Þjóðviljinn - 18.10.1980, Page 19
Helgin 18.—19. októbéf 1980 ÞJ6ÐV1LJ11VN — SIÍÐA 19
Erlingur Viggósson skipasmiður:
Viðtalstíma við
eigin fjölskyldu?
Þaö var um aöra helgi i mai, aö
haldin var ráöstefna á Akureyri,
sem bar nafniö „Vinnan og
heimiliö”. Þessi merkilegi fundur
varð til á vegum M.S.I., M.F.A.
og Sveinafélags járniönaöar-
manna á Akureyri. Ég hef verið
beöinn að segja frá hvað mér
fannst og hvaða áhrif fundurinn
haföi á mig, og er mér þaö ljúft.
öll var ráöstefnan skemmtileg,
og vakti mann svo virkilega til
umhugsunar um lifiö, hvort ekki
væri rétt aö fara aö athuga sinn
gang, er t.d. öll þessi neysla nauö-
synleg og þess viröi aö fórna fyrir
hana svo mikilli vinnu aö viö höf-
um aldrei tima til aö njóta þess
sem viö höfum eignast.
Er ekki rétt aö staldra viö,
setjast niður og athuga hvert viö
stefnum, hvaöan viö komum og
hvar við erum, sem sé að við
höldum ekki áfram nema viö sjálf
ákveðum hvað gleypa á mikiö, en
látum ekki umhverfiö og náung-
ann þrengja upp á okkur alls-
konar neyslu sem kostar þaö
mikiö aö viö gleymum aö lifa
lifinu lifandi.
Einn þáttur á ráöstefnunni var
sýning á fristundavinnu starfs-
manna Slippstöövarinnar sem
fyllti stóran sal á staðnum. Þarna
sá maöur mörg skemmtileg lista-
verk,- málverk, skúlptúra, ljós-
myndir o.fl., unniö úr allskonar
efnum; tré, járni, beinum, ofl.
Þessi sýning var aö minu áliti
stórmerkileg og sýnir hvaö menn
geta gert sér og öörum til ánægju
ef sköpunargleði manna fær notiö
Erlingur Viggósson: Loksins ráð-
stefna sem fjallaöi eingöngu um
hiö manneskjulega.
sin frá streöi hins daglega
amsturs.
Fyrirtækið Slippstööin var aö-
ili að ráöstefnunni, og þar var
okkur borinn matur þá daga sem
viö dvöldum á Akureyri. Allt var
með miklum myndarbrag hjá þvi
fyrirtæki, enda aö mestu rikis-
rekiö og hefur góöum mönnum á
aö skipa. Mönnum sem hafa
meiri áhuga á þvi aö fyrirtækið
beri sig og sé til fyrirmyndar, en
koma óorði á fyrirtæki fólksins,
og gætu margir lært af þvi, bæöi
þeir sem eru á móti og meö
rekstri þess opinbera, hvort sem
þaö er riki, bær eöa samvinnu-
félög. Rikiö hljóp þarna undir
bagga þegar allt var aö snarast
og gerðist eignaraöili upp á 60%
móti Akureyrarbæ og K.E.A.
Þegar rikiö kom inn i máliö lá á
boröinu að fyrirtækiö hætti og um
200 manns misstu vinnu sina, en
nú eru næg verkefni og starfs-
menn ánægöir og treysta á fyrir-
tækiö og framtiöina.
Sífellt er veriö að halda fundi og
ráðstefnur á vegum launafólks,
um kaup og kjör, krónutölu, visi-
tölu, veröbólgu o.fl.; allir vilja fá
sem mest.
En aldrei fyrr en nú, loksins.er
haldin ráöstefna sem fjallar ein-
göngu um hið manneskjulega,
sem var virkilega timabært.
Til hvers erum við aö vinna og
hvernig nýtist þaö sem fyrir vinn-
una fæst til mannlegra lifs, t.d.
hugleiöa hvaöa fólki bý ég meö?
Hvaöa manneskja er makinn?
Hvaöa fólk eru litlu mann-
eskjurnar? Er ekki kominn timi
til aö kynna sér sina eigin fjöl-
skyldu? Sleppa einhverri auka-
vinnu, kaupa minna dót og hafa
heldur viðtalstima viö það fólk
sem maöur býr meö.
Kona járniönaðarmanns, Þórey
Aöalsteinsdóttir, flutti þarna
merkilega tölu á fundinum og
hennar lokaorö geri ég að
minum: „Þaö hlýtur aö vera
hræöilegt aö komast að þvi aö
leiöarlokum að maöur hafi
hlaupið fram hjá lifinu án þess að
taka eftir þvi, og of seint er aö
snúa til baka og standa frammi
fyrir þeirri staðreynd aö til eins-
kis var barist”.
Dea Trier Mörck myndskreytir sjálf bækur sinar. Þessi er úr nýju bók-
inni „Den indre by” sem er rétt nýkomin úr prentsmiðjunni.
Dea Trier Mörck
sendir frá
sér nýja bók
Baráttan
og einka-
lífið í
borginni
Danski rithöfundurinn Dea
Trier Mörck sem er vel þekkt hér
á landi fyrir bækur sinar Vetrar-
börn og Kastaníugöngin, sendi
fyrir nokkrum dögum frá sér nýja
skáldsögu sem viröist all-spenn-
andi fyrir þá sem fyigjast meö
kvennabókmenntum og
umræöum á vinstri væng. Bókin
heitir á dönsku „Den indre by”,
viö gætum kallað hana „Miöborg-
ina" á islensku.
Sagan fjallar um ’68 kynslóöina
svokölluöu sem nú er komin á
fertugsaldurinn, og gerist á 14
dögum, en meginþráöurinn er
togstreitan milli hins opinbera
lifs, þátttökunnar i baráttunni
fyrir betra samfélagi og einka-
lifsins, innri þarfa, ástar, barna
og heimilis.
Aöalpersónurnar eru tvær,
Lulu sem er heimavinnandi
húsmóöir, tveggja barna móöir
og gift verkamanni sem starfar af
krafti i DKP (Moskvusinnaöur
kommaflokkur sem hefur þó
margt til sins ágætis). Hin er
gamall kunningi,Maria sem sagt
var frá i Vetrarbörnum. Hún á
barn meö Grænlendingi, en sam-
band þeirra er i molum og hún
tekur saman viö rúmlega
fimmtugan arkitekt.
Dea Trier Mörck fjallar um
samskipti kynjanna, afstööu til
kvennahreyfingarinnar, hvernig
börnin veröa stundum undir
vegna þess aö þaö er svo margt
sem dregur athyglina frá þeim,
gamaldags hjónaband og lauslegt
samband og baráttu vinstri
manna.
1 Socialistisk Dagblad fær bókin
mjög góöa dóma og hún er sögö
vera bæöi kvennabókmenntir og
saga kynslóðar sem taki nær-
færnislega og raunsætt á vanda-
málum þeim sem blasa viö fólki i
dag. Einkum sé umfjöllun hennar
um börnin góö, nánast einstök og
mega lesendur minnast frásagna
Deu i Kastaniugöngunum sællar
minningar.
Veikleiki bókarinnar liggur i
pólitikinni sem þar birtist, segir
gagnrýnandi SD; þar er DKP
allsráðandi (Dea Trier Mörck er
sjálf félagi i DKP), þó aö á stund-
um sé vikiö gagnrýnum oröum aö
karlapólitikinni og gamaldags
viöhorfum sem þar rikja. Þaö
viröist svo sem Dea hafi enn einu
sinni hitt i mark. Flestir þeir sem
taka þátt I stjórnmálabaráttu og
félagsmálum þekkja hve erfitt
það reynist oft aö sinna bæöi
einkalifi og opinberu lifi svo aö
vel fari, ofan á vinnuálag og allt
þaö. Hún fjallar um málefni sem
koma fólki viö og nú biöum viö
spennt eftir aö fá bókina á
islensku.
Byggt á
Socialistisk Dagbiad
7. okt. 1980 —ká.
Verkfræðingar
T æknif ræðingar
Rafmagnsveita Reykjavikur vill ráða raf-
orku-verkfræðing eða tæknifræðing til
starfa við áætlanagerð fyrir raforkuvirki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást hjá starfsmannastjóra, Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu. Umsóknarfrestur er til
28. október 1980.
f/J RAFMAGNSVEITA
reykjavíkur
SENDILL
Óskum að ráða pilt eða stúlku til sendi-
starfa allan daginn.
Framkvæmdastofnun rikisins, .
Rauðarárstig31, Reykjavik,
Simi 25133.
Frá Strætisvögnum
Reykjavikur
Óskum að ráða starfsmann til starfa á
hjólbarðaverkstæði SVR á Kirkjusandi.
Upplýsingar gefur Jan Jansen yfirverk-
stjóri i sima 82533 mánudaginn 20. okt. ,kl.
13—14 eða á staðnum.
Afgreiðslustörf
Óskum eftir að ráða starfsfólk i eftirtalin
afgreiðslustörf:
1. Afgreiðslustarf i varahlutaverslun
(bilar)
2. Afgreiðslustarf i varahlutaverslun (bú-
vélar)
3. Afgreiðslustarf i raftækjaverslun —
vinnutimi kl. 13—18.
4. Aígreiðslustarf i byggingavöruverslun.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra á
umsóknareyðublöðum sem liggja frammi.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALO
Prófessor
Mogens Bröndsted
heldur erindi i Norræna húsinu mánudag
20. október kl. 20.30 og nefnir:
„Villy Sörensen og hans historiesyn”
Verið velkomin NORRÆNA
HÚSID