Þjóðviljinn - 23.12.1980, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 23.12.1980, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 23. desember 1980 Ríkisútvarpiö fimmtlu ára Sigrún Gisladóttir: A þessum minningum lifi ég. — Ljósm.: eik. ,F remur ævintýri en veruleiki’ — segir Sigrún Gísladóttir Hún hætti störfum hjá Útvarpinu 1975, þá sjötug og aldursforseti þeirra, sem þá unnu við ú'tvarpið og sjónvarpið. — „Og þá var ég búin að vinna við þessa stof nun í 45 dásam- leg ár", segir hún Sigrún Gísladóttir, fyrrverandi starfsmaður við Tón- listardeild Ríkisútvarps- ins. — Mér er sagt, Sigrún, að þú hafir ráðist til ú tvarpsins þegar við stofnun þess. — Já, sjáðu til. Útvarpiö byrjaði 1929, undir stjórn Jónasar Þorbergssonar, þótt það væri ekki formlega opnað þá þegar. Siguröur Þórðarson, söngstjóri og tónskáld, var ráðinn skrifstofustjóri útvarps- ins og svo kom Guðrún Reyk- holt. Ég hafði unnið i hljóðfæra- verslun Katrinar Viðar og komst þar i kynni við flestar þær hljómplötur, sem þá voru gefnar út i Evrópu. Sigurður tók strax að panta plötur og bað mig að hafa útvarpið i huga þegar við fengjum eitthvað nýtt. Ég kynntist þvi fljótlega þeim Sigurði og Guðrúnu Reykholt. Eitt sinn er ég kom upp i Edinborg með plötur, en þar var útvarpið til húsa fyrsta árið, — spurði Sigurður mig hvort við ættum engar plötur með is- lenskum söngvurum eða tónlist. Af þeim áttum við ekkert nema örfáar með söng þeirra Sig- urðar Skagfields, Eggerts Stefánssonar og Péturs A. Jóns- sonar. Það var nú ekki mikið um hljómplötur þá þar sem Islendingar komu við sögu. Nú leið að þvi, að útvarpið yrði opnað 20. des. Sigurður kom að máli við mig og spurði hvort ég gæti ekki bent á fólk, sem gæti fyrirvaralitið flutt ein- hverja tónlist, þvi sér fyndist ótækt að hafa engan söng við opnunina. Varð úr að við tókum okkur saman 8 og mynduðum tvöfaldan, blandaðan kvartett. Guðrún Agústsdóttir og Guörún Pálsdóttir sungu sópraninn, Benedikta Benediktsdóttir og ég altinn, Sveinn Björnsson póst- fuiltrúi og Jónas útvarpsstjóri tenórinn og Hallur Þorleifsson og Hallgrimur Sigtryggsson bassann. A gamlárskvöld sungum við svo i útvarpið. Sigurður Þóröarson var svo ánægður að hann spurði Jónas útvarpsstjóra hvort hann mætti ekki halda áfram að æfa þetta fólk svo það væri til taks þegar búa þyrfti til góða dagskrá. Jónas hélt nú það. Við æfðum svo tvisvar i viku allt sumarið i Miðbæjarbarnaskólanum. En er til kom sá rikið sér ekki fært að reka þennan 8 manna kór, það var of dýrt. Þar með lauk hans æviferli. Nú, svo kom kreppan, sala á plötum o.þ.u.l. dróst saman, ýmsar verslanir lokuðu. Ég sá fram á að ég yrði að segja upp hjá frú Viðar. — Hvenær fórstu svo að vinna i tónlistardeildinni? — Ég var fastráðin þar 1935. Páll Isólfsson var tónlistarráðu- nautur i hálfu starfi en við Guðrún Reykholt unnum við deildina. Hvildi starfið mest á okkur vegna ýmissa anna Páls. Og þarna unnum við bara tvær i 22 ár. Þegar ég fór að starfa þarna alfarið átti útvarpið 600 plötur. Ég dreif i þvi að panta plötur og reyna að byggja upp lagerinn þvi Guðrún vann meira i öðru sem snerti deildina. — Hvernig varaðstaðan fyrir tónlistardeildina i Landsima- húsinu? — O, þetta var kotbúskapur. En til þess að byggja upp svona stofnun þurfti gott fólk. Þarna var við ekkert að styðjast allt þurfti að byggja upp frá grunni, jafnframt þvi að hafa þjón- ustuna sem besta. Otvarpinu var fljótlega skipt i deildir. utvarpsráð mátti eigin- lega heita eina deildin, svo var tæknideild, fréttastofa, tón- listardeild, innheimtudeild og auglýsingadeild. Jónas Þor- bergsson var ágætur húsbóndi á þessu heimili. í útvarpsráði voru þeir Alexander Jóhannes- son, Páll Isólfsson og Helgi Hjörvar. Þeim Alexander og Páli mun hafa verið boðin staða útvarpsstjóra, að þvi er ég best veit, en þeir vildu ekki skipta um starf. — Rýmdist ekki um ykkur þegar flutt var i Landsima- húsið? — Jú, en samt voru þrengslin mikil og jukust eftir þvi, sem starfið óx. Oll starfsemin var fvrst á 4. hæðinni en svo fengu útvarpsráð og tónlistardeildin aðstööu á 5. hæð. Ténlistar- deildin fékk heila stofu með skápum og þá var hægt að fara að raða plötunum og skrásetja. Starfið á Tónlistardeildinni var mjög bindandi. Ef von var á manni, t.d. austan yfir fjall til þess að flytja eitthvert efni og hann tepptist vegna skyndi- legrar ófærðar eða af öðrum orsökum, þá varð tónlistar- deildin að vera viðbúin að fylla upp i skarðið á dagskránni. Heita mátti að ógerlegt væri að fara út á kvöldin. Einu sinni var ,ég stödd á Ferðafélagsfundi i Sjálfstæðishúsinu. Þá kom aðal- þjónninn inn i salinn, kallaði upp nafn mitt og sagði að ég væri beðin að koma strax i út- varpið. Ég fór þegar. 1 út- varpinu var fyrir Helgi Hjörvar. Bað hann mig að finna plötu i hvellinum því hann sé með mikla frétt og á undan lestri á henni eigi að spila sorgarmars. Hvað nafði komið fyrir? Jú, Kristján konungur X. var dáinn. s- „U tlendingar hrista bara hausinn ” — segir Jón Sigurbjörnsson, deildarstjóri tœknideildar Einn sá maður, er á að baki sér hvað lengstan, samfelldan starfsferil hjá Ríkisútvarpinu er Jón Sig- björnsson, deildarstjóri tæknideildar. Hann réðist til Útvarpsins 1942og hef ur alltaf unnið við tækni- deildina. Jón sagði okkur, að þegar þrengjast tók um innflutning á striðsárunum tók útvarpiö að sér að sjá landsmönnum fyrir viðtækjum. 1 þvi skyni var sett a fót svonefnd Viötækjasmiðja útvarpsins. Einstakir hlutar tækjanna voru aö sjálfsögðu flutt- ir inn en starfsmenn Viðtækja- smiðjunnar sáu um að setja þau saman. Þetta voru rafhlöðutæki og nefndust Austri, Vestri og Suðri og einnig voru framleidd nokkur viötæki fyrir skipin. Þarna vann Jón til að byrja meö, og — hvað vannstu lengi hjá Viðtækjasmiðjunni? — Það var nú ekki nema svona 1 1/2 ár, þá fluttist ég 1 Tækni- deildina, (raunar var nú Viötækjasmiðjan hluti af henni), og vann þar að útsendingu dagskrár og upptöku efnis, sem raunar var nú ekki mikil á þessum árum. — Hvernig var vinnuaðstaðan hjá ykkur þarna i t'æknideildinni? — Hún var góð framan af a.m.k. samanborið við það, sem seinna varð. Framan af árum var útsendingartiminn margfalt styttri en hann er nú. Þá var hann, ja, svona hvað, 5 klst, á dag að mig minnir, en nú er hann orðinn 17 timar. Dagskráin hefur stöðugt verið aö lengjast og það gerir mjög mikinn mun. Það má segja, að viö höfum nægan mann- afla i deildinni miðaö við það húsnæði, sem viö höfum til umráða. Fleiri komast þar blátt áfram ekki fyrir svo tómt mál er að tala um aö fjölga starfs- mönnum hvað svo sem þörfinni liður. En vinnuaðstaöan er hinsvegar nú orðin óbærileg. Og hún breytist ekki til batnaðar nema byggt verði nýtt hús yfir starfsemina. WtKXr <já Jón Sigbjörnsson Núverandi húsnæði er alls ekki byggt fyrir jafn umfangsmikinn rekstur og útvarpið hefur orðið meö höndum. Þaö er blátt áfram sárgrætilegt til þess að hugsa að sjóðir útvarpsins skuli ekki hafa verið notaðir til bygginga- framkvæmda i staö þess að láta verðbólguna spæna þá upp. — Hvernig eruð þið búnir að tækjum hjá tæknideildinni? — Tækin, sem við höfum nú, voru keypt 1959, þegar flutt var á Skúlagötuna. Sá tækjabúnaður var góður á sinum tima en fram- farirnar á þessu sviði hafa oröið það örar, að þaö, sem gott er 1 dag, er úrelt orðið eftir 5 ár. Auðvitað hefur ýmsu verið bætt inn i þennan búnað þessi 20 ár, en megin uppistaða hans er samt sem áður sú sama. En húsnæðis- þrengslin eru svo mikil, að þau tæki, sem nú eru talin góð, kom- ast blátt áfram ekki þarna fyrir. Arið 1959 var dagskrárgerðin mun einfaldari en hún er orðin nú. Nú er farið að taka miklu meira upp gegnum sima, farið að gera þætti út um land o.s.frv. og til þess þarf fullkomnari búnað. Vöntun á honum háir að sjálfsögðu dagskrárgerðinni og svo eru stúdfóin of fá til þess að hægt sé að inna þar af hendi þá vinnu, sem þörf er raunverulega á. Nú svo er það auðvitað hluti af vinnu okkar hjá tæknideildinni að kynna okkur ýmsar nýungar i sambandi við tækni á þessu sviði. Um það þyrftum við aö hafa mun meiri samskipti og samráð við erlendar útvarpsstöövar en um hefur verið að ræða. Þó hefur nokkuð verið að þvl gert. Viö höf- uní t.d. sent menn frá okkur til norska útvarpsins til þess að kynna sér þar ýmis tækniatriði. Þess er sjálfsagt að geta, aö með tilkomu transistorstækjanna Þannig urðum við að vera við- búin á hverju augnabliki. Eitt sinn hafði ég skroppið út úr bænum. Er ég kom sagði mamma, að viss maður væri alveg að springa þvi hann þurfi að koma boöum til Jónlistar- deildarinnar um að óskað sé eftir söng Karlakórsins Geysis á Akureyri en sá liður sé ekki á dagskránni og eftir að finna plöturnar. Ég þaut niður i útvarp og fann plötur rétt nógu snemma til þess að Þorsteinn elskulegur Stephensen gæti kynnt þennan dagskrárlið, sem var alls ekki á dagskránni. — Starfslið útvarpsins var nú ekki fjölmennt á þessum árum, en þetta hefur verið gott og samvalið lið? — Já, þetta var ákaflega gott fólk, traust og ábyggilegt. Ég má segja, að þá get ég sleppt sjálfri mér, — að það var valinn maður i hverju rúmi. Þegar eitt- Jhvað stóð til hjá okkur talaði Jónas útvarpsstjóri alltaf og þá lagði hann á það áherslu, að starfsemi útvarpsins hvildi fyrstog fremst á herðum starfs- fólksins og velgengni stofnunar- innar væru öllu öðru fremur þvi að þakka. Litið gæti skipstjórinn án góðrar áhafnar. Samvinnan og andrúmsloftiö á þessum vinnustað var einstakt. Ég hlakkaði til þess á hverjum morgni að vakna til starfsins. Tónlistin hefur alltaf verið lif mitt og yndi. Meiri hamingju getur ekki en að fá að vinna að henni alla sina starfsævi. A þessum minningum lifi ég og svo þvi, að hafa kynnst náttúru landsins. Og ekki má gleyma Þjóð- kórnum hans Páls Isólfssonar. Hann byrjaði með Otvarps- kórinn, sem var skipaður 12 manns. En þegar Island var hernumið stofnaði hann Þjóð- kórinn. Hann var að hugsa um tunguna, ættjarðarsöngvana og að allir gætu tekið undir. Þess- vegna söng Þjóðkórinn ein- raddað. Stundum heyrðist spurt: Ifvað er allt þetta fólk að gera hjá útvarpinu? Eruð þið alltaf að spila plötur? Þá sá ég að sumt fólk gerði sér enga grein fyrir þvi hvað þarna var verið að byggja upp. En fólkið i t'ónlistardeiidinni þarf ekki að fyrirverða sig fyrir sin störf. Allsstaðar þar sem menningin birtist i einhverri mynd er tón- listin sterkasti þátturinn. Nú finnst mér þessi ár fremur hafa verið ævintýri en veruleiki. _______ ________ ______- mhg hefur aðstaða til efnisupptöku út um land stórlega batnað. — Nú ert þú búinn að starfa hjá útvarpinu i 38 ár, Jón, og i raun- inni alltaf hjá tæknideildinni. Hvað viltu nú segja, svona þegar þú litur til baka yfir þessa veg- ferð? — Mér fannst ú tvarpið ekki bú- ið að slita barnsskónum þegar ég 'kom þangað fyrst, enda ekki búið að starfa nema i rúman áratug. Breyting hefur orðið alveg geysi- leg á þessum árum. þott fjarri fari, að við höfum getað notfært okkur framfarirnar i nægilegum mæli. Við höfum áður minnst á útsendingartimann. Þegar ég byrjaði var þvi nær allt útvarps- efni flutt beint. Engar upptökur voru þá komnar til skjalanna nema eitthvað litilsháttar á grammafónplötur. Lýðveldishátiöarárið 1944 var i raun og veru ekkert til af tækjum. Til þess að geta útvarpað fra' hátiðinni á Þingvöllum urðum við að fá lánuð upptökutæki hjá hej-num og hljóðnema og hátlara fra BBC., — breska útvarpinu. Svona var nú ástandið þá. Tækninni hefur fleygt fram með ótrúlegum hraða. En við höfum bara ekki aðstöðu til að notfæra okkur hana til neinnar hlýtar. Og þaö verður ekki fyrr en við fáum nýtt útvarpshús. En það sýnist ætla að þvælast fyrir aö koma þvi upp og þá þarf auðvitað einnig að endurnýja tækjabúnaðinn. Það er náttúrlega dálitið þreytandi að vinna ár eftir ár með svona dóti og vita að til er annar og margfalt fullkomnari búnaður. Þegar útlendingar koma og sjá þetta forneskjulega tækjasafn okkar þá hrista þeir bara haus- inn. — mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.