Þjóðviljinn - 07.10.1980, Side 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJIÍTO Þriöjudagur 7. október 1980
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýds-,
hreyfingar og þjódfrelsis
Otgefandi: Útgáfufélag þjóBviljans
Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann
Riutjórar: Ami Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan Olafsson
• Auglýsingastjórl: Þorgeir ölafsson.
Umsjónarmaður sunnudagsblaös: Guöjón Friöriksson
Rekstrarstjóri: úlfar Þormóösson
AfflrelBslustlóri: Valbór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Ingibjörg
Haraldsdóttir, Kristin Astgeirsdótt'r. Mágnús H. Gfslason, Sigurdór
Sigurdórssor..
Þingfréttir: porsteinn Magnússon.
iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elísson
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Sigriöur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa :Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Kristln Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardóttir
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir.
Húsmóöir: Anna Kristin Sverrisdóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
^ 'útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Kitstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumilla 6, Reykjavfk, slmi 8 13 33.
) Prentun: Blaöaþrent hf.
Höggva verður á hnútinn
• ( dag kemur 43ja manna aðalsamninganefnd
Alþýðusambandsins saman til fundar eftir nokkurt hlé.
Á þessum fundi bíður nefndarmanna mikilvæg
ákvarðanataka. I löngum og erfiðum kjarasamningum
hafa verkalýðsfélögin allttil þessa lagt sig fram um að
ná fram hóf legum kjarabótum með friðsamlegum hætti
og forðast verkfallsátök. Hér hef ur ekki verið farið með
friði vegna þess að menn hafi viljað hlífa ríkisstjórn
landsins eins og stundum sést haldið f ram í Morgunblað-
inu, — heldur af þeirri einföldu ástæðu að verkföll eru
ekki gamanmál fyrir það fólk, sem þau þurfa að heyja,
og því ekki gripið til verkfallsvopnsins fyrr en aðrar
leiðir eru fullreyndar.
• Nú virðist hins vegar f ullljóst að samningamenn at-
vinnurekenda ætli ekki að neita aðeins einu sinni eða
tvisvar öllum friðsamlegum leiðum til lausnar
kjaradeilunni, heldur ætli þeir að hafna þverlega öllum
friðsamlegum lausnum, hvort sem neiin þurfa að verða
þúsund eða tíu þúsund. Þetta er pólitísk forherðing leift-
ursóknarmannanna í Sjálfstæðisflokknum.
• Við þessar aðstæður á verkalýðshreyfingin enga
aðra leið en þá að grípa fil verkfallsvopnsins í einni eða
annarri mynd, nema hún kjósi fremur að leita samvinnu
við ríkisstjórn og Alþingi um lausn deilunnar með laga-
setningu. __k
klippi
Ritstjóraraunir
IEllert Schram, ritstjóri Visis,
fórtil Tyrklands meö landsliöi i
knattspyrnu á dögunum. Eins
Iogmönnum er kunnugt hafa þau
tlöindi oröiö í þvi landi, aö
herinn hefur tekiö öll völd i
sinar hendur, afnumiö pólitik-
ina og þingræöiö meö þaö fyrir
dauöarefsingum, sem borgara-
legar stjórnir höföu heykst á.”
Til hvers valdarán
Þaö er óvart nokkuö hittin
setning sem Ellert Schram
dettur niöur á I lok þessarar lýs-
ingar: herinn var ,,aö
framfylgja dauöadómum sem
borgaralegar stjórnir höföu
heykst á.” Þaö er nefnilega
engu likara en valdarániö hafi
Þegar fyrir valdarániö bárust —
m.a. til Amnesty International
— hinar skelfilegustu skýrslur
um pyntingar og aöra svfviröu
sem pólitiskir fangar i þessu
bræörariki okkar I Nato voru
beittir. Völd hersins eru ekki
sist til þess ætluö, aö hægt sé aö
ganga á milli bols og höfuös á
þeim róttæku án þess aö þaö
heyrist of viöa. Sá sem trúir þvi,
aö Jullt frelsi riki hjá fjölmiöl-
um” i Tyrklandi nú er
barnalegri en tárum taki.
TYRKLANDSREISA
LANDSLIÐSINS
t'tti tr rkkt heiglum hent aö velja landsltö f knattspvrnu len«<
1 Annarhvor ietkmaöur sem tíl grrtna krntur íeikn'
| (ptirum töndum. IsIandsmrislararMtr t***'*—
shiarlandarrixu og gefi ekk» k'
i stundu hvort
Iþein
M(l
rnaV
Pistiii
11 Tyr
glaöi!
stöftu
Að þekkja sín takmörk
• Fátt er hverjum einstaklingi nauðsynlegra en að
þekkja sín eigin takmörk. Ritstjóri Alþýðublaðsins fellur
í þá gryf ju í blaði sínu nú um helgina að fara að segja
mönnum til við val á næsta forseta Alþýðusambands ls-
lands. Enginn hafði þó spurt umræddan ritstjóra álits á
þessu máli og satt að segja var ekki með honum reiknað
sem dómara á vettvangi komandi Alþýðusam-
bandsþings.
• Hvort sem mönnum líkar betur eða verr, þá er sú tfð
liðin, að stjórnmálaf lokkarnir eða dagblöðin geti skipað
málum að vild sinni innan verkalýðshreyfingarinnar.
Hún stendur á sínum eigin fótum. I næsta mánuði koma
saman á Alþýðusambandsþingi nokkur hundruð kjörnir
f ulltrúar verkafólks. Þeirra bíða mörg verkefni, ma. að
vel ja Alþýðusambandinu forystu til næstu f jögurra ára.
Best fer á því að dagblöðin og stjórnmálaflokkarnir láti
fulltrúa á Alþýðusambandsþingi í friði við þetta verk-
efni og á það jafnt við um Alþýðublaðið sem Þjóðviljann,
eða Morgunblaðið. Sú var tíðin fyrir nokkrum áratugum
að hér var enginn maður kjörgengur til trúnaðarstarfa I
verkalýðshreyfingunni, nema hann væri f lokksbundinn í
Alþýðuflokknum. Fáir vilja víst nú endurvekja það
kerfi. Hér teljum við okkur hafa frjáls og óháð verka-
lýðsfélög, líkt og verið er að reyna að koma á fót í Pól-
landi um þessar mundir. Þess vegna á það hvorki að
vera í verkahring ritstjóra málgagns íslenska Alþýðu-
flokksins né ritstjóra málgagns „Sameinaða pólska
verkamannaflokksins" að skipa forystumálum slíkra
félaga.
• Ritstjóri Alþýðublaðsins segir, að Alþýðusambands-
þing hafi hafnað forystu Alþýðubandalagsins síðustu 30
árin. Merkileg kenning það. Við vitum nefnilega ekki
betur en í þau 24 ár, sem Alþýðubandalagið hef ur starf-
að, þá hafi formaður þess jafnframt verið forseti
Alþýðusambandsins í 12 ár, eða f ullan helming af starfs-
tíma Alþýðubandalagsins! Og við erum jafnvel ekki
grunlaus um að sérstakar ástæður séu fyrir því að rit-
stjóri Alþýðublaðsins ætti síst að gleyma þeim manni
sem í 12 ár var hvort tveggja í senn formaður Alþýðu-
bandalagsins og forseti Alþýðusambandsíns.
• Hitt er svo annað mál, að skoðað með nútíma augum,
þá getur það síður en svo talist til f yrirmyndar að einn og
sami maður sé formaður í stjórnmálaflokki og forseti
Alþýðusambandsins í senn. Slíkt köllum við valdaeinok-
un, hvort sem í hlut á Alþýðubandalagið, Sjálfstæðis-
flokkurinn eða vesalings Alþýðuflokkurinn.
• Við skulum vona að lýðræðislega kjörnum f ulltrúum
á komandi Alþýðusambandsþingi gangi þolanlega að
finna hinn „sanna verkamann" til að skipa forsæti í
Alþýðusambandinu.
• Að gefnu tilefni minnum við á að f logið hef ur fyrir
að þrfr þingmenn Alþýðuflokksins telji sjálfa sig for-
setaefni í Alþýðusambandinu og bítist um að verða í
kjöri. Einhvern veginn f innstokkur samtólíklegt að hinn
„sanna verkamann" sé að finna innan raða þingflokks
Alþýðúflokksins. —k.
Iaugum aö bjarga lýöræöinu,
eins og þaö heitir á máli hins
sorglega tyrkneska absúrd-
leikhúss. Ellert B. Schram
hefur einnig tekiö eftir bessu.
þótt hann hafi öðrum boltum að
sparka, og hann er ekki alveg
nógu hress meö þetta. Hann vill
helst trúa gestgjöfum sinum,
sem segja aö þetta valdarán
hersins sé alveg ágætt, en samt
er honum ekki alveg rótt. Hann
segir sem svo:
„Vist virtust Tyrkir taka þvi
vel aö herinn beitti valdi sinu.
Og óneitanlega sýndist ró og
öryggi svlfa yfir vötnunum þá
daga sem viö dvöldum meöal
tyrkneskra.
En þaö er erfitt fyrir
lýöræöissinna aö viöurkenna þá
staðreyndaö betra sé að stjórna
meö vopnum frekar en
lýöræöislegum leikreglum. Þaö
var óhugnanlegt aö horfa
framan I byssustingi á
götuhornum og vanmátt sigr-
aörar þjóöar til aö koma skikk á
landsmál. Eru ekki Tyrkir þátt-
takendur i bandalagi vestrænna
þjóöa til aö standa vörö um
frelsi og lýöræöi?
IOkkur var tjáö aö fullt frelsi
rikti hjá fjölmiðlum og ekki
væri skert hár á höföi nokkurs
manns. En stjórnmálastarfsemi
er skorin niöur viö trog,
útgöngubann rikir á nóttinni.og
herforingjastjórnin er önnum
kafin viö aö framfylgja þeim
veriögert i tvennu skyni. 1 fyrra
lagi til aö fylgja eftir þeim
hegöunarreglum sem alþjóöleg-
ar peningastofnanir höföu sett
Tyrkjum I efnahagsmálum
(þeir áttu að „hreinsa til” i
anda markaöshyggju) — en hin
hægrisinnaöa stjórn sem viö
völd sat gat ekki framfýlgt.
Þessari efnahagsstefnu veröur
nú fylgt eftir meö hervaldi, rétt
eins og Friedmanisminn var
leiddur til öndvegis i Chile eftir
valdarán fasista.
Þessi „leiftursókn” mun
a.m.k. fyrst i staö leiöa til þess,
aö hinir fátæku veröi fátækari
og hinum atvinnulausu fjölgar
enn — hvorutveggja er efni I enn
meiri pólitiska ólgu en til þess
hefur rikt. Einnig þess vegna
veröur aö afnema þaö sem eftir
var af málfrelsi og samtaka-
frelsi i Tyrklandi. Herinn mun
óspart láta þaö uppi, aö hann
muni vinna ,,gegn öfgaöflum til
hægri og vinstri” eins og þaö
heitir i fréttaklisjunum. 1 raun
mun rikja þegjandi samkomu-
lag milli fasiskra hópa eins og
„Gráu Ulfanna” og svo hers og
lögreglu um aö þessir aöilar láti
hvor annan i friöi. Hernum
mun, eins og dæmi sýna nú
þegar, fyrst og fremst ætlaö aö
handtaka og drepa vinstrisinna.
„Ómerkilegt
af mér”
Semsagt, Ellert Schram list
ekki alveg nógu vel á lýðræöiö
hjá sessunautum okkar I frels-
inu, Tyrkjum. Honum list
heldur ekki á miklar andstæöur
vesældar og örbirgðar. En það
er um leiö eins og hann
skammist sin fýrir aö paufast
meö svo ljóta þanka i friösælu
Islensku hugskoti sinu. Ellert
Schram segir:
„Þaö er aö sönnu ómaklegt af
mér aö draga upp ömurlega
mynd af Tyrklandi. Til þess var
of vel tekiö á móti okkur og of
margt stórkostlegt aö sjá.”
Þetta er stórkostlegri setning
en svo, aö hún þurfi athuga-
semda viö. Nema hvað þaö væri
gaman aö heyra gauraganginn I
þeim á Visi og hjá frændum
þeirra á Morgunblaöi ef
einhverjum blaöamanni, eöa þá
ritstjóra, dytti I hug aö hafa yfir
svona formúla eftir heimsókn i
eitthvert land sem væri austan
viö guös eigiö Atlantshafs-
bandalag.
áb.
og skorið
Afríkusöfnun Rauða
krossins er að byrja
Afrikuhjálp Rauöakrossins hef-
ur um nokkurt skeiö veriö i undir-
búningi og nú I þessari viku hefst
söfnunin formlega. Þetta gerist
helst:
Þaö styttist nú óöum þar til
söfnunin hefst formlega. Undir-
búningur hefur staöiö siöasta
mánuö og stendur enn aö sjálf-
sögöu, en til glöggvunar þetta:
8. októbcr klukkan 16:15 i
Norræna húsinu: Afrikuhjálpinni
formlega hrundiö af staö. Forseti
Islands veröur viöstaddur.
11. október kl. 14—24 aö
Kjarvalsstööum: Hungurvaka
haldin i samvinnu viö Landssam-
tök um umhverfismál, Lif og
land, sem hafa annast undirbún-
ingaö mestu leyti. Þar veröa flutt
stutt erindi, og einnig veröur
boöið uppá skemmtiatriöi, uppá-
komur og sýningar allan daginn
frá kl. tvö til miönættis.
18. október kl. 10—16 veröur
gengiö I hús. Þennan dag, og
aöeins þennan eina dag, veröur
gengiö I hús á vegum Afriku-
hjálpar Rauöa Krossins til þess
aö safna fé. Þeir sem safna veröa
auökenndir sérstaklega, og
veröur nákvæmlega skýrt frá til-
högun þegar aö því kemur.
Enda^þótt söfnunin sé ekki
formlega hafin, þá streyma
framlög inná giróreikning
Afrlkuhjálparinnar, sem opnaður
var fyrir nokkrum dögum, og
margir hafa komiö á skrifstofu
Rauöa Kross Islands aö Nóatúni
21 Reykjavik og til Reykjavikur-
deildarinnar á Oldugötu 4 meö
peninga. A fimmtudaginn var
voru komnar 6,6 milljónir.
Númeriö á giróreikningnum er
120200.