Þjóðviljinn - 18.10.1980, Síða 29
Helgin 18.-19. október 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 29
um hclaina
I Listvinahúsinu viö Lækjargötu hefur Sigrlður Björnsdóttir komið
landslagsmyndum sinum fyrir, auk nokkurra abstraktmynda.
Ljósm: gel
Stemmningar og
bláköld yfirvegun
Málverkasýning Sigríðar Björnsdóttur
Sigriður Björnsdóttir opnar f
dag sýningu I Listvinahúsinu við
Lækjargötu. Þar sýnir hún 72
landslagsmyndir og 7 abstrakt-
myndir, allar unnar meö acryl-
litum. Þetta er 6. einkasýning
Sigriðar.
A undanförnum árum hefur
Sigrlður veriö mjög á faralds-^
fæti, m.a. til að kynna sitt stóra
áhugamál: myndlist og lækn-
ingu (art terapy). Hún hefur
farið viða með sýningar og
haldið fyrirlestra, t.d. á lækna-
þingum. Sigriður sagöi í spjalli
við blaðamann að tilgangurinn
væri að beina skapandi mynd-
list þangað sem hun kemur að
gagni i samfélaginu, viö lækn-
ingu.
Sigriður fæst nú við tvö verk-
efni á vegum alþjóöasambands
myndlistarmanna, i tengslum
við UNESCO, menningarstofn-
un Sameinuðu þjóöanna. Annað
er að taka saman bækling um
það, hvernig myndlist getur
komið fötluðu fólki að notum, og
verður sá bæklingur sendur til
48 landa i' tengslum við alþjóöa-
ár fatlaðra árið 1981. Hitt er ferð
á alþjóöaþing barnalækna, þar
sem hún mun kynna gildi skap-
andi myndlistar fyrir fatlaða.
Sigriður sagði að skapandi
myndlist virkjaði eigið afl ein-
staklingsins, örvaði hugsun og
hreyfingar, auk ánægjunnar og
sköpunargleöinnar sem fengi
útrás.
Sigriöur sinnir þessu áhuga-
máli sinu af miklum krafti, auk
þess sem hún málar. Hún sagði
að sér hentaöi best að mála og
teikna landslagsmyndir, á sýn-
ingunni væru stemmnings-
myndir, en abstraktið aftur á
móti bláköld yfirvegun.
Sýningin stendur til 9. nóv. og
er opin frá kl. 14—18 alla daga.
—ká
Sviðsmynd úr Storminum hjá Skagaleikfiokknum
Frumsýning á Akranesi:
STORMURINN
Skagaleikflokkurinn frum-
sýnir á sunnudagskvöld kl. 20.30
i Bióhöllinni á Akranesi leikritiö
„Storminn” eftir Sigurð
Hóbertsson.
Leikstjóri er Gisli Halldórs-
son og leikmynd eftir Jónas Þór
Pálsson. Með helstu hlutverkin
fara Kristján Elis Jónasson,
Svala Bragadóttir, Hallbera
Jóhannesdóttir og Valdimar
Friðriksson auk margra ann-
arra i smærri hlutverkum
önnur sýning hjá Skagaleik-
flokknum verður á mánudag kl.
20.30 og siöan verður sýnt föstu-
dag og laugardag.
t dag, laugardag, hefst í
Listasafni alþýðu sýning á
vatnsiitamyndum Sigurðar
Thoroddsen verkfræöings og er
það fimmta einkasýning hans.
Siguröur hefur fengist viö
myndlist slðan hann var barn að
aldri með öðrum störfum en ár-
ið 1974 hætti hann verkfræði-
störfum og hefur helgað sig ein-
göngu málaralistinni siöan.
Á árum áður var Sigurður
einkum þekktur fyrir skop-
myndir sinar og hélt sýningu á
þeim árin 1940 og 1945 og áriö
1952 tók hann þátt i samsýningu
ásamt þeim Halldóri Péturssyni
og Jóhanni Bernhard þar sem
eingöngu voru sýndar „karri-
katur”-myndir.
Menntun sina i myndlist hefur
Sigurður fengiö með sjálfsnámi
en á fimmta áratugnum naut
hann tilsagnar Barböru Arna-
son I meðferð vatnslita og á 6.
áratugnum tók hann þátt i ýms-
um námskeiöum á vegum
Handiða- og myndlistarskólans
i grafik og módelteikningu.
Arið 1970 var þriöja einkasýn-
ing Sigurðar i Bogasal Þjóð-
minjasafnins ogárið 1977 fjóröa
sýninghans að Kjarvalsstöðum.
Sýning Sigurðar verður opin
daglega kl. 18—22 og stendur I
þrjár vikur.
—GFr
Flóamarkaður
Kvenfélags
Karlakórsins
Flóamarkaður Kvenfélags
Karlakórs Reykjavikur veröur
haldinn laugardaginn 18.
október, kl. 13.00 - 16.00 að
Freyjugötu 14a.
Barðstrendingar:
Basar og
kaffisala
Kvennadeild Barðstrendinga-
félagsins verður með basar og
kaffisölu I Domus Medica
sunnudaginn 19. október. Húsið
verður opnaö klukkan 14. Þetta
er fjáröflunardagur deildar-
innar, sem gerir kleift að standa
undir miklu starfi fyrir eldri
Barðstrendinga. A basarnum
verður mikiö af prjónlesi;
vettlingum, sokkum, nærfötum
barna, sokkabuxum o.fl. Brúðu-
rúm og brúöufatnaður, einnig
gömlu góðu tuskubrúðurnar.
Þeir sem vildu leggja
Kvénnadeildinni lið viö undir-
búning eða aöra aðstoð hafi vin-
samlegast samband við Mariu
Jónsdóttur i sima 40417 eöa
Þorbjörgu Jakobsdóttur i sima
35513.
Leikfélag Sauðárkróks
Týnda teskeiðin hér um helgina
Leikfélag Sauöárkróks sýnir
Týndu teskeiðina I Félags-
heimilinu á Seltjarnarnesi
tvisvarnú um helgina, á laugar-
dagskvöldiö kl. 21 og sunnudag
kl. 16.
Uppfærsla Sauðkræklinga á
þessu leikriti Kjartans
Ragnarssonar fékk frábærar
undirtektir, þegar þaö var sýnt
noröanlands á sl. leikári, en
leikstjóri er Asdis Skúladóttir.
'
Sigurður Thoroddsen verkfræðingur á sýningu sinni I Listasafni al-
þýðu i gær.— Ljósm. —eik.—
Birna Eyjólfsdóttir og Sigurður Kristlnsson I einu skemmtiatrið-
anna sem Fóstbræðrakonur hafa veg og vanda af.
Haustskemmtanir
Karlakórinn Fóstbræður mun
gangast fyrir skemmtikvöldum
fyrir styrktarfélaga sina i
félagsheimili kórsins aö Lang-
holtsvegi 109—111.
Skemmtanir þessar verða
haldnar föstudags- og laugar-
dagskvöld seinni hluta október
og fyrri hluta nóvember og hef j-
ast kl. 20.30 öll kvöldin. Fyrsta
skemmtunin verður laugar-
dagskvöldið 18. október.
A skemmtununum syngur
kórinn nokkur létt lög undir
stjórn Ragnars Björnssonar,
einnig verður einsöngur og
kvartettsöngur. Sitthvaö fleira
verður til skemmtunar, sem
Fóstbræður hafa veg og vanda
af. Að lokum verður stiginn
dans til kl. 03.00.
Stjórnandi skemmtananna
verður einn af félögum kórsins,
Þorgeir Astvaldsson.
Miðar á skemmtik völdin
verða afhentir og tekið á móti
pöntunum daginn fyrir hverja
skemmtun og samdægurs milli
kl. 17.00 og 19.00 i Fóstbræöra-
heimilinu, simi 85206. Húsið
verður opnaö kl. 20.00
Hópurinn hefur ekki áöur sýnt
sunnan heiða, hinsvegar gert
viöreist og sýnt leikritið á móti
áhugaleikfélaga i Finnlandi,
einsog fram kom i viötali i
siöasta Sunnudagsblaði Þjóð-
viljans.
Úr svnineu Leikfélags Sauðárkróks á Týndu teskeiðinni
Sýning í Listasafni alþýöu:
V atnslitamy ndir
Sigurðar Thoroddsen