Þjóðviljinn - 18.10.1980, Page 11

Þjóðviljinn - 18.10.1980, Page 11
Ketgia 1*.—1». •fctéfcer t«M )>JóÐVIL>INN — SIDA H *mér datt þaö í hug Hafþór Guðjónsson skrifar: HLUTVERK SKÓLA í BRJÁLUÐUM HEIMI „Hlutverk skólans er aö gera nemendum fært aö skilja þau gifurlegu vandamál sem ógna tilveru mannkyns I dag og í fyrirsjáanlegri framtiö. Til þæss aö ná þessu markmiöi skal skólinn innræta nemendum gagnrýna og skapandi hugsun, kenna þeim aö meta raunveru- leg verömæti og bda þau undir aö lifa án margra þeirra verald- legu hluta, sem i dag eru taldir sjálfsagöir. Skólinn skal leitast viö aö efla andlegan þroska nemenda á þann veg aö þeir geti oröiö virkir þátttakendur i mót- un nýs og manneskjulegra þjóö- félags, sem taki miö af mann- kyninu i heild” Þessi markmiöslýsing er (auövitaö) ekki til. Hím er heiiaspuni minn. HUn er aö ýmsu leyti loöin og óljós. En þaö skiptir ekki meginmáli. Aöal- atriöiö er aö hér er sett fram sú skoöun, aö skólinn eigi i starfi sinu aö taka miö af þeim heimi sem viölifum i.,,Gerir hann þaö ekki?” kann einhver aö spyrja og bætakannski viö: „Býr ekki skólinn okkur undir lifiö? Veitir hann okkur ekki þá menntun sem viö þurfum á aö halda i nútima þjóöfélagi?” Þessum spurningum má svara meö bæöi já-i og nei-i. Vissulega væri okkur ógjörlegt aö viöhalda þvi þjóöfélagi sem viö búum viö i dag ef skólans nyti ekki viö. Augljóslega væri býsna erfitt aö lifa og starfa i þessu þjóöfélagi ef viö kynnum ekki að lesa, skrifa, reikna o.s.frv. En þaö er ekki þetta sem ég á viö. Ég á viö aö skólinn hafi vanrækt aö taka miö af þeirri staðreynd aö mannkynið er á leið til helvitis. Skólinn tekur miö af velferðarþjóðfélaginu (þó ekki skuggahliöum þess). Hann skapar þaö viöhorf hjá nemend- um, aö velferðarþjóöfélagið sé sjálfsagt og eölilegt fyrirbæri, að hviti maðurinn hafi meö þrautseigju og útsjónarsemi smám saman skapað þaö þjóö- félag gnægta, sem viö búum við i dag. Aö viö eigum þetta i raun- inni skiliö. Okkur var kennt að dást að hetjunum miklu, Kólumbusi og Vasco da Gama. Okkur var hlift viö barbariinu sem fylgdi i kjölfar „hinna miklu landvinn- inga”. Viö lásum kannski eitt- hvaö um þrælasöluna miklu. En var þaö nokkurn timann útskýrt fyrir okkur hvaða áhrif þræla- salan hafði á þjóöfélög Afriku? Þjóöfélög Afriku? Já, viö feng- um vist ekkert aö heyra um þau heldur. Aö þarna, i henni svörtu Afriku, voru mörg voldug menningarriki, þegar hviti maöurinn steig þar á land i lok 14. aldar. Sum árþúsunda gömul. Nei, viö fengum vist ekkert aö heyra um þetta. Viö fengum bara að heyra um sigra hvita mannsins. En þaö var ekki útskýrt fyrir okkur hvemig þrælasalan og önnur kúgun þess?) er oft ansi grunnt á for- dómunum i garð svartra („leti- blóö”, „villimenn”). Okkur væri nær aö sleikja jöröina viö íæiur þeirra i auömýkt og i minningu þræ'anua. Þessa dagana látum viö flest fé af hendi rakna til hjálpar nauðstöddum i Afriku. Þaö er út af fyrirsigágætt. En meöhvaöa hugarfari gerum viö þetta? Er þaö ekki svo aö við vorkennum þessu fólki og aö viö um leið erum aö sýna hvaö viö erum rausnarleg? Rausnarleg! Þaö er nú meira. Viö skuldum þeim þetta — og margfalt meir. Viö stálum þessu frá þeim og okkur ber aö skila þýfinu til baka Viö, þ.e.a.s. evrópubúar uröum rik á afrisku samfélögum. Og þaö „láöist” vi'st lika aö geta þess, aö þrælasalan voru einhver arö- vænlegustu viöskipti allra tima. Aldrei hafa evrópskir kaup- menn og kapitalistar grætt eins mikið — og i eins langan tima: Ágóöinn var einatt um 300%. Evrópa varö rik um leiö og Afrika varö fátæk. Þaö má þvi meö sanni segja aö hálofuö vel- ferö okkar byggist á svita, tár- um og blóöi blökkumanna. Þrátt fyrir þetta (eöa kannski vegna um áfram aö veröa rik á kostn- að þessara heimshluta, á kostn- aö þriöja heimsins. Þrátt fyrir „rausnarskapinn”, já, þrátt fyrir þróunar-,,hjálpina”. Lönd þriðja heimsins veröa sifelit fátækari, biliö milli Noröurs og Suöurs æ breiöara. Sum fátæku löndin megna ekki einu sinni aö borga vextina af lánum sem þau hafa oröiö aö taka hjá riku þjóö- unum. Ég set hjálp i gæsalappir þegar ég tala um þróunar- „hjálp”. Vegna þess aö þró- unaraöstoð er sjaldnast gjöf. Henni fylgja oftast beinharöir skilmálar eins og t.d. þeir, aö „hjálpina” eigi aö nota til aö kaupa vörur frá þvi landi sem „gefur”. Þannig skapast aukin eftirspurn, meiri gróöi, meiri at- vinna og aukinn hagvöxtur i landinu sem abstoöina veitir. Hin fullkomna hringrás auö- magnsins! Já, hringrás auð- magnsins. Ýmsirútreikningar sem gerö- irhafa verið á alþjóölegri hring- rás aubmagnsins, sýna aö i heild hafa ajnk. 160.000 miljarðar isl. kr. streymt frá fátæku löndunum tilþeirra riku Nettó! Og börnin i þessum lönd- um deyja úr hungri. Menn- ingarstofnun Sameinuöu Þjóö- anna, UNICEF, segir okkur, aö áriö 1978 dóu 12 miljónir barna undir 12 ára aldri úr hungri. Framtiðarspáin er ennþá óhugnanlegri: 650 miljónir barna — 2/3 af börnum heims — munu aldrei ná fullorðinsaldri ef aðstæöur i heiminum haldast óbreyttar. Hvaö gerum viö? Lesum um hryllinginn, horfum áhanni' (lita-)sjónvarpinu, fyll- umst meöaumkun. Þeir viö- kvæmustu tárast. Svo friðum við samviskuna af og til meö nokkrum fimmþúsundköllum i söfnunarbaukana. Sem sagt: Viö gerjm ekki nokkurn skap- aðan hlut. Fólkiö i þriðja heim- inum þarfnast ekki meðaumk- unar og heldur ekki tára. Olmusur viþ og viö hjálpa þeim ekki neitt. Þeim fer sifellt fjölgandi sem deyja úr hungri. Þetta fólk þarf stórtæka raunverulega hjálp. Svo stóra hjálp þarf þetta fólk aö viö verðum aö gera róttækar breytingarálifsháttum okkaref viö ætlum aö veita hana. Engar patentlausnir eru til við þessum vanda. Engar tækninýjungar geta leyst hann. Tæknin getur að visu hjálpaö til að leysa vandann. En tæknin kostar pen- inga. Fátæku þjóðirnar eiga ekki peninga. Peningana veröa þær aö fá hjá okkur. Svo mikla peninga aö viö munum neyöast til aö neita okkur um ýmislegt, sem viö hikum ekki vib aö kaupa i dag (t.d. bil af nýjustu árgerö) — ef Ur verður. En viljum viö þetta? Getum viö þetta? Er ekki velmegunin ómissandi? Athugum aöeins ástandið hjá okkur. Sifellt fleiri dauðsföll og örkuml af völdum einkabila. Æ fleiri deyja um aldur fram vegna sjúkdóma sem rekja má til ofneyslu.Húð- krabbameinstilfellum fer fjölg- andi vegna ofnotkunar sólar- geisla i sólarlandaferöum. Ofnotkun áfengis, ofnotkun tóbaks, ofnotkun fæöu. Of,of, of. Allt er um of hjá okkur. Viö erum að kafna i velferðar- vandamálum. Viö ausum pen- ingum i velferð og við ausum peningum i þá skaöa sem velferðin veldur. Er þetta ekki dæmalaus hringavitleysa? Og börnin i þriöja heiminum deyja úr hungri. Og kannski það versta af öllu: Vonleysiö hefur gripiðokkur. Viö trúum þvi ekki aðvið getum gert neitt af gagni. Viö erum kannski oröin svo samdauna velferöinni, svo sam- ofin henni að viö komumst ekki útúr hringavitleysunni. Þó svo aö við innst inni finnum að hún gefur okkur ekki það sem viö leitum aö: lifsfyllingu, betra líf, manneskjulegra lif. Þó svo aö viö eygjum þann möguleika aö einfaldara lif geti verið miklu betra en sú velmegun sem við borgum meö yfirvinnu. Hér er ég i rauninni kominn aö upphafi þessarar greinar: Markmiöslýsingunni, hlutverki skólans. Ég el ekki i brjósti neinar gyllivonir um það að viö breytum lifsháttum okkar á einni nóttu. En er ekki sannar- lega timabært aö byrja? Og hvar er eölilegra aö byrja en einmitt i skólanum? Skýra fyrir börnum okkar hvernig ástandiö i heiminum er í raun og veru? Hlifa þeim viö blekkingunum. Gera þau aö ábyrgum þegnum alls mannkyns. Afhjúpa fyrir þeim orsakir og afleiðingar vel- feröarþjóöfélagsins. Sýna þeim fram á hversu innantómt lif þau eiga i vændum ef þau gera eins ogviö. sannfæra þau um aö þau getioröiö virkir þátttakendur i sköpun nýs og betra þjóöfélags, sem taki miö af mannkyninu i heild. íslandsklukkan í Nemendaleikhúsinu Guöbjörg Thoroddsen I hlutverki Snæfriöar og Jóhann Sigurösson I hlutverki Arnas Arnæus. A mánudaginn kl. 20.00 frumsýnir N emen da leikhús Leiklistarskóla Islands, tslands- klukkuna eftir Halldór Laxness I Lindarbæ. Leikstjóri er Briet Héöinsdóttir, Magnús Pálsson hefur teiknaö leikmynd og bún- inga og David Walters hannaöi lýsingu. Sjö nemendur á lokaári skipta meö sér hlutverkum i sýn- ingunni. Leikendur eru Guðbjörg Thoroddsen, Guöjón Pálsson Pedersen, Guömundur ólafsson, Jóhann Sigurösson, Július Hjörleifsson, Karl Agúst Olfsson og Sigrún Edda Björgvinsdóttir. Nemendur hafa meöfram æfingum unnið aö gerö leikmynd- ar, búninga og leikmuna og ann- ast aö mestu sjálf leikhúsrekstur- inn. „Islandsklukkan” eöa „Sagan af Jóni Hreggviössyni á Rein og hans vin og herra Arna Arnasyni meistara” hefur tvivegis ábur veriö færö á sviö i Reykjavik i Þjóöleikhúsinu. Bæöi skáldsagan og leikgeröin hafa fyrir löngu Leikarar Nemendaleikhússins I ár. t fremri röö Sigrún Edda Björgvinsdóttir, Guömundur ólafsson og Karl Agúst Olfsson. 1 aftari rööJóhann Sigurösson, Guöbjörg Thoroddsen, Guöjón Pcdersen og Júlfus Hjörleifsson. öölast sess sem sigild verk i vitund þjóöarinnar, og slik verk hljóta aö ögra leiklistarnemum. Briet Héöinsdóttir sagöi á blaðamannafundi á fimmtudag, aö i sýningu Nemendaleikhússins væri engin tilraun gerö til aö hafa leikmyndina realiska, og uppfærslan væri lika ólik fyrri uppfærslum Þjóðleikhússins að þvi leyti að hér skiptu 7 unglingar meö sér öllum hlutverkum i staö 30 leikara á öllum aldri. Þvi miöur er óvist hvaö geta oröiö margar sýningar á verkinu, en frumsýningin veröur, eins og áður er getið, mánudaginn 20. þessa mánaöar, 2. sýning miðvikudaginn 22. og 3. sýning fimmtudaginn 23. Miðasala verður i Lindarbæ daglega frá kl 16:00. — GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.