Þjóðviljinn - 22.10.1980, Side 1

Þjóðviljinn - 22.10.1980, Side 1
UÚDVUHNN Miðvikudagur 22. október 1980 — 238. tbl. 45. árg. Flugleiðamáliö á alþingi í gær: Ekkert má dylja i þessu máli þátt viðkvæmtsé og erfitt að ræða það opinberlega, sagði Steingrimur Hermannsson. Frumvarpiö gengur eins langt og hægt er sagði Steingrímur um aðstoð ríkisins ,,í raun og veru er vandi N- Atlantshafsflugsins smámunir einir borið saman við vanda félagsins I heild og sá vandi stendur óbreyttur þó að N- Atlantshafsflugið verði lagt nið- ur”, sagði Steingrimur Hermannsson samgönguráð- herra á alþingi i gær þar sem hann kynnti skýrslu sina um mál- efni Flugleiða. Miklar umræður urðu um skýrsluna og voru enn margir á mælendaskrá þegar fundi var slitið um kl. 19 i gærkvöldi. Er nánar frá þeim umræðum greint á þingsiðu i dag. Steingrimur lagði áherslu á aö full samstaða væri innan rikis- stjórnarinnar um lausn á þessu máli og með frumvarpinu um að- stoð við Flugleiðir væri staðiö við öll þau fyrirheit sem stjórnvöld hefðu gefið. Hann sagði að sú að- stoð byggist eingöngu á áætlunum Flugleiðamanna sjálfra og mati þeirra á stærð vandans en skv. nýjustu rekstraráætlun N- Atlantshafsflugsins fyrir næsta ár mun tapið nema 6,9 miljónum dollara. Steingrímur kvaðst verða aö viðurkenna að áætlanir félagsins hefðu ekki staðist vel hingað til og nú væri það stjórnar Flugleiða að meta hvort nóg væri að gert. Frumvarp rlkisstjórnarinnar gerir m.a. ráð fyrir þvi að þrjár miljónir bandarikjadollara verði greiddar út nú á vetrarmán- uðum sem vaxtalaust lán til Flug- leiða fram til 1. október á næsta ári þegar rekstrarári lýkur. Þá gerir frumarpið ráö fyrir niður- fellingu lendingargjalda 1979 og 1980 svo og 530 miljón króna hlutabréfakaupum rlkissjóðs. „Mér finnst að með þessu frumvarpi sé að þessu leyti geng- ið eins langt og hægt er”, sagði samgönguráðherra og átti við að- stoð vegna N-Atlantshafsflugsins. 15. september s.l. óskuðu Flug- leiðir enn eftir rlkisábyrgð upp á 12 miljónir dollara, sex miljónum til að breyta skammtlmalánum I föst lán og sagði samgönguráð- herra að forsvarsmenn félagsins teldu mjög brýnt að sú fyrir- greiðsla kæmi til fyrir næstu mánáðamót. „Þessi .stóri vandi kom mér á óvart”, sagði Stein- grimur. „Beiðnin byggði á þvl að báðar Boeing 727—100 flugvélar félagsins yrðu seldar en nú hefur sú sala brugðist og engin hreyfing er á þvi máli.” Samgönguráð- herra kvaðst þvi hafa beðið um nýja áætlun í ljósi þessarar stað- reyndar og myndi hún liggja fyrir þegar þingnefnd fjallaði um mál- ið. Steingrímur lagði áherslu á að ekkert mætti dylja I þessu máli. Þetta væri viðkvæmt mál sem erfitt væri að ræða opinberlega ,,en hjá þvi verður ekki komist” sagði ráðherrann. „Myndin er ljós”, sagði Stein- grimur að lokum, „ljótari en fram hefur komið áður. Spurn- ingin er hvort nú tekst vel með þá tilraun sem rikisstjórnin hefur gefið vilyrði fyrir.” Hann sagðist vona að svo yrði en hins vegar gerði hann sér ekki vonir um það nema stórum bættur starfsandi innan fyrirtækisins kæmi til. —AI Landað úr trillunum á Húsavlk I fyrradag. — Ljósm.: — gel Auknar ábyrgðir fara eftir veðhæfi eigna — sagði Ragnar Arnalds um beiðni Flugleiða um 12 miljóna dollara ábyrgð til viðbótar ,,í gærmorgun skýrði Stein- grimur Hermannsson frá þvl á rikisstjórnarfundi að forráða- menn Flugleiða hefðu tjáð sér að þeir teldu horfur I rekstri N- Atlantshafsflugsins enn ískyggi- legri en áður. Tapiö yrði meira. Þetta eru vondar fréttir og ef þær fela i sér að gera þurfi enn frekari kröfur til skattgreiðenda hlýtur að koma að þvi að rikisstjórnin segi hingaðog ekki lengra,” sagði Ragnar Arnalds fjármálaráð- herra m.a. á alþingi I gær. Ragnar sagði að þrátt tyrir frumvarp ríkisstjórnarinnar um Stuttur samninga- fundur Sem kunnugt er boðaöi rik- issáttasemjari samninganefnd- ir ASI og VSl til sáttafundar kl. 17.00 I gærdag. Þessi fundur varð stuttur, stóð aðeins til kl. 19.00. Nei, það gerðist ekkert mark- vert,á fundinum, viö ræddum við deiluaðila sitt í hvoru lagi og ákveðið var að ræöa saman um hádegisbilið I dag um frekari fundarhöld, sagði Guðlaugur Þorvaldsson sáttasemjari i samtali við Þjóðviljann I gær. Guðmundur J. Guðmundsson, Jóhannes Siggeirsson, Guðlaugur Þorvaldsson og Björn Þórhallsson á fundinum I gær. — (Mvnd- — gcl.) Fulltrúar ASI voru heldur ekkert bjartsýnir fyrir fundinn I gær. Þeim kom flestum saman um aö til fundarins væri boðað bara vegna þess að sáttanefnd er til, þar sem ekkert þaö hefði komið fram undanfarið sem benti til þess að VSI vildi semja nú frekar en fyrr. — S.dór. aöstoð við Flugleiðir væri mörg- um spurningum ósvarað; meðal annars hvaða veð yrðu sett vegna þeirra ábyrgða sem félagið hefur óskað eftir, hver yrði heildarupp- hæð ábyrgðanna og hver yrðu önnur skilyrði sem rikisstjórnin hlyti að setja fyrir þessum ábyrgðum. „Þessum spurningum verður ekki svarað i dag”. sagði ráðherrann, „biða verður eftir nánari svörum Flugleiða og þvi að rannsókn á eignunum sé lok- ið”. Ragnar sagði að viðhorf forystumanna Flugleiða hefðu birst stjórnvöldum I breytilegu ljósi allan timann sem málið hefði verið til umfjöllunar. Upphaflega var farið fram á að rikisstjórnin veitti félaginu bakábyrgð að upp- hæö þrjár miljónir dollara á ári en siðar hefði verið leitað eftir beinni greiðslu á þessari fjárhæð úr rikissjóði sem hæfist i þessum mánuði og lyki I mars á næsta ári. I ljós hefði komið að tilboð rikisstjórnarinnar frá 16. septem- ber hefði aðeins reynst vera litið brot af vandanum beear nánar var að gáð. „Hér var komið mér að óvörum”, sagði Ragnar, „og áreiðanlega fleirum. Sömu daga og verið var aö ganga frá tilboð- inu kom fram ósk um ábyrgð upp Allsherjarverk- fallið 29. okt. Nær öll verka- lýðs- félögin með Vitum aðeins um 4 félög fyrir utan prentiðnaðarfélögin sem ekki verða með, sagði Haukur Már hjá ASÍ í gær Fresturinn til að tilkynna þátttöku I allsherjarverk- fallinu 29. október nk. rann út á miðnætti sl. Þjóðviljinn hafði samband við Hauk Má Haraldsson blaðafulltrúa ASt siðdegis I gær og spurði hann um hvernig þátttakan I allsherjarverkfallinu yrði. Haukur sagðist aðeins vita um 4 verkalýðsfélög fyrir utan prentiðnaðarfélögin, sem ekki yrðu með. Þetta eru verkalýðsfélögin á Raufarhöfn, Borgarfiröi eystra, Félag starfsfólks á veitingahúsum og Versl- unarmannafélag Suður- nesja. I þessúm félögum var fellt að taka þátt i verk- fallinu, nema hjá Fél. starfs- fólk á veitingahúsum, þar var meirihluti fyrir þvi að taka þátt en ekki tilskilinn. Það má segja að verkfallið verði nær algert. Auðvitað hefði verið æskilegt að sam- staðan hefði verið 100%, en 7 félög verða ekki með, sagöi Haukur og átti hann þá viö auk hinna fjögurra, HIP, Bókbindarafélagið og Grafíska sveinafélagiö, en þessi félög ákváðu á fundum i fyrrakvöld að taka ekki þátt i verkfallinu 29. okt. nk. —S.dór. Umræður fóru fram I heilan mán- uð án þess aö stjórnvöldum væri kynnt hin raunverulega staða félagsins, sagði fjármálaráð- herra. á 12 miljónir dollara til viðbótar, eða 6—7 miljarða islenskra króna og kemur sú beiðni til viðbótar við 5 miljarða ábyrgð sem alþingi veitti i vor. Umræður höfðu þvi fariðfram i heilan mánuð án þess að stjórnvöldum væri kynnt hin raunverulega staöa félagsins”, sagði hann. „Afstaða rikisstjórnarinnar er og hefur verið sú að rétt sé aö veita umbeðna bakábyrgð upp á 3 miljónir dollara, ekki sem greiðslu heldur sem lán ef félagið þarf á þvi að halda fyrr en reikn- að er með. Þá mun rikissjóður auka hlutafé sitt I 20% en að öðru leyti verður það að ráðast af veð- um félagsins hversu mikla ábyrgð er hægt að veita”, sagöi fjármálaráðherra. Hann gerði siðan grein fyrir þeirri rannsókn sem nú fer fram á fasteignum og flugvélúm Flugleiða I þessu skyni og sagðist vænta þess að þeim yrði lokið um næstu mánaðamót. —AI

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.