Þjóðviljinn - 08.11.1980, Side 6

Þjóðviljinn - 08.11.1980, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. nóvember 1980 DJQÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýds- hreyfingar og þjóðfrelsis útgefandi: Ú gáfufélag ÞjóBviljans. Framkvæmdastjóri: Eióur Bergmann. Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan O'ífsson. Auglýsingastjóri: Þorgeir Ólafsson. Umsjónarmaöur sunnudagsbiaós: Guöjón Friörikssoe. Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson. Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Ingi- björg Haraldsdóttir, Kristín Astgeirsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. iþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson. Útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvörður: Eyjólfur Arnason. Auglýsingar: Svanhildur Bjarnadóttir. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jóhannes Haröarson. Afgreiðsla: Kristín Pétursdóttir, Bára Halldórsdóttir, Bára Siguröardóttir. S'mavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsia, afgreiðsla og auglýsingar: Siðumúla 6, Reykjavfk, sfmi 8 13 33. Prentun: Biaðaprent hf. Skilyrði um nýja stjórn • Ríkisstjórnin hefur sett stjórn Flugleiða 7 skilyrði fyrir því að ríkisábyrgð verði veitt fyrir þeim lánum, sem Flugleiðir telja sig þurfa að taka/Svo ekki komi til rekstrarstöðvunar. • Þegar þetta var skrifað sat stjórn Flugleiða á fundi til að f jalla um þessi skilyrði. • Með tilliti til alls þess pólitíska moldviðris, sem Morgunblaðið og ýmsir af ráðamönnum Flugleiða hafa reynt að þyrla upp um „pólitískar ofsóknir Alþýðu- bandalagsins" á hendur Flugleiðum, þá er einkar at- hyglisvert, að í f járhags- og viðskiptanefnd efri deiidar féllust fulltrúar stjórnarandstöðu Sjálfstæðisflokksins loksá nauðsyn þess, að sett væru þau skilyrði fyrir ríkis- ábyrgðinni, sem Alþýðubandalagið hefur talið óhjákvæmileg. • Meðal þessara skilyrða er: 1. Aðalfundur Flugleiða verði haldinn fyrir lok febrúar á næsta ári og kosin ný stjórn í samræmi við breytta hlutaf járeign. 2. Aukning hlutaf jár ríkisins í 20% verði komin til f ram- kvæmda fyrir næsta aðalfund. — Þetta þýðir að ríkið fær 2 fulltrúa í 9 manna stjórn. 3. Starfsfólki verði fyrir aðalfundinn gefinn kostur á að eignast hlutafé, sem nægi til að tryggja starfsfólkinu fulltrúa í stjórn. • Enn má telja m.a. það, að Atlantshafsfluginu verði haldið aðskildu fjárhagslega frá annarri starfsemi Flugleiða. ^ Undanfarna daga og vikur hefur komið í Ijós að vandi Flugleiða er mun meiri en áður var látið uppi, og var svo komið nú i vikunni, að hinn kokhrausti forstjóri félagsins sagði i sjónvarpsviðtali, að það væri pólitísk • kvörðun, hvort Flugleiðir tórðu af eða ekki. Fallist stjórn Flugleiða á skilyrðin og reynist veð- hæfni eigna nægjanleg, þá mun ríkisábyrgðin verða veitt, — annarsekki. —k. Styðjum eigin iðnað • 1 forystugrein Tímans í gær er vikið að vanda inn- iends framleiðsluiðnaðar i samkeppni við innfluttar vörur. Þar er m.a. varpað fram þeirri spurningu hvort eðlilegt sé að hverfa algerlega f rá allri tollvernd og öðr- um stuðningsaðgerðum við iðnaðinn — á sama tíma og vitað er að iðnaður nýtur margháttaðrar beinnar og óbeinnar fyrirgreiðslu og f járhagsaðstoðar ríkisvaldsins í samkeppnislöndum okkar. • Það er ánægjulegt að sjá þetta viðhorf koma f ram í forystugrein Tímans. • Verra er hitt, að við fyrstu umræðu fjárlaga á Alþingi í fyrradag lýsti Tómas Árnason, viðskiptaráð- herra, því yf ir, að hann treysti sér ekki til að leita samn- inga við EFTA og EBE um framlengingu á því aðlög- unargjaldi sem nú er tekið af innf luttum iðnaðarvörumi til styrktar innlendri iðnþróun. • Á síðasta ári var þetta 3% aðlögunargjald lögfest, og náðist þá samkomulag við EFTA um málið, en þá var gert ráð fyrir aðgjaldið félli niður í árslok 1980. • Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra, hef ur nú lagt fram í ríkisstjórninni tillögur um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir þvf að gjaldið verði framlengt að hluta næstu tvö ár, og verði 2% á næsta ári og 1% á árinu 1982. • Tekjur af aðlögunargjaldinu eru taldar verða á þessuári um 1900miljónir króna. Þessu f jármagni hefur verið og verður varið til margvíslegra iðnþróunar- aðgerða, til þjálfunar starfsfólks í iðnaði, til undir- búnings nýiðnaðarverkefna, til stuðnings við iðnþróun úti um landið. Iðnrekstrarsjóður fær á þessu ári 500 miljónir króna til ráðstöfunar af tekjum aðlögunar- gjaldsins, og á mörgum sviðum íslensks iðnaðar er nú að því unnið að auka framleiðni og samkeppnishæfni iðn- aðarins og nýtt í þessu skyni f jármagn, sem aðlögunar- gjaldið tryggir. • Það veltur á miklu fyrir Islenskan iðnað, að aðlög- unargjaldið hverfi ekki með öllu úr sögunni strax um næstu áramót. • Vonandi hefur forystugrein Timans í gær falið í sér þá ábendingu til Tómasar Árnasonar, viðskiptaráð- herra, sem hann tekur mark á. — k. # úr aimanakínu Húnvetnskir bændur hafa all- mörg undanfarin ár staðiö fyrir skemmtunum eitt kvöld Húna- vökunnar á Blönduósi. Er þá jafnan fenginn einhver máls- metandi maöur til aö flytja þar erindi. Fyrir nokkrum árum stóð Indriöi G. Þorsteinsson þarna I stólnum, búinn sinu besta skarti, og flutti mikla ræöu og hátiðlega. Bar hann mikið og veröugt lof á islenska bændastétt fyrir dugnaö, fyrir- hyggju, þjóöhollustu og þar frameftir götunum. Var naum- ast annaö á Indriöa skiliö en hann teldi bændur búna þeim kostum öllum meö tölu, sem eina starfsstétt mega prýöa. Þótti Indriða vel mælast og skörulega og voru bæöi hann sjáifur og áheyrendur ánægöir meö þetta erindi. Aþekka ræöu flutti Indriöi, aö mig minnir nokkrum mánuöum seinna, á sumarhátiö Fram- sóknarmanna I Skagafirði, sem haldin var i Varmahlíö. Ekki man ég nú lengur hvort þaö var i þessum ræöum eöa viö annaö tækifæri, sem Indriöi lét i ljósi mikinn ugg yfir þeirri þróun, aö jaröir legöust I eyöi. Aleit hana hættulega, ekki aöeins islenskri bændastétt og framtiö hennar, heldur og þjóö- inni allri. Til þess aö sporna viö þvi aö svo færi um jaröir, þar sem ræktunarskilyröi væru erfiö, ættu bændur, er á slikum jöröum byggju aö veröa sér úti um iand I góösveitum, hefja þar sameiginlega ræktun, heyja jafnvel sameiginlega, — (Svart- höföi mundi sennilega kalla þaö samyrkjubúskap og þykja heldur ómerkilegur atvinnu- vegur,) — og flytja svo fenginn hver heim til sin. Meö þessu móti mætti gera sér vonir um að umræddar jaröir yröu áfram I byggö. Aö visu voru bændur farnir aö beita þessum vinnu- brögöum áöur en Indriöi geröi hugmyndir sinar heyrum kunnar, en þaö skiptir ekki megin máli, sýnir bara fyrir- hyggjuna, sem Indriöi mærði þá fyrir noröur á Blönduósi. Liöa nú stundir fram. Um mánaöamótin ágúst- september I sumar fór fram aðalfundur Stéttarsambands bænda aö Kirkjubæjarklaustri. Hann var haldinn i skugga mik- illa erfiöleika. Bændur hafa reynst of duglegir viö aö fram- leiöa þá vöru, sem veröldina skortir mest: matvæli. Fram- leiösla á búvörum er meiri en nemur innanlandsneyslu. Verö- bólga 1 landinu, sem engin stétt á minni sök á en bændur, gerir útflutning óaröbæran. Lögboön- ar útflutningsbætur hrökkva ekki til. Bændur brugöust viö þessum erfiöleikum meö þeim hætti, aö til fyrirmyndar má vera. Er þeir sáu aö hverju fór, mæltust þeir til þess viö Alþingi, aö þaö veitti þeim heimild til einhverra þeirra aögeröa, sem miöuöu aö takmörkun á búvöruframieiösl- unni. Sú ósk var flutt æ ofan i æ en jafnoft synjaö. Á meöan tútnaöi vandamáliö út og var, þegar heimild loks fékkst, oröiö margfalt erfiöara viöfangs en ef i taumana heföi fengist aö taka i tima. Bændur biöja aö visu um aöstoö rikisins aö vissu marki, á meöan veriö er aö brjótast út úr brimgaröinum. En þyngsta skellinn taka þeir á sig sjálfir. Þeir leita leiöa til þess aö draga úr hinni hefðbundnu búvöru- framleiðslu, (kvótakerfi, fóöur- bætisskattur) og skjóta stoöum undir nýjar búgreinar. Þetta var meginviöfangsefni fundar- ins á Klaustri. Aö afloknum þessum fundi skrifar eitthvert fyrirbæri, sem nefnir sig Svarthöföa, grein I VIsi, þar sem ráöist er á fulltrúa á Stéttarsambandsfundinum af þviliku ofstæki, aö til eindæma má telja, jafnvel meöal hinna sjálfskipuöu „iandbúnaöarsér- fræöinga” siödegispressunnar, og þarf nokkuö til. Talaö er um aö „bændur heföu fagnaö fóöur- bætisskatti á kjaftaþingi á Kirkjubæjarklaustri”. Látum nú prúðmennskuna I oröalaginu liggja á milli hluta. Þegar þrengjast fer um óþverrann innifyrir veröur hann aö fá útrás og er ekki tiltökumál. En mætti biöja Svarthöföa aö færa þeim oröum sinum staö, aö bændur hafi „fagnaö” fóöur- Magnús H. Gislason skrifar bætisskattinum? Mér er ekki um annaö kunnugt aö aö þeir telji hann ilia nauösyn. Svart- höföi bregöur bændum um aö þeir séu „i raun eina aftur- haldiö, sem enn lifir I landinu” og falli „fram á lúkurnar og til- biöjiaögeröir rikisstjórnar, sem miðar aö þvi aö hefta athafna- frelsi þeirra”. I hverju eru þau höft fólgin, Svarthöföi góöur? Úrræöi Svarthöföa I fram- leiösluvandamálum bænda viröist vera þaö, — aö þvi leyti sem nokkursstaöar grillir til lofts I þessum vaöli hans, — að okkur vanti fleiri Ásmundar- staöabú og fleiri Þorvalda i Sild og fisk. Meö öörum orðum: viö eigum aö hverfa aö stórbúskap en leggja i auön þau „kot”, sem dritaö hefur veriö niöur um allt land. Nú hefur Svarthöföi býsn- ast öll ósköp yfir offramleiöslu búvara. Og þá vantar skýring- una á þvi hversvegna fá stór bú geta ekki alveg eins skapaö of- framleiöslu og mörg minni, þvi ekki viljum við Svarthöföi skeröa „athafnafrelsiö”. En kannski býr Svarthöföi yfir ein- hverju leynivopni, sem viö hin þekkjum ekki ennþá? Kannski liggur meinið fyrst og fremst I þvi, aö bændur höföu ekki vit á aö sækja landbúnaöarráðherr- ann fremur inn i Heiðargeröi en noröur aö Akri? Þegar upp eru rifjuö annars- vegar ummæli Indriöa G. Þor- steinssonar, þau er hann lét falla norður I landi fyrir nokkr- um árum, og hinsvegar „skoö- anir” Svarthöföa þá er ljóst, aö þessum mönnum ber mikiö á milli. Indriöi vildi aö bændur byggju sem viöast. Hann vildi ekki leggja I eyöi jaröir þarsem erfitt var um heimafenginn hey- feng heldur afla hans annars- staöar. .Auönarstefnuna for- dæmdi Indriöi algjörlega. Svarthöföi stefnir i þveröfuga átt. Hann vill að bændur búi bara á einhverskonar As- mundarstöðum. Ef þeir heföu vit á þvi þá bættust samstundis öll þeirra mein. Svo einfalt er máliö og auöleyst. Indriöi færöi glögg rök fyrir sinu máli. Svart- höföa viröast fyrirmunaöar rök- ræöur. Hann hefur allt á horn- um sér út af of mikilli búvöru- framleiöslu. Samtimis bölsótast hann út i þær aögeröir, sem bændastéttin gripur til I þvi skyni aö minnka þessa fram- leiöslu. Þau úrræöi eru auövitaö fjarri því aö vera annmarka- laus. En gagnrýni situr sist á þeim, sem ekki hefur annaö til málanna aö leggja en búskap á Asmundarstööum. Gegnir nokkurri furöu, aö ræöumaöur- inn aö noröan skuli ekki vera búinn aö taka Svarthöföa þennan á kné sér og benda hon- um góölátlega á mótsagnir hans og rökleysur. Kannski stafar þetta tómlæti af þvi aö hann taki Svarthöföa þennan ekki al- varlega, fremur en raunar flestir aörir. A þaö mætti þó benda, aö meö landbúnaöar- skrifum sinum hefur Svarthöföi unniö þaö afrek sitt, aö detta ofan i giniö á sjálfum sér. Og þar dúsir hann. Ekki munu þau hýbýli ýkja álitleg. Gott ef þau veröa ekki aö teljast heilsuspillandi hús- næöi. — mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.