Þjóðviljinn - 07.10.1980, Qupperneq 7
Þriðjudagur 7. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Kennslustund i Seljaskóla
Grunnskólar Reykjavíkur:
50% nemenda í Árbæ
og Breiöholtshverfí
30. sept. sl. héidu Fræðsluráð
Keykjavíkur og fræðsiustjóri
blaðamannafund i Seijaskóla i
Breiðholti i tilefni af þvi að skóla-
starf er hafið og byggingu I.
áfanga Seljaskóla lokið.
Viðstaddir voru m.a. Egill Skúli
Ingibergsson borgarstjóri
Kristján J. Gunnarsson fræðslu-
stjóri, Kristján Benediktsson
form. Fræðsluráös, Indriði
Þorláksson form. byggingar-
nefndar Seljaskóla og Hjalti
Jónasson skólastjóri.
I ræðu Kristjáns J. Gunnars-
sonar kom fram að miðað við
áætlanir verður nemendafjöldi i
grunnskólum ReykjavíkUr á
skólaárinu 1980—81 samtals um
11.600 og er það um 180
nemendum færra en á sl. skóla-
ári. Fólksflutningar innan
borgarhverfa halda áfram og er
nú svo komið að um 43% grunn-
skólanemenda i borginni eru
búsettir i Breiðholtshverfum. Séu
Breiðholts- og Arbæjarhverfi tal-
in saman lætur nærri aö um 50%
nemenda séu nú búsettir i þessum
nýjustu hverfum borgarinnar.
Siðustu árin hafa töluverðir fólks-
flutningar átt sér stað milli
Breiðholtshverfanna innbyrðis
sem leiðir einkum til meiri og
hraðari fjölgunar nemenda i
Seljahverfi.
Eðlilegt er að margir haldi að
þessi fækkun i eldri hverfum
borgarinnar hafi leitt til þess að
skólar þár standi hálftómir.
Þessu er þó ekki þannig farið.
Aður voru skólarnir yfirsetnir en
nú gefst rými fyrir ýmsa starf-
semi og kennslu sem áður var
ekki pláss fyrir s.s. bóka- og
kennslutækjasöfn, sérstofur fyrir
ýmsar greinar, heilbrigðis-
þjónustu, félagslif o.s.frv.. Þá
hafa skólar, eins og Kvennaskól-
inn, Miðbæjar-, Voga-, Lindar-
götu-, Armúla- og Vörðuskóli,
verið teknir til afnota fyrir aðra
en grunnskólanemendur.
Ennþá vantar nægilegt skóla-
húsnæöi i Breiðholtshverfum.
Lokaáfangi ölduselsskóla hefur
verið boðinn út, áfram verður
haldið við byggingu Seljaskóla og
er m.a. fyirhuguð bygging stórs
iþróttahúss, kennslustofum
verður bætt við Hólabrekkuskóla,
auk þess leikfimisal.
Samið hefur verið við Höfunda-
miðstöð Rithöfundasambandsins
um bókmenntakynningu i grunn-
skólum. Hver skóli getur tvisvar
á ári fengið heimsókn rithöfundar.
Sinfóniuhljómsveit Islands mun i
vetur halda tónleika i eins
mörgum af grunnskólum borgar-
innar og við verður komið.
Aformað er að leiksýning verði á
vegum Leikfélags Reykjavikur i
grunnskólum. Sýntverður finnskt
leikrit, „Hlynur og svanurinn á
Heljarfljóti” eftir Christina
Andersson. Alþýðuleikhúsið hefur
einnig boðist til að sýna i grunn-
skólum leikrit sem einkum er ætl-
að nemendum á unglingastigi.
Ráðgerter að starfrækja náms-
og starfskynningu fyrir 9. bekk
grunnskóla. Ýmsar breytingar
verða á tilhögun safnkennslu.
Reynt verður að tengja hana
meira við námsefnið og aðal-
áherslan lögð á að miða viö
kennslu i samfélagsgreinum og
að nemendur verði látnir vinna að
ákveðnum verkefnum innan
viðkomandi safns.
Reynt er að koma til móts við
þarfir nemenda sem eiga við
örðugleika að etja i grunnskólum.
Hér er i fyrsta lagi um að ræða
stuðningskennslu i ýmsu formi
við nemendur sem hafa dregist
aftur úr jafnöldrum sinum i
móðurmáls- og stærðfræðinámi,
talkennslu fyrir nemendur með
mál- og talgalla, enn fremur að-
stoð við nemendur sem eiga i til-
finningalegum og félagslegum
vandræðum. Þessi þjónusta er i
öllum hverfisskólum og njóta
hennar u.þ.b. 12% nemenda ein-
hvern tima á skólaferli sinum.
Tvær dagdeildir eru reknar fyrir
nemendur með geðræn vandamál
og niu fámennar deildir i þremur
efstu bekkjum grunnskóla þar
sem nemendur með námsörðug-
leika gefst kostur á námi viö hæfi.
Auk þess er á vegum grunnskól-
anna fámennur dagskóli og með-
ferðarheimili fyrir taugaveikluö
börn. Pláss er fyrir rúmlega 200
nemendur i þessum sameiginlegu
úrræðum.
Loks má nefna að i tveimur
grunnskólanna eru sérdeilir fyrir
hreyfihamlaða, málhamlaða og
blinda nemendur. Þangað sækja
nám u.þ.b. 30 nemendur viðs
vegar að af landinu.
Þrjár skólalúðrasveitir starfa i
grunnskólum Reykjavikur og
komu þær 100 sinnum fram á sl.
ári.
Minning:
Ragnhildur Gudbrandsdóttir
Fœdd 4. maí 1878 — Dáin 24. sept. 1980
Ilaustskuggarnir lengjast
og þreyttar brár
liafa lokast yfir brostnum
auguni
i þann mund
sem húsið er að taka á sig form
við vog kópanna.
Ilúsið, sem geymir draum hennar
um góða heimkomu.
Ég þekkti hana ekki og sá hana
aðeins einu sinni álengdar. Samt
þykir mér vænt um hana og hún
verður mér ógleymanleg.
Hinn 26. janúar s.l. safnaðist
dálitill hópur fólks saman i
horninu milli Kópavogsbrautar
og Hafnarfjarðarvegar. Þar
mátti greina ýmis kunnugleg
andlit úr þjóðlifinu eins og ráð-
herra og alþingismenn, auk þess
fréttamenn og ljósmyndara, en
Kópavogsbúar voru þarna i meiri
hluta. Fólkið stóð i hring þolin-
mótt og með vissa væntingu i
svipnum. Þá var bifreið ekið að
og út steig háöldruð kona. Hún
gekk að hópnum og fólkiö vék til
hliðar svo að hún komst inn i
hringinn. Þar tók hún skóflu I
hönd og beitti henni kunnáttu-
samiega og tók fyrstu skóflu-
stunguna aö Hjúkrunarheimili
aldraðra i Kópavogi. A þessum
degi var hún, elsti ibúi Kópavogs
og næstelsti tslendingurinn, 101
árs og 143 daga gömul. Ég held,
að þessi einfalda, táknræna at-
höfn hafi engan látið ósnortinn,
sem á horfði, og við undruðumst
þrekið sem bjó i Ragnhildi, sem i
fyrsta og eina sinn á ævinni kom
fram opinberlega af þessu tilefni.
Ragnhildur fæddist að Hörgs-
landi á Siðu og dvaldi mestan
hluta sinnar löngu ævi i Vestur-
Skaftafellssýslu. Fyrir tæpum 30
árum flutti hún i Kópavog og bjó i
góðu skjóli Júliusar, önnu og
Unnar að Hrauntungu 20. t vor
veiktist hún og var lögð inn á
Landsspitalann til rannsóknar.
Eftir um það bil mánaðardvöl þar
var hún send heim rúmliggjandi
og ósjálfbjarga þótt hún treysti
sér ekki til að fara heim þannig á
sig komin. Eftir um vikudvöl
heima fékkst rúm fyrir hana á
hjúkrunardeild Landsspitalans
aö Hátúni 10 B. Hafði hún dvalið
þar i tvo mánuði og lést i þann
mund er átti að senda hana heim i
annað sinn ósjálfbjarga.
Þvi læt ég þessa getið hér, að
seinasta ævireynsla Ragnhildar
er áþekk reynslu svo margra
annarra sjúkra aldraðra á tslandi
á okkar dögum og mál er að linni
öryggisleysi aldraðs fólks og
kviða fyrir framtiöinni.
Ragnhildur var með afbrigöum
gjafmild og við sem vinnum að
byggingu Hjúkrunarheimilis
aldraðra i Kópavogi njótum ör-
lætis hennar og fordæmis. Þvi
miður vorum við ekki nógu
snemma á ferðinni til þess að
geta liðsinnt henni.
Ég kveð hana með þakklæti,
aðdáun og virðingu og votta syni
hennar og öðrum aðstandendum
innilega samúð.
Elsa G. Vilmundardóttir
erlendar
bækur
Karl Marx
Capital.
A Critique of Political Economy.
Volume Two. Introduced by
Ernest Mandel. Translated by
David Fernbach. Penguin Books
in association with New Left
Review 1978.
Annað bindi Kapitalsins kom út
1885. Engels sá um útgáfuna og
áður en bókin kom út gerði hann
sér litlar vonir um mþttökurnar,
taldi að annað bindið væri of
tyrfið til aflestrar fyrir þá sem
áhuga hefðu á kenningum Marx.
Mandel segir i inngangi að annaö
bindi Kapitalsins hafi ekki aðeins
verið lokuð bók, heldur einnig
flestum gleymd og svo sé enn
þann dag i dag. Mandel rekur i
innganginum inntak annars
bindis og þýðingu þess i heildar-
verkinu. Formáli Engels fyrir
fyrstu útgáfu er birtur, en hann
bjó bindið undir prentun.
Fyrsta bindi verksins er þegar
komið út og þriðja bindið væntan-
legt. Auk Kapitalsins hefur
Penguin ásamt New Left Review
gefiö út Grundrisse, Early Writ-
ings, The Revolutions of 1848,
Surveys from Exile og The First
International and After. Ritverk
Marx eru mikil að vöxtum og
áhrif þeirra hafa mótað alla sögu
20. aldar. Kenningar hans um of-
framleiðslu, stéttbaráttu og arð-
rán eru ekki siður timabærar nú á
dögum, en þegar þær birtust
fyrst. Enginn hefur skilgreint eðli
kapitalismans betur og sýnt fram
á þær þverstæður sem búa i þvi
kerfi.
Otgáfur verka Marx hafa
gengið skrykkjótt. 1968 var lokið
viö útgáfu rita Marx og Engels i
Austur-Þýskalandi i 41 bindi, á
þýzku. Fram til þess tima voru
þessi rit til i sérútgáfum eða
smærri úrvals útgáfum. Fyrir-
mynd Penguin útgáfunnar er
þýskaútgáfan.
Dómkirkjan i Mexicoborg.
Mexico 1980/1981
Penguin Travel Guides. Steph-
en Birnbaum editor; James Budd,
Anthony Greno, Loyd Rosenfield
area editorsr David Walker exe-
cutive editor; Claire Hardiman
managing editor; Stacey Chanin,
Laurie Nadel associate editors.
Penguin Books 1979.
Leiða-og landalýsingar „Pengu-
in Travel Guides” eru sniðnar
fyrir nútimafólk. Þar er að finna
hinar fjölbreytilegustu upplýs-
ingar, svo sem um bestu bað-
strendur, disco-staði, kostnaö viö
ferðir og dvöl á ýmsum stöðum.
Ferðaþjónustu innan svæöanna
og ráð um hvernig megi auðveld-
ast undirbúa og skipuleggja
ferðir einstaklinga, hópa og
fjölskyldna.
Rakin er saga svæðanna og lýst
helstu borgum og öðrum stöðum,
sem forvitnilegir eru, kaflar eru
um mataræði, skemmtanir, tylli-
Karl Marx
daga og iþróttir. Einnig er fjallað
um verslanir, minjagripasölur og
fl. og fl.
Þessi bók um Mexico er rúmar
500blaösiður, með uppdráttum og
efnisyfirliti. Helstu borgir eru
taldar upp og aðrir staðir, sem
vert er aö skoöa eða dveljast á. I
Mexico eru ágætir baðstaðir,
Acapulco er þeirra kunnastur,
Cuernavaca er annáluð fyrir
ágætt loftslag og telja mætti fleiri
slika.
Mexico-borg er nú likast til fjöl-
mennasta höfuðborg i heimi, með
um 14 miljón ibúa. Ef til vill er
þessi staöur sá sem á sér lengsta
mannvistarsögu i heimi, um 20
þúsund ár, að þvi að taliö er.
Fundist hafa leifar Indiánaþorps
frá þeim timum. Aztekar gerðu
borgina aö aðalstöðvum sinum og
þegar Cortes kom þar 1519,
bjuggu þar um 300 þúsund
manna. Samtimahöfundar töldu
borgina ekki siðri Feneyjum.
Bók þessi er mjög hentug fyrir
þá, sem hyggjast ferðast um
Mexico og upplýsingarnar eru frá
fyrstu hendi; hér fjalla þeir um
sem þekkja vel til staðhátta og
ferðalaga um landið.
Starfsmaður óskast
Auglýsingadeild Þjóðviljans óskar að
ráða starfsmann. Þarf að geta hafið störf
strax.
Nánari upplýsingar á staðnum (ekki i
sima).
ÞJÓÐVILJINN
Siðumúla 6, Reykjavik.
Húsnæðislaus hjónaleysi
óska eftir ibúð til leigu. Upplýsingar i
sima 35571 eða 19784.