Þjóðviljinn - 07.10.1980, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. október 1980
Skáksamband islands stóö fyrir
æfingamóti fyrir óiympiusveit
islands. en hún heldur i næsta
skák
Umsjón: Helgi Ólafsson
mánuöi til Möltu þar sem ólym-
píumótiö i skák fer fram. Allir
Ólympiufararnir utan Jóns L.
Árnasonar tóku þátt í mótinu og
Guðmundur Sigurjónsson að
auki, en eins og fram hefur komiö
getur hann ekki teflt fyrir islands
hönd á mótinu. Keppnin fór fram I
Vighólaskóla i Kópavogi og var
geysihörð og spennandi. Þegar
upp var staðið varð niðurstaöan
þessi:
1. Friðrik ólafsson 3 1/2 v.
2. Helgi Ólafsson 3 v.
3. -4. Guöm. Sigurjónss. 2 1/2 v.
3-4. Jóhann Hjartarson 2 1/2 v.
5. Margeir Pétursson 2 v.
6. lngi R. Jóhannsson 1 1/2 v.
Auk Ólympiusveitar karla var
teflt i sérstökum heiðursflokki en
þar voru á ferðinni gamlar
kempur sem Jitið hafa teflt hin
siðari ár. Þráinn Sigurðsson og
Baldur Möller urðu jafnir með 2
v. af 3 mögulegum og Asmundur
Ásgeirsson og Sturla Pétursson
hlutu báðir 1 vinning. Þá tefldu
okkar sterkustu skákkonur, alls 5
umferðir og sigraði Guölaug Þor-
steinsdóttir örugglega, hlaut 4 v.
af ömögulegum. I 2. sæti varð As-
laug Kristinsdóttir með 3 1/2 v. og
i 3. sæti varð Ólöf Þráinsdóttir
með 3 v.
Hvað keppnina sjálfa áhrærir
fór hún fram með sóma nema
hvað i upphafsumferðunum var
notast við örsmá skólaborð sem
skki geta talist mjög hentug fyrir
stóra og myndarlega menn. Þvi
atriði var þó blessunariega kippt i
liðinn. Friðrik Ólafsson var vel að
sigrinum kominn. Hann tefldi af
miklu öryggi og tapaði ekki skák,
sn það sama henti raunar bæði
afanritaðan og Jóhann Hjartar-
son. Friðrik vann Margeir
Pétursson og Guðmund Sig-
jrjónsson og er þetta i annað sinn
á stuttum tima sem hann leggur
Guðmund að velli. Skákin gekk
þannig fyrir sig.
Hvitt: Friörik Ólafsson
Svart: Guömundur Sigurjónsson
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 6. Be2-e6
2. Rf3-d6 7- 0-0-Be7
3. d4-cxd4 8. f4-0-0
4. Rxd4-Rf6 9- Be3-Dc7
5. Rc3-a6 10. g4! ?-
(Djarft og einkennandi fyrir
Friðrik. A svipaðan hátt vann
Stein á millisvæðamótinu i Stokk-
hólmi 1962.)
10. ..-Rc6 17. exd5-Bc5
11. g5-Rd7 18. Dd2-exd5
12. a4-He8 19. Bd4-Bxd4
13. Hf3-Rxd4 20. Dxd4-Rc5
14. Dxd4-b6 21. Bg4-Had8
15. Hafl-Bb7 22. Hh3-g6?
16. Hg3-d5
(Þessileikur er upphafið af ógæfu
Guðmundar þvi i ýmsum af-
brigðum gerir hann hróksfórn á
h7 mögulega. Betra var t.d.
22.-Re4.)
23. Hlf3!-Hel +
24. Kg2-He4
25. Df6-Rd7
(Mér er nær að halda að Guð-
mundi hafi yfirsést framhaldið:
25. -Hd6. 26. Hxh7!-Hxf6 27.
Hfh3-Kf8 28. gxf6 og mátið blasir
við.)
26. Bxd7-Dxd7 28. Kf2-Dd6
27. Í5-Hg4+ 29. fxg6-Dc5 + ??
(Siðasti afleikurinn. Eftir 29.
-Dxf6 30. gxh7+-Kh8 31. gxf6 er
ekki öll nótt úti. Textaleikurinn
ber vott um mikið timahrak.)
30. He3-
— og Guðmundur gafst upp. Hann
hafði sennilega gleymt þvi að
hrókurin á d8 er i uppnámi.
Ingi R. Jóhannsson sýndi að lengi lifir I giæöunum, þótt æfingaieysiö
kæmi I veg fyrir að honum tækist aö innbyröa vinningana. Ljósm.-eik.
Hjúkrunarskóla Islands
vantar hj úkrunarkennara
Aðallega er um að ræða kennslu i hjúkrun
sjúklinga á lyflækningadeild.
Fullt starf æskilegt»en hálft starf kemur til
greina. Barnaheimili á staðnum. Upplýs-
ingar veitir skólastjóri.
Umsóknir sendist menntamálaráðu-
neytinu, verk- og tæknideild.
Friðrik vann
æfingamótið
Suöureyri viö Súgandafjörö
Landþrengslin
þjarma að
Rœtt við Ellert Ólafsson, sveitar-
stjóra á Suðureyri
I —Það er nú svo sem verið að
* fást hér við eitt og annað, en
þeim framkvæmdum, sem
| fengist er við, er bara ölium ó-
I lokið ennþá svo ég veit hreint
' ekki hvort nein ástæða er til
[ þess að segja frá þeim, eins og
I er.
> Þannig hófst samtal okkar
* Ellerts ólafssonar, sveitar-
■ stjóra á Suðureyri við Súganda-
I fjörð. Landpósti fannst aftur á
• móti engin ástæða til annars en
! minnast á það, sem verið er að
| gera, þótt endamarkinu væri
I enn ekki náð. Þvi verður hér á
{ eftir drepið á þær helstu fram-
■ kvæmdir, sem nú er unnið að á
] Suðureyri.
I Vegagerð
I og uppfylling
—Það er þá i fyrsta lagi vega-
gerð, sem er nú raunar ekki i
okkar höndum heldur Vega-
1 gerðar rikisins. Þessi vegur er
! lagður á grunnsævi og tengir
saman Suðureyrarodd og
Hlaðsnes, sem er hér nokkru
J. innar. Þetta er fyrst og fremst
■ gert til þess aö auka hjá okkur
landrýmið. I víkinni þarna fyrir
I innan eru miklar grynningar og
, er meiningin að fylla þær upp.
• Við það fáum við mjög aukið
I landrými, fast að þvi eins mikiö
I og viö höfðum fyrir. Við erum
, komnir i kreppu meö land undir
■ byggingar og af þeim sökum,
I ekki hvað sist, hefur byggðin
I hér staðið I stað að undanförnu.
, Uppfyllingin kostar auðvitað ó-
■ hemju fjármuni og verður að
I gerast á nokkrum árum. Eins
I og sakir standa er þessi vegar-
■ lagning ekki nema hálfnuð en
l meiningin er að ljúka henni I
I einum áfanga.
Fjölbýlishús
—Það er þá liklega ekki mikið
um byggingar hjá ykkur úr þvi
að þið eruð svona landlitlir?
—Nei, fyrir þeim fer nú ekki
mikið en þó er hreppurinn að
byggja átta ibúða fjölbýlishús,
samkvæmt lögum um leigu- og
söluibúðir. Er það fokhelt oröið
og ráð fyrir þvi gert, að það
verði fullbúið i april i vor.
Stækkun á
skólahúsnæði
Svo er áfram unnið við
stækkun skólabvggingarinnar.
Er reiknað með að þeirri fram-
kvæmd ljúki á næsta ári. Þetta
er helmings stækkun húsnæðis-
ins. Stefnt er að þvi að geta tekið
neðri hæðina i notkun i haust og
þá fyrir smiðakennslu meðal
annars.
Hitaveitan
Og þá eru það hitaveitufram-
kvæmdirnar. Við erum nýbúnir
að hreinsa holuna. Við höfum
átt við að stríða mikla kalkút-
fellingu og hún hefur kostað tiö-
ar upptektir á dælunni. Að auki,
_hefur svo komið fram mikil tær-
mg i rörunum. Við vorum rétt i
þessu að dýpka holuna og
hreinsa. Settum svo i hana salt-
sýru, sem á að koma i veg fyrir
útfelliitguna. Hún hefur verið
það mikil að við höfum orðið að
taka þetta upp tvisvar á ári og
þá er auðvitað allt i hers hönd-
um. Við erum að gera okkur
vonir um að sýrublöndunin tefji
það mikið fyrir kalkútfelling-
unni að það þurfi ekki að taka
upp nema svona á tveggja ára
fresti. Og þó að áhrif hennar
entust ekki nema yfir árið þá
væri það strax mikill munur þvi
þá getum við tekið upp aö sumr-
inu.
Lagfæring
á höfninni
Stærsta málið hjá okkur er nú
Iðnaðardeild og Búvörudeild
cru nú að gera átak til þess að
stuðia að bættri meðferð á
gærum hjá siáturhúsunum.
Starfa nú fjórir menn að þvi á
vegum þessara deiida að ferö-
ast á miiii sláturhúsa og leiö-
beina þar um gærumeöferö.
Vinna þeir þetta verk I náinni
samvinnu við lögskipaða gæru-
matsmenn.
Fyrir skömmu er komið til
framkvæmda nýtt punktakerfi
við gærumat. Hefur það i för
meö sér að verðmunur á gærum
eftir meðferð við slátrun hefur
aukist stórlega. Eru það nú
verulega háar upphæðir, sem
um getur verið að tefla fyrir
meöalstór sláturhús, eftir þvi
hvernig til tekst með fláningu,
Umsjön: Magnús H. Gislason
kannski lagfæringin á höfn-
inni. Eins og ýmsir vita erum
við hér með togara. Hann kemst
hinsvegar ekki inn i höfnina en
hefur orðið að liggja við brim-
brjótinn hér fyrir utan og er
auðvitað engan veginn öruggur
þar i fárviðri.
Höfnin veröur nú stækkuð
mjög mikið. Það kemur nýr við-
legukantur, stálþil, fyrir togara,
um 70 m langur. Meiningin er
að Rfkisskip geti komist þarna
inn lika. A þessu verki var
byrjað i ágúst og reiknað er með
að þvi verki verði lokið um ára-
mót.
Nú, siðan verður höfnin
dýpkuð og þegar þessu er lokið
hefur miklum áfanga verið náð
og hafnaraðstaðan gjörbreytt.
Atvinna er yfirdrifin. En hérna
vantar algjörlega iðnaðarmenn.
Þið ættuð að senda okkur slatta
af þeim þarna frá Reykjavik.
Haföu þetta svo bara stutt og
láttu litið bera á þvi , þvi það er
nú svo, að þegar maður talar við
þessa blaðamenn i sima og eitt-
hvað kemur svo frá þeim þá er
það allt meira og minna vit-
laust. Og svo er það dálitið at-
riði, að skrifað sé á skiljanlegu
máli.
—Þetta var ágæt áminning og
ég skal reyna að skrökva sem
minnstu.
söltun og aðra meðferð á gærun-
um. Þessvegna er hér orðið um
mikið hagsmunamál að ræða,
jafnt fyrir bændur sem vinnslu-
aðila.
Jón Sigurðarson, aðstoðar-
framkvæmdarstjóri Skinna-
verksmiðjunnar Iðunnar, sem
gaf þessar upplýsingar, gat þess
jafnframt, að i skinnaiðnað-
inum væri það orðið stórt
vandamál hvað tvilitu fé virtist
fara fjölgandi hér á landi. Mun
erfiðara væri aö selja tvilitar
gærur en einlitar og væri æski-
legt að geta snúið þessari þróun
við. Jón gat þess og, að nokkuð
væri um skemmdir á gærum
vegna bólusetningar á ung-
lömbum.
—mhg
eó/mhg
Bætt gærumeðferd