Þjóðviljinn - 17.01.1981, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.—18. janúar 1981
Velvilji í garð ríkisstjórnarinnar
EFNAHAGSÁÆTLUNIN
MÆTIR SKILNINGI
Viðtal við Ólaf Ragnar
Grímsson um viðtökur á
jjölmörgum vinnustöðum
Þessa dagana kynnir Alþýðubandalagið ef nahagsáætl-
un ríkisstjórnarinnar og ræðir stjórnmálaástandið á
fundum víða um land, bæði á almennum stjórnmála-
fundum og með viðræðufundum á vinnustöðum.
Ölafur Ragnar Grímsson formaður þingflokks
Alþýðubandalagsins hefur undanfarna daga talað á
fjölda vinnustaðafunda, bæði í Reykjavík og einnig í
fyrradag á Akureyri, þar sem þeir Stefán Jónsson
alþingismaður, sóttu heim stærstu vinnustaði í bænum
og höfðu framsögu á fundi Alþýðubandalagsins á
Akureyri um kvöldið.
„Á vinnustaðafundunum hefur
komiö fram mikill áhugi, skiln-
ingur og stuðningur launafólks
viö efnahagsáætiun rikisstjórnar-
innar. I raun mun jákvæðari
undirtektir en ég átti von á. A
þessum fundum hafa verið mörg
hundruð launamanna og fólk er
greinilega reiðubúið að taka þátt i
þessari tilraun”, sagði Ólafur
Ragnar Grimsson þegar Þjóðvilj-
inn spurði hann um umræðurnar
á vinnustaðafundunum.
Jákvæöar
undirtektir
,,Ég get nefnt sem dæmi að
siðustu daga hef ég haldið vinnu-
staðafundi með hafnarverka-
mönnum við Sundahöfn, fisk-
verkunarfólki i BÚR og iðnaðar-
mönnum i Landssmiðjunni, og við
Stefán Jónsson vorum á fundum
með fiskverkunarfólki á
Akureyri, starfsfólki Slipp-
Ólafur Ragnar: Mikil reiði út i
Kjaradóm á vinnustöðunum.
stöðvarinnar og ræddum við
starfsfólk i verksmiðjunni
Gefjunni. A öllum þessum stöðum
hafa undirtektirnar i heild verið
mjög jákvæðar, þótt auðvitað hafi
heyrst einstaka gagnrýnisraddir.
Við höfum kynnt höfuðatriðin i
efnahagsáætluninni og siðan ósk-
að eftir fyrirspurnum, ábending-
um eða gagnrýni.”
Vaxtalœkkun og
sparijjárá vöx tun
— Hvað hcfur verið cfst i huga
fólksins á þessum vinnustöðum?
Um hvað hefur helst verið spurt?
„Fólk tekur vaxtalækkuninni
greinilega fagnandiog spyr mikið
um framkvæmd hennar og sömu-
leiðis opnun hinna nýju verð-
tryggðu sex mánaða bankareikn-
inga, og aðgerðir i húsnæðismál-
um. Ennfremur finnst mörgum
furðulegt að tillaga Ragnars
Arnalds og ráðherra Alþýðu-
bandalagsins i rikisstjórninni um
að hnekkja úrskurði Kjaradóms
skuli ekki hafa hlotið stuðning
annarra flokka. Kjaradómur er
mikið gagnrýndur.
Einnig komu fram efasemdir
um að nægilega vel tækist að
framfylgja verðstöðvuninni. Við
hvöttum launafólk til að taka
eftirlit með verðstöðvuninni i
eigin hendur og láta yfirvöld vita,
ef það yrði vart við hækkanir i
verslunum.”
Skilningur á eðli
skiptanna
— Hvað um kaupgjaldsmálin
og frestun 7% verðbóta 1. mars?
„Upphrópanir hægri pressunn-
ar hafa greinilega engan hljóm-
grunn hlotið. Sú aðgerð i efna-
hagsáætluninni að launafólk láti
af hendi 7% 1. mars en fái i
staðinn afnám skeröingarákvæða
Ólafslaga, og skattalækkanir og
fleiri aðgerðir, á greinilega mikl-
um skilningi.að mæta, og satt að
segja kom mér á óvart hve fáir,
hafa á þessum vinnustaðafundum
gagnrýnt 7% skiptin. Ég hélt að
öskur stjórnarandstöðunnar
hefðu haft meiri áhrif. Greinilegt
að skerðingarákvæði Ólafs-
laganna hafa verið svo óvinsæl að
menn meta mikils að fá þau
afnumin, og skattalækkanir fyrir
láglaunafólk eru ásamt vaxta-
lækkun taldar stór plús. Launa-
fólk skilur eðli þessara skipta, og
þátt þeirra i að ná verðbólgunni
niður. Hinsvegar er mikil reiði út
iKjaradóm.”
Millifœrslan ekki
gagnrýnd
— En gagnrýni stjórnarand-
stöðunnar og atvinnurekenda á
millifærsluna?
„bar talar stjórnarandstaðan
greinilega fyrir daufum eyrum.
Ég fann ekki nokkurn mann sem
virðist hlusta á þennan eymdar-
söng i Geirsliðinu og Mogganum
og Davið uppáhellingarforstjóra.
Engin einasta gagnrýnisrödd
kom fram á millifærsluaðgerð-
irnar.” Að lokum sagði Ólafur
Ragnar að þessir vinnustaða-
fundir sýndu að rikisstjórnin
hefði mikinn byr og að efnahags-
aðgerðirnar nytu velvildar. „Við
vöktum athygli á þvi ákvæði
efnahagsáætlunarinnar að fram
eigi að fara viðræður milli
samtaka iaunafólks og
stjórnvalda um mótun frekari
efnahagsstefnu á árunum 1981—2
og hvöttum launafólk til að þrýsta
á forystumenn verkalýðsfé-
laganna um þátttöku i þeim
viðræðum.”
— ekh
Búvörudeild SÍS:
Útflutn-
ingur
minni -
verd-
mætid
meira
Útflutningur Búvörudeildar SIS
nam á árinu 1980 8.585 tonnum
samanborið við 10.222 tonn árið
1979. Verðmæti þessa útflutnings i
islenskri mynt varð hins vegar
8.400 milj. gkr. 1980 á móti 7.500
milj. gkr. 1979. Hafa þvi útfluttar
landbúnaðarafurðir minnkað um
16% i magni á milli áranna, en
verðmætið samt sem áður aukist
.um 11.3% i krónum talið.
Leiðrétting
I dagskrárgrein Þorsteins Vil-
hjálmssonar i Þjóðviljanum i gær
varð sú prentvilla að i millifyrir-
sögn stóð: — Nám eða vinna.
Þetta átti að vera: — Nám er
vinna. Við biðjum velvirðingar á
þessum mistökum.
Litil sjónvarps eftirlitskerfi
á sérstöku kynningarverði
Fyrír litlar verslanir, fyrírtæki ofL Kerfi i. Kr. 5.700
Innifalið i verði: 1. Sjónvarps-myndavél með linsu.
Video Monitor (skjárj, festing fyrir myndavél og 20 m af kapii
með tilheyrandi stungum
Kerfi II. Kr. 9.300 Innifalið i verði: Tvær sjónvarps-myndavélar
með linsum. 1. Video Monitor (skjár) 1. Videoskiptari (milli vélaj
2 festingar og 2x20 metrar af
kapli með stungum
tilbúin til notkunar
^díóstofan bf.
Þórsgötu 14 - Sími 14131/11314