlega hafnað. t fáum orðum sagt þá auka þessar til- lögur atvinnurekenda til muna launamismun milli félagsmanna BSRB og ASt, en við höfum lagt megináherslu á það i þessum samningaviðræðum að jafna þetta launabii" sagði Haukur Már Haraldsson blaðafulltrúi Alþýðusambandsins i samtaii við Þjöðviljann I gærkvöldi. A fundi deiluaðila með sátta- nefnd í gær lögðu vinnuveitendur fram tilboð-um 10 þús. kr. kaup- hækkun á lægstu laun, þannig að þau verði 285 þús. á mánuði, en samkvæmt tilboðinu dregur siðan ört úr hækkuninni eftir þvi sem launin er hærri. Viðræðunefnd ASl ákvað i gærkvöldi að slita frekari viðræðum að óbreyttri af- stöðu vinnuveitenda. „Það verður að taka það fram að sú hækkun sem VSl býður er ekki einu sinni grunnkaups- hækkun, heldur inniheldur hún visitölu, álög og annað”. sagði Haukur. Ef tilboð VSI er borið saman við nýju BSRB samningana kemur i ljós að á launbilinu 275-450 þús þar sem grunnkaupshækkun BSRB manna er 14 þús. kr. er hækkunin til launafólks innan VMSI frá 10 þús. kr. niður i 2900 kr. eða frá 3.6% i 0.6%. A launaflokkum frá 450 þús. til 500 þús þar sem BSRB menn fá 6000 kr. grunnkaupshækkun, er hækkunin samkvæmt tilboði VSI 2300 kr. niður i 283 kr. eða frá 0.5% til 0.1%. Haukur Már sagði að fulltrúar i samninganefnd ASI myndu nota helgina til viðræðna við sérsam- böndin, en 14 manna nefndin myndi koma saman strax eftir helgi, og þá yrði tekin afstaða til frekari aðgerða af hálfu Alþýðu- sambandsins. -lg- gengu á fund forsætisráðherra og er frá þessu skýrt á siðu fjögur og fimm i dag. Ljósm.gel. Sjá bls. 4—5 Nýbakaður heimsmeistari, Kasparov. Kasparov vann! Garry Kasparov tryggði sér i gær heimsmeistaratitil unglinga, er hann gerði jafntefli viö Mor- ovic frá Chile i aðeins fimm leikj- um. Eðlilegt er að hann taki enga áhættu, þó flestum hafi þótt þetta fullmikið af þvi góða. Reyndar voru um það sögusagnir I Dort- mund i gær aö fylgisveinar hans hafi lagt honum þetta fyrir. Jón L. Arnason missti af mögu- leikanum til að ná i 2. sætiö, er hann varð að sætta sig við jafn- tefli með svörtu gegn Morales frá Mexico. Þegar ein umferö er eftir, en hún verður tefld á sunnudag.'er Kasparov meö 10 vinninga, en i 2.- 3. sæti eru þeir Morovic Chile og Neguleschu, Rúmeniu með 8 vinninga. Reyndar átti Short, Englandi biðskák þegar þetta var skrifað, og góða möguleika á 8,5 vinningum. Jón er með 7 vinn- inga, og vel fyrir ofan miöju. —eik— Flugleiðir Starfsmenn farskrárdeildar Flugleiða fóru sér hægt við vinnu I gær og mótmæltu með þeim hætti uppsögn deildarstjórans. Fulltrúar stéttarfélaga flugliða Blöðin hækka Frá næstu mánaðarmótum verður áskriftargjald Þjóðviljans kr. 5.500 á mánuði. Lausasöluverð kr. 280 pr. eintak, nema Sunnu- dagsblaðið á kr. 400 (óbr.) Grunnverð auglýsinga verður kr. 3.300 pr. dálkcm. Sjávarhitinn við landið um 2 C°yfír meðaltali Faxaflói fullur af marglyttum „Það er orðið svo mikið um marglyttu i sjónum um allan Faxaflóa að hann er viða eins og mjólkurlitaður. Þaö eru um 10 dagar siðan ég tók fyrst eftir þessu en það er einsog marglytt- urnar hafi komið á einni nóttu”, sagöi trillusjómaður sem leit við á ritstjórn Þjóðviljans í gær. Hann hefur lagt ýsunet út af Sviðsbrúninni með góðum ár- angri um nokkurn tlma, en eftir að sjórinn fylltist af marglyttum hefur alveg tekið fyrir veiöina enda netin full af marglyttu.'lýi. „Ég hef eiginlega átt von á þessu I allt sumar,” sagöi Ingvar Hallgrimsson fiskifræðingur að- spurður um þessa marglyttu- göngu. „Sjávarhitinn hefur verið alveg óvenjuhár i sumar eða um 2° C yfir meðaltali, og því hafa borist hingað alls kyns suðræn sjávar- dýr og svif. Marglytturnar hafa borist með straum hingað norður eftir en þeirra hefur mikið verið vart I kringum Bretlandseyjar i sumar. Þessi ganga er meö stærsta móti sem hingað hefur borist, en áður hefur borið nokkuð á þessu sumarið 1974 og ’63. Ingvar sagði að rannsóknar- skipið Dröfn væri nú við Eldey og þar væri allt krökkt af marglytt- um. „Marglytturnar timgast mjög ört, og því ekki óliklegt að sjó- mönnum finnist þetta koma á einni nóttu. Mesta ólánið við þetta er hvað marglytturnar festast mikið I netum og draga þannig úr veiði. Það má alveg búast við annari marglyttugusu ef veðrið helst svona hlýtt eins og verið hefur” sagði Ingvar að lokum. -lg- Sölustjóri Flugleiöa segir upp: Bíð ekkí eftir sparkínu — segir Ásbjörn Magnússon, sem starfað hefur við flugið i 30 ár Það er rétt. Ég sagði upp i gær og hætti á mánudag sagði Ásbjörn Magnússon, sölustjóri Flugleiða í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Ásbjörn hefur starfað við flugið frá árinu 1947 með fimm ára hléi á sjötta ára- tugnum, en þá rak hann ferðaskrifstofuna Orlof. Um ástæður uppsagnarinnar sagði Asbjörn: Ég er ekkert að biða eftir skellinum, þetta er allt að dragast saman og það liggur i loftinu aö hér verða hlutirnir end- urskipulagðir í samræmi við breytta aðstöðu fyrirtækisins á næstunni. Slikt kallar á miklu færri menn til starfa og ég álit að ég heföi ekki orðið starfsmaöur fyrirtækisins til lengdar hvort eð væri. Dagurinn sem Asbjörn sagði starfi sínu lausu var fyrsti form- legi starfsdagur nýs yfirmanns hans, en á fimmtudag tók Björn Theodórsson formega við fram- Tryggingabætur hækka um 8,7 % Allar bætur almannatrygginga, svo og tckjutrygging elli- og örorkulifeyrisþega hækka frá og með 1. scptember um 8,7% til samræmis viö liækkun kaup- gjaldsvisitölu. Þetta er i þriðja sinn sem bætur almannatrygginga hækka á ár- inu, 1. mars hækkuðu þar um 6,67% 1. júni um 11,7%, en þá hækkaði tekjutryggingin um 17,29%. Hafa bæturnar hækkað alls á árinu um 29,36% og tekju- trygging um 35,8%. Upphæöir helstu bótaflokka verða þá á mánuði frá 1. sept.: Elli- og örorkulifeyrir kr. 99.792 (hjóna: kr. 179.626), tekjutrygg- ing kr. 96.248 (hjóna kr. 162.711), barnalifeyrir 1 barns kr. 51.065 mæðralaun vegna eins barns kr. 8.754, vegna tveggja kr. 47.520 og vegna þriggja barna kr. 95.035, ekkjubætur — 6 mánaða og 8 ára slysabætur kr. 125.038, ekkju- bætur — 12 mánaða kr. 93.759, fæðingarkostnaöur kr. 50.904 og heimilisuppbót kr. 34.247. — vh kvæmdastjórn markaðssviös sem söludeild heyrir undir. Aöur gegndi Martin Pedersen þeirri stöðu en hann „hætti” ásamt Jóni Júliussyni um siðustu mánaða- mót. Asbjörn sagði að I uppsögn sinni fælust engin mótmæli gegn þessum nýja yfirmanni, ástæð- urnar væru einfaldlega þær að miklar breytingar lægju I loftinu, svo virtist sem Atlantshafsflugið yrði fellt niöur og fækkun starfs- manna væri óumflýjanleg. Ann- ars vil ég sem minnst um þetta segja, sagði hann. Um hvað viö tæki hjá sér vildi Asbjörn engu spá, hann sagðist ætla að hugsa ráð sitt. Annars er þetta engin skyndiákvörðun, það hafði svo sem hvarflað að fólki að hér gætu oröið breytingar i þessa veru, sagði hann. Asbjörn Magnússon hóf störf hjá Flugfélagi Islands 1943 en geröist siðar flugumsjónarmaður þegar rikið tók við rekstri flug- vallanna. Arið 1947 varð hann yf- irmaður fyrstu söluskrifstofu Loftleiða erlendis en hún var i Kaupmannahöfn og stjórnaði hann fyrst henni og siðan sameig- inlegri skrifstofu F1 og LL fram til ársins 1952. Þá rak hann ferða- skrifstofu sem fyrr segir en 1957 réðist hann aftur til Loftleiða og hefur verið sölustjóri Flugleiða frá sameiningu félaganna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.