Þjóðviljinn - 18.10.1980, Síða 12
• •
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 18.—19. október 1980
Árið 1973 var stofnað
norður á Siglufirði fyrir-
tæki, sem hlaut nafnið
Húseiningar hf. Einsog
nafnið raunar ber með
sér þá var tilgangurinn
með stofnun þessa
félagsskapar sá, að
hefja byggingu svo-
nefndra einingahúsa.
Ekki var þó hleypt úr
hlaði með neinum asa og
hófst framleiðslan ekki
að verulegu marki fyrr
en á árinu 1975. En siðan
hefur hún lika aukist
jafnt og þétt og nú hefur
fyrirtækið byggt og selt
á þriðja hundrað hús. Af
þeim hafa um 30 verið
sett upp á Reykjavikur
svæðinu.
NÝTT
HÚS
Frá v.: Sigurftur Kjartansson framkvæmdastjóri, Siguröur Hlööversson tæknifræöingur.
Mynd: —eik
A NOKKRUM DOGUM
W.- r~r -
H
Húseiningar hf. á Siglufiröi eru nú aö hefja byggingu á tveggja hæöá einbýlishúsum. Hér sjáum viö
teikningar aö einu slfku.
Hingaö til hafa Húseiningar hf.
framleitt einnar hæöar hús. Nú
hefur á hinn bóginn veriö ákveöiö
aö hefja einnig framleiöslu á
tvDyftum einbýlishúsum. Fyrir
nokkru voru þeir á ferö i höfuö-
staönum Siguröur Kjartansson,
framkvæmdastjóri Húseininga
hf. og Siguröur Hlööversson,
tæknifræöingur hjá fyrirtækinu.
Blaöamanni tókst aö ná fundi
þeirra og ræddi m.a. viö þá um
hina nýju húsagerö.
Mætum óskum
viðskiptavina
— Ég var aö heyra aö þiö
væruöaöfæra ykkur uppá skaftiö
meö framleiösluna og hyggöust
nú fara aö koma upp tvilyftum
húsum. Liggja einhverjar sér-
stakar ástæöur til þeirrar ráöa-
breytni?
— Já, segja má aö svo sé.
Aöstæöur fólks og óskir eru mis-
jafnar. Sumir vilja fremur einnar
hæöar hús; aörir kjósa heldur
tveggja hæöa. 1 raun og veru hófst
undirbúningur aö framleiöslu á
tveggja hæöa húsum hjá okkur
fyrir alllöngu og þá vegna þess,
aö okkur haföi borist mikill fjöldi
fyrirspurna og óska um. aö viö
framleiddum þessa gerö af hús-
um. Svo koma hér sumsstaöar til
skipulagsatriöi, eins og t.d. i
Reykjavik. Þar eru til svæöi sem
ekki má byggja á einnar hæöar
hús og mun þaö liöur i því, aö nýta
landiö sem best, en svona hús er
auövelt aö staösetja á litlum
lóöum.
—Hafiö þiö kannski þegar sam-
iö um sölu á einhverju af slikum
húsum?
— Já, viö erum byrjaöir á því
ogerum eiginlega núna aö ganga
frá fyrstu samningunum. Nokkur
hús af þessari nýju gerö munu
væntanlega risa hér i Reykjavik i
vor.
Kostir tvilyftu húsanna
— Ef viö vfkjum aö kostum
þessara tvflyftu einbýlishúsa,
hverjir teljiö þiö aö þeir séu helst-
ir?
— Sitthvaö mætti aö sjálfsögöu
nefna, en ef Viö stiklum á stóru,
eins og trúlega veröur aö gera I
svona viötali þá má benda á, aö
húsiö er reist á örfáum dögum,
eins og um einlyft hús væri aö
ræöa, en þaö er hinsvegar hægt aö
gangafrá þvi ogtaka þaö 1 notkun
i tveimur áföngum. Innrétta má
neöri hæöina fyrst Og þá efri
siöar, ef þörf gerist. Slfkt hús
Húseiningar
á Siglufirði
hefja fram-
leiðslu
á tvílyftum
einbýlishúsum
sýnist þvf henta betur fyrir ungt
fólk en litil ibúö i fj ölbýlishúsi,
þar sem stækkun er útilokuö, þótt
hennar sé þörf. Hagi svo til, aö
tvær kynslóöir búi saman f
húsinu, þá er auövelt aö skilja á
milli hæöa sé þess óskaö. Hvaö
kostnaöinn snertir þá er hver
nýtanlegur flatarmetri I svona
húsi ddýrari en I einlyftum húsum,
þar sem grunnur og þak er sam-
eiginlegt fyrir báöar hæöir.
baö er kannski út i hött aö tala
um fegurö i þessu sambandi,
endaerhún afstætt hugtak. Flest-
ir munu þó láta sig útlitiö
einhverju skipta og þá má benda
á, aö þar sem halli á risi er góður,
er unnt aö innrétta efri hæöina i
baöstofustfl, þar sem sjá má bæöi
þaksperrur og skammbita. A
neöri hæöinni er einnig hægt aö
hafa sýnilega gólflista og Umtrés-
lista, en þeir ganga langs eftir
öllu húsinu. Furustigi er
skemmtileg tenging milli hæöa.
— Og kostnaöurinn?
— Ef viö miöum viö 175 ferm.
tvflyfthús frá Húseiningum hf. þá
kostar þaö nú fullbúiö svipaö og
fjögurra herbergja ibúö f Reykja-
vfk.
Þaö þarf vart aö taka þaö fram,
aö viömunum aö sjálfsögöu halda
áfram aö framleiöa einnar hæöar
hús. Þetta er bara viöbót viö
framleiösluna. Tvílyftu húsin eru
gerö úr alveg samskonar eining-
um og þau einlyftu, þaö er alveg
sama „framleiöslulinan”.
— Hvaö búist þiö viö aö setja
upp mörg hús á þessu ári?
— Þau veröa svona 55—60 og
fara vfösvegar um land, bæöi i
sveit og aö sjó, sum eru t.d. sett
upp I Reykjavik, Garöabæ og
Hafnarfiröi.
Timbur eða steinn
— Hverja teljiö þiö helstu kosti
einingahúsanna umfram t.d.
steinhús?
— Við teljum þá vera ýmsa<en
þaö er e.t.v. ekki viökunnanlegt
aö ræöa þaö efni mikiö þar sem
viö erum aö tala um okkar eigin
framleiðslu. En augljóst er, aö
þau henta vel þar sem erfitt er
um byggingarefni, svo sem sand
ogmöl.Einnig þarsem skorturer
á iönaöarmönnum. Byggingar-
timinn er stuttur og þaö kemur
sér vel fyrir ýmis sveitarfélög út
um land og bændur, sem annars
þyrftu aö hafa i þjónustu sinni hóp
iönaöarmanna i lengri tima. Og
þarsem veröbólga er aösópsmikil
eins og hjá okkur Islendingum,
skiptir þaö verulegu máli aö
byggingartimi sé sem skemmst-
ur.
Afturá móti er rétt aö benda á,
aö menn minnka ekki efniskostn-
aö meö byggingu einingahúsa.
Viö leggjum mikla áherslu á
vandaö efni og frágang. Þaö er
mjög varhugavert aö ætla sér aö
lækka byggingakostnaö meö þvi
aö láta þaö koma niöur á efni og
frágangi. Viö kærum okkur ekki
um aö byggja nein bráöabirgða-
hús þótt þau gætu orðið ódýrari.
mhg rœðir við Sigurð Kjartansson framkvœmdastjóra og Sigurð Hlöðversson tæknifræðing