Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.01.1981, Blaðsíða 5
Helgin 17,—18. janúar 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Naudsyn samstödu um okkar kröfur Iðnaðarráðuneytið hefur ítrekað óskir sinar um að skýringar vegna hækkunar á súráisverði tSALS „i hafi” berist ráðuneytinu sem fyrst og ekki siðar en fyrir lok þess mánaðar. Hjörleifur Guttormsson: Reisum kröfur okkar á sann- girnirsjónarmiðum og þeirri þróun sem orðið hefur i heiminum varðandi orkuverð. Iðnaðarráð- herra óskar viðræðna um endur- skoðun álsamningsins 17. til 18. febrúar n.k. Starfi endurskoð- unarskrifstofunnar miðar vel áleiðis Duiarfull hækkun Alusuisse á súráli i hafi og önnur samskipti þess við islenska rikið hafa veriö mjög i sviðsijósinu siðustu vik- urnar. Skýringa f jölþjóðafyrir- tækisins á þessu fyrirbæri er beðið með óþreyju, auk þess sem rikisstjórnin óskaði i desember eftir viðræðum við Alusuisse um endurskoðun álsamningsins. Þjóðviljinn leitaði til Hjörleifs Guttormssonar, iðnaðarráð- herra, um stöðu þessara máia. Hvenær er ráðgert að viðræður hefjist milli islenska rikisins og Alusuisse um endurskoðun samn- ingsins um Alverið? „Eins og menn muna sam- þykkti rikisstjórnin á fundi sinum 9. desember sl. að hið fyrsta skyldu teknar upp viðræður við Alusuisse til endurskoðunar á nú- verandi samningum milli is- lenskra aðila og Alusuisse og þær færu fram hérlendis. 1 samræmi við þetta skrifaði iðnaðarráðuneytið Alusuisse hinn 8. janúar sl. og óskaði eftir að við- ræður um endurskoðun samning- anna og var tillaga gerð um 17.—18. febrúar sem viðræðu- daga. Svar hefur enn ekki borist enda aðeins ein vika liðið frá þvi þessi tilmæli voru borin fram. Ráðuneytið vinnur nú að undir- búningi þessa máls með sérstakri athugun á þeim þáttum er mestu varða, svo sem orkuverði og skattlagningu”. — Hvaða frest hefur Alusuisse til að skila skýringum varðandi hækkun súráls i hafi? „í nefndu bréfi til Alusuisse itrekaði ráðuneytið óskir sinar um að skýringar vegna hækkunar á verði súráls i hafi bærust ráðu- neytinu sem fyrst og ekki siðar en fyrir lok þessa mánaðar. Eins og menn muna kom að- stoðarforstjóri Alusuisse til við- ræðna við ráðuneytið vegna upp- lýsinga þess um mismun á fob- verði út frá Astraliu og til Islands. Hann gaf þá munnlega skýrslu, sem ráðuneytið taldi ekki full- nægja, enda gerði hann ráð fyrir að ýtarlegri upplýsingar fylgdu á eftir. Við óskuðum eftir þvi með bréfi til endurskoðunarskrifstofu Coo- pers & Lybrandt i London, fyrir jól að þeir hefðu samband við Alusuisse og tækju við skýringum þeirra varðandi „hækkun i hafi”, og gerðum Alusuisse grein fyrir þvi að þeir ættu kost á að koma sjónarmiðum sinum á framfæri við endurskoðunarskrifstofuna. Mér er kunnugt um að þeir hafa þegar hagnýtt sér það tilboð”. — Hvernig hefur starfi endur- skoðunarskrifstofunnar miðað? „Ég hygg að starfi hennar miði vel áleiðis, en auk athugunar á „hækkun i hafi” óskaði ráðu- neytið eftir áliti á því hvert telja beri eölilegt verö á súráli milli óskildra aðila á árunum 1975—1980, annars vegar miðað við útflutning frá Astraliu og hins vegar miðað við öll heimsvið- skipti með súrál. Ég vænti þess að álit þeirra um þessi atriði liggi fyrir nálægt næstu .nánaða- mótum, þótt engir eindagar hafi verið settir i því sambandi”. — Hvers væntir þú af þessari endurskoðun? „Ég vonast til að hún varpi ljósi á súrálsmálið þannig að unnt verði að meta ástæður fyrir hin- um mikla verðmun, sem athugun ráðuneytisins leiddi i.ljós og gefi jafnframt grundvöll til að meta hvert telja megi eðlilegt verð á aðföngum álbræðslunnar, þ.e. verð er taki mið af viðskiptum milli óskildra aðila. Þetta er annar þátturinn, sá er varðar fortiðina. Hitt skiptir þó höfuðmáli að við getum náð við- unandi endurskoðun á samning- um varðandi álbræðsluna i Straumsvik, en þeir eru sem kunnugt er bundnir til ársins 1994 og raunar með litlum möguleik- um til breytinga til ársins 2014, nema samkomulag verði um annað. Staða okkar i þessu máli bygg- ist ekki sist á góðri samstöðu hér heima fyrir um þær kröfur sem við hljótum að setja fram og reis- um á sanngirnissjónarmiðum og þeirri þróun , sem orðið hefur i heiminum varðandi orkuverð og fleira á undanförnum árum. Bó Ferdaskritstota KJARTANS HELGASONAR Gnoóavog 44 - Simi 86255 Bæklingar sendir og aörar upplýsingar um skólana. Kynningarfundir verða haldnir á Hótel Loftleiðum, laugardaginn 17. janúar kl. 14 e.h. og á Rein, Akranesi sunnudaginn 18. janúar kl. 14 e.h. Norman Harris, fulltrúi skólanna mætir á fundina. Sýndar verða kvikmyndir um skólana og frá Bournemouth. (2) Pooio (3) WimbQine (4) Blyndford. (ý) Sherborne Samtvinnuð kennsla og ýmiskonar tómstundaiðja, iþróttir, leikir, fyrir- lestrar, skoðunarferðir og aðrar skemmtanir á einum frægasta bað- strandarstað Englands — Bournemouth. Gist er á einkaheimilum, sér her- bergi og aldrei nema einn íslendingur á sama heimili. Lærið ensku í Englandi 39 mismunandi námskeið i 16 skól- um. Starfa Mttárit. ANGLOCONTINENTALEDUCATWNALGROUP CJrvals kennarar og starfslið. Nýtísku kennsluaðferðir og tækni. Opnir fólki á öllum aldri. Ferðaskrifstofa okkar skipuleggur 5. árið i röð sérstakar hópferðir á Nova School i Bournemouth dagana: 31. mai - 21 - 12. júli - 2. ágúst og 6. september. Lágmarksd völ 3 vikur en hægt að framlengja dvöl að vild.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.