Þjóðviljinn - 03.10.1980, Qupperneq 16
MOÐVIUINN
Föstudagur 3. október 1980
Aöalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná i afgreiöslu blaðsins^i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöid. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663
Kári Jónasson
Kári Jónasson um
fréttamagasínið:
Treystum
okkur ekki
viö nú-
verandi
aöstæöur
Við treystum okkur ekki til að
vinna að fréttamagasini við
núverandi aðstæður og meðan
þær breytast ekki stöndum við við
það sem við höfum sagt, sagði
Kári Jónasson, fréttamaður út-
varps, i gær, en sem kunnugt er
gerir vetrardagskrá útvarpsins
ekki ráð fyrir að framhald verði á
Viðsjárþáttunum vegna þessarar
afstöðu fréttamannanna.
Við viljum gjarnan halda uppi
fréttaþætti á borð við Viðsjá, —
það hefur verið fréttastofunni og
okkur sjálíum til góðs, ságði
Kári. Hann tók fram að allir.sem
hann hefði rætt um þessi mál við,
væru sömu skoðunar, þar með
taldir útvarpsráðsmenn, sem
gjarnan vildu að slikur þáttur
yrði á vetrardagskránni. En það
er bara ekki hægt, sagði Kári.
Fréttamenn á útvarpinu hafa
lengi kvartað undan mjög lélegri
aðstöðu og tækjaskorti. Nú vantar
pláss fyrir þrjá fréttamenn og
tæki i stúdiói eru úr sér gengin og
hálfónyt að sögn Kára. Á þessu
hvoru tveggja verður að ráða bót
til þess að þeir treysti sér til þess
að vinna að gerð fréttamagasins.
Var þeim gefinn frestur frá
fimmtudagskvöldi fram að há-
degi á föstudag til þess að gefa
endanlegt svar. Þar sem ekkert
hafði gerst i húsnæðismálunum,
var þaö hið sama og áður og
vitnað til greinargerða frá fyrra
ári og annarrar frá i vor. Kári
sagði að nú væri verið að kanna
hvort hægt væri að leysa hús-
næöisvanda fréttastofunnar
innan veggja útvarpshússins og
sagðist hann vilja vera bjartsýnn
á að það tækist.
—A!
Nýr þáttur
útvarpsins:
„A vett-
vangi”
Á þriðjudag i næstu viku
hleypur af stokkunum nýr út-
varpsþáttur, ,,Á vettvangi”, og
veröur hann á dagskrá eftir
kvöldfréttir kl. 19.35 á þriðjudags,
miðvikudags-, fimmtudags- og
föstudagskvöldum. Umsjónar-
maður þáttarins er Sigmar B.
Hauksson og aöstoðarmaður hans
er Asta Ragnheiöur Jóhannes-
dóttir.
Sigmar sagöi i samtali viö
Þjóöviljann i gær að þátturinn
Framhald á bls 13
Borgin kostar malbikun við Lóuhólana:
„Smávegis slys”
sagdi Kristján Benediktsson
„Það varð smávegis slys og
embættismennirnir sem hlut áttu
að máli hafa fúslega viðurkennt
að þeir hafi ekki gert sér grein
fyrir þvl að þetta mál hefði átt að
fara fyrir borgarráö. Reykviskir
skattgreiðendur verða þvi að taka
á sig þennan kostnað um tima þar
til kirkjulóðinni verður úthlutað
en þá ber nýjum lóðarhafa að
endurgreiöa borginni gerð þess-
ara 22ja bilastæða”, sagði
Kristján Benediktsson, formaður
borgarráðs,! borgarstjórn i gær I
tilefni af fyjrirspurnum Guðrúnar
Helgadóttur um malbikunar-
framkvæmdir við verslunarhúsið
Lóuhóla 2—6, sem skýrt hefur
verið frá I Þjóðviljanum.
Guðrún Helgadóttir óskaði eftir
svörum við þvi hver hefði upphaf-
lega átt að borga bilastæðin næst
verslunarhiisinu Suöurhólameg-
in, hver kostnaðurinn væri og
hver myndi nú borga malbikun
stæðanna.
Einnig hreyfði hún þeirri hug-
mynd að láta nú við sitja og fara
ekki i frekari framkvæmdir
þama en þegar er orðið. 1 svari
öddu Báru Sigfúsdóttur, for-
manns framkvæmdaráös.kom
fram að tveir embættismenn
Framhald á bls 13
VemiKiar
á nýju krónunni
Bæklingur á hvern bæ
Geymið á vísum stað
Þessa dagana er verið að senda inn á hvert
heimili í landinu upplýsingabækling sem Seðla-
bankinn hefur látið gera um gjaldmiðilsbreyt-
inguna.
Bæklingur þessi, sem er hinn aðgengilegasti,
leitast við að svara skilmerkilega öllum þeim
spurningum sem brýnt er að allir kunni svör við
þegar nýja krónan tekur gildi 1. janúar næst-
komandi.
Mlmið að hafa bæklinginn góða alltaf á
vísum stað þar sem allir geta gengið að honum
eftir þörfum. Oll þurfum við að vera klár á nýju
krónunni þegar hún tekur gildi. Ekki satt?
Bæklingur á ensku og dönsku
Bæklingur í enskri og danskri útgáfu verður
fáanlegur fyrir þá sem þess óska.
Nauðsynleg lesning
-því fyrr, því betra
Hér gefst því kjörið tækifæri fyrir alla lands-
menn, fjölskyldur sem einstaklinga, að kynna sér
efni bæklingsins til hlítar í góðu tómi heima við
og endurlesa eftir því sem nær dregur breyting-
unni. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Ýtarlegri bæklingur
fyrir fyrirtæki
Ýtarlegri bæklingur sem miðaður er sérstak-
lega við þarfir fyrirtækja og stofnana er einnig
til reiðu og fæst gegn pöntun í bönkum og spari-
sjóðum.
minni upphæðir-meira veiðgildi