Þjóðviljinn - 07.10.1980, Qupperneq 5
Þriðjudagur 7. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Fréttaskýring
Stjómaijlokkaniir sigruðu í Vestur-Þýskalandi:
Leiftursókn hins sterka
manns hafnað
Svo fór sem spáð hafði verið: Þingkosningarnar i
Vestur-Þýskalandi leiddu ekki til stórfelldra breyt-
inga. Samsteypustjórn sósialdemókrata og frjálsra
demókrata mun sitja áfram undir forystu Helmuts
Schmidts. Stjórnarandstaðan, hið kristilega hægri-
sinnaða tviflokkabandalag CDU, CSU, tapaði all-
miklu fylgi og hefur ekki notið jafn litillar hylli og
nú, síðan 1949.
Sósialdemókratar fengu nú
tæp 43% atkvæða, bættu ögn við
sig og fjórum þingsætum — hafa
nú 218. Samstarfsflokkur þeirra,
frjálslyndir, sem lúta forystu
Genschers utanrikisráðherra,
bættu mestu við sig, fór sá flokkur
úr 7,9% atkvæða i 10,9% og bætir
við sig 14 þingsætum, fær 53.
Kristilegu hægriflokkarnir fá alls
44,5% atkvæða, tapa 4,1% og
þrettán þingsætum, fá 226. Sam-
kvæmt þessu hafa ýmsir smá-
flokkar fengið samtals 2% at-
kvæða, og má gera ráð fyrir þvi
að obbinn af þeim hafi farið til
Græningjanna, umhverfis-
verndarflokksins. Flokkur þarf
að fá fimm prósent til að komast
á þing i Vestur-Þýskalandi.
Það sem gerst hefur er i stórum
dráttum það, að hluti kjósenda
kristilega flokksins hefur ílutt sig
um set og yfir á miðju þýskra
stjórnmála til að láta i ljósi óá-
nægju sina með málflutning og
stefnu kanslaraefnis hægra
bandalagsins Franz-Josefs
Strauss. Ósigur Strauss er mjög
ótviræður: Hann tapar, enda þótt
hann eigi i höggi við stjórn sem
hefur setið alllengi og þurft að
glima við vaxandi efnahagslega
örðugleika eins og svo margar
stjórnir aðrar: 1 þvi andrúmslofti
reynist einatt auðveit að laða til
sin ef ekki nýja stuðningsmenn þá
a.m.k. óánægju þeirra sem vilja
„refsa” stjórninni með einhverj-
um hætti. Þetta tekst Strauss alls
ekki. Meira en svo: Hann fælir
fólk frá sér i stórum stO.
Hart deilt um tollfrelsi á ferjum:
Standa samgöngur eða
falla á ódýra brenni-
víninu á milli hafna?
Skattanefpd sænska þingsins
hefur hleypt miklum skrekk i ilt-
geröarfyrirtæki. Hún hefur beint
sinu kastljósi að brennivinsferð-
unum svonefndu: stuttum ferð-
um, einatt til Alandseyja, sem
eru ekki tii annars farnar en að
drekka um borð og koma með
skammt af ótolluðu áfengi og
tóbaki, sem seit er um borö — og
smygla einhverju i viðbót, ef hægt
er.
Nefndin telur sig m.a. hafa
komist að þvi að einatt séu regl-
ur brotnar i sambandi við
slikar ferðir — t.d. eiga menn að
hafa haft næturgistingu á Alands-
eyjum (sem tilheyra Finnlandi)
til að geta haft með sér frihafnar-
áfengi á leiðinni til baka, en einatt
er farið i kringum þetta. Nefndin
tekur i skýrslu sinni dæmi af einni
einustu ferju, sem hafi á einu ári
tekið um borð 196 þúsundir litra
af sterkum drykkjum, 107 þús.
litra af vini og 33 miljónir af
sigarettum. Gert er ráð fyrir, að
af þessu magni hafi verið
smyglaöinnmagni sem svarartil
þess að sænska rikiö hafi tapað
fjórum miljörðum islenskra
króna i tolltekjur og vel það.
Mikið fé er i húfi.
Hér er um mikla sölu að ræða
ogmikla hagsmuni. 1 fyrra voru á
ferjuleiöum milli Norðurlanda-
hafna seldar um sjö miljónir litra.
af sterum drykkjum og þaö er um
helmingsaukning á fimm árúm.
Um helmingur þessara viöskipta
fer fram á ferjum sem ganga á
milli Finnlands og Svlþjóðar.
Þegar umferð er sem mest súpa
mennásænskum ferjum þriðjung
af öllu þvi vini sem Uthellt er á
öllum vertshUsum I landi.
Margt likt með skyldum
Að einhverju leyti minnir
ósigur Strauss á þau vonbrigði
sem Sjálfstæðisflokkurinn varð
fyrir með sina leiftursókn i
kosningunum i fyrra. Strauss var
mjög herskár og illskeyttur i mál-
flutningi eins og nýfrjálshyggju-
menn svonefndir og harðir Nató-
vinir hér heima eru einnig að
reyna að manna sig til að vera.
Strauss finnst samstjórn hins
stóra verkalýðsflokks og frjáls-
lyndra alltof lin og auðsveip
Rússum: Ýmsa helstu forystu-
menn sósialdemókrata kallaði
hann jafnan „Moskvuklikuna” i
málflutningi sinum. Strauss þótti
aldrei nóg vigbúist, eldflauga-
skógurinn i Evrópu miðri hvergi
nógu þéttur. Strauss var gall-
harður kjarnorkupostuli og hædd-
ist mjög að Schmidt kanslara
fyrir að hann væri svo aumur að
taka tillit til „óraunsæis og yfir-
gangs” vinstrisinna og um-
hverfisvina i sinum flokki.
Franz-Josef Strauss: Hann talaði
mál sem hljómar furöu kunnug-
lega i eyrum — enda var honum
hafnaö.
Strauss reyndi eftir föngum að
stimpla sem úrhrök og glæpa-
menn róttækt æskufólk af ýmsu
tagi, hann blés og eftir föngum i
móðursýkiseld gegn „sósíalisk-
um ofstækiskennurum sem mis-
nota börn vor i hugmyndafræði-
legum tilraunum”.
Með öðrum orðum: það má
hæglega finna hliðstæður milli
boðskapar Strauss og háværustu
fylgismanna hans og svo ung-
tyrkja Sjálfstæðisflokksins hér
heima, einkum þegar þeir fallast
i faðma við þann menningar-
fjandskapsem á sérsamnefnara i
Svarthöfða Visis. „Þýskir kjós-
endur kunna að álykta sem svo að
þeir þurfi einmitt á slikum manni
að halda til að halda öfgamönnum
til hægri og vinstri i skefjum”
segir Björn Bjarnason i frétta-
skýringu i Morgunblaðinu daginn
fyrir kosningar. Þýskir kjósendur
svöruðu þeirri málaleitan neit-
andi fyrir sinn hatt. Þeir voru
ekki i neinum vinstriham, en þeir
höfnuðu þeirri hægrisveiflu sem
nú um hrið hefur farið eyðandi
eldi um Bretland undir stjórn
Margaret Thatchers — og nú um
helgina náði nokkrum árangri i
snauðu Suður-Evrópulandi,
Portúgal. — áb.
Kannski tapa Sviar 60—70
miljörðum króna eða sem þvi
svarar i tolltekjum á ári vegna
þess arna — er slikur reikningur
þóvarasamur að þvi leyti,að
ekki er víst að menn
drekki jafnmikið á fullu verði i
landi og þeir drekka á sérstökum
brennivinsreisum milli Norður-
landabafna.
Við ramman reip að
draga
En þeir sem vilja breyta ein-
hverju i þessu efni eiga við
rammanreip aödraga ; útgerðar-
fyrirtækin, ferðaskrifstofur, gott
ef ekki áhugamenn um norrænar
kynnisferðir eru allir mjög
smeykir við aðsprúttireisur verði
niður skornar. Þeir segja að það
þurfi að leggja ferjum, atvinnu-
leysi muni aukast, samgöngur
versna.
Skattanefndirnar spyrja á
móti: af hverju á rikið að gefa út-
gerðarfélögum frjálsar hendur i
þessum efnum? Þau geta tekið
um borö t.d. brennivfnsflöskuna á
ca 1000 krónur — og selt hana svo
á því veröi sem þeim sýnist, og
vitanlega á hærra veröi en „fri-
hafnarveröi” á börum skipanna.
Hvers vegna á útgerðin ekki að
standa undir sinum kostnaði
sjálf? Hvers vegna eiga Alands-
eyjar að lifa á brennivínsferðum
Svia? Þvi ekki Gotland —- eða
Jamtaland?
Málið er 1 athugun. Þegar fyrir
meira en tuttugu árum komst
norræn þingnefnd aö þvi, að
ferðalög milli Norðurlanda ættu
að jafngilda feröalögum innan--
lands. En þaö hafa menn ekki
árætt að standa við i verki.
(ByggtáDN)
á fullri ferd..
á framfidarstadinn
Ármúla 40
sími 83833
Þar opnum við í dag verslun okkar í nýjum
húsakynnum, þar sem aðstaða öll og innrétt-
ingar er mun hagstæðari en á gamla
staðnum.
Við bjóðum hreinlætistæki í okkar viður-
kenndu merkjum, Ideal Standard og Royal
Sphinx, auk alls annars í baðherbergið. Hjá
okkur fást þéttiefni svo og allt til pípulagna.
Verið velkomin að líta á nýja staðinn og
þær vörur sem við höfum á boðstólum.
J. ÞORLAKSSON OC NORÐMANN H.F
Ármúla 40 — sími 83833