Þjóðviljinn - 07.10.1980, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 7. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Kjörtímabil vinstri meirihlutans hálfnad:
Gunnar H. Gunnarsson, Guðrún Agústsdóttir, Siguröur Harðar>
son, Sigurður G. Tómasson, Guðrún Haligrimsdóttir og Ólafur R.
Grfmsson.
Siguröur G. Tómasson, Ólafur R. Grimsson, Kristvin Krist
insson, Ingóifur H. Ingólfsson, Hörður Bergmann, Guðmundur
Þ. Jónsson, Hrafn Magnússon og Kristin Guðbjörnsdóttir.
Hvað hefur áunnist og
hvað er framundan
voru umræðuefnin á ráð-
stefnu ABR um borgarmál
Adda Bára Sigfúsdóttir, Sigurjón Pétursson, Kristján Valdimars-
son, Arthúr Morthens, Guðrún Heigadóttir og Þórunn Klemens-
dóttir.
A þessu ári verða teknar í
notkun fjórar nýjar dagvistar-
stofnanir i Reykjavik og opnaö
hefur verið nýtt skóladagheimili
i Austurbæjarskóla, sem rekiö
er meö nýju sniði i nánum
tcngslum við skólann. t fyrsta
sinn hafa sérfróðir menn gert
könnun og tillögur um innra
skipuiag dagvistarstofnana og
liggur álit þeirrar nefndar nú
fyrir félagsmálaráði borgar-
innar. Nefnd sem vinnur aö til-
lögum um framtíöaruppbygg-
ingu dagvistarstofnana i borg-
inni er að skila af sér störfum og
dagmömmukerfið hefur veriö
sameinað dagvistarþjónustu
borgarinnar.
Þetta eru m.a. þeir áfangar
sem staldrað var viö á ráðstefnu
Alþýðubandalagsins i Reykja-
vik um siðustu helgken þá sátu
borgarfulltrúar, borgarmálaráð
félagsins, þingmenn og stjórn
ásamt fulltrúum ABR i nefnd-
um á vegum borgarinnar á rök-
stólum. Var rætt um hvað áunn-
ist hefur það sem af er kjör-
timabilinu og horft fram á við
með stefnumörkun til langs
tima og næsta mánaða i huga.
I upphafi ráðstefnunnar gaf
Sigurjón Pétursson, forseti
borgarstjórnar yfiriit yfir þá
þætti sem hann taldi hafa áunn-
ist frá þvi núverandi meirihluti
vinstri manna 1 borgarstjórn
Reykjavikur var myndaður i
byrjun júni 1978. Tók hann til
a dæmis um ávinninga bætta
| stöðu i atvinnumálum borgar-
innar, tvo nýja togara til Bæjar-
útgerðarinnar og ákvarðanir
um frekari uppbyggingu fyrir-
tækisins sem i fyrsta sinn
skilaði hagnaði á siðasta ári. bá
vék Sigurjón að breyttum
bæjarbrag i Reykjavík fjörugra
götulifi og uppákomu sem
borgarstjórn hefur stuðlað að
með ýmsum hætti. bá minnti
hann á nýjar og sanngjarnar
reglur um lóðaúthlutun,
ákvörðun um að veita lista-
mönnum starfslaun á vegum
borgarinnar, rekstur tveggja
bifreiða fyrir fatlaða og upp-
byggingu B-álmu Borgarspital-
ans auk fjölda annarra áfanga.
Sigurjón fjallaði einnig um
fjárhagsstööu borgarinnar eftir
viðskilnað ihaldsins, hvað áunn-
ist hefði i bættri fjármálastefnu
og horfurnar i fjármáum
borgarinnar á næstu árum.
Adda Bára Sigfúsdóttir.
borgarfulltrúi, ræddi þessu næst
um vinnubrögö og starfshætti
félagsins að borgarmálum, en
borgarmálaráð hefur haldiö
meira en vikulega fundi frá
myndun meirihlutans. Hún
fjallaði einnig um hvernig
tengslum við borgarbúa og
starfsmenn borgarinnar er
háttað og sagöi brýnt að halda
opna fundi með borgarbúum i
hinum ýmsu hverfum til þess að
kynna störf borgarstjórnar og
kynnast viðhorfum borgarbúa
til þeirra beint. Þá vék hún
einnig aö stjórnkerfi borgar-
innar en borgarstjórn sam-
þykkti s.l. fimmtudag tillögu
um að þau yrði endurskoðað.
Eftir tölur þeirra Sigurjóns og
Oddu uröu miklar umræður en á
siðara hluta ráöstefnunar var
einkum fjallað um hvaö leggja
beri áherslu á i starfi Alþýðu-
bandalagsins að borgarmálum
þaö sem eftir lifir kjörtimabils-
ins. Sigurður Ilarðarson for-
maður skipulagsnefndar gerði
grein fyrir þvi sem framundan
er I störfum nefndarinnar og
Borgarskipulagsins, rakti
helstu ákvaröanir sem þegar
hafa verið teknar i þeim efnum,
fjallaði um lóðaúthlutanir og
breytt viðhorf i byggðaþróun
vegna orkukreppu. Guðrún
Agústsdóttir formaöur stjórnar
SVR fjallaöi um málefni
strætisvagnanna og Alfheiður
Ingadóttirformaður umhverfis-
málaráðs gerði grein fyrir þeim
verkefnum sem þar eru fram-
undan.
Guðrún Heigadóttir, borgar-
fulltrúi fjallaði þessu næst um
starfið fram að næstu kosning-
um og hvaö leggja bæri áherslu
á. Þórunn Klemensdóttir kynnti
tillögur stjórnar ABR i þeim
efnum og aö tölum þeirra lokn-
um stóðu umræður i nokkra
tima. Voru þær hinar fjörugustu
og verða niðurstöður fundarins
til nánari umfjöllunar i borgar-
málaráði félagsins og á félags-
fundum á næstunni.
— Ai
L eigjendasam tökin
um leiguhækkun
á stúdentagöröunum:
Níðings-
skapur af
stjórn F.S.
Stjórn Félagsstofnunar
stúdenta hefur ákveðið að hskka
leigu á stúdentagörðunum úr 18
þús. krónum 145 þúsund á mánuði
fyrir einstakiinga og á hjónagörö-
unum úr 42 þús. kr. á mánuði I 70
þúsund.
Eins og fram kom i Þjóðviljan-
um mótmæltu Garðbúar fyrir-
hugaðri hækkun, en hún var siðan
ákveðin fyrir helgina og hafa
Leigjendasamtökin nú sent frá
sér eftirfarandi ályktun af þessu
tilefni:
„Flestum er kunnugt hvernig
hið opinbera hefur alla tið hunsaö
þjóðfélagshóp þann sem kýs aö
leigja sér húsnæði. Þaö er mjög
vitavert af hálfu rikisvaldsins að
hafa ekki leyst úr þörfum þessa
hóps svo viðunandi sé. Nú er svo
komið, að ástandið á leigumark-
aðnum er vægast sagt mjög al-
varlegt og húsaleiga rýkur upp úr
öllu valdi.
Ljigjendasamtökin telja það
niðingsskap af hálfu stjórnar
Félagsstofnunar stúdenta að
hækka leiguna á stúdentagörðum
og hjónagörðum langt umfram
það sem löglegt geti talist. tbúar
garðanna eru i flestum tilfellum
komnir utan af landi og eiga þvi
erfitt um vik. Leigjendasamtökin
telja það slæmt fordæmi af hálfu
Félagsstofnunar stúdenta að
hækka leiguverð i skjóli mikillar
um fra mef tirspurnar eftir
leiguhúsnæði og að það standi
námsmannahreyfingunni nær að
sýna samstöðu með leigjendum i
baráttunni gegn ófremdarástand-
inu sem nú rikir.”
Nýtt leikrit
eftir Erlend
Jónsson komið út
Ot er komið leikritiö Heildsal-
inn, fulltrúinn og kvenmaðurinn
eftir Erlend Jónsson. Það var
flutt i Rikisútvarpinu á siðast-
liðnu ári, nokkuö stytt, en er nú
prentað sem næst upphaflegri
lengd. Persónur eru þrjár:
heildsali i Reykjavik og fulltrúi
hans, sem eru að koma frá
laxveiðum uppi i Borgarfirði, og
kona að norðan sem er stödd á
sömu slóðum og slæst i för með
þeim.
Þetta er sjötta bók Erlends
Jónssonar, en hann hefur meðal
annars sent frá sér þrjár
ljóðabækur. Leikritiö er gefið
útá kostnað höfundar en Litbrá
offsetprentaði.
í fínnskum ævintýraheimi
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
barnaleikrit í skólum borgarinnar
Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir i dag barna-
leikritið „Hlynur og
svanurinn á Heljarfljóti".
Höfundur er finnsk kona
Christina Andersson að
nafni og var verkið
frumsýnt í Finnlandi í
fyrra.
Leikritið er byggt á finnsku
ævintýri, en þar koma viö sögu
persónur og atburðir sem allir
þekkja úr heimi ævintýranna.
Hlynur er strákur sem fæðist út
úr tré og elst upp meðal dýra
skógarins. Hann leggur af stað út
I heiminn og þar fær hann aö
kynnast ástinni og illskunni,
ævintýrum og raunum. Hann
verður ástfanginn, en skinnasali
nokkur sem vill hann feigan
reynir að gera allt hvað hann
getur til að koma i veg fyrir aö
hann fái stúlkuna sina. Hlynur
verður aö leysa af hendi ýmsar
þrautir, þar á meöal að ná fjööur
af svaninum sem syndir á Heljar-
fljóti.
Leikritið er spennandi og fullt
af leyndardómum, að sögn þeirra
leikfélagsmanna, þar er fjallað
um lifið og dauðann á einfaldan
og fallegan hátt, en þaö gerist lika
margt spaugilegt.
Sviðiö er finnskur birkiskógur
og þar eru vetrarrisi, krákur,
höggormur og fleiri dýr á
ferðinni. Leikritið tekur 45
minútur I flutningi og það veröur
Krákurnar finna Hlyn I skóginum og ákvcða aft koma honum til
hjálpar. Valgerður Dan og Guðrún Asmundsdóttir leika krákurnar og
Kristján Viggóssson er I hlutverki Hlyns.
eingöngu sýnt i skólum borgar-
innar.
Það er Stefán Baldursson sem
þýðir verkið, lýsingu annast
Daniel Williamsson, tónlist er
eftir Toni Edelman og Sigurö
Rúnar Jónsson sem einnig æfði
söngatriði og leikhljóð, en
leikstjóri er Eyvindur Erlends-
son. Leikmynd og búninga gerir
Olaf Kangas, en umgjörö verks-
ins sem hann gerði fyrir frumsýn-
inguna úti i Finnlandi vakti mikla
athygli. 1 hlutverki Hlyns er
Kristján Viggósson, sem leikur
nú i fyrsta sinn hér á landi, en
hann er nýútskrifaður leikari frá
London. Tinna Gunnlaugsdóttir
leikur stúlkuna Mariu, Jón
Hjartarson er i hlutverki skinna-
salans og þær Guðrún Asmunds-
dóttir og Valgerður Dan bregöa
sér I ýmis gervii
Frumsýning veröur I Hóla-
brekkuskóla kl. 3 i dag og önnur
sýning verður á sama stað kl.
16.30. Leikritiö er einkum ætlað
börnum á aldrinum 7—12 ára, en
eflaust hafa allir þeir sem unna
ævintýrum gaman af og ekkert
mælir gegn þvi aö foreldrar komi
með börnum sinum og hverfi um
stund inn i ævintýraheima
finnskra birkiskóga.